Morgunblaðið - 26.11.1964, Side 1
28 s'íSur
Tvö barnanna, sem bjargað var úr klóm „þjóðfrelsishreyfingarin nar í Stanleyville“, við komuna til Brussel í gærmorgun. Þau
heita James og Dominique Bo.sne.
Einn fimm-
buranna
látinn
Ottast um þrjá
París, 25. nóv. (NTB)
HINN yngsti frönsku fimm-
buranna, sem fæddust á
mánudag, Jean Luc, lézt seint
í gærkvöldi segir í tilkynn-
ingu frá sjúkrahúsinu þar
sem börnin liggja í sérstök-
um hita og súrefniskössum.
Mjög er óttazt um líf þriggja
barnanna til viðbótar, að því
er segir í fregnum frá Paris.
í tilkynningu, sem út var
igefin af franska heilbrigðis-
málaráðuneytinu \ síðdegis í
dag, segir að barn nr. 4 í röð-
inni, telpan Dominique, hafi
í dag þjáðst af óreglulegum
andardrætti. Monique, sem
fæddist nr. 3, þjáist einnig af
óreglulegum andardrætti. Að-
eins eitt barnið, telpan Cathe-
rine, sem fæddist fyrst, virðist
vera í eðlilegu ástandi, sagði
í hinni opinberu tilkynningu,
en hin þrjú berjast við dauð-
ann.
Hroðalegar lýsingar gislanita frá Stanleyville:
Fólkinu hótað dauða, barsmíð-
um og jafnvel mannáti
Konui og börn drepin miskunnarlaust — Carlson trúboðs-
læknir beið bana er uppreisnarmenn skutu af handahófi
Brussel, 25. nóv. — (NTB) —
FYRSTA flugvélin frá Stan-
leyville með 163 flóttamenn
ínnanborðs kom hingað
snemma í morgun. Á flugvell-
inum tók á móti þeim fjöi-
mennt starfslið Rauða Kross-
íns, og auk þess Albert Belgíu
prins og Paola prinsessa. —
Oislarnir komu með Boeing
707 flugvél frá belgíska flug-
félaginu Sabena. Baldvin kon
ungur og Fabiola drottning
komu heim rétt eftir að
flóttamannaflugvélin lenti,
en þau hættu heimsókn sinni
í Iran vegna atburða síðustu
daga. — Af fyrrgreindum 163
flóttamönnum voru 76 karl-
menn, 49 konur og 38 börn,
þar af nokkrir hvítvoðungar.
Starfsfólk Rauða Krossins,
margt með tárin í augunum,
hlúði að fólkinu með ullar-
Rússar mótmæla að-
gerðunum í Kongó
— Segja mannúðina hafða að yfirvarpi
til að klekkja á ,.ÞjóðfrelsishreYfingunni“
Moskvu, 25. nóv. — (AP)
UTANRÍKISRÁÐUNEYTI
Sovétríkjanna gerði í dag boð
fyrir sendimenn Bandaríkj-
anna, Bretlands og Belgíu, og
var þeim lesin mótmælayfir-
lýsing Sovétstjórnarinnar, þar
sem segir að sending fallhlífa-
hermanna til Stanleyville
hafi verið „frekleg, vopnuð
íhlutun í innanríkismál
Kongó“. 1 yfirlýsingu sinni
hafnar Sovétstjórnin þeirri
skýringu Vesturveldanna að
fallhlífarmennirnir hafi verið
sendir til Stanleyville til að
bjarga hvítum gislum úr
höndum uppreisnarmanna.
Yfirlýsing Sovétríkjanna seg-
ir að þetta hafi verið haft að
yfirskini „til þess að brjóta
á bak aftur þjóðfrelsishreyf-
inguna“ í Stanleyville.
'5'camhald á bls. 2
teppum. Fólkið hafði engan
farangur meðferðis, og fyrir
marga voru börnin það eina,
sem þeir áttu eftir í þessum
heimi.
Hver hafði sína sögu að segja
um það, sem gerzt hafði, um
dauða, barsmíðar, og jafnvel
hótanir um mannát. Margir töl-
uðu hlýlega um hugrekki banda-
ríska trúboðslæknisins Paul
Carlsons. Hann var dæmdur til
dauða, en hugsaði ekki um
sjálfan sig, heldur var ætíð
reiðubúinn að hjálpa þeim, sem
þurftu á aðstoð að halda. Fólk-
ið sagði frá því, hvernig Carl-
son var drepinn, er uppreisnar-
menn í Stanleyville skutu á hóp
gisla er þeir urðu varir belgísku
fallhlífarhermannanna.
