Morgunblaðið - 26.11.1964, Blaðsíða 14
14
MORCUNBLAÐIÐ
Pimmtudagur 26. nóv. 1964
Útgefandi:
Framkvæmdastjóri:
Ritstjórar:
Auglýsingar:
Ú tbreiðslus t j óri:
Ritstjórn:
Auglýsingar og afgreiðsla:
Áskriftargjald kr. 90.00
I lausasölu kr.
Hf. Árvakur, Reykjavík.
Sigfús Jónsson.
Sigurður Bjarnason frá Vigur
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Árni Garðar Kristinsson.
Sverrir Þórðarson.
Aðalstræti 6.
Aðalstræti 6. Sími 22480.
á mánuði innanlands.
5.00 eintakið.
HINN TVIHÖFÐAÐI
ÞURS
iHiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiitiniiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiimiiiimiiimiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiimiiiiiuimiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii]|
| Skipti urðu á börnum á |
I fæðingadeild í Rússlandi I
Á kommúnistaflokknum
hér á íslandi eru tvö
höfuð. Annað þeirra ber heit-
ið „Sameiningarflokkur al-
þýðu, Sósíalistaflokkurinn“.
Hitt höfuðið hlaut í skírninni
nafnið „Alþýðubandalag“.
Bæði horfa þessi: höfuð í
sömu átt. Þau horfa í austur,
þangað sem byltingin heldur
áfram að éta börnin sín. Þar
er þeirra fyrirheitna land.
Alþýðubandalagshöfuðið
læzt þó í orði kveðnu vera
mótfallið Moskvuvaldi og eins
flokks skipulagi. En þegar for
maður Alþýðubandalagsins
kom frá einu járntjaldsland-
anna fyrir nokkrum árum
lýsti hann því yfir, að kosn-
ingar einsflokks skipulagsins
væru „mjög svipaðar" og kosn
ingar íslendinga og annarra
Norðurlandabúa. Var hann
hinn ánægðasti með það „lýð-
ræði“, sem bannar alla stjórn-
málaflokka nema kommún-
istaflokkinn. Sannaðist þá
greinilega, að Alþýðubanda-
lagshöfuðið var í engu eftir-
bátur Sósíalistaflokkshöfuðs-
ins í lýðræðislegum þroska!
Sameiningarflokkur al-
þýðu, Sósíalistaflokkurinn,
hefur nýlega haldið flokks-
þing sitt. Höfðu undanfarið
verið miklar viðsjár með
mönnum innan hans. En á
þingi flokksins gerðust þau
tíðindi merkust, að harðsoðn-
ustu kommúnistarnir hertu
mjög tök sín á flokknum.
Gömlu Moskvumennirnir
styrktu aðstöðu sína mjög
innan miðstjórnar hans og
lýsa því nú yfir, að flokkur-
inn standi einhuga um for-
ystu þeirra.
Stefnuyfirlýsingar þessa
síðasta flokksþings kommún-
ista hér á landi sýna greini-
lega, að þeir hafa ekkert lært
og engu gleymt. Andstaða
þeirra við uppbyggingu nýrra
atvinnugreina og hagnýtingu
auðlinda landsins sýnir, að
hinn tvíhöfðaði þurs hefur
dagað uppi eins og nátttröll
þjóðsagnanna. Svo hlálega er
komið fyrir honum, að Fram-
sóknarflokkurinn, sem jafnan
hefur komið fram að minnstri
velvild í garð launþega og
verkalýðs, ræður örlögum
hans innan verkalýðssamtak-
anna. Framsóknarburgeisar af
Austfjörðum lýsa því hiklaust
yfir, að þeir setji nú komm-
únistum stólinn fyrir dyrnar
á Alþýðusambandsþingi. Ein-
hvern tíma hefði slík aðstaða
ekki verið talin sigurstrang-
leg fyrir stjórnmálasamtök,
Mæðumar hittust níu drum síðar af
tilviljun — Drengimir vilja báðir
vera hjá sömu konunni
sem umfram allt vilja láta
telja sig verkalýðsflokk.
Kjarni málsins er sá, að hin
tvö höfuð kommúnistaflokks-
ins á íslandi eru bæði veik.
