Morgunblaðið - 17.06.1965, Side 27

Morgunblaðið - 17.06.1965, Side 27
MOkCU N BLAÐIÐ 27 Fimmtudagur 17. júní 1965 r * — Arás Framhald af bls. 1 hve háskaleg og óeðlileg skipt ing Þýzkalands væri. Sendiherrann lýsti því yfir að bandarisku yfirvöldin í V- Berlín myndu grípa til allra nauðsynlegra ráðstafana til þess að vernda líf, frelsi og ör yggi þeirra, sem byggju á yfrr ráðasvæði Bandaríkjamanna 1 borginnr. Læknar Wannsee sjúkra- hússins í V-Berlín héldu á- fram tilraunum sínum í dag til að bjarga lífi Elke Mártens sem særð var lífshættulegu skatsári í höfuðið. Hermann Döbler mun hafa látizt nær þegar i stað áf skotsárum, sem hann fékk á höfði, baki og á hné. Hópur seskufólks í V-Ber- lín sýndi þá dirfsku á þriðju dagskvéld, að fara nærri staðn um, þar sem hinn hörmulegi atburður átti sér stað og kom þar fyrir stöng með svörtum fána. Er fáninn þannig beint fyrir augum hinna austur- þýzku landamæravarða í um 120 m fjarlægð. Öll blöð í V-Þýzkalandi mót mæla árásinni eindregið. Þá var það upplýst, að þau, sem fyrir árásinni urðu, hefðu verið komin yfir borgartak- mörkin og yfir til vestur hluta borgarinnar, er skotið var á þau. Frá því var einnig skýrt í dag, að þau hefðu haft i hyggju að ganga í hjónaband í júlímánuði næstkomandL — Ætli maður Framhald af bls 2i8 — Þegar ég var kominn niður hringdi ég á næstu bæi og bað um aðstoð og brátt dreif að fólk. Slökkviliðið á Egilsstöðum var líka beðið um aðstoð, en slökkvi- bíllinn kom ekki fyrr en eftir 3 tíma. Það mun hafa gengið erf- iðlega að fá menn til að aka hon um og ná mönnum saman. — Þegar slökkvibíllinn kom var öll efri hæð íbúðarhússins brunnin og eldur kominn í neðri bæðina, þótt það væri ekki mik- ið. Slökkvistarfinu lauk svo um kl. 5 um morguninn. — Þá var allt brunnið á efri hæðinni og nokkuð á þeirri neðri, en hún er talin ónýt vegna skemmda af vatni og reyk. Það mun varla borga sig að gera við húsið. Það var lágt vátrygigt, alltof lágt — Geymsla er rétt við bæinn og svo fjós og hlaða, en þessi hús tókst að verja. — Um eldsupptök er ekki vit- að, en líklegt er talið að eldur hafi komizt í þakið vegna sprungu í skorsteininum. — Ég er nú á næsta bæ, Hlíð- arhúsum, hjá Eiríki Einarssyni bónda þar. En Svavar sonur minn fór með Ásrúnu og börn- in að bsenum Surtsstöðum. — Þetta er mikið tjón, en ætli maður reyni ekki að byggja bæinn upp aftur, sagði Björn bóndi að lokum. Framhaidsdeiidin á Hvanneyri hefir út- skrifað 63 kandidata Framhaldsdeild Bændaskólans é Hvanneyri var í gær slitið í 9 sinn. Þar útskrifuðust nú 5 bú- fræðikandidatar. Hæstur var ,Bjarni Guðmundsson frá Kirkju bóli í Dýrafirði og hlaut 8,85 í aðaleinkunn. Fékk hann jafn- framt bókaverðlaun frá Búfræði kandidatafélagi íslands, sem Agnar Guðnason, formaður þess, afhenti. Nokkrir 10 ára kandi- datar heimsóttu skólann við þetta tækifæri og færðu honum kennslutæki að gjöf. Sveinn Guð mundsson frá Miðhúsum hafði orð fyrir þeim. Ingólfur Jónsson landbúnaðar- ráðherra var