MORÐ Á MORÐ OFAN
Paola prinsessa, eiginkona
Alberts ríkiserfingja, huggaði
kvenfólkið, sem kom með flug-
vélinni, en brast síðan sjálf í
grát. Baldvin konungur og
drottning hans komu hinsvegar
aðeins of seint til að geta verið
viðstödd komu gislanna, sem
langflestir eru belgískir.
Hin 14 ára gamla telpa
Chantal Brinkmann er ein
þeirra, sem um sárt eiga að
binda. Hún missti bróður sinn
og 10 ára gamla systur sína,
Soniu. Þau voru bæði sklotin til
bana af uppreisnarmönnum.
Faðir hennar, sem er belgískur,
særðist á höfði og liggur nú í
sjúkrahúsi í Leopoldville.
Ástand hans er talið alvarlegt.
Chantal var leidd úr véiinni af
franska prófessornum Réne
Marcott og 15 ára dóttur hans,
Christiane. Prófessorinn og
dóttir hans báru sig vel, and-
stætt við flesta hina flótta-
mennina.
Utanríkisráðherra Belgíu Paul
Henry Spaak sagði í dag, að
þeir síðustu gislanna, sem voru
í Stanleyville, séu nú farnir það-
an. Búizt er við að tvær flugvél-
ar til viðbótar muni koma með
flóttamenn til Brússel á morgun,
fimmtudag.
MARTRÖÐ — HÓTANIR
l'.M MANNÁT
Einn gislanna, hinn 27 ára
gamli verkfræðingur Max
Debuisson, sagði að dvölin í
Stanleyville hefði verið sann-
kölluð martröð. Hann kvaðst
aldrei mundu fara aftur til
Kongó. Aðrir flóttamenn sögð-
ust hinsvegar mundu fara þang-
að aftur þegar þeir hefðu hvílt
sig, þar sem lifibrauð þeirra
væri þar.
Debuisson sagði að uppreisn-
armenn hefðu margoft hótað þá
þrjá mánuði, sem þeir höfðu
fjölskylduna í haldi að drepa
hann og fjölskyldu hans. Hann
sagði að síðustu þrír dagarnir
hefðu verið verstir.
Ung kona féll í öngvit í sama
mund og hún steig út úr flug-
vélinni í morgun. Þeir, sem
kunnugir voru henni meðal
flóttamannanna sögðu að upp-
reisnarmenn hefðu drepið eigin-
mann hennar og þrjú börn á
meðan á björgunaraðgerðum
stóð í Stanleyville.
Náföl 12 ára telpa var borin
Framh. á bls. 27
Skothríð heyrist
enn í Stanleyville
Kommúnistar og ýmis Afríku- og Asíuríki
mótmæla aðgerðum þar
Leopoldville og Washington,
25. nóv. — NTB — AP.
SKOTHRÍÐ heyrðist af og til
í Stanleyville í dag, bæði í borg-
inni sjálfri og í nágrenni flug-
vallarins. Lítur út fyrir að stjórn
arherinn muni þurfa 2—3 daga
til þess að brjóta alla andspyrnu
á bak aftur. í dag skutu upp-
reisnarmenn á fjórar bandarísk-
ar flugvélar, sem fluttu gisla frá
Stanleyville, en alvarlegar
skemmdir urðu ekki á vélunum
og enginn meiddist.
í kvöld höfðu um 1000 flótta-
menn verið fluttir til Leopold-
ville en enn átti eftir að flytja
um 400 manns þangað. Ekki eru
allir hvítir menn á Stanleyville
svæðinu fundnir. Meðal þeirra,
sem týndir eru, er Adolf Martin
Bormann, sonur Martins Bor-
manns, hins illræmda stríðs-
glæpamanns og eins heizta að-
stoðarmanns Hitlers. Bormann
yngri er kaþólskur prestur, og
fór til Kongó 1061 „til þess að
bæta fyrir syndir föður míns“
eins og hann orðaði það.
Framh. á bls. 27