Morgunblaðið - 20.12.1964, Page 11
Sunnudagur 20. des. 1964
MORCUNBLAÐIÐ
11
verksmiðjur (fish-sticks factor-
ies). Var þetta ný verkunarað-
ferð, sem hafði í för með sér ger-
byltingu í framleiðslumöguleik-
um frystihúsanna hér á landi, en
jþó sérstaklega eftir að Coldwater
hóf eigin framleiðslu á tilreidd-
um fiskréttum í verksmiðjunni
í Nanticoke, í Maryland árið 1954.
Eftirspurn og framleiðsla á til-
reiddum fiskréttum hefur síðan
aukizt jafnt og þétt og hefur sala
þeirra ráðið úrslitum um hinn
góða árangur í markaðsöflun á
þessum mikla harðagjaldeyris- og
eamkeppnismarkaði.
Máttur samtakanna
An samtakamáttar og útflutn-
ingsaðstöðu S.H., sem var fólgin
í því, að hafa sem næst einka-
útflutningsrétt ásamt sjávarafurð
erdeild SÍS, hefði aldrei tekizt að
ryðja frystum sjávarafurðum
bráut á erlendum mör; / jm í
jafn ríkum mæli og raun ber
vitni og tryggja íslenzkum fram-
leiðendum jafnframt hæsta fáan-
legt markaðsverð fyrir hið mikla
framleiðslumagn. f þessari erfiðu
uppbyggingu var ætíð lögð
éherzla á, að selja afurðirnar
undir íslenzkum vörumerkjum
„ICELANDIC“ og „FRESHER
BRAND“ og hefur hundruðum
milljóna króna verið varið í
þeim tilgangi í starfstíð Sölumið-
stöðvarinnar. Vörumerkin hafa
hlotið viðurkenningu banda-
rískra neytenda og er íslenzkur
■hraðfrystur fiskur þar af leið-
andi auðseljanleg vara. Er þetta
eérstaklega mikilvægt því að í
þessari beinu markaðsuppbygg-
ingu íslenzkra framleiðenda til
þandarískra neytenda, verða ís-
lendingar óháðir hinum fáu en
eterku heildsölufiskkaupendum,
sem starfa á spákaupmennsku-
grundvelli í in'nkaupum sínum á
fiski hvaðanæva að. Starfsemi
Coldwater og verksmiðjunnar í
Nanticoke tryggir framleiðend-
um innan S.H. árvissar sölur á
miklu fiskmagni í hraðfrystu á-
standi og gerir þeim kleift að
reka frystihús sín á grunvelli
lengri tíma sölu og framleiðslu-
áætlana. Slík framkvæmd leiðir
til meira öryggis og aukins jafn-
vægis í rekstri hraðfrystihúsanna,
en það hefur ómetanlega þýðingu
fyrir sjávarútveginn og þjóðar-
heildina. Þá er það ekki síður
mikilvægt, að sölusamtökin af-
stýra hinni geigvænlegu undir-
boðahættu, sem jafnan fylgir í
kjölfar þess, að margir bjóða
söfcnu vöruna tiltölulega fáum, en
stórum erlendum kaupendum.
Hornsteinninn
Verði markaðsaðstaða S.H. er-
lendis veikt, eða henni teflt í tví-
sýnu, sérstaklega í Bandaríkjun-
um við það, að samtökin klofna
og útflytjendum frystra sjávaraf-
urða fjölgar, er mikil vá fyrir
dyrum, ekki aðeins fyrir fiskfram
leiðendur og útvegsmenn, heldur
einnig fyrir sjómenn og aðra,
sem byggja afkomu sína á sjávar
útvegi. Það er óvarlegt fyrjr smá-
þjóð með takmarkað og einhæft
vöruframboð, að ætla sér að selja
í sundruðu átaki á heimsmörkuð
unum á sama tíma, og stórkost-
leg samrunaþróun erlendra fyrir-
tækja og samsteypa á sér stað í
hliðstæðri verzlun. Slík stefna af
hálfu íslendinga mun leiða til
ófarnaðar og rýra þjóðartekjur
þeirra stórkostlega, þegar fram í
sækir.
