Morgunblaðið - 17.06.1965, Page 19
1
Fimmtudagur 17. Jön! 1965
MORGUNBLAÐIÐ
19
Borgarstjóraefni i New York:
Robert Kennedy og Frankiin D.
Roosevelt frá demókrötum?
Fyrir nokkrum dögnm lýsti
borgarstjórinn í New York
Robert Wagner, yfir >ví, að
bann myndi ekki óska eftir
endurkosningu. Yfirlýsing
þessi kom mjög á óvart og
hefur mjög ýtt undir þessar
bollalegginga um, hver verða
muni eftirmaður hans. Það
hefur mjög ýtt undir þessar
bollaleggingar, að við þenn-
an atburð hafa nöfn tveggja
af þekktari yngri mönnum
innan raða demókratafiokks-
ins komið fram í sviðsljósið
enn einu sinni. Þessir menn
eru þeir Robert Kennedy og
Franklin D. Roosevelt yngri.
Robert Kennedy er mjög
gjaman talinn vera sá, sem
mesta möguleika hafi á því að
taka við af Wagner borgar-
stjóra, sem áhrifamesti og
leiðandi maður innan demó-
krataflokksins í New York
ríki.
Franklin D. Roosevelt yngri
sonur Rooseveits fyrrum for-
seta Bandaríkjanna, er einnig
talinn vera á meðal þeirra,
sem líklegastir þykja sem
borgarstjóraefni af hálfu
demokratafloikksins, þegar
borgarstjórakosningarnar fara
þar fram næsta haust. Fram-
bjóðandi republikanaflokks-
ins þá verður John Lindsay.
Báðir eru þeir R. Kennedy
og F. D. Roosevelt á meðal
hinna atkvæðamestu og efni-
legustu í hópi yngri forystu-
manna demókrataflokksins.
Þeir stefna báðir hátt og
margir telja, að þeir hafi full-
an hug á, að verða einhvem
tímann húsbændur í Hvíta
húsinu.
Franklin D. Roosevelt er
nú fimmtugur að aldri og hef-
ur starfað á því tímabili; sem
Johnson hefur verið forseti,
fyrst sem varaverzlunarmála-
ráðherra, en nú er hann for-
maður í jafnréttisnefnd
Randaríkjanna, sem sér eink-
um um framkvæmd mann-
réttindalaganna. Fram að því
að Wagner lýsti því yfir, að
hann myndi ekki gefa kost á
sér aftur, sem borgarstjóri,
ingarnar. Talið er, að Wagn-
er sé í hjúskaparhugleiðing-
um og muni. bráðlega ganga
að eiga Barbaru Cavenagh,
sem er þekkt kona í félagslífi
New York borgar. Wagner
hefur áður verið kvæntur.
Þess má geta, að gert er ráð
fyrir, að Wagner muni verða
ræðumaður við hátíðahöld
Bandarikjamanna í Dan-
mörku hinn 4. júlí n.k. á þjóð
hátíðardegi þeirra.
Wagner hefur verið tals-
vert gagnrýndur af leiðtogum
Harlem, svertingjahverfisins
í New York. Telja þeir, að
Robert Wagner
var Franklin D. Roosevelt tal
inn fremstur í hópi þeirra
sem til greina kæmu að yrðu
í framboði við næstu ríkis-
stjórnakosningar í New York
ríki á móti republikanum Nel
son Rockefeller.
Franklin D. Roosevelt hef-
ur lýst því yfir í Washington,
að hann sé reiðubúinn til þess
að verða í kjöri við borgar-
stjórakosningarnar í New
York, ef hann yrði hvattur
til þess að „réttum aðilum“.
Yfirlýsing Wagners borgar-
stjóra nú jafngildir því ekká,
að hann muni ekki í framtíð-
inni taka að sér starf sem
stjórnmálamaður. Það er alls
ekki útilokað, að hann muni
bjóða sig fram sem ríkisstjóra
efni í New York ríki árið
1960 og þá ekki hvað sízt, ef
Franklin D. Roosevelt verður
í kjöri við borgarstjórakosn-
Robert Kennedy
hann hafi vanrækt að útrýma
fátækralhverfunum þar. Þá
halda þeir því fram, að nú
sé kominn tími til þess, að
negri verði kjörinn borgar-
stjóri í New York. Fremsti
stjórnmálamaðurinn í Harlem
er þingmaðurinn Adam Clay-
ton Powell, en hann mun ekki
hafa hug á því að verða borg-
arstjóri.
— / kvikmyndasal
Framhald af bls. 17.
