Morgunblaðið - 15.07.1964, Síða 2
2
MORGU N BLAÐiD
Miðvikudagur 15. júlí 1964
•a
Fálki með bráð sína í klónum, sem eru sterklegar, eins og
sjá má Myndina tók Ólafur K. Magnússun við Reykjavíkur-
tjörn fyrir nokkrum á'rum, er fálki kom þar í heimsókn <►?
gerði usla.
Fáiki réðist á
bónda í Báriardal
Einstakur atburður, segir dr Finnur
Guðmundsson
SÁ ATBURÐUR átti sér
stað i Bárðardal í vor að fáiki
réðist á bóndann í Svartár-
koti, Höi ð Tryggvason. Var
Hörður að huga að fáika-
hreiðri inn með Skjálfanda-
fljóti, nánar tiltekið við svo-
nefnd Hrafnabjörg. Er hann
var á leið frá hreiðrinu aftur
rissi hann ekki fyrr til en
hann fékk bylmingshögg í
höfuðið, og var þar annar
fálkinn að verki. Risti hann
tvaer djúpar ristur á höfuð
Harðar, og voru þær um mán-
uð að gróa. Er Mbl. átti tal
við Dr. Finn Guðmundssou,
fuglafraeðing, í gær, sagði
Finnur að hann vissi engin
dæmi þess. að fálki hefði ráð-
izt á mann fyrr, hefði aldrei
heyrt þess getið. Taldi Finnur
þetta einstakan atburð.
Mbl. át.ti tal við Hörð í
Svartárkoti í gær, og sagðist
honum svo frá:
„Það var í byrjun maí, að
ég var staddur í Hrafnabjörg-
um við Skjálfandafljót, nok'k-
uð sunnar við bæinn Stóru-
Tungu. Var ég að huga þarna
að girðingu.”
„Skammt sunnan Hrafna-
bjargafossa veitti ég því at-
hygli, að mikill dúnn lá þar
á klettastöpum, og fór að huga
nánar að þessu. Sá ég þá að
þarna var fálkahreiður með
eggjum í, en fálkar hafa áður
verpt þarna í Hrafnabjörgum.
Nú, óg kom-sl heldur auðveld-
lega að hreiðrinu, og Skoðaði
það, en er ég var að ganga
niður frá því aftur, og hafði
ekki aðsiöðu til að líta upp,
vissi ég ekki fyrr en ég fékk
feikilegt högg í höfuðið. Leit
ég þá upp, og sá að þarna var
annar fáikinn að verki. Hann
renndi sér yfir mig aftur, en
í það sinnið var ég viðibúinn,
svo hann lagði ekki til atlögu”
„Eftir dálitla stund fann ég að
blóð fór aJ ieka niður hálsinn
á mér, og komst þá að raun
u-m að fálkinn hafði rifið með
klónuitn tvær rispur langsum
eftir höfðinu á mér. Höfuð-
veík hafði ég allan daginn
eftir höggið.”
„Bkki þurfti ég-að leita til
læknis, en sarin voru lengi að
gróa, eða um mánuð”, sagði
Hörður, og bætti því síðan við
að hann hefði aldrei heyrt
þess getið, að fálki réðist á
menn við hreiður, þótt þeir
hinsvegar flvgju oft rétt hjá
þeim með háu væli.
Eins og fyrr getur átti MM.
stutt samtal við I>r. Finn Guð-
mundsson í gær. Finnur sagði
að hann vissi þess engin dæmi
fyrr né síðar að fálki hafi
ráðizt að mönnum. Finnur
taldi það og athyiglisvert að
þetta skyldi hafa gerzt fyrstu
dagana í maí, og fálkinn því
nýorpinn, en fuglar gerðust
yfirleitt nærgöngalli við menn
eftir að fcggin væru orðin
mjög unguð.
Fréttamaður Mbl. spurði dr.