Hornsteinn sjálfstæðrar, ís-
lenzkrar markaðsuppbyggingar í
sölu frystra sjávarafurða, er í
dótturfyrirtæki S.H., Coldwater
'Seafood Corporation. Bresti sú
uppbygging, hvort sem er vegna
samstöðuleysis innan S.H. eða
þeirrar stefnu sumra innlendra
forráðamanna, sem vilja gefa út-
flutningsverzlunina alfrjálsa,
brestur mikilvæg forsenda í bar-
áttu þjóðarinnar fyrir efnalegu
sjálfstæði og við tekur óábyggi-
legt kerfi erlendra umboðsmanna
á íslandi, sem þjónar fyrst og
fremst arðvon erlendra kaup-
sýslu- og fjármagnseigenda. í
slíku kerfi verða hagsmunir ís-
lenzks sjávarútvegs léttir á met-
unum. Fyrri reynsla hefur á
óyggjandi hátt sannað framan-
skráð. Er það sjómönnum og út-
vegsmönnum mikið hagsmuna-
mál, að sölusamtökin riðlist ekki,
enda hafa samtök útvegsmanna,
LÍÚ, mangsinnis á aðalfundum
sínum samþykkt yfirlýsingar þess
efnis, að sala á íslenzkum sjávar-
afurðum eigi að vera í höndum
samtaka framleiðenda sjálfra i
hverri framleiðslugrein, og telja
útvegsmenn það mjög varhuga-
vert, að í þeim greinum útflutn-
ingsins, þar sem slík sölusamtök
framleiðendanna eru starfandi, sé
einstökum aðilum veitt aðstaða til
þess að sitja að beztu mönkuðun-
um og vera lausir við að selja á
óhagstæðari mörkuðum og taka
þátt í kostnaði við að vinna nýja.
Markaðskerfi Coldwater
Markaðs- og sölukerfi Cold-
water er í stórum dráttum sem
hér segir:
Aðalsöluskrifstofa fyrirtækis-
ins er í New York. Út frá henni
greinist starfsemin um öll Banda
ríkin. Er markaðnum skipt í þrjú
sölusvæði: Vestur-mið og austur-
svæði. Er sérstakur sölustjóri
fyrir hvert svæði, en selt er í
gegnum tugi umboðsfyrirtækja
víðsvegar um landið. Ýmist er
selt til stofnana eða smásölufyrir
tækja. Helztu afurðir eru: Til-
reiddir fiskréttir frá verksmiðj-
unni í Nanticoke, eða flök og
blokkir. Neyta Bandaríkjamenn
helzt unninna afurða úr þorski,
ýsu, ka / og steinbít. Góð eftir-
spurn hefur jafnan verið eftir
lúðu og humar. f sölum til Banda
ríkjanna og framleiðslu verk-
smiðjunnar hefur oft verið
bryddað upp á ýmsum nýjungum
m.a. nýverið hafin framleiðsla á
svonefndum „Fish-Burger“. Fyrir
nokkrum árum var gerð tilraun
með niðurlagningu síldar, en hún
mistókst, m.a. vegna þess, hve
Bandaríkjamenn eru lítt hneigðir
fyrir síldarneyslu. Var um að
ræða tilraun til að skapa neyzlu-
venju með svipuðum hætti og
gert hafði verið með tilreiddu
fiskréttina.
Átta ár — tíföld söluaukning
Þagar litið er á söluþróunina
í tilreiddum fiskréttum, sem
framleiddir eru í verksmiðjunni
í Nanticoke, er hún ævintýrí
líkust. Munu fá íslenzk fyrirtæki
í einkaeign, séu Loftleiðir undan-
skildar, hafa vaxið svo skjótt á
jafn skömmum tíma og Cold-
water í Bandaríkjunum frá því
árið 1956, en sölumagn verk-
smiðjunnar á tilreiddum fiskrétt-
um hefur verið *em hér segir á
tímabilinu 1956—1963.
