Morgunblaðið - 17.06.1965, Page 2
MORGUNBLAÐID
Fimmtudagur 17. júní 1965
Slys og árekstrar ■
Hafnarfjarðarumdæmi
Séð yfir Keykjavíkurhöfn í gærdasr. I»ar eru nú öll skip Skipaútgerðarinnar bundi við fest-
ar, nema Herjólfur. (Ljósm. Mb!.: Sv. Þorm.)
Farþegar Heklu búa um
borð — matast ó Borgini
Herjóifur fékk undanþágu
í GÆR voru öll skip skipa-
útgerðarinnar stöðvuð hér í
höfninni vegna verkfallsins,
nema Herjólfur, sem fékk í
gær uudanþágu til að sigla
með vatn og mjólk til Vest-
mannaeyja til að fyrirbyggja
skort á þeim vörum þar.
Fréttamaður Mbl. brá sér
um borð í Heklu í gærkvöldi
og þar var vaktmaðurinn um
borð, en ekkert af fram-
reiðsluliði skipsins. Nokkrir
farþegar sátu inni í reyksal
skipsins og skoðuðu bækur og
blöð sér til dægrastyttingar
eða skrifuðu bréf. Hinir er-
lendu farþegar munu búa um
borð fvrst um sinn, en mat
fær fólkið á Hótel Borg.
Blaðíð átti tal við Guðjón
Teitsson forstjóra Skipaútgerð
arinnar þar sem hann var á
samningafundi niðri í Al-
þingishúsi.
— Það eru ekki margir út-
lendingar með Heklu að þessu
sinni, sagði Guðjón, — eða um
15 talsins. Þeir munu búa um
borð í 'kipinu en mat fá þeir
á Hótel Borg. Gert er ráð fyrir
að þessir farþegar yrðu i skip
inu þar til það á að sigla út
á ný nk. laugardag. Verði
deilan þá ekki leyst höfum
við samið um að farþegarnir
verði fluttir flugleiðis til út-
landa. Fari svo að skipið geti
ekki farið á áætlunartíma,
fellur niður heil ferð skipsins,
því ferðirnar eru algerlega
bundnar við áætlun. Þetta
kemur sér mjög illa vegna
þess að margir farþeganna
hafa pantað far með margra
mánaða fyrirvara og sumir
kom langt sunnan úr Evrópu
til Kaupmannahafnar til
þess að taka skipið þar á á-
kveðnum degi. Enn kemur
fólk að frá útlöndum til þess
að fara hringferðir með Esju
kringum land, og svo þegar
það er komið hingað kemst
það ekki í fyrirhugaða ferð.
Þetta er mjög alvarlegt vegna
skipulags farþegaflutninga og
get ég ekki séð að gerlegt sé
að halda uppi þessari starf-
semi, ef ekki er hægt að hafa
meira öryggi með siglingarn-
ar. Undirbúningur allur, aug-
lýsingasíarfsemi og bókanir
tekur langan tíma og gerður
mörgum mánuðum fyrirfram.
Að íokum sagði Guðjón
Teitsson að eina skip Skipaút
gerðarirmar, sem fengi að
sigla væri Herjólfur, hann
hefði fengið undanþágu til
einnar íerðar með mjólk og
vatn til Vestmannaeyja til að
fyrirbyggja skort þar, en alls
væri óvíst um frekari sigling-
ar skipsins.
Auk Heklu liggja Esja,
Skjaldbreið og Herðubreið
bundin í höfninnL Þar liggja
einnig Mánafoss og Litlafeil
og hið nýja skip Skógarfoss
er væntanlegt til Reykjavík-
ur í dag.
Verið var í gær að vinna að
uppskipun við þau skip er ný
komin voru, en annars var ó-
venju rólegt við höfnina. Er
við hittum hafnsögumennina
að máli sögðu þeir að nú
flýðu oll skip, sem gætu,
Reykjavíkurhöfn.
VH) stórslysi lá á Reykjanes-
braut á móts við Hvassahraun í
gær morgun er þar rákust saman
benzínflutningabíll, hlaðinn flug
vélabenzíni, sem er mjög eld-
fimt, og stór áætlunarbíll. Árekst
urinn varð ekki harður og reið
það baggamuninn.
