Morgunblaðið - 29.06.1965, Blaðsíða 3
Þriðjudagur 29. júní 1965
MORGUNBLADID
3
SIÁKSTEIIIIAR
VAdanúrslit í 300 metra stökkL
(Myndir: A. L)
Mót hestamanna á Þingvöllum
HIÐ árlcpa hestamannamót
fór fram að Skógarhólum við
Þingvelli um síðustu helgi. —
Mikill mannfjöldi sótti mótið
að vanda eða rösklega tvö
þúsund manns. Veður var
fremur óhagstætt á keppnis-
daginn — sunnudag — gekk
þá á með skúraleiðingum. I
heild var mótið mjög vel
heppnað, og áttu allir ,scm
lögðu leið sina til Þingvalla,
þar ánægjulega dagstund.
Síðdegis á laugardag byrjaði
W .v/v*wve'<i> í V"'
fólk að streyma til Þingvalla
og var ungt fólk þar í meiri-
hluta, mikill fjöldi úr Reykja-
vík. Einnig komu margir á
hestum víðsvegar að, og mun
láta nærri, að alls hafi verið
um eitt þúsund manns á Þing-
völlum laugardagsnóttina. —
Hjálparsveit skáta hafði tjald-
búðir á afgirtu svæði, og var
til aðstoðar, ef með þyrfti.
Um kvöldið og nóttina bar
lítilsháttar á ölvun ungs flóks,
en þrátt fyrir það fór allt
fram með mestu spekt. í næt-
urkyrrðinni mátti heyra söng
úr öllum áttum, enda höfðu
heilu kórarnir raðað sér fyrir
framan mörg tjaldanna. Veður
var mjög gott um nóttina,
stiilt og bjart.
Þessi mynd er ef til vill táknræ’n fyrir hestamannamótið á Þing-
völlum á sunntidaginn og þarfnast raunar ekki frekari skýringa.
Á sunnudag klukkan eitt
hófust svo kappreiðar hesta-
mannafélaganna í SkógarhóÞ
um. Riðu þá inn á leikvanginn
í hóp knapar frá þeim átta
hestamannafélögum, sem að
mótinu stóðu. 1. verðlaun fyr-
ir fallegustu sýninguna féllu
í hlut hestamannafélagsins
Sleipnis á Selfossi. Að hópreið
lokinni hófst hindrunar-
hlaup, og var það einnig sýn-
ing.
Síðan hófst sjálf keppnin,
og var fyrst keppt í 250 metra
skeiði. Þar sigraði Logi Jóns
í Varmadal á 24,4 sek. Annar
varð Hrólfur Sigurðar í Laug-
arnesí á 24,5 sek. og þriðji
Neisti Einars Magnússonar á
24,6 sek
Frá keppni í skeiðL
Þulur á hestamannamótinu
var Hjalti Fálsson.
í 300 metra stökki sigraði
Þytur Sveins K. Sveinssonar á
mettíma, 21,4 sek. Eldra metið
var 22,2 sek. Annar varð
Dreyri Guðna á Skarði, 23,0
^ek. og þriðji Áki Guðbjarts
Pálssonar á 23,1 sek.
í 600 metra brokki sigraði
Gustur Einars í Heiðarbæ á
1 mín. 30,6 sek. Annar varð
§leipnir Guðbjarts Pálssonar
á 1 mín. 36,8 sek. og þriðji
varð Höttur Hreins á Lauga-
bóli á 1 mín. 37,8 sek.
í 800 metra stökki sigraði
Logi Sigurðar Sigurðssonar á
70,3 sek. Annar varð Gustur
Baldurs Bergstginssonar á 71,0
sek. og þriðji Þröstur Ólafs
Þórarinssonar á 71,2 sek.
Það vakti nokkra athygli og
ánægju áhorfenda, er Jón
Guðmundsson, bóndi á Reykj-
um, sýndi akstúr í léttikerru,
en hestamannafélögin hafa
mikinn áhuga á því, að keppni
í kerruakstri verði komið á í
nánustu framtíð.
Síðast fór fram naglaboð-
reið, og bar flokkur hesta-
mannafélaganna Loga og
Trausta þar sigur úr býtum.
Er mjólkurverkfallið
clöglegt?
A3 undanförnu hefur mátt lesa
1 kommúnistablaðinu vitnisburS
margra manna úr ýmsum stétt-
um um þær vinnudeilur, sem nú
standa yfir víðsvegar um land.
Sl. sunnudag var væntanlegt
mjóikurverkfall til umræðu í
dálkum blaðsins. Þar se*gir Sig-
urður Einarsson, form. Verka-
lýðsféiagsins Þórs á Selfossi mju
„Margir álíta, að hér sé nm
pólitískt verkfall að ræða og hér
sé verið að mótmæla inngönga
Mjólkurbús Flóamanna og Mjólk
ursamsölunnar i Vinnuveitenda-
samb'and fslands.
Slík verkföll eru ekki lögleg
hér á landi og það er ástæða
til að taka það fram, að þetta
skyndiverkfall er ekki boðað sem
slikt.“
Nokkuð annar tónn er f viðtaH
við annan mann í sömu grein í
kommúnistamálgagninu, en þar
segir m.a.:
„Hér liggur fyrir beint tjón hjá
bændunum sjálfum og eru þeir
nú að uppskera inngönguna í
vinnuveitendasamtökin og farnir
að borga herkostnað úr eigin vasa
fyrir ihaldið í Reykjavík.
Ekki fer á milli mála, að ef
marka á orð -beggja þessara
manna, þá er hér um ólöglegt
verkfall að ræða. Annar segir,
að ólöglegt sé að ,gera verkfall
hjá Mjólkurbúi Flóamanna og
Mjólkursamsölunni af þeirri
ástæðu einni, að þessi fyrirtæki
hafi gengið í Vinnuveitendasam-
band íslands. Hinn segir, að nú
séu þessi fyrirtæki „að uppskera
inngönguna í vinnuveitendasam-
tökin.“
“Allt á að loga í
skæmhernaði"
f viðtölum við hina ýmsu
menn hefur kommúnistablaðið
reynt að hylja tilgang sinn með
fagurgala um að kjör launafólks
þurfi að batna. í gegn um æsinga
skrifin hefur þó oft mátt greina
þá von kommúnista, að allt megj
hér loga í verkföllum og skæru-
heraaði, og geta menn síðan velt
því fyrir sér, hvern hagnað al-
menningur allur hefur af verk-
föllum og langvarandi ófriði á
vinnumarkaðinum. Þapnig var
eftir verkamanni á eyrinni haft
að „allt ætti að loga í verk-
föllum á stundinni“, og eft-
ir öðrum var haft „ég mun láta
hendur skipta í þessu verkfalli.“
í framhaldi af þessum ábyrgð-
arrýru ummælum er síðan haft
eftir náunga einum í blaðinu sL
sunnudag: „Skæruheraaður er
lausnarorð í baráttu verkafólks
í dag og hér á landi á allt að
loga í skæruhemaði til þess að
knýja fram sómásamleg laun
fyrir vinnuna. Þetta er hægt að
gera víða á landinu og til dæm-
is ættu þeir að stunda þetta í
síldarplássunum fyrir norðan og
austan í sumar.“
Þessi skrif lýsa ófögrum hug
til launþpga í landinu. Eru það
hagsmunir verkamannsins, að
ekki fáist mjólk handa börnum
hans, bara til þess að glatt geti
„logað í skæruheraaði?" Og
hvaða launþegi græðir á því, að
skæruhernaður verði stundaður
á sildarvertíðinni á Norður- og
Austurlandi?
|