Morgunblaðið - 05.10.1965, Blaðsíða 2
2
MORCUNBLAÐIÐ
Þriðjudagur 5. október 1965
Geimferðasýningin opnuð í gær
í byggingu EðEisfræðistofnunarinnar
I 1 GÆR var opnuð í hinu nýja
I ihúsi EðlisíræCistofnunarinnar á
f IMelunum sýningin „Út í geim-
1 inn“, en hún gefur góða hug-
■nynd um framkvaemdir Zanda-
níkjamanna á sviði geimrann-
«ókna. Þar gefur m.a. að líta
inyndir og upplýsingar um al-
Iþjóðasamvinnu á sviði geim-
■visinda, líkan af Gemini geim-
fari, eftirlíking af geimfara-
búningi, ljósmyndir teknar úti
í geimnum, líkan af Syncom-
fjarskpitahnetti í fullri stærð,
skýringarkvikmyndir um Syn-
com-fjarskiptahnött, og bækur
og ljósmynt. . u.n geimrannsókn-
arstörf. Verður sýningin opin
“ fyrir almenning kl. 14—22 dag-
lega til 15. október og 14—19 á
laugardag. Kl. 8 á kvöldin verða
sýndar stuttar kvikmyndir um
geimrannsóknir og á föstudag
flytur dr. Þorstéínn Sæmundsson
erindi um sama efni.
Sýningin var opnuð í gær kl. 5
að viðstöddum gestum. Reu'ben
Monson, blaðafulltrúi banda-
rísku upplýsingaþjónustunnar,
bauð gesti velkomna. Þá tók til
máls próf. Þorbjörn Sigurgeirs-
son, sem m.a. minnti á hinar öru
framfarir í geimvísindum, sem
mun áður en langt um líður
fara að gæta í lífi okkar h'r sem
annars staðar. Hingað hefði þeg-
ar komið fjölmennur hópur geim
fara, skotið hefði verið héðan
eldflaugum til rannsókna í
geimnum og nú væri opnuð þessi
sýning, sem skýrði okkur frá
rannsóknum Bandaríkjamanna á
sviði geimrannsókna. Hér væru.
góð skilyrði til geimrannsókna.
fsland liggur við iaðar þess
geislabeltis, sem umvefur jörð-
ina, og því væri hægt að hugsa
sér þetta sem endastöð geimfara.
Sendiherra Bandaríkjamanna
hér á landi, James Penfield, opn-
aði því næst sýninguna með
stuttri ræðu.
Upplýsingalþjónusta Bandarfkj-
anna stendur fyrir þessari sýn-
ingu og hafa starfsmenn hennar
lagt í það mikla vinnu að koma
henni upp.
Ríkharður frá
í 6 til 7 vikur
RÍKHARÐUR Jónsson hinn
kunni knattspyrnukappi frá
Akranesi hlaut mikil og slæip
meiðsli í úrslitaleik ÍA og KR
sl. sunnudag. Var Ríkharður
fluttur af leikvanginum til
rannsóknar í Slysavarðstof-
unni en síðar um kvöldið í
sjúkrabifreið til Akianess, þar
sem Páll Gíslason yfirlæknir,
hefur haft með höndum frek-
ari rannsókn á meiðslum
Ríkharðar.
Blaðið átti tal við Pál Gísla
son iækni í gærkvöldi og
spurði hann um meiðsli Rík-
harðar. Páll sagði m.a.:
— Það hefur brotnað þver-
tindúr í (hryggjarlið. Afleiðing
þess er ennfremur að liðbönd
og sinar slitna. Venjulega grær
þetta vel og sjúklingurinn
nær fullum bata að 6—7 vik-
um liðnum.
Sem betur fer eru þessi
meiðsl ekki í neinu sambandi
við fyrri meiðsl Ríkharðar. Að
vísu er erfitt að fullyrða hvort
núverandi meiðsl hafi áhrif
á fyrri meiðsl Ríkharðar, en
það er ekkert sem bendir tli
þess eins og er. _
Auk brotsins í hryggjarlið,
hélt Páll læknir áfram, hefur
nýra orðið fyrit: einhverju
hnjaski, en það er ekki alvar-
legt.
Aðspurður sagði Páll Gísla
son að þessi meiðsl gætu ekki
orðið nema af töluverðum
áverka, staðbundnum.
Læknirinn var spurður um
iíðan Ríkharðar og hann svar
aði:
— Hann er að vonum aum-
ur. Hann hefur ekki kvalir af
beinbrótinu í sjálfu sér, en
það sem rifnar og slitnar við
beinbrotið. veldur meiri ó-
þægindum. Aðalatriðið er þó,
sagði læknirinn, að Ríkharður
ætti að ná fullum bata.
Talið við lækninn beindist
að slysum í íþróttum almennt.
Lét Páll í ljós þá skoðun sina,
að sér fyndist fullmikil harka
í leik áhugamanna. Það væri
alltof algengt að leikmenn
væru dögum og vikum saman
frá vinnu vegna slysa í íþrótt
um. íþróttirnar væru leikur
manna, sem ynnu aðra vinnu,
og þó siys gætu alltaf hent,
væri helzt til mikið um þau.
Heildaraflinn 2,3
millj. mál og tunnur
ELDUR
HESTA
Borgareyxum, 4. okt.
UM hádegið sl. laugardag varð
elds vart að býlinu Lambhúshóli
undir Vestur-Eyjafjöllum. Kvikn
að hafði í heyi í fjóshlöðu og var
um sjálfsíkveikju að ræða. Hlaða
þessi er talin taka um 1000 hesta
og var hún full.