Þau hafa bæði sáran Fram-
sóknarhöfuðverk. Það er
gömul saga og ný, að sá flokk-
ur sem Framsóknarmaddam-
an slær ást sinni á, er glatað-
ur. —
HJARTAVERND
CJtofnun Hjartaverndar,
^ landssamtaka hjarta-
og æðasjúkdómavarnarfélaga
hér á landi, er merkilegur við-
burður í heilbrigðismálum
þjóðarinnar. Þessum samtök-
um er ætlað það hlutverk að
hafa forystu í baráttunni
gegn skæðum og stórhöggum
sjúkdómi. Stofnuð hafa verið
19 svæðafélög víðsvegar um
land. Hefur Sigurður Samúels
son, prófessor, átt ríkastan
þátt í þessu félagslega upp-
byggingarstarfi.
Þessi nýju samtök í heil-
brigðismálum landsmanna
munu ekki aðeins beita sér
fyrir hagnýtingu vísindanna
til þess að lækna það fólk, sem
tekið hefur hjartasjúkdóma.
Þau munu ekki síður leggja
áherzlu á hitt, að leiðbeina og
fræða fólkið um það, hvernig
hægt sé að forðast þá. Það
sem mestu máli skiptir hlýtur
alltaf að vera það að koma í
veg fyrir sjúkdómana.
Á sviði læknisfræði og heil-
brigðisvísinda hafa á síðustu
árum orðið stórfelldar fram-
farir. Ný lyf eru fundin upp
og nýjar lækningaaðferðir
framkvæmdar.
En þrátt fyrir það hlýtur
þó jafnan að skipta mestu
máli, að fólkið lifi hollu og
heilsusamlegu lífi. Það er
þess vegna einn þýðingar-
mesti þátturinn í starfi lækna
og heilbrigðisvísinda að kenna
þjóðinni að varðveita heilsu
sína. Hjartavernd mun leggja
á það áherzlu, um leið og sam
tökin skipuleggja baráttuna
gegn hjartasjúkdómunum og
hjálpa því fólki, sem þá hefur
tekið, til þess að ná heilsu
sinni. í þessu mikilvæga
starfi verðskulda samtökin
stuðning og skilning alþjóðar.
ÖRUGGT
VEGASAMBAND
¥ samtali sem birtist hér
* í blaðinu í gær víð Rafn
Pétursson, oddvita á Flat-
eyri, um atvinnumál og önnur
CM þessar mundir er fyrir
dómstólum í Sovétríkjunum
sorgiegt mál, sem varðar
framtíð tveggja níu ára
drengja. Eftirfarandi frásögn
af máli þessu er endursögð úr
danska blaðinu „Politiken“.
Sagan um drengina tvo
hefst fyrir níu árum á fæð-
ingadeild í Sovétríkjunum, en
þar lágu samtímis Yelema
Varvarin og Maria Petrov og
ólu sín fyrstu börn, sem bæði
voru drengir.
Yelema er gift efnuðum
skipasmið, sem býr í litlu húsi
við Garkyvatn. Þau skrrðu
fyrsta barn sitt Shurik, og
hann ólst upp hjá foreldrum
sínum. Þau eru bæði dökk
yfirlitum, og sama er að segja
um yngri systkini Shuriks, en
hann sjálfur er ljóshærður.
En enginn í Varvann-fjöl-
skyldunni gerði sér grillur út
af því. Shurik var mjög veik
byggður drengur og lá oft
lengi í rúminu, en móðir hans
sýndi honurn mjög mikla um
hyggju og hlýju og hann varð
mjög hændur að henni.
Varvarin-fjölskyldan var
mjög hamingjusöm í litla hús
inu sínu, þar til dag einn fyr
ir nokkrum mánuðum, að
Yelema hitti Maríu Petrov af
tilviljun og þær tóku að rifja
upp kynni sín á fæðingadeild
inni. Maria sagði Yelemu, að
drengurinn, sem hún hefði
haft með sér heim af fæðing
ardeildinni væri gerólíkur öll
um öðrum í fjölskyldunni.
Hún sjálf, maður hennar og
yngri börnin væru öll ljós-
hærð, en elzti drengurinn,
Kolja, væri dökkhærður.
Allir töluðu um hve ólíkur
hann væri hinum, og ef til
vill væri hann alls ekki þeirra
barn. Bauð hún Yelemu að
koma með sér heim og sjá
drenginn.
