Morgunblaðið - 20.12.1964, Blaðsíða 21
Sunnudagur 20. des. 1964
MORGUNBLAÐI 5
2!
ir
Endurminningar Bern-
harðs Stefánssonar
Bernharð Stefánsson: End-
urminningar. Síðara bindi.
Kvöldvökuútgáfan 1964.
BNDURMiINNINGAR og sjálfs-
sevisögur hafa á síðari árum eða
jafnvel áratugum orðið fyrir-
ferðarmikill iþáttur í íslenzkri
bókaútgáfu. Koma jafnan út á
éri hverju margar bækur af
jþecsu tagi, einkum fyrir jól, og
svo hefur einnig orðið að þessu
sinni. Ekki hafa þessar æviminn-
ingar allar verið mikilvægar bók
menntir, enda sumar hverjar
gerðar af litlu efni og því minni
frásagnarlist, og hver annarri
líkar um margt, svo sem lýsing-
ar á vinnubrögðum til sveitar og
sjávar, erfitt tíðarfar, hrakninga
é ferðum um órudda fjallvegi,
yfir óbrúuð fljót og fleira þess
háttar, að ógleymdum lummun-
um og hangikjötinu og kertun-
um á jólunum. Vissulega er það
mikils virði að skráðar séu góð-
ar og glöggar aldarfarslýsingar
hvers tímabils í sögu þjóðarinn-
ar, en síendurteknar frásagnir
um hið sama og með svipuðum
hætti, svo sem tíðkast í mörg-
um æviminningum seinni ára, er
orðið heldur leiðigjarnt lestrar-
efni. Hins vegar er skylt að taka
það fram að innan um allan
þennan ævisagnafjölda, finnast
oft ágætlega sagðar ævisögur,
þar sem rakinn er merkilegur
æviferill manna sem vissulega er
vert að kynnast, bæði að því er
varðar starf þeirra og pærsónu,
og þá ekki sízt viðhorf þeirra til
mála og manna í samtíðinni. —
Einn iþessara manna er Bernharð
Stefánsson, fyrrv. aliþingismað-
ur. Hann fer að vísu að mestu
troðnar slóðir um frásagnarhátt
og tíundar stundum ólþarflega
nákvæmlega smáatriði er litlu
máli skipta, en í heild gefur hann
þó glögga og greinargóða mynd
af veigamestu atburðum lífs síns;
segir í stuttu máli frá þeim þjóð
málum sem efst voru á baugi á
löngum stjórnmálaíerli hans, og
bregður oft upp skýrum og mjög
athyglisverðum myndum af sam
tíðarmönnum sínum og samstarfs
mönnum, en þeir voru margir,
því að Bernharð gegndi mörgum
trúnaðarstörfum bæði heima í
héraði og á Alþingi, var m.a. for
seti Efri deildar Alþingis um
langt skeið og sat einnig við og
við í forsetastóli Neðri deildar
og sameinaðs þings. — í fyrra
bindi ævisögu sinnar (1961), seg
ir Bernharð frá uppruna sínum,
bernskuárum, skólagöngu sinni,
hjúskap og búskap og þingsetu
sinni frá 1923—1935, stofnun
Búnaðarbankans o.fl.. — í síðara
bindinu gerir hann nánari grein
fyrir stjórnmálabaráttunni, allt
til þess er hann lét af þing-
mennsku árið 1959, þá sjötugur
að aldri. Gerðist það með frem-
ur hvimleiðum hætti, því að
nokkru áður hafði Eysteinn Jóns-
son, þá formaður þingflokks
Framsóknarmanna, komið til
Bernharðs og sagt honum hisp-
urslaust, að það væri til þess
ætlast að hann byði sig ekki aft
ur fram til þin'gs. Gerðist þetta
rétt fyrir jól 1958.
Kennir nokkrar beizkju í frá-
sögn Bernhardis um þetta, enda
er honum það ekki láandi. Hann
haifði verið þingmaður Fram-
sóknarflokiksins í 36 ár við góðan
orðstír og kom honum þessi boð-
skapur Eysteins mjög á óvart.
Um ástæðurnar fyrir þessari á-
kvör'ðun er Bernlharð fáorður. En
annaðlhvort hefur hinum ungu
flokkstmönnum legið svo mjög á
að komaist í þingsæti hans, eða
hann hefur eigi þótt nægilega
leiðli.tamur flokksmaður. Þykir
mér hið síðara sennilegra. Ann-
ars einkennir þessa ævisögu Bern
hards hó'gværð og sanmgirni í
dómum um menn og öfgaaust við
horf til þeirra mála, sem hann
gerir grein fyrir. Enda þótt hann
sé hvorki fjölorður eða stóryrtur
þegar hann talar um samtíðar-
menn sína og samverkamenn inn
an þings og utan, má glöggt
greina hverja menn hann metur
mest og fer hann í því efni ekki
eftir neinni flokkslínu, nema síð-
ur sé. Það leynir sér ekiki að
höifundi þessara æviminninga er
gá'faður maður og háttprúður, at-
hugull og sanngjarn en fremur
hlédrægur, en hefur þó ánægju
aif að lyfta glasi á góðra vina
fundi, enda dregur hann enga
dul á það. Tel ég honum það til
gildis eins og svo margt fleira.