Þegar Hafnarf jarðarlögreglan
var á leið á staðinn kom' hún að
bíl af gerðinni Opel Kapitan
1961, sem hafði farið út af. Á
veginum var stór blóðpolluri
í ljós kom, að tvö lömb höfðu
r.laupið út á veginn og drápust
þau bæði er þau urðu fyrir bíln-
um. Ökufoaðurinn missti við
þetta stjórnina á bílhum, sem fór
út af. Ekki urðu slys á mönnum.
Þá varð enn einn árekstur I
gærkvöldi kl. 20.45 við Hrauns-
holt á Hafnarfjarðarvegi. Þar
rákust saman dráttarvél og
Volkswagenbíll. Stúlka, sem var
farþegi í bílnum, slasaðist. Bæði
bíllinn og dráttarvélin skemmd-
ust talsvert.
Þá fór 6 manna fólksbíll út af
Reykjanesbrautinni milli
Straums og Hvassahrauns um kL
10 í gærkvöldi. Fjórir piltar frá
Reykjavík voru í bílnum og slös-
uðust þeir allir, þó ekki ■ alvar-
lega að talið var. Voru þeir allir
fluttir á Slysavarðstofuna.
Þrennt slasast
við Hlégarð
Á ELLEFTA tímanum í gær-
kvöldi varð harður árekstur á
Vesturlandsvegi á móts við Hlé-
garð. ar rákust saman áætlunar-
bíll frá Guðmundi Jónassyni og
Moskvitsbíll með G- númeri.
Tvær konur í áætlunarbílnum
slösuðust, svo og ökumaður,
Lítil síldveiði
LÍTIL síldveiði var í gærdag og
höfðu aðeins 4 skip tilkynnt síld
arleitinni á Raufarhöfn um afla
sem þau fengu undir Jan Mayen.
Skipin voru Jörundur III. með
1900 mál, Hafrún 1300, Loftuir
Baldvin,sson 1350 og Dan IS 500.
Til Dailatanga höfðu 5 skip til-
kynnt um veiði í gærdag og gær
kvöldi, Skálaberg 900 mál, Þor-
geir 900, Gnýfari 650, Ársælil
Sigurðsson 900 og Krossanes
1400.
í fyrrinótt til kl. 7 í gærmorg-
un höfðu alls 31 skip með 35.900
mál tilkynnt um afla til Raufar
haínar og Dalatanga.
Moskvitsbílsins. Var fólkið flutt
á Slysavarðstofuna, en ekki var
fullkunnugt um meiðsli þess 1
gærkvöldi.
Moskvitsbíllinn skemmdist
mjög mikið og áætlunarbíllinn
talsvert.
Stærri en sú
sem hvarf
VARÐSKIPIÐ Óðinn kom Ul
Grindavikur kl. 8 í gærmorg- /|
un og tók þar um borð ung-
linga 10—14 ára á vegum
I Lionklúbbs Grindavíkur. |
Varðskipið fór með unglimg |
ana í siglingu m.a. til svæðis- |
ins umhverfis Surtsey. Þá ,
I sást hin nýja eyja risin úr |
\ sæ og mældist hún 37 metnar |
á hæð og 188 metrar að lengd. |
Var þá stöðugt gos. Eyjan er 1
orðin stærri en sú sem hvarf j
I fyrir nokkrum dögum. í
Fékk skot í lærið
ÞAÐ SLYS vildi til í Hafnarfirði
í gærdag, að Jóhannes Jónsson,
lögregluþjónn, fékk skot úr riffli
í lærið. Kúlan lenti þó hvergi á
beini og sárið því ekki alvar-
legt
Jóhannes og annar lögreglu-
þjónn ætluðu að aflífa litla kan
ínu, sem hafði meiðzt og var
þungt haldin. Höfðu þeir komið
kanínunni fyrir í pappakassa og
sat Jóhannes á hækjum sínum
við hann, er skot hljóp úr riffli
þeim, sem hinn lögregluþjónn-
inn hélt á, og kom það í læri
Jóhannesar. Hann var fluttur á
Slysavarðstofuna, þar sem gert
var að sárinu, og síðan á Landa
kotsspítalann, en þar var kúlan
fjarlægð.