Slökkviiiðið á Hvoisvelli var
kallað á vettvang og kom fljótt,
svo og dreif að sveitunga og
hjálpuðust allir að við slökkvi-
starfið. Moka þurfti um helm-
ingi heysins út úr hlöðunni og
var því verki lokið um kvöld-
matarleytið á laugardag. Klukk-
aa 8 um kvöldið gaus eldurinn
í 1000
HLÖDU
upp á ný, en þá tókst fljótt að
ráða niðurlögum hans, því menn
voru enn staddir á brunastað,
nema hvað slökkviliðið var fyrir
nokkru farið. Var það kallað út
á ný og var það á verði að Lamb-
húshóli um nóttina.
Bruni þessi hefði getað orðið
stórum alvarlegri ef ekki hefði
verið logn og blíðuveður á laug-
ardaginn, svo af þeim sökum var
slökkvistarfið auðvelt.
Mjög mikið af heyi því, sem
dregið var upp úr hlöðunni,
skemmdist en það hefir ekki enn
verið metið. Heyið var tryggt.
Hjónin Jónas Pétursson og Guð-
rún Guðmundsdóttir reka bú-
skap á Lambhúshóli. — Markús.
INDÆLT haustveður var um
allt land í gær, víðast logn
eða hægur andvari og þurrt
veður. Hitinn var 4 til 13 stig
upp úr hádeginu, hlýjast á
Rangárvöllum. Á Austfjörðum
var þó þoka og einnig við
AÐ því er Fiskifélag fslands upp-
lýsti í gærkvöldi var heildar-
aflinn á miðnætti aðfaranótt
Húnaflóa framan af degi.
Djúpa lægðin suðaustur af
Grænlandsodda var á hægri
hreyfingu ANA, svo að búast
má við austlægri átt og hlýind
um áfram í dag.
BANASLYSIÐ
Frásögn leigubilstjóranns
SVO sem kunnugt er af frétt-
um varð hörmuiegt dauðaslys
á Langholtsvegi, á móts við
húsið 159, aðfaranótt sl. laug-
ardags. Ungur maður beið
bana, en eiginkona hans slas-
aðist, svo og bifreiðastjórinn
á leigubifreiðinni Gunnar
Oddsson, viðskiptafr ‘ingur.
Morgunblaðið heimsótti
Gunnar í gær til þess að
fregna hjá honum, hvernig
slysið hefði komið honum fyr-
ir sjónir.
Gunnari segist svö frá, að
er hann hafði komið að hús-
inu númer 159 við Langholts-
veg, en það var ákvörðunar-
staður farþeganna, hafi vant-
að 10 krónur upp á þá upp-
hæð, er ökugjaldið hafi num-
ið. Hann hefði sagt farþegun-
um, að ekki skipti máli með
þessar 10 krónur, en þeir stað-
ið fastir á að fá að borga
þær og hafi því nokkur tími
farið í það að skrifa ávísun.
Meðan þau hafi verið að
þessu hafi hann ekki vitað
fyrr en áreksturinn varð.
Ekki kvaðst Gunnar muna
árekstúfinh sjálfán, háríri hafi
strax misst með.l.und, en.
raknað skömmu síðar úr rot-
inu og þá verið fyrir ■ utan
bifreiðina, Hafði hann þá
heyrt neyðaróp stú’hunnar og
einhvern hávaða £ talstöð bif-
retiðarinnar. Mun Gunnar
síðan hafa misst meðvitund að
nýju, því að hann kveðst ekki
muna neitt eftir sér fyrr en á
sjúkrahúsinu, er verið var að
sauma saman skurð, er hann
fékk á höfuðið.
Að heimili Gunnars hittum
við einnig starfsfélaga hans,
Gretti Lárusson, en hann kom
á slysstað rétt eftir slysið.
Grettir segir, að þegar hann
hafi komið á slysstað hafi
Gunnar verið með meðvit-
und. Bifreið Gunnars1 hafi
verið á hliðinni og þak henn-
ar f .st upp að Yolkswagenbif-
reið, er staðið hefði þar rétt
hjá. Kvenfarþeginn I bíl
Gunnars, hefði verið klemmd-
Ur á milli kistuloksins og
giuggakarmsins og hafi hann
ætlað að ná í dúnkraft til
þess að ná henni út, en á með-
an hann hafði verið að sækja
dúnkraftinn, hafi fólkið, er
komið hefði aðvífandi reist
bifreiðina við með farþeg-
unum særðum í og hafi hann
ekkert getað aðhafzt til þess
að aftra því.
Aðspurður um framkomu
hinna ógæfusömu manna, er
árekstrinum ollu, sagði Grett-
ir, að þeir hefðu slegizt á
slysstað. Ekki kvaðst hann
vita, hvers vegna, en samt
hafi sér skilizt, að. það hafi
verið vegna áreksturs þeirra
félaga. Hefðu þeir verið hinir
dólgslegustu. Þá kvaðst Grett-
ir hafa haft miklar áhyggjur
af því, að mikið var af drukkn
um mönnum á 'slysstað með
logandi vindiinga, en benzín-
ið hafi flotið um alla götuna.
Síðar hefði slökkviliðið kom-
ið og hreinsað götuna, svo að
ekki yrði íkveikjuhætta.
sunnudags orðinn 2,3 milljónir
mál og tunnur, en var á sáma
tíma í fyrra 2,5 milljónir.
Aflinn sl. viku nam 247 þús-
und málum og tunnum. í vik-
unni er leið var saltað í rúmlega
43 þúsund tunnur, því heildarsölt
un nemur um 331 þúsund tunn-
um, en var um fyrri helgi rúm-
lega 287 þúsund tunnur. Á sama
tíma í fyrra hafði verið saltað í
rúmlega 347 þúsund tunnur.
Bræðslusíldaraflinn í sumar
nemur 1998 þúsund málum.
Gunnar Oddsson.