Morgunblaðið - 05.10.1965, Page 8

Morgunblaðið - 05.10.1965, Page 8
8 MORGUNBLAÐIÐ Þriðjudagur 5. október 1965 Aleð' næringu og réttri lunuiuiuu breytist barn á 12 mánuðum. íslenzkt æskufólk safnar fé gegn hungri í heiminum HERFERÐ gegn hungri er sem kunnugt er hafin að tilhlutan FAO, Matvæla- og landbúnaðar- stofnunar Sameinuðu þjóðanna, í 80 löndum. Einnig hér á íslandi, þar sem samtök ungs fólks bera uppi þessa starfsemi, og hefur það vakið athygli. Framkvæmda- nefnd Herferðar gegn hungri kallaði blaðamenn á sinn fund í gær, til að skýra frá starfsemi sinni, sem m.a. er í því fólgin að skýra vandamálið hungur fyrir íslenzku þjóðinni og hefja al- menna fjársöfnun til að kosta ákveðið verkefni, sem FAO mun síðan hrinda 1 framkvæmd. En almenn fjársöfnun hefst í byrjun nóvember og stendur til loka þess mánaðar. Hefur nefndin skrifstofu í húsi Æskulýðsráðs á Fríkirkjuvegi 11 og síðar imin hún einnig fá inni á Hall- veigarstöðum. Um hungrið í heiminum og herferðina gegn Því, sagði framkvæmdanefndin: Hungur Sérfræðingar FAO, Matvæla- og landbúnaðarstofnunar Samein uSu þjóðanna, telja, að um það bil helmingur mannkynsins þjá- i»t af hungri eða næringarskorti. Sumir taka dýpra í árinni og nefna tvo þriðju. Rannsóknir FAO sýna glöggt, að bilið milli ríkra og fátækra breikkar með vaxandi hraða. Á síðasta áratug hefur matvæla- framleiðsla í velmegandi ríkjum aukizt um 27 % á mann, en fram- leiðsla vanþróaðra ríkja mjakast vart upp á við. Sérfræðingar FAO telja, að 60% íbúa hinna vaniþróuðu ríkja þjáist af nær- ingarskorti, og 20% af hungri í válegustu merkingu þess orðs. Um 72% jarðarbúa eru nú í þess- um ríkjum. Þar er mannfjölgun in örust og matvælaframleiðslan minnst. Á síðasta áratug hefur mann- kyninu fjölgað með nálega tvö- földum hraða, miðað við þann næst síðasta, og flest bendir til, að þróunin haldi með vaxandi hraða í sömu átt. Matvæla- og landbúnaðarstofn- unin hefur komizt að þeirri nið- urstöðu, að íbúum vanþróaðra ríkja mundi séð fyrir nægjan- legri fæðu, ef takast mætti að auka framleiðslu sömu ríkja um 79% fyrir árið 1976, og um 293% fyrir árið 2000. Þessu marki telja sérfræðingar unnt að ná með því að auka þjóðatekjur vanþróaðra ríkja um 5% ár hvert. Sameinuðu þjóðirnar hafa Þjóðdansafélagið hyggur á utanför Vetrarstarfsemi þess að hefjast WÓÐDANSAFÉLAG Reykja- víkur er nú að hefja 15. starfs- ár sitt. Félagið gengst nú, sem nndanfarin ár, fyrir dansnám- afceiðum fyrir almenning, bæði fyrir byrjendur og þá, sem lengra eru komnir. Kenndir eru bteði gömlu dansarnir og þjóð- dansar. Aðsókn að þessum vinsælu nám skeiðum fer sívaxandi, og kom- ust færrí að, en vildu, sl. haust. Allar horfur eru á að aðsókn verði ekki minni í vetur. Vin- sældir þjóðdansanna má af því marka, að sumir þeirra eru nú þegar orðnir meðal vinsælustu gömlu dansanna, og aðrir eru nú meðal tízkudansa ársins. Innan félagsins starfa sem fyrr, barna- ög' unglingaflokkar, óg sýningarflokkar. Barnaflokkarn- ir hafa notið mikilla vinsælda, en þar fer flokkaskipting eftir aldri. Fá börnin þar góða undir stöðu fyrir hvers konar dansnám síðar meir. Starfsemi sýningarflokksins íar stöðugt vaxandi, og staríar hann nú orðið allt árið um kring, en starfaði áður nær eingöngu að vetrinum til. í sumar hafa ver ið sýningar að Árbæ, fyrir er- ienda skemmtiferðamenn, sjón- varpsmenn, og víðar. Ennfremur fór 20 manna flokkur frá félaginu í sýningaferð til Þýzkalands í júní. Ráðgert er að stór hópur frá félaginu fari til Danmerkur og fleiri Evrópulanda næsta sum ar. Vegna hinnar fyrirhuguðu ut anfarar, verður hin árlega vor- sýning félagsins nokkru fyrr en venjulega, eða í febrúar — marz. Á síðasta ári fjölgaði mjög styrktarfélögum Þjóðdansfélags- ins, og var Háskólabíó nær full setið á síðustu vorsýningu. 