Morgunblaðið - 29.04.1965, Blaðsíða 25
Fimmtudagur 29. apríl 1965
MORGUNBLAÐIÐ
25
Greinargerð frá stjórn Loftleiða
BLAÐINU hefur horizt eftir-
farandi greinargeró frá stjórn
1 Loftleiða í gær:
/ Stjórn LOFTLEIÐA H.F. þykir
við eiga að gera eftirfarandi
athugasemdir við nokkrar grein-
argerðir af hálfu Félags íslenzkra
atvinnuflugmanna, og einstakra
flugmanna, sem birzt hafa í blöð
um að undanförnu.
1. Frá því er núverandi stjórn
félagsins hóf störf á árinu 1953
hafa flugmenn og aðrir starfs-
menn félagsins ávallt fengið laun
sín greidd á réttum gjalddaga
og að fullu.
2. Stjórnin telur að samningar
hafi náðzt um kaup flugmanna
á hinum nýju flugvélum félags-
ins í ágústmánuði, enda hefur
kaup verið greitt í samræmi við
það samkomulag, án athuga-
semda af flugmanna hálfu þar til
í febrúar nú í ár, er F.Í.A. setti
fram auknar kaupkröfur. Námu
þær kröfur í upphafi samkvæmt
útreikningi LOFTLEIÐA h.f.,
samtals kr. 917.497.00, en sam-
kvæmt útreikningi F.Í.A. kr.
810.000.00. Hefur sú tala verið
notuð í greinargerðum Vinnu-
veitendasambands íslands, en þá
er nokkrum kostnaðarliðum
LOFTLEIÐA h.f. vegna flug-
manna haldið utan við. Svarar
þetta til að flugstjórar í hæsta
launaflokki hefðu kr. 67.500.00 á
mánuði. F.Í.A. hefur réttilega
frá því skýrt að síðar var launa-
krafan lækkuð í kr. 621.325 eða
— Arabalöndin
Framhald af bls. 1.
Hann sagði að allt frá því er
Sameinuðu þjóðirnar gengust
fyrir skiptingu Palestínu 1947
hafi heyrzt raddir og kröfur um
að Aröbum yrði fenginn hluti
ísraels. En þessar kröfur eiga
engan rétt á sér, sagði Eshkol.
í sama streng tók frú Golda
Meir, utanríkisráðherra ísraels í
ræðu í gær. Sagði hún að nauð-
synlegt væri að gera sér grein
fyrir því hvað fælist í tillögum
Bourguiba. Augljóst væri að með
tillögum sínum vildi hann bæta
sambúð Gyðinga og Araba, og
væri það góðra gjalda vert. En
hann gæti ekki ætlazt til þess
að Gyðingar létu af heftdi neitt
af takmörkuðu landsæði sínu.
Leiðtogar hinna Arabaríkj-
anna brugðust mjög illa við til-
lögum Bourguiba, og kallaði
stjórn Egyptalands sendiherra
sinn heim frá Túnis. Svaraði
Bourguiba með því að kalla
heim sendiherra sína í írak og
Sýrlandi. Heima fyrir virðist
Bourguiba njóta stuðnings þjóð-
ar sinnar, og hafa dagblöðin í
Túnis ráðizt harðlega á hin Araba
ríkin fyrir afstöðu þeirra. Þannig-
segir t.d. blaðið „Action" í rit-
stjórnargrein í dag að mótmæla-
aðgerðirnar fyrir framan egypzka
sendiráðið í Túnis í gær sýni að
Túnisbúar muni ekki lengur þola
^móðganir og lognar ásakanir“
Nassers forseta og fylgifiska
hans, sem blaðið segir að séu
svikarar og bleyður.
Lögregluvörður hefur verið
við sendiráð Túnis í Kaíró. Um
tvö þúsund stúdentar, aðallega
frá Palestínu, söfnuðust saman
við sendiráðið í dag, og tókst
nokkrum þeirra að brjótast í
gegn um raðir lögreglumann-
anna. Grýttu þeir sendiráðið og
brutu margar rúður. Einnig
fleygðu þeir logandi kyndlum að
húsinu. Varð það til þess að eld-
ur brauzt út á neðstu hæðinni.
Þegar mannfjöldinn tók að safn-
ast við sendiráðið hafði lögregl-
an kvatt slokkviliðið á vettvang
til að reyna að dreifa mann-
fjöldanum með vatnsslvngum, og
gat slökkviliðið ráðið niðurlög-
um eldsins á nokkrum mínútum.
Mannfjöldinn við sendiráðið í
Kaíró tók nú að kyrja ókvæðis-
orð um Bourguiba forseta, og
greip þá lögreglan til táragass. —
Tókst henni að dreifa hópnum.
kr. 51.777.08 á mánuði. Aðstoðar-
flugmenn skyldu hafa tilsvarandi
laun, er námu samkvæmt út-
reikningi. starfsmanna LOFT-
LEIÐA h.f. kr. 602.777.00 eða kr.