Robinson, Elsu Martinelli, Akim
Tamiroff sem Bloch, skjólstæð-
ing málfærslumannsins og Romy
Scthneider, sem kúnn er úr
þýzkum prinsessumyndum, en
6ýnir hér eftirtektarverðan leik
í hlutverki Lenis. Qg gaman er
að sjá Orson Welles sjálfan í
hlutverki málfærslumannsins,
þar sem hann birtist fyrst hul-
inn vindlareykskýi. Og íbúð
hans: allt fyrir augað. Og er það
ekki fyrst og fremst það sem
kvikmynd á að vera: fyrir aug-
að.
En þrátt fyrir stíjsnilld Orson
Welles og kvikmyndaleikni hans
og hrifningu augnabliksins á
einstökum atriðum, sem eru
mörg en of ósamstæð, þá eru
áhrif myndarinnar ekki eins mik
il við eftirþanka. Heildarmyndin
að lokum verður ekki eins sterk
og við fyrstu sýn. Kannske er
Welles nokkurs konar Frisenette;
töframeistari sem hefur mann
allan á valdi sínu á meðan á
dáleiðslunni stendur. A eftir
rennur nokkuð af manni, en mað
ur stendur í þakkarskuld við
töframanninn. Hvað sem því
líður, þá er Orson Welles galdra-
maður sem óskandi er að fái að
töfra mann og dáleiða sem oft-
ast.
Pétur Ólafsson
Kirkjan
á Rafnseyri
Gjöfum til Minningarsjóðs
Dóru Þórhallsdóttur, sem hefir
þann tilgang að reisa kirkju á
Rafnseyri í minningu Jóns Sig-
urðssonar, verður veitt viðtaka á
skrifstofu forseta íslands og skrif
stofu biskupsins yfir íslandi.
Einnig eru það tilmæli bisk-
ups til presta og dóms- og kirkju
málaráðherra til sýslumanna,
bæja- og sveitastjóra, að þeir
veiti gjöfum viðtöku og geri for-
seta- eða biskupsskrifstofu skila-
grein.
(Frá skrifstofu Forseta Islands)
Afmælisgjafasjóð-
ur Hafnfirðinga
STJÓRN H.f. Raftækjaverksmiðj
an í Hafnarfirði, RAFHA, ákvað
hinn 8. marz 1964 á 75 ára af-
mæli Bjarna Snæbjörnssonar
læknis, er verið hefur í stjórn
verksmiðjunnar frá upphafi, að
minnast þess með 25 þúsund kr.
gjöf, er hann ráðstafaði á ein-
hvern þann hátt, seríliann kynni
að óska. Nokkru síðar tilkynnti
Bjarni stjórninni, að hann hefði
ákveðið að stofna sjóð af gjöf
þessari og skyldi hann heita Af-
mælisgjafasjóður Hafnfirðinga.
Stjórn RAFHA féllst á þessa hug
mynd og var Bjarna og formanni
verksmiðustjórnarinnar, Emil
Jónssyni ráðherra, falið að semja
skipulagsskrá fyrir sjóðinn. —
Skipulagsskráin hefur nú hlotið
staðfestingu forseta Islands og er
tilgangur sjóðsins að styrkja
hverja þá starfsemi, sem starf-
rækt er hér í bænum eða ná-
grenni hans í þágu barna og
unglinga til 16 ára aldurs: t.d.
vöggustofu, dagheimili barna,
upptökuheimili fyrir afvegaleidd
börn, heimili fyrir vangæf eða
taugaveikluð börn o.s.frv.
Tekna til sjóðsins skal afla með
sölu heillaóskaskeyta (korta) á
afmælisdögum einstaklinga, —
hjóna eða fyrirtækja. Lægsta
gjald fyrir skeytið skal vera kr.
100,00. Nafn viðtakanda, send-
anda og fjárhæð skal færast í
sérstaka bók. Ennfremur veitir
sjóðurinn móttöku framlögum
einstaklinga og fyrirtækja á
merkisdögum í æfi þeirra og
starfi.
Stjórn sjóðsins er þannig skip-
uð: Prestur þjóðkirkjunnar í
Hafnarfirði; lögreglustjóri ög
bæjarstjóri Hafnarfjarðar séu
fastir stórnarmenn. Þeir skipta
með sér verkum og kjósa síðan
tvo meðstjórnendur, karl og
konu, til tveggja ára í senn úr
hópi þeirra Hafnfirðinga, sem
fengið hafa skeyti.
Bjarni Snæbjörnssón læknir og
Helga Jónasdóttir kona hans hafa
verið kosin meðstjórnendur í
fyrstu stjórn. sjóðsins.
