Morgunblaðið - 29.04.1965, Side 30
Varnarleikmaður
skoraði 1. markið
KR vann Þrott 4—1
KNATTSPYRNAN er byrjuð og
KR vann fyrsta leikinn — sigr-
aði Þrótt í gærkvöldi með 4
mörkum gegn 1. Leikurinn var
á köflum allfjörlega leikinn af
vorleik að vera, en hann bar
mörg merki þess að vera vor-
leikur — einkum er á leið, að
úthaldsleysi kom í ljós, þó tvö
fallegustu mörk leiksins væru
skoruð á siðustu 5 minútunum.
AUmargt áhorfenda var, sem
sýnir að menn þyrstir eftir
knattspyrnu og vonandi verða
knattspyrnumenn okkar færir
um að sýna góða knattspymu
eða að minnsta kosti góða við-
leitni á þessu sumri.
★ Fyrsta markið
Liðunum ætlaði að gamga
illa að finna leiikina í markið.
Upphlaupin voru mörg 'hjó báð-
um en skotin er þau komu ó-
nákvæm — þ.e.a.s. menn voru
afar ónákvæmir á hom mark-
anna, en mjög nákvæmir að
hitta í fang markvarðanna. Áttu
bæði lið góð færi —en allt kom
fyrir ekki.
Skráning yngri
drengja hjá FH
KNATTSPYRNÚÆFINGAR
yngri flokkana í F.H. hefjast úti
n.k. þriðjudag og verður æft í
sumar á sömu dögum og í fyrra
þ.e.a.s. á þriðjudögum og föstu-
dögum. — Yngri flokkar félags-
ins æfðu vel inni í vetur, en
hafa verið í Páskafríi áður en
æfingar hefjast úti.
Skráning 6. og 5. flokks í dag
Knattspyrnustarfsemi yngri
flokkanna í sumar hefst þó eigi
með æfingu, heldur eru allir með
limir 6. og 5. flokks boðaðir til
allsherjar skráningar, sem fer
fram í Félagsheimili F.H. og hefst
í dag kl. 2 — 4 e.h. og verður
síðan haldið áfram kl. 10 — 12
f.h. á laugardag. Mjög áríðandi
er að allir þei% drengir á aldrin-
um frá 6 til 12 ára sem ætla að
æfa með félaginu í sumar komi
til skráningar á fyrrgreindum
tímum.
Æft sama daga og í fyrra
Knattspyrnuæfingar félagsins
munu eins og fyrr segir verða
á þriðjudögum og föstudögum og
hefjast kl. 2 e.h., en þá byrja
Framh. á bls. 31
Og fyrsta mark sumarsins
skoraði svo miðvörður KR-inga,
Þorgeir Guðmundsson. Það var
eins og honum leiddist getu-
leysi ‘ sóknarmannanna. Hann
fékk ákjósanlegt skotfæri af
25—30 m færi og skaut fast með
jörðu gegnum varnarvegginn —
og knötturinn hafnaði öllum á
óvart í marki Þróttar. Þetta var
á 32. mín.
Og þetta „kveikti í” framlín-
unni. 3 min. síðar fær Gunnar
Felixson (á mörkum rang-
stöðu?) háa sendingu yfir vöm
Þróttar sem stóð út við vallar-
miðju. Gunnar lék að og skoraði
örugglega.
Og tveim mín. fyrir hlé bætti
Sigurþór Jakobsson þriðja mark
inu við fyrir KR. Sótti KR uipp
vinstri væng og þar ætlaði Theo
dór að skjóta — en skotið geig-
aði og fór út til Guðm. Haralds-
sonar á hægri kanti. Hann gaf
Sigurþór, sem kominn var út til
hægri og hann afgreiddi rösk-
lega í netið.
★ Daufur leikur — falleg mörk
Síðari hálfleikur var lengst
af næsta daufur og á löngum
•kafla mjög lélegur, en KR var
þó betra liðið. En undir lokin
færðist líf í tuskurnar og fólk
fékk að sjá tvö fallegustu mörk
leiksins. Guðmundur Haralids-
son, útherji KR, skoraði fjórða
mark KR laglega úr viðstöðu-
lausri sp^rnu eftir sendingu frá
Jóni Sig. og litlu síðar skoraði
Haukur Þorvaldsson eina mark
Þróttar — fallegt mark af víta-
teig undir slá — alveg óverj-
andi. Heimir bjargaði litlu síðar
mjöig vel og á því sinn goða þátt
i þriggja marka sigri KR
★ Liðin
Lið KR var, allfrísfclegt og
setti leikur Ellerts og Arnar
Steinsen í framvarðarstöðum
fjörlegan blæ á leik liðsins. Þeir
leika stöðumar sem sóknarfram
verðir og er slíkt mun skemmti-
lega á að horfa — dugði vel í
þessum leik hvað sem síðar verð
ur. Voru þeir Ellert og Örn á-
samt Guðmundi Haraldssyni
beztu menn liðsins.
