Morgunblaðið - 29.04.1965, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 29.04.1965, Blaðsíða 11
Fimmtudagur 29. apríl 1965 11 MORCUNBLAÐIÐ Stefán Guölaugsson Fæddur 6. des 1888. Dáinn 13. febrúar 1965. STEFÁN Guðlaugsson, skipstjóri og útgerðarmaður, fæddist í Gerði í Vestmannaeyjum 6. des. 1888. Bjó hanp þar allan sinn feldur og var alltaf kenndur við þann stað. Hann andaðist laugardaginn 13. tfebrúar sl. eftir langvarandi van- lieilsu. Kvaddi þar einn af mestu fejómönnum Vestmannaeyja. Hann var sonur Guðlaugs Jóns- sonar og konu hans Margrétar Eyjólfsdóttur frá Kirkjubæ, sem fcjuggu rausnarbúi í Gerði. Stefán hóf strax sjómennsku á unga aldri og fór fyrst til sjós 12 ára gamall, aldamótaárið, méð Jóni frænda sínum á sexæringn- um Halkion. Stefán var á vertíð í hálfan mánuð og fékk 20 til hlut ar, sem þótti gott af hálfdrætt- ingi. Sem hálfdrættingur heila ver- tíð var Stefán ráðinn aðeins 15 ára gamall, á tólfæringinn ísafold árið 1903. Þá voru liðin 114 ár síð- an 12-æringi hafði verið haldið út frá Vestmannaeyjum. Formaður var hinn kunni sjó- eóknari og aflamaður Friðrik Svipmundsson frá Löndum. Ver- tíðina 1905 var Stefán, 16 áia gamall, ráðinn fyrir heilum hlut á Immanúel, sem var tíróinn, for- maður Jóel Eyjólfsson frá Kirkju bæ. — Þegar vélbátaöldin hófst upp úr 1906 varð Stefán háseti é vélbátum, m.a. á m.b. Berg- þóru með Magnúsi í Dal. Auk sjómennsku stundaði Btefán á sumrin mikið fuglaveið- ar og eggjatöku, sem títt var í Vestmannaeyjum, lá Stefán mörg íumur við að veiða í Elliðaey og Suðurey, en hann þótti hinn bezti veiðimaður, lipur og snarpur í íjöllum. Árið 1909 hóf Stefán for- mennsku á fyrsta vélbátnum með nafninu — Halkion. Bátur þessi var 8,75 lestir, með 10 hestafla Dan-vél, súðbyrtur oig smíðaður i Frederikssund í Danmörku, eins og fjölmargir fyrstu vélbátanna Var Stefán eigandi að bátnum ásamt fleirum. Stefán var síðan óslitið formað- ur þar til hann lét af formennsku haustið 1956 — eða samfleytt í 47 ár. Var hann þá elzti starfandi tformaður í Vestmannaeyjum og mun enginn hafa verið eins lengi samfleytt starfandi skipstjóri frá þessari stærstu verstöð landsins. Nær alltaf var Stefán formaður á báti með nafninu Halkion. Á sinni löngu sjómannstíð var Stefán sérstakur gæfumaður sem íormaður, aflasæll og heppinn, og hafði ávallt á að skipa úrvals mönnum, sem fylgdu honum í fjölda ára. Sótzt var eftir að íkoma unglingum í skiprúm til Stefáns og voru síðan mangir þeirra í skiprúmi hjá honum í ératugi. Formennska og útgerð Stefáns einkenndist alla tíð af sérstakri tframsýni og stjómsemi, en af- burða sjómennsku og skipstjórn Stefáns var viðbrugðið. — Var Stefán sérstaklega veðurglöggur ©g sótti sjóinn fast. Stefán var einn sá fyrsti, er hóf netaveiðar við Vestmannaeyj ar. Á hinum erfiðu timum eftir 1930 tókst Stefáni með dugnaði sínum og útsjónasemi við verkun þurrafisks að losa sjg og fleiri útgerðarmenn úr hinum harka- legu tökum heimskreppunnar. Stefán Guðlaugsson var því einn þeirra manna, sem með sókn sinni á fengsæl mið og framtaki byggði upp hina blómlegu byggð í Vestmannaeyjum og lifði og tók þátt í hinni stórkostlegu at- vinnubyltingu 20. aldarinnar. Stefán hóf sjómennsku á ára- 6kipi föður síns og frænda og hélt bann áfram útgerð á þeim grunni, sem lagður var, og sótti ávallt á brattann til meiri og betri fram- fara með því að fylgjast með tækni og nýjungum á hverjum tíma. Stefán lifði það að sjá syni sína halda glæsilega uppi