Ár: Magn: Aukning
(milljónir lbs.) (1956:100)
um
1956 1.800 100
1957 3.400 188
1958 6.500 365
1959 9.400 522
1960 13.000 722
1961 17.200 955
1962 17.800 988
1963 19.000 1055
Ofangreind aukning talar sínu
máli um hinn mikla og góða ár-
angur í framleiðslu- og sölumál-
um á afurðum verksmiðju S.H.
í Bandaríkjunum. Auk þess eru
seld þar fiskflök í neytendaum-
búðum og blokkir til annarra
framleiðenda. Upþbygging frysti-
iðnaðarins hérlendis á sama
tímabili sýnir m.a. ávöxt þess-
arar starfsemi, en þar á einnig
hmn góði árangur á öðrum mörk-
uðum sinn skerf.
Hjá Coldwater Seafood Corp-
oration starfa nú á skrifstofu, í
verksmiðju og við sölustörf yfir
300 manns. Framkvæmdastjóri
er Þorsteinn Gíslason, verkfræð-
ingur og skrifstofustjóri Geir
Maignússon, viðskiptafræðingur.
Verksmiðjustjóri 1 Nanticoke er
Guðni K. Gunnarsson, efnaverk-
fræðingur. Á liðnum árum hafa
m.a. verið í forystunni vestra:
Jón Gunnarsson, verkfræðingur,
sem vann hið mikla brautryðj-
anda- og forustustarf, þar til
hann lét af störfum í júní 1962,
eftir að hafa starfað hjá S.H. í
17 ár, og Þorsteinn Gislason tók
við. Gunnlaugur Pétursson, nú-
verandi borgarritari, var for-
stöðumaður Coldwater í 2 ár. Þá
hafa starfað þar Ólafur Guð-
mundsson, Pálmi Ingvarsson,
Árni Ólafsson, Sigurður Tómas-
son o. fl. — Er ei-gi ofmælt, þótt
sagt sé, að starfsemi S.H. í Am-
eríku hafi verið mörgum efnis-
manninum mikill reynsluskóli í
sölu og markaðsmálum.
BILA
LÖKK
Grunnur
Fyllir
Sparsl
Þynnir
Bón
EINKAUMBOÐ
Asgeir ólafsson. heildv.
Vonarstræti 12. - Simj 11073
Láiið jólabjöllu
okkar visa
yður veginn til hagkvæmra jólainnkaupa
HeimiESstæki fra heimsþekktum verksmlð|um
AEG
hárþurrkur í handtösku, straujárn, sjálfvh-kar
brauðristar.
BEURER straujárn, 2 tegundir — hitapúðar, 2 tegundir.
DAIMIVIAX kæliskápar, frystikistur. — Hagkvæmt verð.
Jlusqvarna
PHIUPS
vöfflujárn, straujárn, steikarapönnur m/hitastilli.
hrærivélar, straujárn, háfjallasólir, kaffikvarnir,
brýni.
SS ryksugur, bónvélar, hrærivélar, hárþurrkur.
hrærivélar, straujárn, steikarapönnur m/hitastilli.
MIXMASTER
Belax rafmagns nuddtæki með nuddpúðum, Pliilips rafmagns
rakvélar, baðvogir, eldhúsvogir, hárþurrkur, 2ja tóna dyra-
Jólagjafir bjöllur, ódýr vasaljós fyrÍT drengi, gjafakassar með búsá-
höldum fyrir litlu stúlkuna.
MECCANO — PLASTICANT uppeldisleikföng.
Jólaskraut Jdlatrésseríur frá kr. 180,00, varaperur í 12 og 16 ljósa, borð-
skraut, jólasveinar og kirkjur með ljósi o. fl. Útiljósáseríur
með 12 misl. ljósum, kr. 280,00. Mvslitar perur, venjul. perur.
33 ára fagþekking
tryggir yður úrvals vörur
Vinsamlegast litið
i gluggana