Skeytin (kortin) verða til sölu
á eftirtöldum stöðum: Bókabúð
Böðvars, Hafnarfirði; Bókabúð
Olivers, Hafnarfirði; H.f. Raf-
tækjaverksmiðjan, Hafnarfirði;
H.f. Raftækjaverksmiðjan við
Óðinstorg, Reykjavik; Bókaverzl
un Sigfúsar Eymundssonar, Rvík.
Grenjaðaislaðakirkja endurvígð
Húsavík, 14. júní.
BISKUPINN yfir íslandi, herra
Siguribjöm Eiinarsson, endur-
vígði í gæir Grenjaðarstaðar
kirkju að viðstöddiu miklu fjöl-
menni úr héraðinu, endia var
veður hið fegursta. Grenjáðar-
S'taðarkirkja hefur nú verið end-
urbygigð í sínum upprunalega
stíl og stækkuð verulega í til-
efni af 100 ára afmæli hennar.
Teikningar gerði Bjarni Ólafs-
son, yfirsmiður var Stefán
Óskarsson, en málningu og
skreytingu innainhúss önnuðust
fnú Greta og Jón Björnsson.
Þykir þetta verk allt hafa tekizt
vel.
Frú Björnsson hefur fundið
með athugun á prédikunarsitóln-
um, a'ö hann rnnni vera frá árinu
1797, en það var ekki vitað áð-
ur. Hefur frúin nú málað stólinn
í sínum upphaflegu litum. Kirkju
handfönig og skrá hefur Gisli
Dan, vélavörður við Laxá, smíð
að eftir gömlum teikningum frá
Þjóðminjasafn'inu og gefið kirkj
unni.
Vígsluathöfnin hófst með því,
a'ð biskup, vígslubiskup, prófast-
ur og 10 prestar ásamt sóknar-
nefndinni gengu frá prófastshúsi
til kirkju og báru ýmsia kirkju-
gripi. Þá flutti sér.a Þórarinn
Þórarinsson bæn. Biskupinn
vigði síðan kirkjuna, en vígslu-
vottarnir, Sigurður Stefánisson,
vigsiiu'biskiup, Friðrik A. Friðriks
son, fyrrv. prófastur, séra Þor-
grímur Siguirðsson, Staðarstað,
og séra Örn Friðriksson, Skútu-
stöðum, lásu ritningargreinar og
guðspjall dagsins las norski
presturinn og íslandsvinurin'n
séra Hope. Prédikun flutti séra
Sigur'ður Guðmundsson, prófast
ur, og skírði hann tvö börn.
Kirkj'Ukór Grenjarstaiðarsókinar
annaðist söng undir stjórn Krist-
jönu Árnadóttur. Að lokinni
messu, bauð sóknarnefndin öli-
um kirkjugestum . tiil kaffi-
drykkju, en að henni lokinni,
var aftur gengið til kirkju, til
þess að minnast sérstaklega 100
ára afmælis kárkjunnar og rakti
Óskar Sigtryggsson, Reykjahóli,
sögu hennar frá upphafL Þurið-
ur Gu'ðmundsdóttir, Fagranesi,
minntist presta þeirra, sem þjón
að hafa Grenjaðarstað liðna öld,
en þeir eru aðeins fimm, ,séra
Magnús Jónsson, séra Benedikt
Kristjánsson, séra Helgi Hjálm-
arsson, séra Þorgrimur Sigurðis-
son, Staðarstáð, og núverandi
sóknarprestur, séra Sigurður
Guðmundsison, prófastur. Kirkju
kórinn söng undir stjórn Þórodds
Jónssonar, læiknis, og séra Þor-
grimur Sigurðsson flutti ávarp en
hann þjónaði Grenjaðarstað 13
fyrstu ár sinnar prestSþjónustu.
Athöfninni lauk með ávarpi
biskups, herra Sigurbjöms Ein-
arssonar. Síðan var sunginn Þjóð
söngurinn.
Ýmsar gjafir höfðu borizt
kirkjunni í tilefhi afmælisims.
Brekknakotssyskini gáfu 10
þú.sund krónur, Þuríður Þor-
bergsdóttir og Kristján Jóhammes
son, Klamibraseli, 10 þúsumd,
Auður og Sigríður frá Geitafelli
10 þúsund, Vemharður Bjarna-
son 5 þúsund barnaböm Frið-
finns Sigurðssonar, Rauðuskriðu,
sem í næsita mánuði á aldaraf-
mæli, gáfu 25 þúsund, en Frið-
finmur hefur verfð sérstakuir
sbuðningsmaður Grenjaðarstað-
arkirkju og var flutt ávarp frá
honum til sókniarinnar. Kven-
félag Aðaldæla gaf skirnarfonit
Framhald á bls. 31
Hvergi meira úrval af
Laugavegi 26. — Sími 22-900.
húsgögnum