Morgunblaðið - 20.12.1964, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 20.12.1964, Blaðsíða 7
Sunnudasur 20. des. 1964 MORGUNBLAÐIÐ 7 Séra Páll Pálsson: Ó lh 6IHI3 AUSTAN Sólheimasands taka J við broshýrir hvammar, hlíðar og ásar. Á þetta vinale^O og tojarta umhverfi skín oft sói, eins og líka nafnið Sólheimar bendir til, þótt allt í kring ^eti verið þungbúið veðurfar. Þarna standa nokkur friðsæl býli, sem öll eru kennd við hina björtu Sólheima. notast mætti við, þegar þar færu fram greftranir. Gæti slíkt jafn- framt stuðlað að því, að garður- inn, þar sem margir kærir ást- vinir Út-Mýrdælinga væru greftr aðir, mundi síður gleymast eða afmást. Ákváðu nú þessir þrír mienn, að leita stuðnings þeirra, sem kynnu að hafa áhuga á að Ásgeir Pálsson, hreppstjóri, við Sólheimakirkju. Frá fornu fari var kirkjustaður á Sólheimum. En fyrir rúmleiga hálfri öld, var síðasta kirkjan þar, — Sóllieimakirkja, — rifin. Áratugir liðu. Mennirnir breytt- ust og tímarnir með. En áhrif og ítök hins horfna helgidóms í hug um fólksins liðu aldrei undir lok. Nýir tímar og breytt viðhorf hófu innreið sína í land vort og þjóð- líf. Raddir heyrðust víðs vegar um ísland, sem sögðu( að tími kristinnar trúar og kirkju væri liðinn hjá. Þá hófust ýmsir góðir menn handa, sem töldu sér Sól- heimakirkjumálið skylt, og reistu fagra og varanlega kapellu að Sólheimum. Vekur þetta fagra og stílhreina Guðshús nú eftir- tekt margra vegafrenda og hafa ýmsir óskað þess, bæði Mýrdæl- ingar og aðrir, að ég ritaði um hina nýju Sólheimakapellu, að- draganda hennar og sögu. Vil ég nú leitast v.ið að verða við þeim tilmælum. Þess er þá fyrst að geta, eins Og að nokkru er fram.komið, að á Ytri-Sólheimum í Mýrdal var kirkjustaður um margar aldir. Þar er fyrst getið kirkju um alda mótin 1200. Það var Maríukirkja, sem átti hálft heimaland. Voru þar að jafnaði tveir prestar og sungu á tvær t kirkjur og tvö bænahús að auki. Frá þeim tíma hefur kirkja staðið á Ytri-Sól- heimum og allt fram undir síð- ustu aldamót. Með landshöfð- ingjabréfi 15. nóvember 1898, er kirkjan lögð niður ásamt Dyr- hólakirkju ,en ný kirkja reist að Skeiðflöt oig stendur hún enn. Voru margir íbúar hinnar fornu Sólheimasóknar mjög andvígir því, að kirkja þeirra væri lögð niður, en fengu ekki að gert. En hins vegar var haldið áfram að grafa í hina tvo fornu grafreiti að Sólheimum. Sá fyrri varð þó fljótlega fullgrafinn, en í þann síðari er hægt að grafa enn. Þann 4. maí árið 1942 voru þrír menn staddir í Sólheima- kirkjugarði, þeim hinum síðar nefnda, og voru þeir þar að taka gröf. Þetta voru þeir Sigurður Högnason í Sólheimakoti, Sæ- mundur Jónsson í Sólheimahjá- leigu og Ásgeir Pálsson í Fram- nesi. Tóku þeir nú að ræða um grafreitina og framtíð hans. Kom þeim saman um, að æskilegt væri, ef unnt reyndist að reisa eitthvert skýli í garðinum, sem reisa kapellu í sambandi við Sól- heimakirkjugarð. Fengu þeir síð- an til liðs við sig þá bræður Elías Guðmundsson í Pétursey og Þórð Guðmundsson að Völlum. Þar- með voru þessir áhuga- menn orðnir fimm, sem hugðust vinna að því, að reist yrði veg- leg kapella á þeim lítt hirta grunni þeirrar fornu Sólheima- kirkju. Leituðu þeir nú álits þá- verandi sóknarprests í Vík, séra Jóns Þorvarðssonar, þáverandi sýslumanns Skaftfellinga Gísla Sveinssonar og þáverandi biskups íslands Sigurgeirs Sigurðs- sonar. Reyndust þessir þrír aðilar málinu mjög vinveittir og hétu stuðningi sínum við það. Um haustið þetta sama ár var efnt til fjársöfnunar í Dyrhóla- hreppi fyrir væntanlega kapellu og gekk sú fjársöfnun vel og sums staðar prýðilega. Var Ás- geiri Pálssyni síðan falið að afla teikninga og kostnaðaráaetlunar að kapellu, sem gæti rúmað um 60 manns í sæti. Samdægurs var Gísla Sveinssyni ritað bréf og hann beðinn að afla tilskilinna gagna. Sneri