Þróttarliðið var framan af
litlu lakara KR-liðinu en brotn-
aði er á leið og átti óskipulegan
leik. Axel er drýgstur sem fyrr
en einlekur mikið og fær ekki
umbun sem erfiði.
Línuverðir sýndu litla ná-
kvæmni og mjög tilviljana-
kennda þekkingu á rangstöðu
— A. St.
Þrír beztu á verðlaunapalli: Gufmundur Gíslason,
Ágústa Þorsteinsdóttir afhendir verðlaun.
Lars-Kraus-Jensen og Davíð Valgarðsson.
Hvaö gerist í kvöld?
f KVÖLD er síðari dagur sund
móts Ægis og ÍBK í Sund-
höllinni — þar sem þrir af á-
gætustu sundmönnum Dana
keppa sem gestir. Eins og
sagt hefur verið frá vann
danska sundfólkið allar keppn
isgreinar sínar fyrra kvöldið
— og nú er spuraingin hvað
skeður í kvöld.
Nú verður m.a. keppt í 400
m. fjórsundi en keppni Lars
Sérkennileg mynd —
Matthildur í viðbragði
Kraus Jenssen og Guðm. Gísla
sonar í 200 m. fjórsundi fyrra
kvöldið var þá hápunktur
keppninnar og Daninn vann
á endasprettinum. Þá er og
keppt í 100 m skriðsundi karla
100 m. bringusundi karla þar
sem Heitmann á í höggi við
okkar spretthörðustu.
Strange og Hrafnhildur Guð-
mundsdóttir keppa í 200 m.
fjórsundi og má væntanlega
ekki á milli sjá. Þá er og keppt
í baksundi og flugsundi
kvenna.
Sundáhugafólk ætti ekki að
láta tækifærið til að sjá þetta
ágæta danska sundfólk sér úr
hendi sleppa. Mótið hefst kl.
8:30.
Stúlkurnar, m.a. Kristen
Viðbragð í baksundi. — Auður Guðjonsdóttir og Hrafnhildur
Guðmundsdóttir. (Ljósmyndir: Ól. K. M.)
Agæt landsflokkaglíma
Flokkaskiptisig eykur áhugann
LANDSFLOKKAGLÍMAN 1965,
sem fram fór s.l. mánudags-
kvöld, er fjölmennasta og eitt
bezta glímumót sem hér hefur
farið fram um margra ára skeið.
Tókst glímumótið hið bezta og
þátttakan var meiri en um langt
skeið — og sama er að segja um
skipan áhorfendabekkja. 1 1.
flokki (þyngstu menn) voru kepp
endur 5, í 2. fl. 8, í 3. fl. 7 og
síðan 45 drengir í tveimur aldurs
flokkum. Af þátttöku í drengja-
flokkunum má ráða að giimunni
hafa aukizt vinsældir meðal
æskunnar og hvar liggur ekki
framtíð íþróttarinnar, ef ekki
meðal þeirra yngstu.
ár Flokkaskiptingin góð
Landsflokkaglíman sýnir að ,
fyrirkomulag varðandi flokka
skiptingu er miklu væn-
legra til aukinnar þátt, heldur
en að öllum glímumönnum sé
dembt í einn flokk, þar sem
sá stærsti og þyngsti er næst-
um ófrávíkjanlega sigurveg-
ari fyrirfram. Flokkaskiptingu
ætti að viðhafa á fleiri mótum,
þvi þá fá þeir sem minni eru
að vcixtum sitt tækifæri til að
sýna góða glímu, en litlum og
nettvöxnum manni þýðir lítt
að glima við kannski allt að
helmingi þyngri jötunn —
nema til að tapa.
•fa Úrslitin
Ármann J. Lárusson sigraði í
1. flokki með fjóra vinninga og.
hafði talsverða yfirburði, þó
hann fengi harða keppni einkum
frá Guðmundi Steindórssyni sem
varð annar með 3 vinninga.
Þriðji varð Hilmar Bjarnason
með 2 vinninga.
í 2. fl. vann Guðmundur Jóns-
son KR eftir hraða keppni og
skemmtilega. Hlaut hann 3 vinn-
inga. Hafsteinn Steindórsson
UIA hlaut 2 og Garðar Erlends-
son KR 1.
f 3. fl. sigraði Guðm. Freyr
Halldórsson Á 5 vinn., -2. Elías
Árnason KR 4, Sigurður Geirdal
Breiðablik 3.
í keppni drengja 17—19 ára
sigraði Sigtryggur Sigurðsson
KR létt og örugglega, hlaut 9
vinninga og í flokki drengja 14—
16 ára Sigmar Eiríksson Skap-
héðni með 8 vinninga.
Sérstök unglingakeppni fyrir
13 ára og yngri var svo ráðgerð
á þriðjudagskvöldið.