Finn hvort höggið og um-
merki á höfði Harðar tæki
ekki endanlega af skarið um
hvort fálkinn notaði klærnar
eða slægi með vængnum.
„Það er löngu vitað mál, að
hann notar klærnar, og þurfti
ekki þennan atburð til að
sanna það,“ sagði Finnur. „En
hinsvegar er helmingurinn af
íslenzku þjóðinni þeirrar trú-
ar, að fálkinn slái með vængn
um, og pað þýðir ekikert að
vera að andmæla því.”
Þá sagðx dr. Finnur að risp-
urnar tvær, sem Hörður hefði
fengið, væru eftir klærnar á
afturtám fáikans, en þær eru
aðalvopn haris. Hefur fáikinn
sett báðar afturklærnar í
höfuð bónda.
1 gærdag fóru fulltrúar á fundi fastanefndar Þingroannasambanda Atlantshafsbandalagsins í
flugferð með landhelgisgæzluflugvéUnni Rán og skoöuðu m. a. Surtsey. Myndiu var tekin fyrir
framan skýli Landhelgisgæzlumiar í gær af fulltrúum á fundinum ásamt Pétri Sigurðssyni, for-
sijóra landhelgisgæzlimnar og Garðari Pálssyni skipherra á Káa. — (Ljósm. Mbl. ÓL K. M.j.
— Ike enn hlutlaus
Framhald af bls. 1.
varaforsetaefnL Aftók Scranton
það með öllu, og kvaðst áður
hafa tekið það skýrt og greini-
lega fram að hann yrði ekki í
framboði sem annað en forseta-
efni. Hinsvegar sagði Scranton
að hann mundi styðja hvern
þann mann, sem landsþingið kýs
fyrir forsetaefnL og ekki sitja
á liði sínu.
í kvöld, þegar umræður hefjast
um stefnuskrá flokksins, hafa
stuðningsmenn Scrantons fengið
Christian A. Herter, fyrrum ut-
anríkisráðherra, til að mæla með
breytingum á stefnuskránni að
því er varðar eftirlit með kjarn
orkuvopn. Goldwater hefur lýst
sig fylgjandi því að herstjórn
Atlantshafsbandalagsins hafi að-
gang að smærri kjarnorkuvopn-
Barry Goldwater virðist a-
hyggjulaus á myndinni, sem
tekin var á blaðamannafundi
í San Francisco nýlega.
um, og rétt til að grípa til þeirra
í neyðartilfellum. En fylgismenn
Scrantons telja þetta fráleitt oí
segja að eini maðurinn, sem sam
þykkt getur notkun kjarnorku-
vopna, sé forseti Bandaríkjanna.
Annað mál, sem stuðningsmenn
Scrantons hafa hug á að ræða
á landsþinginu í kvöld, er nýju
mannréttindalögin í Bandai-íkj-
unum, sem Goldwater greiddi
atkvæði gegn á þingi. Fleira er
það í stefnuskrá flokksins, sem
Scranton og stuðningsmenn hans
vilja ræða, enda telja þeir að í
stefnuskránni sé meira tillit tek
ið til óska hægri manna í flokkn
um, þ.e. stuðningsmanna Gold-
waters.
Kemur þetta heim við yfirlýs-
ingu Goldwaters í dag þegar
hann lýsti því yfir að stefnuskrá
in væri í anda flestra repúblik-
ana. Sagði Goldwater að minni-
hluti innan flokksins hefði lengi
ráðið öllu um stefnuskrána, en
núna, þegar íhaldsöflin hefðu orð
ið ofan á, túlkaði stefnuskráin
vilja yfirgnæfandi meirihluta
flokksmanna.