48.939.00 á mánuði, en að sjálf-
sögðu lækka þau laun hlutfalls-
lega, ef miðað er við síðara til-
boð F.Í.A. en launagreiðslur til
þeirra án vísitölu námu kr.
358.751.75 eða kr. 28.604 á mán-
uði. í ritinu „The Economist“
U.K., útgáfu 17.—23. apríl nú í
ár, bls. 335 eru eftirfarandi upp-
lýsingar um hæstu laun þotuflug
stjóra hjá félögum þeim er hér
greinir:
BOAC: Flugstjóri £5,400 eða
ísl. kr. 648.000.00 á ári. Aðstoðar-
flugmaður £ 1,415 eða ísl. kr.
169.000.00 á ári.
BEA; Flugstjóri £4,700 eða
ísl. kr. 564.000.00. Aðstoðarflug-
maður £1,350.— eða ísl. kr.
162.000.00.
SWISSAIR: Flugstjóri £4,685.
— eða ísl. kr. 562.00.00.
JAPAN AIRLINES: Flugstjóri
£4,000. — eða ísl. kr. 480.000.00.
Aðstoðarflugmaður £ Í.932. —
ísl. kr. 231.840.00.
S.A.S.: Flugstjóri eftir 21 ár,
ísl. kr. 568.059.00. Bryjunarlaun:
Kr. 375.521.00. Aðstoðarflugmað-
ur eftir 19 ár, ísl. kr. 392.108.00.
Byrjunarlaun: ísl. kr. 181.988.00.
Amerísk féiög greiða mun
hærri laun en ofangreind félög,
en íslenzkt launakerfi er þar á
engan hátt sambærilegt. Þegar
Þegar stjórnin í Túnis frétti um
árásina á sendiráðið í Kaíró á-
kvað hún að kalla heim sendi-
herra sinn þar og allt starfsfólk.
Segir talsmaður stjórnarinnar að
ljóst sé að starfsfólk sendiráðs-
ins sé ekki lengur óhult í Kaíró.
40 melrapióls-
nemendur
i Keflavík
Keflavík, 28. apríl.
NÝLOKIÐ er námsikeiði meira-
próÆs-bifreiðastjóra í Keflavík
og voru 40 þátttakendur frá
Keflavík og nágrenni og nokkr-
ir lengra að komnir.
Námskeiðið stóð í 6 viikur og
fór kennsla fram fró kl. 6 til 11
á hverjum degi. Gestur Ólafs-
son, yfirmaður Bifreiðaeftirlits
ríkisins, var stjómandi nám-
skeiðsins, en auk hans voru
kennarar við námskeiðið þeir
Adolf Sveinsson, Hákon Heimir
Kristjánsson fulltrúi og Helgi S.
Jónsson.
Námskeið þessi eru nú orðið
mjög fjölsótt, því kröfur um
meirapróf verða fjöl’þættari með
ári hverju.
Búast má við að annað nám-
skeið í Keflavík verði haldið,
svo fljótt sem ástæður leyfa.
— hsj.
AKRANESI, 28. apríl. — Síld
fengu þrir bátar í nótt, Höfrung
ur III. 550 tunnur, Haraldur 460
tunnur og Höfrungur II. 85 tunn
ur og reif nótina. Síldin er hrað
fryst.
Heildarþorskafli báta hér í
gær var 188 tonn. Aflalhæstur
var Sólfari með 70 tonn, þá Haf
örn 40, Anna 28 og Sigurfari 22
tonn. Hér er ms. Stapaíell og
losar olíu. — Oddur.
ofangreindar launagreiðslur eru
teknar til athugunar ber að hafa
í huga að hér er um kaup þotu-
flugstjóra að ræða, en samkvæmt
kenningum F.Í.A. ættu þeir að
fá launaálag vegna hraða þot-
anna, sem er mun meiri en
skrúfuvéla, enda eru þær flókk-
aðar með stimpil-vélum t. d. hjá
Lufthansa og fleiri flugfélögum.
Laun flugstjóra í hæsta flokki á
RR 400 yrði í dag miðað við fyrri
greiðslur, en að viðbættu 3.05%
vísitöluálagi kr. 510.207.40 eða
kr. 42.517.28 á mánuði, — reikn-
að á sama hátt og F.Í.A. gerir
í tilboði sínu.
Stjórn LOFTLEIÐA h.f. taldi
eftir atvikum réttlætanlegt að
hækka ofangreint kaup í kr.
535.728.27 eða kr. 44.644.02 á mán
uði en F.Í.A. krafðist kr.
621.325.00 eða kr. 51.777.08 á mán-
uði. Það bil reyndist ekki unnt að
brúa.
Stjórn LOFTLEIÐA h.f. gat
hugsað sér að ganga inn á gerð-
ardóm til lausnar deilunni, en
öllum slíkum tilmælum var synj-
að af samningarnefnd F.Í.A.
