Morgunblaðið - 20.12.1964, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 20.12.1964, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLADIÐ Sunnudagur 20. 'des. 1964 Neyðarsendarnir f FÖSTUDAGS Vísi, hinn 11. desember s.l. skýrir einhver 'blaðamanna frá því, að „fram- ikvæmdastjóri Slysavarnafélgs- ins hafi sent blaðinu harðorða gagnrýni á greinargerð þá, sem Skipaskoðunin hafi komið á fram færi um tilraunir með neyðar- senda“. Ekki veit ég hver þessi „fram- kvæmdastjóri Slysavarnafélags- ins“ er, en sé hann sá hinn sami, sem skrifaði lofrollu um Lands- síma íslands síðastliðið vor í til- efni af mínum skrifum þá um þjónustu eða þjónustuleysi Landssímans við atvinnuvegina í talstöðvarmálum, þá furðar mig ekki þótt eitthvað hafi verið bog- ið við öll blaðaskrifin nýlega um neyðartalstöðvarnar. • Ég hefi sjaldan orðið jafn undrandi og yfir þeim skrípa- leik, sem þá fór fram í Faxa- flóia oig einnig yfir auglýsinga- áróðri Landssímans af því til- efni. Taldi ég víst að einhver málinu kunnugur myndi leið- rétta frásagnir blaðanna og loks kom viturleg og sannorð leiðrétting frá Páli Ragnarssyni sjóliðsforingja hjá Skipaskoðun ríkisins. En í tilefni þeirrar fram- hleypni og heimsku, sem í nefndri Visisgrein er höfð eftir „framkvæmdastjórá Slysavarna- félagsins, þá get ég ekki setið á mér að kynna aðstandendum, og þá einkum sjómönnum, álit mitt. Þar er fyrst að nefna notkun, eða öllu heldur misnotkun, neyð- arbylgjunnar hér á landi. Sendr kristallar fyrir neyðartíðni eru skv. skyldu í öllu senditækjum skipa og nú orðið einnig í vel flestum talstöðvum bifreiða, sem nota 2790 og 3255 krið/sek til viðskipta. Gefi uppkall ekki ár- angur á viðskiptatíðnunum, þá er bæði í bílum og skipum igripið til uppkalls á neyðarbylgjunni og oft fara þar fram talviðskipti að óþörfu. í frásögnum af skáta- leiknum í Faxaflóa-með neyðar- talstöðvarnar sex er þess getið, að skilyrði fyrir tilraunirnar hafi óhagstæð, af því að neyðartíðnin lnafí verið trufluð af uppkalli ýmissa aðila. Þessa og álíka mis- notkun neyðarbylgjunnar ber að víta og ætti „framkvæmdarstjóri Slysavarnafélagsins" að hafa þar forgöngu í stað þess að stjórna leiknum og auglýsingaherferð Landssímans. Næst kemur þáttur Landssím- ans, sem þó samkvæmt íslenzk- um.réttritunarreglum á að skrifa með litlum upphafsstaf. Að beiðni Slysavarnafélags íslands mun Landssíminn hafa smíðað nokkra tugi bakpokatalstöðva með 15 watta sendiorku til stað- setningar í skipbrotsmannaskýl- um víðsvegar um landið og til afnota fyrir leitarflokka á landi. Þá mun Landssímann hafa leikið sér að þeirri huigmynd að þessar bakpokatalstöðvar megi nota í triliubátum. Þaðan kemur svo hugmyndin um hæfni þeirra sem neyðartalstöðva. Nú er það svo, að stærstu sigl- ingaþjóðir heims hafa reynt að gera sér grein fyrir hvernig neyðartalstöðvar þurfi að vera Igerðar svo þær komi skipbrots- mönnum að gagni í sjó, í gúm- 'bát eða stærri björgunarbát. Til dæmis hefur brezka Póststjórnin gert þar um vissar kröfur, en síð- an hafa brezkir framleiðendur smíðað litlar handtalstöðvar, sem uppfylla þessar kröfur. Tal- stöðvarnar þurfa t.d. að geta flotið á sjónum án þess- að skemmast og vera nothæfar manni, sem velkist í sjónum í bjöngunarvesti. Mér er tjáð að hin auglýsta skozka „Linkline“ neyðartalstöð uppfylli þessi skilyrði. Hinsveg- ar veit ég með vissu að svonefnd „LIFECRY" neyðartalstöð upp- fyllir skilyrði brezku Póststjórn- arinnar og hefur verið prófuð og viðurkennd af henni, þótt ekki hafi hún verið með í prófun- unum í Faxaflóa. Hún er steypt inn í gúmhulu, kassinn er vatns- þéttur og hún flýtur á sjónum. Brezka Póststjórnin hefur sann- prófað að hún dreigur frá 50-150 sjómílur, allt eftir viðtökuskil- yrðum og hana má miða allt upp í 200 sjómílur. Þó er sertdiorka þessarar neyðartalstöðvar að- eins 0,4 wött éða um einn fertug- asti hluti af sendiorku bakpoka- stöðvar Landssímans. Svipaða sendiorku tel ég að „Linkline" og aðrar, erlendis viðurkenndar, neyðartalstöðvar, sem prófaðar voru í Faxaflóa, hafi haft. Því er ekki að undra þótt bakpokastöð- in hafi haft vinninginn, því hún var 40 sinnum sterkari. En hvað um bakpokastöðina? Hve þung er hún? Getur hún flotið á sjónum- Hefur hún þurrafhlöður? Er hún vatnsþétt? Hefur hún verið prófuð og við- urkennd af brezku póststjórninni til þessarar not.kunar? Ætiar Landssíminn að framleiða hana í hundruðum til notkunar í igúm- bátum og fyrir skipbrotsmenn fljótandi í björgunarvesti? Hvaða „data“ hefur þessi neyðartal- stöð? Æsk+legt væri að Landssíminn gæfi upp: Fyrir sendinn: Power output, power amplifier efficiency frequency stability. temp- erature range, depth of modul- ation, aerial / system. power supply, Fyrir viðtækið: A.F output, frequency staibility, temperature range, signal/noiee ratio, battery life. Fyrir tækið í heiid: Weight and dimensions. Lesendur mínir fyringefi mér þótt ég telji þessa hluti upp á ensku, en þetta eru þau atriði, sem erlend „alvörúfyrirtæki“ telja sér skylt að gefa upp um fram!eið,slu sína. Þá er kaupand- inn ekki blekktur, enda tryggja póststjórnir landannan þaíj Hvernig er þessi skylda póst» stjórnarinnar rækt hér? Reykjavík, li. des. 1064 Stefán Bjarnason, verkft Skinnhanzkar fóðraðir og ófóðraðir. Kærkomin jólagjöf. Hattabuð Reykjavíkur Laugavegi 10. í DAG X^r'íjy' Ív.víaíA jVJ' V-^vavS' AT.«v., Heimdragi Reimleikar Lífsorrustan Hamingjuskipti Neydarkall frá noröurskauti Skytturnar l-lll Börnin í Nýskógum Anna í Grænuhlíð I—II Margt er sér til gamans gert Fimm í hers höndum Dularfulla hálsmeniö Dagbók Evu >w.v. V.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.