merk- inu að hætti hans sjálfs. Síðasta ferð Stefáns niður að höfn var í janúar síðastliðnum, þegar hann fór að skoða nýjan Halkion — glæsilegasta skip Vestmannaeyjaflotans í dag. Þessi aldni sæigarpur mátti sannarlega muna tvenna tímana, sexæringinn Halkion í nausti á hafnlausri strönd og svo vélskip- ið Halkion 260 tonna skip, í einni myndarlegustu og öruggustu hafnarkví landsins. Stefán Guðlaugsson gat með ánægju litið yfir lokið dagsverk, hann var einn þeirra, sem hafði í orðsins sönnu merkingu ávaxt- að sitt pund. Stefáns hægri hönd var kona hans, Sigurfinna Þórðardóttir, sem lifir mann sinn. Hjónaband þeirra var sérleiga farsælt og voru þau hjón ávallt sem eitt í blíðu og stríðu, þau 55 ár, sem þau lifðu saman. Börn þeirra á lífi eru: Guðlaugur, framkvæmda- stjóri, Þórhildur, húsfrú, Gunnar, vélstjóri og Stefán, skipstjóri á Halkion, uppeldisdóttir þeirra hjóna er Ragna Vilhjálmsdóttir, systurdóttir Sigurfinnu. Öll eru þau búsett í Vestmannaeyjum. Heimili þeirra Stefáns og Sigur finnu var rómað fyrir gestrisni og glaðværð og var þangað gott að koma. Jafnframt því, að Stefán var einn helzti sjósóknari og útigerð- armaður sinnar tíðar, ráku þau hjón mikinn búskap, miðað við stærð búa í Vestmannaeyjum, á jörðinni í Gerði. Utan róðra stóð Stefán sjálfur í miklum jarðabótum, og stór- bætti og jók jörðina í Gerði. Stefán .Guðlaugsson var fram- sýnn maður og stórhuga um fleira en útgerð og búskap, hann studdi með ráð og dáð öll helztu framfaramál sjómanna i Vest- mannaeyjum. Stefán lagði m.a. drjúgan skerf til kaupa á björgunar- og varð- sikipinu „ÞÓR“ til Eyja árið 1919. Menntunarmál sjómanna voru honum ávallt efst í huga og við setningu Stýrimannaskólans í Vestmannaeyj um sl. haust, var afhent sparisjóðsbók með rúmum 22 þús. kr. ásamt vöxtum frá Stefáni og Sigurfinnu, en árið 1962 höfðu þau hjónin gefið 20.000 kr. til væntanlegs Stýri- mannaskóla í Vestmannaeyjum. Var þessi upphæð stofnupphæð tækjasjóðs skólans. Hefur enginn einstaklingur sýnt þessu framfaramáli sjó- manna eins mikinn áhuga og Stefán Guðlaugsson. Fyrir störf sín hlaut Stefán riddarakross hinnar íslenzku fálkaorðu fyrir nokkrum árúm. Hinn 24. janúar sl. gerði Skip- stjóra- og Stýrimannafélagið „VERÐANDI" Stefán að heiðurs- félaiga sínum, var það að tillögu Jóhanna Hemmerts Skagaströnd - Minning allra fremstu formanna i Vest- mannaeyjum, og eins og segir í heiðursskjali, „vegna nær hálfrar aldar farsællar skipstjórnar og stuðnings við framfaramálefni sjómannastéttarinnar fyrr og síð- ar.“ Stefán var vissulega vel að þessum heiðri kominn. Útför Stefáns var gerð frá Landakirkj u, laugardaginn 20.. febrúar sl. að viðstöddu fjöl- menni. Kvöddu þar Vestmannaeyingar einn sinna beztu sona, sem bar ávallt hag og farsæld heima- byiggðar fyrir brjósti. í fegursta veðri vetrarins, logni og S'kyni síðdegissólar, var hinn aldni sjómaður lagður til hvílu í nýjum grafreiti í kirkjugarði Landakirkju, örskammt frá fæð- ingarstað -sínum, þaðan sem er fegúrst útsýn yfir byggðina og höfnina. Minning góðs sjómanns ag framfaramanns mun lifa. Honum fylgir virðing og þakk- læti eftirkomenda. ÞANN 7. febr. s.l. andaðist í sjúkrahúsinu á Sauðárkróki Jón Jónsson á Bessastöfðum í Sæ- mundarhlíð 79 ára að aldri. Hann var fæddur að Valabjörgum á Skörðum 8. jan. 1886. Voru for- eldrar hans þau hjónin Jón Guð- varðarson bóndi á Valabjörgum og Oddný Sæmundsdóttir, bónda í Syðra-Skörðugili í Langholti. Guðvarður afi Jóns var