Morgunblaðið - 17.06.1965, Side 13
Fimmtudagur 17. Jönl 1965
MORGU HBLAÐIÐ
13
Verðlaunasjóður
bændaskólanna
•••v - ^ •■'■W'Otcy ^
Stutt svar til Halldórs Páls-
i sonar, búnaðarmálastjóra.
Við slit Bændaskólans á
Hvanneyri 15. maí s.l. fórust
undirrituðum m.a. orð á þessa
leið: „Frá Verðlaunasjóði bænda
ekólanna, sem stendur undir um
sjá Búnaðarfélags íslands, hafa
engar verðlaunabækur borizt að
I>essu sinni þrátt fyrir beiðni,
en svo er fyrir mælt í skipulags-
reglum þessa sjóðs, að verðlaun-
in skuli afhent með prófskírtein-
um Er þessi ákvörðun Búnaðar-
^élagsins lítt skiljanleg. Ég hef
því ákveðið, að skólinn veiti
verðlaunin að þessu sinni. Hafa
kennarar skólans orðið sammála
um það, að þau skyldu falla í
hlut þeirra Þóris Guðj ónssonar,
Hemru í Biskupstungum og Sig-
urðar Magnússonar, Bryðju-
holti í Biskupstungum". Fleiri
crð voru ekki um það höfð. Við
ekólauppsögnina var staddur
blaðamaður frá Morgunblaðinu
m.a. til þess að afhenda silfur-
6keifu, sem Morgunblaðið gefur
árlega þeim nemanda, sem sýn-
ir bezta útkomu í hestamennsku.
Fréttin um skólaslitin kom í
Morgunblaðinu 26. maí. Halldór
PóLsson búnaðarmálastjóri tekur
hana orðrétt um ofangreint at-
riði upp í grein sinni í Morg-
unblaðinu 4. þ.m. og leggur mér
hana í munn. Fréttin ber þó
greinilega með sér, að hún er
etíluð af fréttamanni, en ekki
mér, og hefði því búnaðarmála-
etjóri getað sparað sér getsakir
í minn garð. Annars höfum við
Halldór Pálsson ef til vill báðir
snnað þarfara með tímann að
gera en að kíta um slíka smá-
muni sem þessa.
Megin atriði þessa máls eru
eftirfarandi: Norsku og þýsku
áburðarverksmiðjurnar gáfu ár-
jð 1937 nokkurt fé í sjóð til
minningar um 100 ára afmæli
Búnaðarfélags íslands. Skyldi ár
lega úthluta verðlaunum úr
ejóðnum, öðru fremur búfræði-
bækur, til eins og síðar tveggja
nemenda við hvorn búnaðar-
ekóla. Búnaðarfélag Xslands hef-
ur á hendi yfirstjórn sjóðsins og
úthlutar verðlaunum eftir tillög-
um bændaskólanna. Jafnan fá
t>eir verðlaun, sem hljóta hæstu
einkunn. Er því ekki hægt að
gera tillögur um verðlaunahaf-
ana fyrr en búið er að reikna
út einkunnir ,en því er venjulega
ekki lokið fyrr en 2—4 klst. áð-
ur en skóla er sagt upp. Hins
vegar ber að afhenda verðlaun-
in „um leið og nemendum eru
eEient prófskírteini að afloknu
burtfararprófi frá bændaskól-
unum“. Þess vegna verður ,Bún-
aðarfélagið að senda verðlauna-
bækurnar áður en skóla er sagt
upp, en það er ávalt gert á svip-
uðum tíma, og vita starfsmenn
Búnaðarfélagsins það vel. Ætti
því ekki að vera þörf á því að
ganga eftir verðlaunabókunum
árlega, heldur senda þær skólan-
um seinni hluta vetrar til afhend
ingar um Ieið og búfræðingar
eru brotskráðir úr skóla.
Halldór Pálsson segir, að „nú
BÍðustu árin hefur skólastjór-
inn á Hvanneyri aldrei fullnægt
Bkilyrðum skipulagsskrárinnar
um að gera tillögur um verð-
launaveitingarnar til Búnaðar-
íélags íslands í tæka tíð“. í
l>essu efni hefur engin breyting
kér á orðið ,hin síðustu ár“. Alla
tíð meðan Steingrímur Stein-
bórsson var búnaðarmálastjóri
voru verðlaunabækurnar sendar
íyrir .skólauppsögn og afhentar
við skólaslit alveg á sama hátt
cg átti að gera hér í vor. Breyt-
ingin, sem á hefur orðið „hin
síðustu ár“ er því hjá Búnaðar-
íelagi fslands, en ekki Bænda-
skólanum á Hvanneyri.
bé kvartar búnaðarmálastjóri
yfir því, að hann féi fyrst að
vita nöfn verðlaunahafa 8—9
mánuðum eftir skólauppsögn.
Hann hefði getað sparað sér
„endurtekin símtöl" að því til-
efni, ef hann hefði lesið bún-
aðarblaðið Frey, sem Búnaðar-
félag íslands gefur út. Um eða
upp úr miðju sumri eru nöfn
nýútskrifaðra búfræðinga og
verðlaunahafa send Frey og eru
venjulega birt í september- eða
októberblaðinu.
Búnaðarmálastjóri ásakar mig
fyrir það að hafa ekki rætt mál
þetta við sig. Undanfarin ár hef
ég ávalt snúið mér til skrifstofu-
stjóra Búnaðarfélagsins um þetta
mál en ekki til búnaðarmála-
stjóra. Einnig í þessu efni virð-
ist hafa áorðið breyting í Bún-
aðarfélagi íslands „hin síðustu
ár“. Ég skal hafa þetta í huga
á næsta vori, ef Bændaskólan-
um á Hvanneyri þykir það svara
kostnaði að hefja máls á þessu,
að því er virðist, viðkvæma
deilumáli.
