Morgunblaðið - 15.07.1964, Blaðsíða 6
6
Miðvikudagur 15. júlí 1964
MORGUNBLAÐIÐ
að eðlilegt sé fyrir þróun byggð-
arinnar á Yestfjörðum, að þar
myndist nokkur þéttbýlissvaeði
með fjölbreyttu athafnalífi og
fullkominni þjónustu á sviði
skóla, heilbrigðis- og menningar-
mála. Slíkir byggðakjarnar
rnyndu einnig verða strjálbýlinu
til hagræðis og eflingar. Yfir-
lýsingum kjördæfnisráðsfundar-
ins lýkur með þessum orðum:
„Aðalfundurinn skorar á alla
Framhald á bls. 8
íulltrúar á aðalfundi kjördæmisráðs Sjálfstæðismanna á Vestfjörðum.
I»á voru gerðar ýmsar ályktan-
ir um hagsmunamál Vestfirðinga.
X heildarályktun sem lögð var
lyrir fundinn af stjórn kjördæmis
raðsins var lýst þeirri skoðun,
Ágætur aðalfundur kjördæmis'
ráðs Sjálfstæðisflokks-
ins á Vestfjörðum
Jónatan Einarsson, Bolungarvík einróma
endurkjörinn formaður
AÐALFUNDUR kjördæmaráðs
Sjálfstæðisflokksins í Vestfjarða-
kjördæmi var haldinn í Bjarkar-
lundi í Reykhólasveit og að Voga
landi í Króksfjarðarnesi um síð-
ustu helgi. Sóttu fundinn fulltrú-
ar frá samtökum Sjálfstæðis-
msnna í öllum héruðum Vest-
fjarða.
Jónatan Einarsson, fram-
kvæmdastjóri í Bolungarvík, for-
maður kjördæmisráðsins, setti
fundinn og minntist í upphafi
Ara Kristinssonar, sýslumanns
Barðstrendinga, sem eins og
kunnugt var var einn af forystu-
mönnum Sjálfstæðismanna á
Vestfjörðum. Minntist formaður
þessa mikilhæfa embættismanns
og góða félaga og risu fundar-
menn síðan úr sætum í virðingar
skyni við minningu hans.
Formaður tilnefndi síðan As-
mund B. Ólsen, oddvita á Pat-
reksfirði, til þess að vera fund-
arstjóri. Fundarritari var Jcjör-
inn Óskar Kristjánsson á Suður-
eyri.
Jónatan Einarsson, formaður
kjördæmisráðsins, flutti siðan
ítarlega skýrslu um störf stjórn-
arinnar og kjördæmisráðsins.
Ræddi hann þar jafnframt ýmis
framtíðarhagsmunamál Vest-
fjarða.
Þá fluttu þingmenn Sjálfstæð
isfiokksins á Vestfjörðum, þeir
Sigurður Bjarnason, Þorvaldur
Garðar Kristjánsson og Matthí-
ais Bjarnason ávörp. Ræddu þeir
þar stjórnmálaviðlhorfið en
gerðu einnig mörg hagsmuna-
mál Vestfirðinga og nauðsynleg
ar framkvæmdir og uppbygg-
ingu á Vestfjörðum að umræðu
efni.
Síðan var kosið í nefndir og
fundi síðan frestað til morguns
Var þessi fyrsti fundur aðalfund
arins haldinn í gistihúsinu að
Bjarkarlundi og hóíst kl. 9 um
kvöldið og stóð fram undir mið
nætti. Var ræðum þingmanna
og formanns kj ördæmisráðsins
ágætlega tekið.
Sunnudagsf undurinn
Á sunnudagsmorgun hófst
fundur kl. 10. Var hann haldinn
í félagsheimfiinu að Vogalandi í
Króksfjarðarnesi. Formenn full-
trúaráða Sjálfstæðismanna í hin
um ýmsu 'héruðum gáfu nú
skýrslur um félagsstarfsemina
hver á sínu félagssvæði. Fyrstur
talaði Baldur Bjarnason, bóndi í
Vigur, formaður fulltrúaráðs
Sjálfstæðismanna í Norður-ísa-
fjarðarsýslu. Þá talaði Einar
Ingvarsson, bankastjóri varafor-
maður fulltrúaráðsins á ísafirði
og síðan Arngrímur Jónsson for-
maður fulltrúaráðsins í Vestur-
ísafjarðarsýslu, Vígþór Jörunds
son, formaður fulltrúaráðsins í
Strandasýslu og Jóhannes Árna-
scn, varaformaður kjördæmis
ráðs Sjálfstæðismanna í Barða
strandasýslu.
Þá las Marselíus .Berniharðs-
sont skipasmíðameistari, reikn-
inga kjördæmisráðs og Finnur
Th. Jónsson, verzlunarmaður í
Bolungarvik, gerði grein fyrir
störfum blaðstjórnar.
Stjórnin endurkjörin
Var síðan gert matarhlé.
Fundur hófst síðan aftur að
Vogalandi kl. 3 síðdegis. Fóru
þá fram kosningar í stjórn og
ýmsar nefnir. Formaður kjör-
dæmaráðsins var endurkjörinn
með samhljóða atkvæðum Jóna-
tan. Einarsson í Bolungarvík, en
Jónatan Einarsson, formaður Kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokks-
ins á Vestfjörðum (t.v.) og Sigurður Bjarnason, alþingismaður
frá Vigur. — Ljósm.: Högni Torfason.
