Morgunblaðið - 17.06.1965, Blaðsíða 1
Berlín:
Ár«xs austur-þýzkra
varða harðlega mótmælt
t DAG halda lslendingar þjóð-
hátíð. 17. júní er einnig frelsis
dagur Berlinarbúa og Austur-
Þjóðverja. Myndin hér til
vinstri er táknræn um það
frelsi, sem ríkir undir oki
kommúnista. Hún sýnir svart-
an sorgarfána ásamt blóm-
sveig, sem hópur ungamenna
sýndi þá dirfsku að koma fyr-
ir rétt hjá þeim stað, þar sem
þau Hermann Höbler og Elke
Mártens voru stödd, er skotið
var á þau úr skotturni austur-
þýzkra landamæravarða, sem
stendur hrollvekjandi í bak-
grunni myndarinnar.
Vestur-Berlín, 16. júní —
NTB: —
BANDA8ÍSKI sendiherrann í
V-Þýzkalandi, George Mc
Ghee afbenti í dag rússneska
sendiherranum í Austur-
Berlín einhverja harðorðustu
mótmæ'aorðsendingu, sem um
getur, og var orsök hennar
atburðir þeir, sem urðu sl.
þriðjudag, er austur-þýzkur
landamæravörður skaut til
bana 43 ára gamlan kaup-
mann frá Vestur-Berlín, Her-
mann Döbler að nafni og
særði lífshættulega unnustu
hans, Elke Mártens.
George McGhee, sem um
þessar mundir er staddur í
V-Berlín krafðist þess í orð-
sendingunni, að hinum seku
yrði reísað. Skotárásin hefði
verið fuiikomlega tilefnislaus
og hún og kúgunaraðgerðir a-
þýzkra vfirvalda myndu ekki
geta áí.t sér stað, nema þær
væru studdar af rússneskum
yfirvöldum.
Sendiherrann sagði enn-
fremur, að enginn vafi léki á
þvi, að hér hefði verið um
morð að ræða. Þessi atburð-
ur hefði gert hinum siðmennt
aða heimi ljóst einu sinni enn,
Framh. á bis. 27
Tólf ár liöin frá upp-
reisninni í Austur-
Þýzkalandi
f DAG, 17. júní, eru liðin tólf
éi frá því er rússneskum skrið-
drekum og hermönnum var beitt
til að bæla niður kröfur hundruð
þúsunda ibúa Austur Þýzkalands
i*m aukið frelsi, frjálsar kosn-
ingar og brottrekstur kommún-
istastjórnarinnar. Þennan dag
fyrir tólf árum, klukkan fjögur
mðdegis hófu sovézkir hermenn
Bkothrið í Austur Berlín á hópa
verkamanna, sem upphaflega ætl
nðu sér aðeins að andmæla kröf
um yfirvaldanna um aukin af-
kost á vinnustað fvrir óbreytt
fcaup.
Það var í lok maí 1953 sem
Walter Ulbrioht, leiðtogi austur
þýzkra kommúnista, lét birta á-
ikvarðanir stjórnar sinnar um
eukin afköst verkamanna. Lét
Ulbrioht sig engu skipta mót-
ínæli, sem bárust bæði frá sam-
etarfsmönnum hans og frá stjórn
endunum í Moskvu. Og hinn 16.
júni birti blaðið „Tribúne“, mál-
gagn verkalýðshreyfingarinnar,
grein þar sem aðgerðir Ulbriohts
voru taldar „algjörlega rétt-
mætar".
En verkamenn voru ekki á
eama máli. Þennan þriðjudag
Jögðu um tvö þúsund húsasmið-
ir við „Stalin Allee“ eða Stalin
etræti niður vinnu og efndu til
bópgöngu að stjórnarskrifstofun-
um. Ætluðu þeir sér í fyrstu að-
eins að mótmæla þessari vinnu-
hörku, sem þeir voru beittir.
En á leiðinni að stjórnarráðinu,
bættust þúsundir manna og
kvenna f hópinn og fékk lög-
reglan ekki við neitt ráðið. Marg
ir lögreglumannanna gengu
meira að segja í lið með verka-
mönnunum.
Þegar mannfjöldinn sá að
hanii hafði öll róð í sínum hönd-
um óx áræðið og innibælt hat-
ur á kúgun kommúnista brauzt
út. Nú var ekki eingöngu um
...T---— .... ... . W ... . ... . ; / »«'««« */
það að ræða að krefjast breyttra
vinnuskilyrða, heldur hrópaði
mannfjöldinn hástöfum kröfur
um að Ulbricht segði af sér, nýj-
ar kosningar yrðu látnar fara
fram og lífskjörin bætt.
Walter Ulbrioht lét ekki sjá
sig við stjórnarráðið. Hinsvegar
boðaði hann helztu ráðgjafa sína
til skyndifundar, og þar var á-
kveðið að nema ákvörðun rikis-
stjórnarinnar um aukin vinnuaf-
köst úr gildi. En það var of
seint. Verkamenn um allt Aust-
ur Þýzkaland höfðu frétt um að-
gerðir stéttarbræðra sinna í Aust
ur Berlín og fylgt fordæmi
þeirra.
Á miðvikudagsmorguninn 17.
júní var komið á allsiherjarverk-
fall í Austur Berlín, og allur mið
hluti borgarinnar eitt iðandi
mannhaf. Kröfugöngur voru farn
ar og mannfjöldinn hrópaði:
„Við heimtum frelsi“, ,við erum
verkamenn, en ekki þrælar“, og
„niður með rikisstjórnina“. Tveir
menn klifruðu um hádegið upp
á Brandenborgarhliðið og tóku
þar niður rauðan fána sem þeir
vörpuðu niður til mannfjöldans.
Var fáninn rifinn í íætlur og
brenndur á bálkesti hlöðnum úr
áróðursspjöldum kommúnista.
En meðan verkamenn voru að
láta andstöðu sína í ljós, stóðu
yfir liðflutningar Rússa til borg-
arinnar. Og síðdegis var látið
til skarar skríða. Skutu rúss-
nesku hermennirnir af vélbyss-
um á hópa verkamanna og skrið-
drekar ösluðu um götur borgar-
innar. Sama gerðist í öðrum
borgum Austur Þýzkalands, og
munu um fimm hundruð Aust-
ur Þjóðverjar hafa beðið bana,
en nærri 2.000 særzt. Qg vopn-
lausir verkamenn gátu ekkert að
gert. Rússar höfðu tryggt áfram-
haldandi kúgunarstjórn Ul-
bridhts í Austur Þýzkalandi.
Með þessari mynd, sem sýnir góða fulltrúa íslenzkrar æsku og þeirrar nýju kynslóðar,
sem tekur við landinu, sendir Morgunblaðið lesendum sínum og þjóðinni allri árnaðar-
óskir á þjóðhátíðardaginn. (Ljósm. Mbl.: Ól. K. M.)