sonur Halls bónda í Geldingaholti, Ás- grímssonar og fyrri konu hans Maríu Ólafsdóttur, prests í Kvía bekk í Ólafsfirði og var þvi Gu'ð- varður, sem bjó í Holtskoti í Seyluhreppi albróðir sr. Jóns Hallssonar, prófasts í Glaumbæ. Jón ólst upp á Valabjörgum með foreldrum sínum til 15 ára aldurs, en þá flutti fjölskyldan að Holtskoti, þar sem afi Jóns hafði áður búið. Árið 1914, tók Jón við af for- eldrum sínum og ári síðar þann 27. maí 1915 kvæntist hann Soffíu Jósafatsdóttur frá Krossa nesi í Vallhólmi. Soffia var eitt af tíu börnum er upp komust, þeirra Krossaneshjóna Jósafats Gurðmundssonar og Guðrúnar Ólafsdóttur. Soffía var vel gerð kona og merk, sem stóð við hlið manns síns um nær hálfrar aldar skeið, sem samhentur, traustur og tryggur lífsförunaut- ur. Auður var aldrei í garði þeirra hjóna, en heimili þeirra var ávallt með myndarbrag og gestrisni þeirra og veitingum við brugið. í Holtskoti bjuggu þau Jón og Soffía til ársins 1927, síðan í Geldingaholti og þá Glaumbæ um 17 ára skeið. Fluttu þá að Ingveldarstöðum á Reykja- strönd en bjuggu þar skammt, því árið 1941 brugðu þau búi og fluttu þá að Bessastöðum til sonar síns og tengdadóttur, og í skjóli þeirra og barnabarna lifðu þau til æviloka. Soffía andaðist 22. apríl 1960. Börn eignuðust þau þrjú, og eru þau þessi: Sæ- mundur bóndi á Bessastöðum, kvæntur Mínervu Gísladóttur, Hansína gift Regnari Erni, tré- smið í Reykjavik og Valtýr verzl unarmaður í Reykjavík kvæntur Ósk Jónsdóttur. Eftir að Jón lét af búskap stundaði hann vegagerð á sumr- in og eignaðist við þau störf marga góða_vini og minntist sam vistanna við þá með gleði. Þessi stuttlega upptalning á æviferli Jóns á Bessastöðum ber með sér, áð hann var ekki margbreytileg- ur. Hlutskipti hans var erill bónd ans og erfiði verkamannsins, og aldrei auði safnað, þótt með þrifnaði væri vel af komizt. Það er stundum svo að orði komis-t, að þessi eða hinn hafi ÞÉGAR vér fréttum um nýlát- inn vin eða vinkonu, kemur fram í huga vorn mismunandi minning. Stundum hlý og mild, bundin við langa leið, ef til vill frá æskuárum. Þegar ég heyrði andlátsfregn frú Jóhönnu Hemmert frá Skaga strönd, minntist ég þess að ég var barn um átta ára aldur, þeg- ar ég sá hana fyrst, þessa góðu og glæsilegu konu. Ég gjörði mér ekki þá grein fyrir hvað mikilhæf hún var, hvaða ótal kosti hún hafði að bera, hvað mikil fegurð og list var í öllu hennar lífi, hún var listakona af Guði gjör, einnig mjög vel menntuð. Hún kunni svo vel að lent á rangri hillu í lífinu. Ekki vil ég halda því fram, að svo hafi verfð um Jón á Bessastöðum, og trauðla finnst mér, að þau orð verði höfð um nokkurn þann, sem hefur manndóm til þess að lifa svo lífinu, að honum sé sómi að, og vinnur með gleði þau störf, sem lífsönnin heimtar af hionum hverju sinni. En það ger’ði Jón á Bessastöðum vel og trúlega. En vel má segja, þótt þarflaust sé að velta slíku fyrir sér, ef Jón hefði átt uppvöxt sinn með okkur miðaldra og það- lífsleið hans orðið önnur en hún an af yngri mönnum, að þá hefði varð. Sennilega hefði hann þá átt auðveldara með að fullnægja ríkri námsþrá sinni, og ætla má að sú skáldgáfa, sem hann var gæddur hefði þá náð enn meiri þroska. Og þeim mun meiri á- stæða er til þess að álykta svo, að Jón á Bessastöðum var af allri gei*ð trúr maður og traust- ur, íhugull og vankár. Hann var prýðilega greindur maður, hæg- látur og hlédrægur, gekk hægt um gleðinnar dyr, .en hafði þó yndi af að gleðjast um stund á góðra vina fundi. Börnum sínum var hann hlýr og góður faðir og barnabörnum ástríkur afi, enda voru þau þeir ljósgeislar lífs hans, sem glöddu hann mest. Til þess benda þessar stökur hans: „Hressa tíðum hugann lúða hýru brosin þín, lyndisblfða, lokkaprúða litla stúlkan mín.