Barnamyndir
Ráðsettur maður var að
ræða um dagblöðin við mig hér
á dögunum og mér þótti hann
íhaldssamur í náati sínu á
blaðaefni. Og svo sagði hahn:
„Já, og ekki skil ég í ykkur
að vera að birta allar þessar
barnamyndir.“
Ég spurði við hvað hann
ætti. Jú, það voru giftingar-
myndirnar. Hann sagði, að
þetta blessað fólk, sem gengi
í hjónaband nú á dögum, væri
mest börn, eða hálfgerð börn,
sem enn væru í pilsfaldri
mæðra sinna.
í fyrsta lagi sagði ég honum
að brúðarmyndirnar væru með
al vinsælasta efnis blaðanna,
ekki aðeins á Islandi, heldur
líka í nágrannalöndunum. í
öðru lagi sagði ég, að það væri
alltaf matsatriði hvenær fóik
væri of ungt til þess að gan,ga
í hjónaband. Sumir yrðu aldrei
nógu gamlir.
Óvelkomin
Og svo fór sá gamli auðvit-
að að tala um liðna daga, en
sagði síðan, að nú á dögun
teldust það engin stórtíðindi
þótt 15 ára börn eignuðust börn
— og nýstúdentar væxu otft á
tíðum eins eða tveggja barna
mæður — eða feður. Þann’g
hefði það ekki verið í nans
ungdæmi.
Ég beld að þessi þróun á ís-
landi sé ekkert einsdæmi.
Þannig er þetta víða um lönd,
en hins vegar hljóta að vera
takmörk fyrir því hve ungar
stúikur mega vera til þess að
taka að sér hlutverk móður-
innar. Sennilega ber það of
oft við hjá okkur, að mæðurn-
ar eru of ungar — og fellur
það þá oft í hlut ömmu og afa
barnsins að annast það. Því
miður virðast margir óvelkomn
ir í þennan heim að fyrgreind
um ástæðum.
Bæjarprýði
Myndastyttum 1 bænum hef-
ur fjölgað í sumar. Þær setja
fallegan svip á bæinn og Reyk
víkingar kunna greinilega vel
að meta þetta framtak. Það
kemur varla fyrir, að ekki séu
einn eða fleiri að virða fyrir
sér Útlaga Einars Jónssonar,
•þegar ég ek Hringbrautina,
ekki síður ungir en gamlir.
Vonandi verður haldið áfram
að steypa eftir verkum lista-
manna okkar til þess að prýða
borgina enn meira.
Margir hafa fylgzt með Ás-
mundi síðustu sumrin, því
hann heldur áfram ótrauður
að steypa verk sín í stækkaðri
mynd og það er mikið starf,
sem þar hefur verið unnið.
Og vafalaust á það starf eftir
að gleðja marga um ókomna
framtíð.
Soðin ýsa og steikt
Við höfum sjálfsagt nóg af
veitingahúsunum hér í höfuð-
staðnum. Mér finnst þó allt-
af, að hér vanti eitt veitinga-
hús í viðbót, nefnilega hús,
sem aðeins biði upp á fisk og
fiskrétti.
Við státum af því að vera
mesta fiskveiðiþjóð í heimi
(miðað við fólksfjölda) og all-
stór fiskveiðiþjóð, þótt ekki sé
miðað við höfðatölu. Þetta vita
útlendingar, þegar þeir koma
hingað — og svo sannarlega
búast þeir við að fá mikið og
gott úrval fiskrétta á matsölu-
stöðum.
Þeir, sem ekki fara á dýr-
ustu veitingastaðina, eiga
sjaldnast völ á öðru en soð-
inni ýsu, eða steiktri. Á dýr-
ustu og beztu veitingastöðun-
um er hægt að fá eitt og ann-
að fiskmeti og er það þá eink-
um síld, sem hægt er að velja
úr. Að öðru leyti er lítið um
fiskrétti á flestum veitingastöð
um og útlendingum er helzt
boðið upp á „snitsei“ eða eitt-
hvað þvíumlíkt, sem þeir e.t.v.
eru búnir að fá ofnæmi fyrir
heima hjá sér.
Aum frammistaða
Á íslandi þykir ekki „fínt“
að borða fisk nema lax sé.
Þetta vita aHir. Víða erlendis
þykir hins vegar „fínt“ að fara
á veitingastaði, sem sérhæfa
sig í framreiðslu fiskrétta. Og
þegar tillit er tekið til þess,
að afkoma almennings í land-
inu er að meira eða minna leyti
háð síldveiðunum, þá er það
hálf aum frammistaða hjá okk
ar annars ágætu matsveinum
að hafa ekki margbreytilegri
síldarrétti á boðstólum. Það
er áreioaniega hægt að búa til
þúsuruil mismunandi fiskrétti
úr þeim fisktegundum, sera
berast á land hér — og á ís-
landi ættu að vera þvilíkir
snillingar í að matbúa fisk, að
orð færi af þeim víða um lönd.
— En við höldum áfram að
borða soðna ýsu og gefa gest-
um okkar „snitsel".
meðstjórnendur þeir Marselíus
Bernharðsson, Isafirði, Óskar
Kristjánsson, Suðureyri, Jóhann-
es Árnason, Patreksfirði og Guð-
brandur Benediktsson, Brodda-
nesi. Sðan var kosið í flokksráð
og ýmsar nefndir. sem starfa
innan samtakanna.
Sjálfvirka þvottavélin
LAVAMAT „nova 64“
Fullkomnari en nokrku sinni.
Óbreytt verð.
AEG-umboðið
Söluumboð:
H Ú S P R Ý »1 H.F.
Sími 20440 — 20441