viðstaddur skólaslit in og flutti ræðu þar sem hann — Fiskgengd Framhald af bls. 8 hausbein úr þorski hér úr sjó, það er alveg eiðfært um það. Sýnir það gleggst af öllu hvað fiskilaust er nú orðið hér við Ströndina. Fyrr á árum kom vanalega meiri eða minni fisk- ur með flóðum inn í Hornafjörð- inn og dagaði þar uppi á fjörur og eyrar og upp að eyjum í firð- inum og allt voru þetta oft marg ir hestburðir, en nú í mörg síð- astliðin ár hefur ekki orðið vart við einn einasta fisk í Horna- firði. Nokkrum sinnum kom það fyrir að 2 og 3 menn á bát kræktu fiskinn upp í bátinn úr torfunum, sem syntu inn í fjörð- inn undan straumnum — og svo segja menn að fiskurinn minnki ekki í sjónum. Betur að satt væri. Nú uim þessi vertíðarlok skul- um við lofa Guð fyrir það, sem hann hefur gefið sjómönnum vorum á þessari liðnu vertíð og svo fyrir handleiðslu þeirra á hættusömum stundum. Lofum hann þó mest fyrir að hafa leitt þá heila í höfn, og biðjum Guð að blessa þá alla og leiða þá alla, sem sjóinn stunda, langa og bjarta daga hafs á breiðu skeiði. Skarphéðinn Gíslason. m.a. lýsti því yfir að nám deild- arinnar væri nú lengt úr tveim- ur árum í þrjú. Péttur Ottesen frv. alþingis- maður flutti einnig ræðu og bar kveðju frá Búnaðarfélagi ís- lands. Gunnar Bjarnason ávarpaði nemendur og gesti af hálfu kenn ara en Þorvaldur G. Jónsson frá Innra-Hólmi talaði af hálfu hinna nýútskrifuðu kandidata. Guðmundur Jónsson skóla- stjóri sleit skólanum með ræðu, en á eftir gengu gestir að grunni hinnar nýju skólabyggingar sem byrjað er að reisa. Þá voru einn- ig skoðaðar tilraunir, sem eru miklar á staðnum. Framhaldsdeildin á Hvann- eyri hefir nú útskrifað 63 kandi- data og eru þeir langflestir við landbúnaðarstörf og þar af 19 ráðunautar og 11 bændur. Nú eru 3 við framhaldsnám erlend- is. — Henti sér Framhald af bls 28 „Þá kom maður aftur á Þór ólf og kastaði út bjarghring. Ég fékk annan félaga minna til að halda í taug, sem éig seig niður í, náði bjarghrign- um undir hendina og svaml- aði út þangað sem pilturinn lá í sjónum. Náði ég taki á hon- um og gat haldið höfði hans upp úr. á tók hann að spúa sjó og korraði í honum. Var nú dregið í línuna, sem fest var í bjarghringinn og við lágum við hringinn undir skipsskutnum unz lögreglan og fleiri komu á vettvang og drógu okkur upp. Ég hugsa, að ég hafi verið í sjónum u.þ.b. 25 mínútur." „Ég hef aldrei farið í sjó- inn áður,“ sagði Þorleifur að lokum, „en ég kenndi hvorki þreytu né kulda. Hins vegar setti að mér skjálfta og glömr uðu í mér tennurnar, er ég gekk upp bryggjuna, en ég iafnaði mig fliótt.