“ Hér er eitt, sem huga minn, hjartanlega gleður, í fangi minu framtíðin fagnar hlær og kveður. Jón orti talsvert undir nafn- Framhald á bls. 22 varðveita allt það góða, sem henni hafði verið gefið og rækt- að það, og reyndi að gefa öðrum sýn yfir fegurð lífsins og gildi þess. Heima á Skagaströnd stóð hús þeirra hjóna, Hemmerts og frúar undir höfðanum, sem Höfða- kaupstaður ber nafn af, á falleg- um stað skammt frá Einbúanum. Ég kom oft í þetta hús, hjónin voru samhuga um fágun heimil- isins, hann var hinn trausti, á- reiðanlegi, prúði heimilisfaðir. Þau önnuðust uppeldi dætra sinna sem bezt. Báðar voru þær vel gefnar myndar stúlkur. Frú Jóhanna hafði oft barnaheimboð á vorin í húsi sínu, við vorum þar oft mörg saman komin, hún var mjög söngelsk og spilaði á orgel fyrir okkur, og reyndi að vekja hjá okkur sýn yfir fegurð ljóðs og lista. Sagði okkur margt um fegurð Danmerkur, þar sem hún hafði dvalizt um tíma, um siði þar, snyrtimennsku og eitt og annað, sem hún hafði svo glöggt auga fyrir. Hún hafði yndi af að segja frá og kenna jafnvel þeim sem ekki skildu hana, það var list úr safni henn- ar sjálfrar. í heimboðum fór hún út með okkur krakkana eftir að hafa veitt okkur ríflegar góðgerðir, fór með okkur uppá höfðann og leitaði að blómum, sem spruttu þar ótrúlega mörg í skútum og skorum, hún kunni nöfn á þeim öllum, útskýrði um eðli þeirra, lögun og lit. Svo líður tíminn áfram, ég ólst upp til fullorðins ára, og flutti burt úr fæðingarsýslu minni, en missti þó ekki sjónar af vinkonu minni, sem einnig flutti með fjölskyldu sinni til Sauðárkróks, þar bjó hún hjá dóttur sinni, frú Margréti, og tengdasyni, Eysteini Bjarnasyni, kaupmanni. Ég var þá orðin húsfrú hér í Skagafirði og hófust þá ný kynni okkar í milli. Ég var oft lang- tímum á Sauðárkróki, og kom ég þá oft til hennar og töluðum við oft saman í fleiri klukku- tíma. Þá vildi hún kenna mér eitt og annað, sem heyrði til búskapar, en hún hafði alltaf haft áhuga á honum og átt sjálf kýr og hesta þegar hún var á Skagaströnd, enda var hún mikill dýravinur. Einnig var Jóhanna listfeng á hannyrðir og saum svo af bar, hafði svo fagurt val á litum og linum, alltaf sama nákvæmnin og snyrtimennskan í öllu starfi hennar. Eitt sinn sagði hún við mig: „Nú er styttra bilið á mill- um okkar, en var þegar þú varst barn, þá skildir þú mig ekki, sem von var, en nú skiljum við hvor aðra. Ég er stundum ein- mana“, sagði hún, „en við erum það jafnvel öll á ýmsum stund- um. Það er allt orðið svo breytt, allir hafa svo mikið að gera, við eldra fólkið sitjum oft ein, þótt mitt nánasta fólk vilji gjöra allt fyrir mig, hefur það oft ekki tíma“. Einnig sagði hún að hún væri svo lánsöm að eiga hér á staðn- um marga vini og ein yinkona hennar sem oft kom til hennar, sagði oft við mig að hún hefði alltaf farið fróðari og betri af hennar fundi. Svo mun hafa ver- ið með alla sem hana þekktu. Ég bið blessunar bömum hennar og barnabörnum. Blessað var líf hennar með birtu og þrótt, blessuð sé líka dauðans nótt. Blessuð sé sál hennar í sælli heimum. Una H. Sigurðardéttir, SunnuhvolL G.Á.E. Jón Jónsson á Gessastööum-Minning

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.