Gísli sér þegar til þáverandi húsameistara ríkisins, Guðjóns Samúelssonar, varðandi þetta mál. Seint í desem'ber þetta sama ár / idi svo Guðjón Samú- elsson uppdrætti og kostnaðará- ætlanir að tveimur ólíkum kirkju húsum. Strax og þessum áfanga var náð, sendi Gísli Sveinsson forvígismönnum kapellunnar einkar vinsamlegt bréf, þar sem hann meðal annars vakti athygli þeirra á því, að Matthías Einars- son í Vík, væri einna færastur um, að veita kapellubyggingunni forstöðu. Tók Matthías síðan að sér að annast alla umsjón bygg- ingarframkvæmdanna og tré- smíðavinnu alla. Er hér var komið, var fjár- magn engan veginn orðið nægjan legt og árin héldu áfram að líða. Lánsfjármöguleikar voru engir, þar sem hér var ekki um sóknar- kirkju að ræða, Ekki varð þetta þó til þess, að áhugi forgöngu- mannanna dvínaði, heldur héldu þeir fjársöfnu áfram eftir mætti. Safnaðist nú nokkurt fé til við- bótar því, sem komið var, en rýrnandi peninga tafði þó fram- kvæmdir Árið 1952 var svo sótt um fjár- festingarleyfi og fékkst það loks- ins í marzlok 1953 eftir ítrek- aða beiðni. Sama vor var haTizt handa um byggingu kapellunnar og veggir hennar hlaðnir upp úr vikurholsteini. Og sem áður er getið, annaðist Matthías Einars- son yfirumsjón þessara fram- kvæmda, en Sæmundur Jónsson í Sólheimahjáleigu annaðist dag- lega umsjón verksins. Frá árinu 1953 miðaði byggingunni hægt og sígandi áfram, eftir því, sem get- an leyfði, hverju sinni. Fimm- menningarnir, sem að framan var getið, hlutu liðsinni margra góðra manna. Meðal annars gekkst sóknarnefnd Skeiðflatar- sóknar fyrir almennri fjársöfnun í sókninni. Þegar svo Sólheimakapella var risin af grunni, nam heildarkostn aðurinn kr. 216,000.00. Fjölmarg- ar gjafir og áheit hafa kapellunni borizt, bæði í peningum og helgi igripum og nemur þetta tugþús- undum króna og hafa margir gef- enanna verið nefndir annars ,stað ar, en sumir eru ónefndir: Sólheimakapella er turnlaus bygging. Stærð hennar að utan- máli er 6x9 metrar. Á gafli eru dyr. Einn gluggi er sitt hvorum megin við dyrnar og einn gluggi ofan við þær. Á hvorri hlið eru fjórir gluggar með hömruðu gleri, sem gefið er af Erlingi Sigurðs- syni. Kross úr steinsteypu er á mæni yfir dyrum. Grunnur kap- ellunnar er steyptur. Ofan á hann eru veggir hlaðnir úr vikurhol- steini, einangraðir með vikur- plötum. Þakið er með bárujárni á pappalagðri súð. Að innan er það klætt texi. Á gafli gegnt kór er söngloft. Auk yfirsmiðsins, Matthíasar Einarssonar, unnu við þessar framkvæmdir þeir Þorsteinn ís- leifsson í Vík (trésmíði), Guðjón Benediktsson í Reykjavík (múr- Framhald á bls. 26. balastore Balastore gluggatjöldin gefa heimilinu vistlegan blæ. Balastore gluggatjöldin vernda húsgögnin og veita þægilega birtu. Mjög auðvelt er að hreinsa Balastore gluggatjöldin, að- eins þurrkuð með klút eða bursta. Vegna lögunar gluggatjald- ÚTSÖLUSTAÐIR: Keflavík: Akranes: Hafnarfjörður: V estmannaey jar: Siglufjörður; Borgarnes: Akureyri: Húsavík: Reykjavik: anna sezt mjög lítið ryk á þau. Balastore eru tilbúin til notkunar fyrir hvaða glugga sem er. Þau eru fyrirliggjandi í 23 stærðum frá 45—265 cm. og allt að 200 cm. á hæð. Vinsældir Balastore fara vaxandi. Verð Balastore gluggatjald- anna er ótrúlega lágt. Stapafell h.f. Gler og Málning s.f. Sófinn h.f., Álfafelli. Húsgagnavl. Marinós Guðm. Haukur Jónasson. Kaupfélag Borgfirðinga. Arnór Karlsson. Skóbúð Húsavíkur. kristjan mmm h.f. Laugavegi 13. — Símar 13879 og 17172. OMEGA - Constellation OMEGA úrin Constellation og Seamaster eru með dagatali, sjálftrekkt, vatnsþétt, seg- ulvarin og höggþétt. Hvert einstakt úr er ná- kvæmlega rannsakað og fer ekki á markað, nema fyllilega megi treysta því. Þetta er gjöf, sem sérhver karlmaður er stoltur af. OMEGA

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.