* Norræn samvinna um verkaskiptingu: Álafoss selur teppagarn út, en dönsk teppaverksmiðja fullunin teppi hingað í GÆR boðaði forstjóri tillar- verksmiðjunnar Álafoss, Ás- björn Sigurjónsson, blaða- menn á sinn fund og var til- efnið að hér á landi er stadd- ur Jens Christensen, fulltrúi hjá dönsku teppaverksmiðj- unni Weston. Ásbjörn Sigurjónsson skvrði frá því að nú hefðu tekizt samningar milli Álafoss og Weston-verksmiðjunnar um gagnkvæm viðskipti. Teppa- verksmiðjan mun kaupa full- unnið garn til teppagerðar af Álafossi, en Álafoss mun aft- ur á móti annast sölu Weston- teppa hér á landi. Nú hefur verið reist ný verksmiðja á Álafossi, en undirbúningur þess verks var hafinn fyrir f jórum árum. — Þá sáum við fram á nauð- syn endurnýjunar, ef verksmiðja okkar ætti að hafa nokkra mögu- leika til samkeppni og til út- flutnings. Síðasta ár höfum við svo unnið að því að ná samning- um við erlend fyrirtæki um sölu á garni úr landinu í stað þess að selja ullina óunna, eins og gert var. Nú hafa tekizt samningar við Weston-teppaverksmiðjurna I Danmörku, sem er ein stærsta sinnar tegundar í Evrópu. Verk- smiðjan framleiðir um 2 milljón- ir fermetra af teppum árlega og annast sölu þeirra um alla Ev- rópu og víðar. Seljum við nú ís- lenzkt ullargarn í bezta gæða- flokki til gólfteppagerðar. Er þannig hafið milli okkar norrænt samstarf um verkaskiptingu, en með lækkun innflutningstolla af teppum teljum við hérlendis úti- lokaða samkeppni við erlendar teppagerðir, sern hafa langa reynslu að baki og hin fullkomn- ustu dreifingarkerfi, sagði Ás- björn Sigurjónsson. Jens Christensen sagði, að þeir hefðu reynt íslenzku ullina og komizt að raun um að hún væri hin bezta vara til teppagerðar. Weston-teppaverksmiðjan notar um 2000 tonn af ull til ársfram- leiðslu sinnar og kaupir hana frá Englandi og Þýzkalandi að mestu auk þess, sem nú verður keypt frá fslandi. Ég hef nú skoðað hina nýju verksmiðju á Álafossi og hefur það styrkt góða trú mína á samstarfinu milli fyrir- tækja okkar. Ég hef skoðað marg ar spunaverksmiðjur í Evrópu en hv.ergi séð neina sem er betur skipulögð með tilliti til fram- leiðslugetu og vinnusparnaðar (rationalisering). Weston hefiir viðskipti við 2500 verzlunarfyrir- tæki um alla Evrópu og eru það hvarvetna hin beztu fyrirtæki sinnar tegundar. Teppi þau sem við munum flytja hingað til ís- lands eru með ibræddu undir- leggi, sem kemur í stað filts. Kosta teppin frá 635 kr. ísl. ferm upp í 850 kr. Á teppunum er þriggja vikna afgreiðslufrestur. MétS þessum viðskiptum við okk- ur eru íslendingar algerlega sam- keppnisfærir með iðnvarning sinn og er hin nýja verksmiðja á Álafossi tekur til starfa má full- yrða að íslenzkt garn verður sam keppnisfært að verðlagi til á frjálsum heimsmarkaði án allra vöruskipta, sagði Christensen að lokum. Ásbjörn Sigurjónsson kvaðst vilja bæta þessu við: — Það er ánægjulegt að nú skuli vera komið á norrænt sam- starf um verkaskiptingu og við erum ánægðir með að það skuli vera elzta iðnfyrirtæki landsins, Alafoss, sem tekur upp þetta sam starf. Samkeppnin er orðin geysi- hörð á sviði iðnaðarins og það verður að hafa augun opin og fylgjast vel með ef við eigum ekki að verða aftur úr. Með þess- um viðskiptum getum við reikn- að með jöfnu og öruggu verði fyrir íslenzku ullina og það sem hæst er fáanlegt á heinlsmarkaði. Bezta