Uppnám vegna orðuveitingar
drottningarinnar til Bítlanna
Síldarsöltun heimil á
takmörkuðu magni
Þegar samið um sölu á 300
þúsund tunnum
SÍLDARÚTVEGSNEFND hefur
ákveðið að heimila sildarsaltend-
um norðanlands og austan að
hefja soltun frá og með 18. þ.m.
á takmörkuðu nwgni af sykur-
saltaðri síld fyrir Fininlandsmark
að. Jafnframt ákvað nefndin að
heimila söltun frá sama tíma
fyrir þá sænsk-a síldarkaupend-
ur, sem þess kunna að óska.
Þegar hefur verið samið um
fyrirframsölu á um 300 þús. tunn
um til Svíþjóðar, Finnlands og
Bandaríkjanna og samningavið-
ræður standa yfir varðandi fyrir-
framsölu til fleiri landa. Fitu-
magn síldar þeirrar sem veiðist
hefur undanfarna daga á hafinu
norðaustur af landinu, hefur
reynst frá 10—18% skv. fitumæl
ingum Síldarmats ríkisins og get
ur nefndin þvi ekki leyft söltun
nema á takmörkuðu magni að
svo stöddu.
8 ára drengur
fyrir bál
ÁTTA ára drengur, Páll Solvi
Pálsson, Bergþórugötu 45, varð
fyrir bíl seint í gærkvöldi fyrir
framan Austurbæjarbíó.
Páll mun sennilega hafa hand-
leggsbrotnað, en ekki var full-
kunnugt um meiðsli hans í gær-
kvöldi. Hann var fluttur á Slysa-
varðstofuna og þaðan á Landa-
kotsspítala.
London, 16. júní — NTB
1 BRETLANDI hafa sex
manns þar á meðal fimm fyrr
verandi striðshetjur, skilað
aftur orðum þeim, sem bera
það með sér, að viðkomandi
hefur verið sæmdur virðing-
arheitinu M. B. E. (Member
of the Order of the British
Empire). Orsök þessa er sú,
að Bítlarnir ensku voru sæmd
ir þessari orðu fyrir nokkrum
dögum.
Talsmaður drottningarinn-
ar hefur skýrt frá því, að
augljóst sé, að það hafi valdið
talsverðu uppnámi, að Bítlarn
ir hlutu þessa orðu, því að
hundruð bréfa streyma nú til
drottningarinnar og forsætis-
ráðherra Breta, Harold Wil-
sons. Er í þessum bréfum
ýmist mælt gegn eða með
orðuveitingunni til Bítlanna.
Þær orður, sem skilað er af
orðuhöfum, eru varðveittar af
viðkomandi yfirvöldum, þvi
að aldrei er að vita, nema að
einhverjir þeirra kunni að sjá
sig um hönd og vilja þá fá
orðu sína aftur.
Lundúnablaðið Daily Ex-
press hefur skýrt frá því, að
einn Bítlanna, John Lennon
hafi sagt, að það uppnám, sem
af þessu hafi hlotizt, hafi orð-
ið til þess, að Bítla-kvartett-
inn óski þess næstum að þeir
hefðu aldrei verið sæmdir orð
unni. Lét hann þau orð um
falla, að eitthvað hlyti að
vera bogið við það fólk, sem
tæki það, sem gerzt hefði svo
alvarlega, að það skilaði orð-
um sínum aftur.
Þegar öllu er á botninn
hvolft, sagði John Lennon, þá
tel ég ekkL að við höfun\
fengið orðuna fyrir að syngja
rock ‘n roll. Ég álít, að við
höfum fengið orðuna vegna
þess, að við öflum erlends
gjaldeyris, það er að segja
sem útflutningsframleiðendur.
Þetta ber ennig að athuga
varðandi orðuveitinguna. Þeg
ar einhver er heiðraður fyrir
að flytja út tilbúinn áburð
eða vélar fyrir margar milljón
ir dollara, þá er fólk ánægt.
Hvernig getur það þá verið
óánægt með okkur?
Það er vitað, að söngferða-
lög Bítlanna til annarra landa
og salan á hljómplötum þeirra
erlendis hefur fært Bretlandi
margar milljónir í erlendum
gjaldeyri.
Bitlarnir. John Lennon efst til hægri.