Endurminningar Bernhards eru
skemmtilegar og fróðlegar og
liðlega skrifáðar. Þar hefur heið-
ursmaður haldið á penna.
Sigurður Grímsson.
„Síðasta skip suður er falleg bók af hálfu útgef-
andans. Hún er ein af jólabókum ársins, og hún er
ofurlítið skilríki um landið. Við þökkum Breiða-
fjarðareyjum komuna og ætium að endurgjalda heim-
sókn þeirra að sumri.‘
B.B. Frjáls þj. 11. des. s.l.
„ . . . frásagnír Jökuls af liðnum görpum og framtaks-
mönnum margar fjörugar og eftirtektarverðar, sagnir
af mönnum eins og Snæbirni í Hergilsey, Eyjólfi Eyja-
jarli, Guðmundi Scheving (sem var amtmaður Jör-
undar hundadagakonungs í 8 daga), Brynjólfi Bene-
dictsen, séra Eiríki Kúld, séra Ólafi Sívertsen og
mörgum öðrum þeirra styrku stofna sem gerðu
Breiðáfjarðareyjar að íslenzku stórveldi um langt ára-
bil“.
Sigurður A. Magnússon, Mbl. 17. des. sl.
„Já ekki má gleyma hlut hins langt að komna drátt-
listarmanns. Myndir hans eru í ætt við það bezta í
nútíma bókateikningum, verk manns eins og Topolski
og Hogarth. Þær lyfta textanum og hann þeim, hvor-
ugt má án annars vera“.
M. T. Ó., Þjóðv. 13. des. sl.
Þér ákveðið sjálfar hitasi.Qið
hárþurrkan gerir yður kleift
að laga og þurrka hár yðar
heima — og geta tekið heim-
boði með stuttum fyrirvara,
— því eftir tæpan hálftíma
undir hjálmi þurrkunnar —
þar sem þér slappið af með
bók eða blað — er hárið orðið
þurrt og yður líður vel eftir
þægilega hvíld.
Þér ráðið sjálfar hitastigi
þurrkunnar. EVA-hárþurrkan
fæst bæði með borð- og
gólfstatívi.
Verð frá kr: 850,00.
Komið og skoðið hjá
Anna Lilja
Sigurðar-
dóttir
fyrrum húsfreyja að
Vík í Héðinsfirði
fyrrum húsfreyja að Vík
í Héðinsfirði.
F. 19. sept. 1890. D. 3. des. 1964.
KVEÐJA FRA BÖRNUM
OG BARNABÖRNUM
Þú stríddir hér í ströngu langa
ævi
og ströndin þín var lauguð bláum
sævi,
en fjöllin bjuggu yfir yndi og
harmi,
það andaði stundum kalt frá
þeirra barmi.
Þó veittu þau skjól f veðrum
margra átta,
og vísuðu rétta leið í myrkri
nátta,
stóðu um þig vörð i stríði jafnt og
friði
og stæltu þinn kjark — og urðu
þér að liði.
Nú kveðjum við þig með þökk í
hinzta sinni,
þig sem varst okkar ljós í veg-
ferðinni,
þig sem að studdir okkur fetin
fyrstu:
fögnuð þíns herra eilíflega gistu.
Þú miðlaðir okkur ást og fórnar-
lundu
til endadægurs þíns frá fyrstu
stundu.
Hönd þín var ör til gjafa og
góðra verka,
í gleði og harmi varstu æ hin
sterka.
Mannkostum þínum munum við
aldrei gleyma,
mamma og amma — og Víkur-
bænum heima.
Nú standa þau hnipin, Hestfjall
og Víkurbyrða
um Héðinsfjörðinn — og minn-
ingu þína virða.
PIERPONT ÚR
Nýtízkulegar gerðir.
4 VATNSÞÉTT
♦ HÖGGVARIN
i SAFÍRSLÍPAÐ GLAS
'4 ÓBRJÓTANLEG FJÖÐUR
4 17—30 STEINAR
Yfir eitt hundrað mismunandi gerðir fáanlegar
af Pierpont-úrum.
SENDI GEGN PÓSTKRÖFU.
*
Garðar Glafsson, úrsmiður
Lækjartorgi — Sími 100-81.
R. S.