ullin, sem við fáum, fer til lopagerðar, en grófari ullin til framleiðslu á teppagarni. Við vonumst til að geta þegar á næsta ári flutt út 200 tonn af teppa- garni, en síðan árlega um 400 tonn eða rúmlega það, en það svarar til þess ullarmagns, sem við höfum flutt út óunnið að und- aníörnu, sagði Ásbjörn að lokum. Sölustjóri Álafoss, Sverrir Garðarsson, skýrði okkur frá gerð hinna nýju Weston-teppa, en þau koma á markaðinn hér næstu daga og eru sýnishorn þegar komin til landsins. Jens Christensen, fulltrúi Weston-teppaverksmiðjunnar, t.v„ og Ásbjörn Sigurjónsson, forstjóri Álafoss. Fyrir framan þá eru snýishorn af Weston-teppum og teppagarni frá Álafossi. Stóru spólurnar eru úr hinni nýju spunaverksmiðju, og í þessari spólustærð verður garnið flutt út. Hátíðahöldin í Hafnarfirði Hafnarfirði — Hátíðahöldin I dag verða í höfuðatriðum, sem hér segir: Klukkan 1,30 verður safnazt saman við Bæjarbíó og gengið þaðan í kirkju þar sem séra Helgi Tryggvason predikar. Að því búnu verður gengið á hátíðasvæðið á Hörðuvöllum. Þar setur Þorgeir Ibsen hátíðina og Lúðrasveit Hafnarfjarðar leik ur, en síðan fer fram fánahyll- ing. Þá flytur dr. Einar Ól. Sveinsson ræðu, Karlakórinn Þrestir syngur, ávarp Fjallkon- unnar (Herdís Þorvaldsdóttir), Svavar Gests með hljómsveit og einsöngvurum, handknattleikur, félagar úr Þjóðleikhússkórnum syngja, tveir leikþættir. — Kynnir verður Ólafur Þ. Kristj ánsson. Klukkan 5,30 verða kvikmynda sýningar í Bæjarbíói fyrir böm. Ög kl. 8 um kvöldið hefst kvöld vaka við Bæjarútgerðina. Þar leikur Lúðrasveitin og Þrestir syngja. Þá flytur bæjarstjórinn, Hafsteinn Baldvinsson, ávarp, Bessi Bjarnason og Gunnar Eyj- ólfsson fara með skemmtiþátt, Inga Maja Eyjólfsdóttir syngur, fimleikaflokkur úr K.R. sýnir, Arni Tryggvason og Klemens Jónsson fara með skemmtiþátt, Guðm. Guðjónsson syngur og loks verður dansað frá kl. 10 um kvöldið. — Kynnir á kvöld- skemmtuninni verður Gunnar S. Guðmundsson. — Endurvigð Framhald af bls. 19 útskorinn af Jóhanni Björnssyni, Húsavík, og hjónin að Stáðair- hóli, Halldóra og Han.nes Jóns- son, gáfu neonljóskross á kirkju buminin. Ýmsair fleiri gjafir bár- uisit. — FnéttaritanL Þjóðhátíðin á Akranesi Akranesþ 16. júní. HÁTÍÐAHÖLDIN 17. júní verða margvísleg. Kl. 13,15 verður skrúðganga frá Iðnskólanum á íþróttavöllinn. Kl. 14,00 verður hátíðin sett af Jóni Ben. Ásmunds syni, ræðu flytur Jón Árnason, alþm.; ávarp fjallkonunnar flyt- ur Sigurbjörg Halldórsdóttir; — karlakórinn Svanir syngur,- Þá verður þríþrautarkeppni og lúðra sveit Akranes leikur. KI. 17 verður dansleikur fyrir unglinga á Akratorgi. Kl. 21 verð ur kvöldvaka á Akratorgi og þá flytur ávarp Björgvin Sæmunds son, bæjarstjóri; Svanir syngja og Karl Guðmundsson leikari flytur gamanþátt; Guðmundur Jónsson óperusöngvari syngur einsöng; Gunnar Eyjólfsson og Bessi Bjarnason flytja leikþátt. Loks verður stiginn dans til kl. 2 um nóttina. -- — Oddur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.