Morgunblaðið - 17.06.1965, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 17.06.1965, Blaðsíða 26
26 MORCU N BLAÐIÐ Fimmtudagur 17. júni 1965 „Þori ekki að veðja á íslendinga eftir að hafa séð Dani vinna Finna“ — segir Karl Guðmundsson, ráðgjafi landsliðsnefndar og landsEiðsins EFTIR 17 daga ganga landslið is lands og Danmerkur til lands- leiks í knattspymu í Laugardaln um. Karl Guðmundsson, sem hef ur verið ráðgefandi ísl. liðinu og landsliðsnefndinni, brá sér til Kaupmannahafnar á dögunum til að sjá landslið Dana í landsleik við Finna, en þann leik unnu Danir 3-1. Við hittum Karl í tilefni af þessari för hans og ræddum við hann um danska landsliðið og hugsanlega möguleika fslands í leiknum. Hann sagði m.a. ■k Til mikils að hlakka — Danir eiga nú mjög skemmti legt, létt og vel leikandi lið. Það var oft hrein unun að horfa á skiptingar liðsmanna, samræmi í leik og samvinnu bæði í sókn og vörn. Ég tel töluvert langt síðan að Danir hafi átt svo skemmti- legt lið og þeir eiga nú. íslenzkir áhorfendur hafa því Landsliðiö vann 5:0 ÍSLENZKA landsliðið og islenzka unglingalandsliðið léku æfinga- leik (ekki í fullri alvöru) í fyrra- kvöld. Fór svo að landsliðið (eldra) vann með 5-0. Landsliðið sem reynt var, var þannig skipað: Heimir í marki en var meiddur. Sig. Einarsson var valinn h. bakv., en mætti ekki og léku unglingalandsliðsmenn 1 stöðum þeirra beggja. V. bakv. var Jón Leósson, framherjar Ell- ert Schram, Högni (í forföllum Jóns Stefánssonar) og Sig. Al- bertsson. Framherjar voru Reyn- ir Jónsson, Val, Steingr. Dag- bjartsson í stað Skúla Ágústsson- ar, Ingvar Elísson, Þórólfur Beck og Karl Hermannsson. Karl Guðmundsson var ekki ánægður með æfinguna og sagði að þessi æfing sem æfingar ann- Heimsmet ÁSTRALÍUMAÐURINN Ron Clarke setti í gærkvöldi heims- met í 10 km hlaupi. Hljóp hann vegalengdina á 28:14.4 mín. — Hann átti sjálfur fyrra heims- metið. arra úrvalsliða væru ekki það alvörumál sem þær ættu að vera og vantaði nokkuð á að leikmenn eða forystumenn tækju slíku nógu alvarlega, og væru áhuga- samir. INIorðmenn unnu Júgó- slava 3:0 NORÐMENN og Júgóslavar háðu landsleik í Ósló í gær- kvöldi og var Ieikurinn liður í undankeppni um heimsmeist aratitilinn. Norðmenn unnu 3-0 og var sigurinn mjög ó- væntur. Ætlaði allt um koll að keyra meðal áhorfenda. Eftir þennan sigur hafa Norð menn forystu í sínum riðli, en í honum leika auk þessara tveggja þjóða, landslið Frakk- lands og Luxemborgar. Hafa öll liðin leikið 3 leiki og hafa Norðmenn, Júgóslavar og Frakkar 4 stig, en markahlut- fall Norðmanna er 5-1, Frakka 3-1, en Júgóslava 4-4. íslondsmeist- arinn topoði veski sínn MOLAR j EINN af beztu sundmönnum | ! landsins, Fylkir Ágústsson frá | j ísafirði, varð fyrir því óláni i ! í fyrradag að tapa veski sínu. i ! í veskinu voru nokkur þúsund f ! krónur, ýmis skjöl með nafni i ! hans og símanúmeri fyrir vest i ! an — svo og íslandsmeistara- i ! verðlaununum í 100 m bringu- i ! sundi, sem Fylkir vann á ís- f ! landsmótinu um sl. helgi. \ Fylkir telur sig haía tapað f | veskinu í eða við Álfheima-: I strætisvagninn, sem fór úr f [ miðbænum kl. 2.30 síðdegis. f f Finnandi veskisins er beð- f f inn að skila því til lögreglunn- f l ar eða að Álfheimum 50, sími f I 38219. 