Tregða til samninga birtist því
af hálfu F.Í.A. en ekki stjórnenda
LOFTLEIÐA h.f., enda má þá
jafnframt segja að frumvarp
það til lausnar deilunni, sem rík-
isstjórnin hefur lagt fyrir Al-
þingi, feli ekki aðeins í sér lausn
á deilunni en bjargi F.Í.A. úr
sjálfheldu fyrst og fremst.
3. Flugmenn telja að sam-
kvæmt kjarasamningum geti
vinnutími þeirra komist upp í 22
klst. á sólarhring. Lengsta flug
án hvíldar er hinsvegar í dag
ca. 7 klst. frá Keflavík til New
York. Hinsvegar segir í gildandi
kjarasamningum að ef áætlaður
flugtími sé lengri en 12 klst., þá
skuli séð fyrir nægum hvílum í
flugvétinni flugmannanna vegna.
Ætti þá tæpast að geta verið um
ofþreytu að ræða, ef menn geta
notið svefns og hvíldar þrátt fyr-
ir skyldustörfin á þessum stunda
fjölda.
4. Fullnægjandi skýring virðist
fram komin varðandi símahler-
anir af hálfu LOFTLEIÐA h.f.,
enda óþarft að taka fram að
stjórnendum félagsins var með
öllu ókunnugt um atvik það, er
flugmenn kærðu til sakadómara.
Virðist þar um einkennilega til-
viljun að ræða vegna rafkerfis-
bilana, sem aftur leiddi til óró-
leiKa í taugakerfi hlutaðeigandi
flugmanna. Þarf ekki að ræða
það mál framar.
5. F.Í.A. og einstakir flugmenn
fullyrða í skrifum sínum að
amerískir flugmenn sem til
LOFTLEIÐA h.f. hafa verið ráðn
ir hafi kaup, er nemur 80 þús.
á mánuði. Kaup þeirra er $1,250.
á mánuði fyrir 70 klst., en af
þeriri fjárhæð greiða þeir um-
boðslaun til amerískrar ráðning-
arskrifstofu. Fjölskyldur sínar
kosta þeir í Bandaríkjunum, en
auk þess er sérfróðum ihlaupa-
mönnum oftast greidd hærri laun
en fastamönnum.
Litlar eða engar líkur eru til
að hinir erlendu flugmenn fái
hærri kaupgreiðslur en hér grein
ir eða kr. 53.750. — og er þá
orðið mjótt á mununum, ef mið-
að er við íslenzka flugmenn, sem
þó hafa verið fastráðnir og njóta
allra forréttinda til atvinnu hér
á landi.
Að öðru leyti er ekki ástæða
til að svara blaðaskrifum þeim,
sem birzt hafa að undanförnu.
BUXUSt BEZTAR
Viljum ráða huggulegan og reglusaman
eldri mann til dyravörzlu og ýmissa starfa.
Dagvinna. — Upplýsingar hjá hótelstjóra
kl. 4—7 í dag.
TAKIÐ EFTIR!
LOKSINS EINNIG Á ÍSLANDL
Eftir mikla frægðarför á Norður-
löndum, Þýzkalandi, Belgíu, Hol-
landi, Ítalíu og mörgum öðrum
löndum, hafið þér einnig tæki-
færi til að hylja og hlífa stýri
bifreiðar yðar með plastefni, sem
hefur valdið gjörbyltingu á þessu
sviði. Ótrúleg mótstaða. Mjög
fallegt. Nógu heitt á vetrum. —
Nógu svalt á sumrum.
Simi 21874
Reglusamur og
handlaginn maður
óskast til ýmissa starfa. — Upplýsingar á staðn-
um kl. 5—7 í dag og á morgun, þó ekki í síma.
skiltagerðin
Skólavörðustíg 21.
Mótatimbur óskast
Vinnuskúr til sölu á sama stað. —
Upplýsingar í síma 35240.
Bankarnir verða
lokaðir laugardaginn
I. maí
Athygli skal vakin á því, að víxlar sem falla í gjald-
daga fimmtudaginn 29. apríl, verða afsagðir föstu-
daginn 30. apríl, séu þeir eigi greiddir eða fram-
lengdir fyrir lokunartíma bankanna þann dag.
Seðlabanki íslands
Landsbanki íslands
Útvegsbanki íslands
Verzlunarbanki íslands h.f.
Búnaðarbanki íslands
Iðnaðarbanki íslands
Samvinnubanki íslands h.L
Kranamaður
óskast. — Upplýsingar í síma 20382
eftir kl. 7 í kvöld.
íslandsmót I badminton
verður háð í íþróttahúsi KR við Kaplaskjólsveg
föstudaginn 30. þ.m. kl. 19, laugardaginn 1. maí
14 og sunnudaginn 2. maí kl. 14.
kl
T. B. R.
VIO
Ó© I N STORG
S í M I 2 0 4 9 0