Yelema þáði boðið og heim
sótti Maríu í litla óþrifalega
íbúð, þar sem sex börn flækt
ust hvert fyrir öðru. Fimm
voru ljóshærð, en iþað sjötta
var dökkhærður drengur,
mjög líkur eiginmanni
Yelemu. Og mæðurnar voru
ekki í vafa lengur, það höfðu
orðið á mistök í fæðingardeild
inni og drengurinn í íbúð
Petrov-fjölskyldunnar var
sonur Yelemu. Hún tók Kolja
í faðm sér og drengurinn lað
aðist strax að þessari hlýlegu
konu. Uppvaxtarár Kolja
hagsmunamál fólksins í þessu
vestfirzka sjávarþorpi, kemst
oddvitinn m.a. þannig að orði,
að það sem Vestfirðinga van-
hagi í raun og veru mest um
sé öruggt vegasamband. Hann
leggur áherzlu á nauðsyn
þess, að byggðarlögin komist í
nánara og betra samband inn-
byrðis. Umræður og áætlanir,
sem komið hafi fram um
byggðakjarna og meiri og
höfðu verið erfið. Faðir hans
starfaði að trésmíði, en móðir
hans við hreingerningar, og
hvorugt þeirra hafi nægan
tírna til að sinna börnunum.
Kolja lærði að selja tómar
flöskur og annað skran til
þess að afla sér fjár, iþegar
hann var svangur, og aðeins
níu ára, var hann farinn að
drekka öl og reykja vindlinga
stubba, sem hann fann í
rennusteinunum.
Yelema grét þegar hún
sagði manni sínum frá Kolja,
og nokkrum dögum síðar
héldu þau heim til Petrov-
fjölskyldunnar með Shurik
og fjölda gjafa handa Kolja
og „systkinum“ hans. Yelema
sagði Shurik, að María og
maður heimar, væru foreldrar
hans, en hann faldi sig skelk
aður bak við hana og neitaði
að tala við Petrov-hjónin.
Hann settist út í horn í stof-
unni og horfði undrandi á
Yelemu og mann hennar
kyssa Kolja og klappa hon-
um. En hann varð ekki aí
brýðisamur, og þegar á dag-
inn leið voru drengirnir orðn
ir beztu vinir.
betri samstöðu innan hinna
einstöku héraða, eigi ríkan
hljómgrunn hjá fólkinu. En
til þess að það megi takast sé
vegasamband, sem treysta
megi allan ársins hring, eitt
hið brýnasta framkvæmda-
atriði. Þegar því hafi verið
komið á, geti byggðarlögin
sameinazt betur um ýmis
verkefni, sem hvert einstakt
þeirra fái ekki ráðið við.
Foreldrarnir ákváðu að 3
skipta ekki um dvalarstaði §
drengjanna þegar í stað, en Sj
iþess að þeir gætu vanizt sín- |j
heimsækja hvor aðra oft tit 3
um raunveruelgu foreldrum. 3
Mánuði eftir að Yelema kom =
fyrst heim til Maríu, fór =
Kolja að biðja um að fá að M
fara til foreldra sinna. En §|
Shurik bar ekki fram slíkar 3
óskir. Foreldrarnir ákváðu 3
að leita ráða hjá dómstólun- 3
um. Dómarinn spurði dreng- 3
ina, hvorn í sínu lagi, hvar ||
þeir helzt vildu vera. Kolja 3
kvaðst vilja vera hjá sínuim 3
raunverulegu foreldrum, en §§
Shurik kvaðst ekki vilja fara 3
til sinna foreldra. Var því á- 3
kveðið að drengirnir skyldu 3
unum um tima, en Petrov- M
hjónin heimsækja þá oft og 5
reyna að hæna Shurik að sér. 3
En svo kom að því að Petrov ==
hjónin urðu óþolinmóð og 3
vildu fá Shurik heim með sér. =
Yelema frestaði brottsendingu M
hans eins lengi og hún gat. 3
Þá tóku Petrov-hjónin að hóta 3
að ræna Kolja, og það gerðu 3
þau einn daginn, er hann var =
á leið heim úr skólanum. — =
Eftir þetta féllst Shurik á að 3
fara til foreldra sinna, en með 3
því skilyrði, að Yelema heim 3
sækti hann daglega. Einn dag 3
inn komst hún ekki, og þá |
Frh. á bls. 15 3
Þetta er tvímælalaust rétt
og skynsamlegt. Hinir ein-
stöku landshlutar þurfa að
sameina krafta sína betur en
þeir hafa gert. Einangrun
hinna einstöku byggðarlaga
verður að rjúfa. Stærri at-
vinnu- og félagsheildir verða
að skapast. Það mun létta
fólkinu lífsbaráttuna og skapa
aukna möguleika til framfara
og uppbyggingar.
liiMiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiHiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiii iiiiiiiiiiimiiiiiimiiMmiiitiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiii
báðir búa hjá Vavarin-hjón-
Teikning, sem birtist í „Poli tiken“ og sýnir fyrstu helmsókn
Yelemu til Petrov-hjónanna.