1 knattspyrnukappleik milli Lia-Brage og Landsás í Nor- egi (skammt frá Svolvær) skeði það að 4 leikmönnum -var vísað af leikvelli fyrir ítrekuð brot og tveir til við .. bótar urðu að yfirgefa völlinn vegna meiðsla — og var ann ar þeirra fluttur í sjúkrahús fótbrotinn. Landsás tapaði leiknum 0—2 og voru 3 liðs- menn þeirra reknir af velli og einn slasaður. Voru því 7 menn í liðinu um tíma. NTB telur þetta vera Noregsmet. Norska íþróttasambandið hefur hlotið 500 þús. n.kr. styrk frá getraunaþjónustunni norsku *- eða um 3 millj. isl. kr. Fénu skal varið til æfinga- búða í grennd við Lillehanun- er. til mikils að hlakka að sjá lands- leikinn, ef Dönum tekst upp. Það getur líka ráðið miklu um getu ísl. liðsins, hvernig áhorfendur styðja leikmenn og hvetja. Með góðum stuðningi frá áhorfendum getur geta og sigurvilji liðs auk- izt ótrúlega. — En hvað þá að þínum dómi um möguleika isl. liðs- ins? — Það verður erfitt að vinna þetta danska lið. Það reyndist Finnum erfiður mót- herji og sigur Dana gat orðið enn stærri. Isl. liðið veitir Dönunum vonandi harða keppni, en ég veðja ekki á ísl. liðið eftir þennan leik sem ég sá hjá Dönum. — Var þetta mjög góður leik- ur? — Finnar skoruðu fyrsta markið, þrátt fyrir færri upp- hlaup. En fyrsta mark leiksins og það eina finnska var gott. V. úth. lék alveg að endamörk- um upp við mark og gaf á h. innherjann sem ekki þurfti ann- að en ýta við knettinum í mark- ið. Orlitlu síðar átti þessi sami inn herji glæsilegt skot sem lenti í þverslá svo söng í. Hefði það skot hafnað í netinu er ég viss um nema allur gangur leiksins hefði snúizt Finnum í vil. Því þó Danir sæktu meir — fundu þeir á þeim tíma leiksins enn ekki leiðina í mark. ★ Þrír bcra af hjá Dönum. — Það eru þrír menn sem kalla mætti ásana í danska lið- inu. Það er Bent Hansen h. framv. (sem á 51 landsleik að baki), Ole Sörensen "h. innherji og Ole Madsen miðherji. Af þessum þremur fannst mér Ole Sörensen beztur. Hann sá um að mata framherjana. Hann lék oft til baka með knöttinn og gaf svo fram til Madsen eða Pet- ersen en þá tvo höfðu Danir sem miðherja í leiknum, en drógu aftur Ole Sörensen og Henning Enoksen, sem nú hefur leikið 8 landsleiki sem v. útherji, en ann- ars ísl. knattspyrnumönnnum að góðu kunnur fyrir landsleiki við ísland og þá sem innh. En miðherjarnir tveir Mnd sen og Petersen áttu frábæran leik. Eru báðir stórhættulegir skotmenn og fljótir. Petersen hefur að auki góða skallatækni og Madsen er alltaf að brjót- ast í gegn og sjaidgæft að sjá slík viðbrögð sem hjá honum. En maðurinn að h.aki hætt- uunar er frá þessum mönn- um stafaði var Ole Sörensen. Hann er potturins og pannan í spili liðsins. Hann hefur tæknina og yfirsýnina. Mad- sen brýzt í gegn — þar er það kmfturinn og skothæfilcikiri.n sem ræður en minna um tæknina. Um danska liðið, hélt Karl áfram, má segja, að í því sé hvergi veikur hlekkur — nema helzt ef telja mætti að Enoksen hefur lítinn hraða, en hann býr enn yfir hæfileikanum að ná sín um frægu vinstri-fótar snúnings skotum, sem allir markmenn hata. Danska liðið nýtir svo vel stað setningar og allar eyður og „stað setningarleikur“ þeirra er svo skemihtilegur að erfitt er að halda í við þá. k Skýrsla til landsliðsnefndar. — Og hvernig verður svo þín vitneskja um leik Dananna nýtt? Karl Guðmundsson — Ég gef landsliðsnefndinni skýrslu. I henni eiga sæti fimm menn, sem ráða öl'lu um val liðs- ins. Ég kem þar ekki nálægt, en ræði hins vegar við