Mörg blöð í Bandaríkjunum
hafa gagnrýnt væntanlegt fram-
boð Goldwaters, en ekkert þeirra
mun jafn harðort og New York
Times í dag. Segir blaðið m.a.í
„Goldwater er svo afturhalds-
samur íhaldsmaður, að það ec
eins og hann lifi í annarlegum
stjórnmálaheimi. Hann hefur
hvorki samstöðu með flokknum
né tímunum, sem við lifum á. í
innanríkismálum er hann svo
gagntekinn hollustu við rétt fyllc
isstjóranna til að ráða sínum
málum, að hann mundi banna rík
isstjórninni afskipti af þeim. I
utanríkismálum á hann það til afS
gefa fljótfærnislegar og ábyrgð
arlausar yfirlýsingar, en það er
einkenni, sem getur verið stór-
hættulegt hjá forseta. Jafnvel
enn hættulegri eru að því er virð
ist yfirvegaðar skoðanir hans á:
að afhenda hernum yfirsi.jóm
kjarnorkumála, á baráttuaðferð-
um til „sigurs“ á kommúnism-
anum, og á samskiptum Banda-
ríkjanna við vinveittar þjóðir.
svo ekki sé minnzt á óvinveittar
þjóðir. Þessar skoðanir gætu, ef
þær kæmust í framkvæmd, leitt
óhamingju yfir þjóðina og heim-
inn“.
Báðir frambjóðendurnir, Gold-
water og Scranton, hafa lagt
mikla áherzlu á að reyna að fá
Eisenhower, fyrrum forseta, til
að lýsa stuðningi við þá.' Eisen-
hower átti fund með fréttamönn
um í San Francisco í gærkvöldL
og var hann þá spurður um hvaða
ráð hann vildi gefa Goldwater,
ef hann yrði kjörinn frambjóð-
andi flokksins. Svaraði Eisen-
hower því til að ef Goldwater
hagaði kosningabaráttu sinni i
samræmi við fyrsta kafla stefnu
skrárinnar, sem felur í sér harða
gagnrýni á núverandi stjórn.
demókrata, „þá get ég ekki séð
að honum geti brugðizt". Hann
gaf ekki frekari skýringar á því
hvers vegna hann tók þennan
kafla stjórnarskrárinnar sérstak
lega, í stað þess að taka ágrein-
ingsatriðin í öðrum kafla stefnu
skrárinnar. En um stefnuskrána
í hpild sagði Eisenhower: „Mér
virðist, eftir því sem ég hef lesið
í blöðunum, að þetta sé góð
stefnuskrá“.
Annað kvöld hefst atkvæða-
greiðsl-er á landsþinginu um fram
bjóðanda flokksins, og eru það
1.308 kjörmenn, sem greiða at-
kvæði. Þarf meirihluta atkvæða
til að ná kosningu, og í dag taldi
Associated Press fréttastofan að
kjörmennirnir skiptust sem hép
segir milli hugsanlegra frambjóð
enda:
Goldwater 781.
Scranton 166.
Rockefeller 107.
Cabot Lodge 45.
Margaret Chase Smith 20.
Fulltrúar einstakra ríkja 105.
Óbundnir 84.
Ágætis ufsaveiði
ÓLAFSFIRÐI, 14. júlí: — ÁgætU
ufsaveiði var í Ólafsfirði sl. sól-
atýiring og bárust á land 70 smá-
lestir í dag. Aflahæstu bátarnir
voru Ármann með 17 smálestir,
Anna með 12 og Uggi með 11.
Engin síld hefur borizt hér á
land sl. viku, en í nótt er von á
Sigurpáli með 1200 tunnur at
austursvæðinu. — J.Á.
í / HA /5 hnutðr
SV 50hnútsr
H Sn/iiomi » Oíl SJ Sítúrir 2 Þrumur KuUatkit ^ Hifttkð
H.Hmt
L-L=*i
J
Á HÁÐEGI í gær var djúp Reykjavík, þar sem annars
lægð skammt suður af íslandi var N eða NA-átt, sem er
og þokaðist norður á bóginn. venjulega þurrviðrasöm í
Olli hún rigningu um allt höfuðborginni. Hér var þó
sunnanvert landið, jafnvel £ hlýtt, 14* kl. 12 og 15.