Hvanneyri 11. júní 1965
Guðm. Jónsson
Bandarísk þota
hrapar í París
París 15. júrtí — NTB-AP
EINN af þriggja manna á'höfn
missti lífið er band'airisk B-58
„Hustler" sprengjuþota hrapaði
í lendingu á Le Bourget flugvelli
í París í dag. Þotan kom frá
bandaxískri fluigstöð á Spáni í
tilefni af hinhi alþjóðlegu flug-
og geknferðasýningu, sem nú
stendiur yfir í París. Þetta er í
annað sinn, sem bandarísk þota
'hrapar við L«e Bourget í sam-
bandi við flugsýningu. í fyrra
sinnið var það 1961, en þá hrap-
aði samskonar þota við ílugvöll
inn. — Þeir tveir, 9em slösuðust
í slysinu í morgun, eru í sjúkra
húsi, o.g standa vonir til, að hægt
verði að bjarga lífi þeirra.
4
Mynd þessi var tekin við skólauppsögn í Verzlunarskóla íslands 15. júní, þegar Örn Johnson fram-
kvæmdastjóri afhjúpaði styttu af Þorláki Ó. Johnson, sem átti frumkvæði að stofnun íslenzks verzl-
unarskóla. Ríkarður Jónsson gerði styttuna. Til vinstri er formaður skólanefndar Verzlunarskóla
íslands, Magnús J. Brynjólfsson, kaupmaður, sem þakkaði gjöfina.
Á annað hundrað Rotaryiélagar
á umdæmisþingi í Eyjum
18. UMDÆMISÞING Rotary-
klúbbanna á íslandi var haldið í
Vestmannaeyjum um hvítasunn-
una, 5.—7. þ.m. — Á laugardags-
morgun komu um 90 Rotarymenn
og gestir þeirra með m.s. „Esju“
til Eyja og bjó fólkið um borð í
skipinu þingdagana. Alls sóttu
þingfundi nokkuð á annað hundr
að manns þá er flest var.
M.s. „Esja“ sigldi til Surtseyj-
ar og nýju gosstöðvanna á báð-
um leiðum. Fannst ferðafólkinu
mikið til um þessi náttúruundur
og feigurð Vestmannaeyja.
Þingið var sett í Gagnfræða-
skólanum. Haraldur Guðnason,
núv. umdæmisstj. setti þingið kl.
2 e.h. á laugardag. Um kvöldið
hafði bæjarstjórn Vestmanna-
eyja boð inni í Samkomuhúsinu
fyrir þingfulltrúa og gesti þeirra.
Á Hvítasunnudag hlýddu
menn messu í Landakirkju. Séra
Jóhann S. Hlíðar prédikaði.
Eftir hádegi var efnt til
skemmtiferðar um Heimaey
undir fararstjórn Stefáns Árna-
sonar, en kl. 8 hófst kvöldvaka
með fjölbreyttu efni.
Á annan í hvítasunnu hófust
þingstörf kl. 10 f.h., en kl. 6 voru
þingslit.
Erindi á þinginu fluttu Conrad
Vogt-Svendsen frá Osló, fulltrúi
forseta Rotary International,
Haraldur Guðnason flutti ítar-
lega skýrslu um starfið á árinu.
Guðmundur Sveinsson, skóla-
stjóri 'Bifröst, flutti erindi um
Rotary og æskulýðinn og flutt
var erindi séra Þorsteins L.
Jónssonar, Vestmannaeyjum, er
hann nefndi Gullið í gjöf dags-
ins.
Allmörg mál voru afgreidd á
þinginu. Þingforsetar voru
Jón Árnason, Akranesi og ritarar
Ingvi Ebenhardsson, Selfossi og
Jón H. Bengs, Reykjavík.
Rotaryklúbbur Vestmanna-
eyja sá um undirbúning þings-
ins. 1 undirbúningsnefndinni
voru: Einar H. Eiríksson skatt-
stjóri, form., Stefán Árnason
fv. yfirlögregluþjónn og séra
Jóhann S. Hlíðar.
Rotaryklúbbarnir íslenzku eru
nú 16 að tölu og voru fulltrúar
frá þeim öllum nema einum.
Félagar eru 570. Klúbbar eru
alls rúmlega 12 þúsund og félag-
ax um 600 þús. Núverandi forseti
er Charles W. Pettengill, Banda-
ríkjunum, en viðtakandi forseti
C. P. H. Teenstra, Hollandi.
Næsti umdæmisstjóri hér á
landi verður Sverrir Magnússon
Stefán Árnason, Vestm.eyjum og'lyfsali, Hafnarfirði.
LONDON
DOMUDEILD
Austurstræti 14.
Sími 14260.
3/a herhergja íbúð
á góðum stað í Vesturbænum til leigu frá 1. júlí nk.
Aðeins barnlaust reglufólk kemur til greina. — Þeir
sem hafa áhuga, sendi nöfn sín í pósthólf 1307, —
merkt: „Vesturbær“.
HEUNCA
Stðbuxur
HELÁNCA
sk'iðabuxur
í ú r v a 1 i .
— PÓSTSENDUM —
--A--
LOIMDON, dömudeild
SÆMSK GÆUAVARA
ASEA hefur hinn rétta mótorrofa fvrir rafmagns-
mótor yðar.
# Gott slitþol
# Gott rofa- og
lokunarafl.
# Vfirstraumsliði
af innstungugerð.
JOHAN RÖNNING h.f.
Sk]nh''1>. -- -o