liðið fyrir leik og í hléi. Hins vegar verður líka reynt að afla vitneskju um’leik Dan- anna í landsleik við Svía í Höfn á sunnudag og í leik danska landsliðsins í Moskvu í næscu viku. Héraðsmót V-ísfírS- ingja x köríuknattleih ÚRSLITALEIKIRNIR í héraðs- móti Vestur ísfirðin.ga í körfu- kmattleik fóru fram að Núpi í Dýrafirði s.l. lauigardag. Þáttakendur í mótinu voru lið frá þessum félögum: íþróttafél. Grettir, Flateyri. íþróttaifél. Stefnir, Súgandafirði, íþróittafél. Höfrungur, Þingeyri og UMF Mýrhreppiniga, Dýra- firði. Sigurvegarar í kairlaflokki var lið Grettis með 6 stig, en Grettir sigraði Stefnir í úrsliitateik með 38:24. f kvenmaflokki lékiu til úrsilita Stefnir og Höfrungur og sigraði Stefnir 28:18. Sigurður R. Guðmumdsisom fonm. HVÍ afhenti siguxvegur- unuim verðlauin ,en Grettir hlaut fagra styttu til eignair, þar sem Grettismienn sigruðu nú í þessu móti þriðja áaið í röð. Mikill áhugi er fyrir körfu- knattleik á samibaindssvæði HVÍ, oig hafa bteði Grettir og Stefnir tilkynnt þáitttöku sína í Bikar- keppni KKÍ. Hvaöa líð kemst í 1. deild? MIKIÐ er rætt um það manna á meðal hvaða lið falli í aðra deild. Valur er sennilega búinn að koma sér úr fallhættu, en hin félögin eru öll í hættu og íslandsmeist- ararnir frá í fyrra eru þar á meðal. Hvaða lið fer upp í fyrstu deild, það er spurning, sem minna er rædd. Við skulum athuga lítil- lega hvernig ástandið er í ann- arri deild. í A-riðli hefur Þróttur forystu, hefur leikið þrjá leiki, unnið tvo og gert eitt jafntefli. Siglfirðing- ar hafa leikið tvo leiki, unnu ann an en hinn varð jafntefli. Haukar hafa leikið einn leik og töpuðu, en fengu svo einn sigur án þess að þurfa að leika. Skarphéðinn hefur leikið einn leik og tapaði, en mætti svo ekki til leiks á móti Haukum. Reynir einn leik og tap. f B-riðli hefur FH forystu. Leik ið þrjá leiki, unnið tvo og gert eitt jafntefli. Breiðablik, ísfirð- ingar og Vestmannaeyingar hafa leikið tvo leiki, hver unnið einn en tapað hinum og eru með tvö stig. Víkingur hefur leikið tvo leiki tapaði fyrri leiknum, en gerði jafntefli í þeim síðari. í A-riðli er Þróttur og Sigl- firðingar líklegustu liðin, þessi lið gerðu jafntefli á Siglufirði, 4:4. Möguleiki er að Haukar seti þarna strik í reikninginn, en þá verða þeir að sýna betri leik en þeir hafa gert til þessa. Hin liðin í riðlinum koma vart til greina, en þó finnst mér ekki rétt að Skarphéðinn dragi sig út úr mót- inu þó illa gangi, því bezta æfing in er einmitt að keppa. B-riðillinn er mun jafnari rið- ill, þar koma öll liðin til greina. Víkingur er neðstur 1 riðlinum og virtist í upphafi ekki vera lík- legur til að verða • ofarlega, en eftir jafnteflið við FH og þann léik er þeir sýndu þá, er ekki að vita nema þeir séu að ná sér á strik. Ef marka má síðustu leiki þá ætti Þróttur að vinna A-riðilinn með nokkrum yfirburðum, en Siglfirðingar kæmu þar næstir. í B-riðli verður keppnin mun harðari og hygg ég að lokabar- áttan muni á milli þriggja liða, FH, Vestmannaeyinga og ísfirð- inga. FH-ingar hafa sýnt mikinn baráttuvilja og sumir segja jafn- vel óþarfa hörku. Ef þeir halda þeirri getu sem þeir sýndu í byrj un, þá held ég að þeir vinni sinn riðil. Spáin er því að það verði FH og Þróttur sem leika úrslitaleik- inn um réttinn til uppfærslu i fyrstu deild 1966. — R. M.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.