Morgunblaðið - 20.12.1964, Qupperneq 22
MORGUNBLAÐIÐ
Sunnudagur 20. des. 1964
e>n
Á þessari teikningu sést, hvernig arkitektamir, Broberg og Langhans hugsa sér Örestads-
svæðið. A sýnir hvar þeir telja, að fyrst eigi að legjgja brú — eða göng. B sýnir brúarhug-
myndina milli Helsingör og Helsirigborgar og C milli Kastrup og Malmö, eða staðar þar rétt
sunnan við. Svörtu klessurnar á myndinni eiga að sýna núverandi borga- og bæjastæði en
hinar gráu framtíðarbyggðarlög. Skástrikin sýna garða- og skógasvæðin. Hver gráu flat-
anna á að taka yfir u.þ.b. 40 km2 og er reiknað með 100.000 íbúum á hvem flöt.
Dæmið er létt...
ÞVOTTIIR -4- [RílOI = VÉL FRÁ FQIViX
... látið vélarnar um vandann!
CENTRIFUGAL-WASH
Framtíiarskipulag
Eyrarsundssvæðisins?
★ f NÝÚTKOMNU tímariti
danskra arkitekta er skýrt
frá tillögum tveg,gja ungra
arkitekta um framtíðarskipu-
lag Sjálands og Skánar — eða
hins svonefnda Örestadssvæð-
is. Hafa tillögur þessar vakið
mikla athygli og er talið víst,
að þær muni hafa veruleg
áhrif á umræður um skipulag
bæjanna við sundin.
Arkitektamir Peter Bro-
berg og Svan Langhans segja,
að Kaupmannahöfn sé eðlileg-
asta miðstöð og miðpunktur
Sjálands og Skánar. Miðað
við núverandi fólksfjölgun á
þessum landssvæðum megi
reikna með því, að Sjálands-
megin Eyrarsunds verði eftir
100 ár búsettar 5-5% milljónir
manna og Skánarmegin
2—2% milljónir.
★ Það sem vekur hvað mesta
athygli í tillögum þeirra Bro-
ber,gs og Langhans er hvem-
ig þeir hyggjast leysa sam-
gönguvandamálin yfir Eyrar-
sund í framtíðinni.
Arkitektarnir gera ráð fyrir
því, að Svíþjóðarmegin verði
byiggðin eins og breitt band,
allt frá Malmö til Helsing-
borg. Inn i það svæði falla
bæirnir Lund, Eslöx, Barse-
bák og Landskrona. Þar fyrir
austan taka við skógi vaxnir
ásar, — Hallandsás, Söderás,
Návlingeás og Romeleásar,
sem ásamt fleiri nærligigjandi
skógarsvæðum eru í tillögun-
um fyrirhuguð til útivistar,
íþrótta, sumardvala o.s.frv.
Hugmyndir arkitektanna
um skipulag byggðarinnar á
Sjálandi eru að mestu sam-
svarandi þeim áætlunum, sem
að undanförnu hafa verið í
hámæli. Hinsvegar gera þeir
ráð fyrir því, að stöðugt verði
haldið áfram að fylla upp í
Eyrarsund beggja vegna og
skapa þannig ný landssvæði,
er tekin verði fyrir bygging-
ar. Þeir leggja einnig til, að
Salthoimen verði stækkaður,
fyllt út að 6 metra dýpi, og
þar verði einskonar hjarta
svæðisins.
Þá leggja þeir Broberg og
Langhans til, að flugvöllur
verði á suðurhluta Amager.
Telja þeir það beztu og kostn-
aðarminnstu lausnina á flug-
vallarvandamálunum og auð-
velt að flytja starfsemina frá
Kastrup í áföngum.
Til þess að umrætt land-
svæði geti orðið ein heild
segja arkitekarnir nauðsyn-
legt að brúa sundið — og ekki
aðeins á einum stað — heldui
þremur, í framtíðinni.
Þegar Eyrarsundsnefndin
svonefnda skilaði áliti sínu
fyrir tveim árum, gerði hún
ráð fyrir brú milli Helsingör
og Helgsingborg. Var þeirri
tillögu fyrst vel tekið, en síð-
an tóku raddir að gerast há-
værar um nauðsyn þess, að
vegasamband kæmist á sunn-
ar, — og hefur nú að undan-
förnu verið gert ráð fyrir brú
— eða göngum — milli Kast-
rup og einhvers staðar rétt
sunnan við Malmö. Skipu-
leggjendur í Malmö hafa með
hliðsjón af þessu, gert áætl-
anir um veg frá þessari brú,
suður fyrir bongina, og teng-
ist hann síðan aðal-þjóðveg-
inum og jámbrautarlínunni
norður á bóginn, til Stokk-
hólms.
í tillögum Brobergs og
Langhans segir, að í fram-
tíðinni verði sennilega nauð-
synlegt að framkvæma báðar
þessar hugmyndir, — en fyrst
teija þeir heppilegast að
leggja brú eða göng milli
Malmö ag Landskrona. Gera
þeir ráð fyrir því að vegur
verði lagður á uppfyllingu út
í Köge-flóa, u.þ.b. 1—2 km
frá strandlínu. Sveigi hann
upp eftir vesturhlið uppfylltra
landssvæða á Amager, liggi
þvert yfir norðurhiuta Amag-
er að brú við Klövermarken.
Brúin — eða göng — liggi
jafnvel um norðurhluta Salt-
holmen yfir til Barsebák.
Þaðan liiggi svo aftur vegur,
er tengist aðal-þjóðvegin-
um Malmö-Gautaborg-Stokk-
hólmur. Reyndar telja arki-
tektar rétt að skipta umferð-
inni síðar meir, þannig, að
umferðin norður á bóginn, til
Gautabongar og Oslóar liggi
um núverandi þjóðveg — en
fyrir umferðina austur um
Skán og til Stokkhólms verði
lögð ný þjóðbraut, frá Berse-
bák, suður um Söderás og
austur um Hassleholm til
Stokkhólms.
Þeir Broberg og Langhans
telja mikilvægt, að Norður-
löndin sameinist um að koma
upp verzlunar- og samgöngu-
miðstöð er keppt geti við
borgirnar í Norður-Þýzkalandi
og miða tillögur sínar við það.
ÞVOTTAVÉLAR * ÞEYTIVIIIIR -g STRAUVFIAR
Dökkar einlitar
prjóna-terylene karlmannaskyrtur.
Verð aðeins 288 kr.
Röndóttar prjónanylon karlmannaskyrtur.
Verð aðeins 238 kr.
Hvítu karlmanna prjónanylon skyrturnar
ódýru eru til ennþá.
MARTEÍNÍ
LAUGAVEG^^^®