Morgunblaðið - 15.07.1964, Blaðsíða 10
10
MORCU N BLAÐIÐ
Miðvikudagur 15. júlí 1964
{•.'■y.v..
fe V: v
Þeir sluppu yfir um. Tveir bræður, 19 og 21 árs, klöngrast yfir gaddavirinn á landamærunum til V-
Hl? YiJX-aM XftZiAi
Bandarískir stjórnmálamenn taka ekki sjalfa sig alltaf hátíð-
lega — og eiga það til að bregða sér í ýmis gervi til fjáröflunar
fyrir góðgerðafyrirtæki eða til að afla sjálfum sér fylgis. Barry
Goldwater, sem ef að líkum lætur verður forsetaefni repúblik-
anaflokksins við kosningarnar í haust, sló tvær flugur í einu
höggi er hann brá sér í indíánabúning og dansaði stríðsdans af
miklum móð á góðgerðaskemmtun verzlunarmanna í Arizona.
Forsætisráðherra Ceylon, frú Sirimavo Bandaranaike, brosir
kurteislega að því sem sessunautur hennar, Kwame Nkrumah,
forseti Ghana er að segja henni, en ekki vitum við hvað það
var. Myndin var tekin á samveldisráðstefnunni í London.
Lafði Sara hlær þegar Linley
greifi kitlar hana undir hök-
una. Þau hávelbornu skötuhjú
eru annars systkini og börn ljós
myndarans, sem er enginn ann-
ar en Anthony Armstrong—
Jones. Og þá vita víst flestir,
hver það er sem heldur ung-
frúnni í örmum sér, því það er
auðvitað hún mamma hennar,
Margrét prinsessa, sem ól dótt-
urina 1. maí sl.
Kennedy öldungadeildarþingmaður á heimleið. — Edwárd
Kennedy, yngri bróðir hins látna forseta Bandaríkjanna, brosir
lítillega og veifar hendinni er hann hverfur heim frá sjúkra-
húsinu sem hann hefur hýst sl. þrjár vikur, síðan hann lentl
í flugslysinu sem hryggbraut hann.