14. aðalfundur 'félagsins var haldinn 31. maí ‘sí. Núvéfandi stjórn félagsins e$ þannig skip- uð: Form. Sverrir M. Sverrisson; varaform. Þorbjörn E. Jónsson; gjaldkeri, Baldur Sveinsson; spjaldskrárritari, Eðvarð Bjarna son; ritari, Steinunn Ingimund- ardóttir. ákveðið að beita sér af alefli fyrir því, að svo megi verða. Margir gera sér nú ljóst, að stopular matargjafir hrökkva skammt í þeirri baráttu, sem mannkynið á framundan. Leiðin að settu marki er að auka mat- vælaframleiðsluna hjá hverri þjóð, endurbæta landbúnað þeirra og sjávarútveg með nýrri tækni. kenna bændum og fiski- mönnum að nota framleiðsluað- ferðir tuttugustu aldar, og hjálpa iþeim til að eignast þann búnað, sem við þarf. Svo stórfelldu verkefni verður •hrundið í framkvæmd, aðeins með því móti, að þjóðir heims, stórar og smáar, leggist á eitt, hver ríkisstjórn og hver þjóð leggi fram sinn skerf til bar- áttunnar. — Herferð gegn hungri er nú hafin, að tilhlutan FAO, í meir en áttatíu löndum, einnig hér. Framkvæmdanefnd Herferðar gegn hungri (Freedom from Hunger Campaign) er hér stofn- uð fyrir atbeina Æskulýðssam- bands íslands og hinnar islenzku FAO-nefndar. Nefndin mun starfa í sama anda Og að svip- uðum verkefnum og fram- kvæmdanefndir herferðarinnar í öðrum löndum. Hún mun leitast við að skýra vandamálið hungur fyrir íslenzku þjóðinni, og hefja almenna fjársöfnun til að kosta ákveðið verkefni, sem FAO mun síðar hrinda í framkvæmd. Æskulýðssamband íslands hef- ur ellefu landssambönd æsku- fólks innan sinna vébanda, en þau eru þessi: Stúdentaráð Há- skóla Islands, Bandalag ís- lenzkra farfugla, Iðnnemasam- band íslands, Samband bindindis félaga í skólum, íslenzkir ung- templarar, íþróttasamband ís- lands, Ungmennafélag íslands, Samband ungra Framsóknar- manna, Samband ungra Jafnað- armanna, Samband ungra Sjálf- stæðismanna og Æskulýðsfylk- ingin — samband ungra Sósíal- ista. — Æskulýðsnefnd þjóð kirkjunnar styður herferð gegn hungri. Héraðsnefndir Héraðsnefndir sem annast framkvæmdir herferðarinnar ut- an Reykjavíkur, hafa nú verið stofnaðar víða um land. Nefndir í Kópavogi, Hafnarfirði, Nes- kaupstað og Siglufirði eru þegar teknar til starfa, Og á Akranesi, Ólafsvík, Akureyri, ísafirði, Vest mannaeyjum, Keflavík, Húsavík og Selfossi eru héraðsnefndir HöH að byrja störf sín. — Verk efni þeirra er að kynna vanda- mál vanþróaðra rikja, hungrið í heiminum og leiðir til úrbóta, og gangast fyrir fjársöfnun, hver á sínum stað. Framkvæmdanefnd- in í Reykjavík hefur til umráða myndaspjöld, kvikmyndir, mynd ræmur og bæklinga þeim til handa, en því miður, enn sem komið er, svo lítið magn þessara hluta, að óvarlegt þykir að dreifa þeim af handahófi. Framkvæmda nefndin væntir þess að héraðs- nefndir láti vita, ef þær óska eft- ir slíkum hlutum nú þegar, en síðar mun enginn hörgull verða á þessu efni. Eftirtaldir aðilar hafa lofað að styðja málefni HGH, og skipa þeir stuðningsnefnd herferðar- innar: Ármann Snævarr, rektor Há- skóla íslands; Benedikt Gröndal, ritstjóri; Bjarni Benediktsson, fonnaður Sjálfstæðisflokksins; Davíð Ólafsson, formaður FAO- nefndar íslands; Einar Olgeirs- son, formaður Sósíalistaflokksins; Emil Jónsson, formaður Alþýðu- flokksins; Eysteinn Jónsson, formaður Framsóknarflokksins; Geir Hallgrímsson, borgarstjóri; Gunnar Guðbjartsson, formaður Stéttarsambands bænda; Gunnar G. Schram, rítstjóri; Halldór Kiljan Laxness, rithöfundur; Hannibal Valdimarsson, forseti Alþýðusambands íslands; Helga Magnúsdóttir, formaður Kven- félagasamb. íslands; Helgi Elías- son, fræðslumálastjóri; Hrefna Tynes, varaskátahöfðingi; Jakob Frímannsson, formaður Samb. ísl. samvinnufélaga; Jónas B. Jónsson, skátahöfðingi; Kjartan Thors formaður Vinnuveitenda- sambands íslands; Kristján Thorlacius, forseti Bandalags starfsmanna ríkis og bæja; Magn ús Kjartansson, ritstjóri; Sigur- björn Einarsson, biskup; Sigurð- ur Bjarnason, ritstjóri; Sigurður Sigurðsson, landlæknir; Vigfús Sigurðsson, forseti Landssam- bands iðnaðarmanna; Vilhjálmur Þ. Gíslason, útvarpsstjóri; Þór- arinn Þórarinsson, ritstjóri. ji Jacqueline Kennedy í samræðum við mág sinn, öldunga- dyildarþingmaiminn Ted Kennedy. Jacqueline Kennedy á dansleik I fyrsta skipti í 22 mánudi FYRIR skömmu var Jacque- Kennedy yrði viðstödd í þessu line Kennedy heiðurgestur í afmælissamkvæmi, seldust að fjáröflunar samkvaemi í Bost- göngumiðarnir upp á stuttum on, fæðingarborg hins látna tíma, og á svörtum mark- forseta, og er þetta í fyrsta aði voru miðar seldir fyrir skiptið síöan maður hennar svimandi háar upphæðir. — var myrtur að hún tekur þátt Jackie mætti til samkvæmis- í samkvæanislífinu. ins í grænni kápu og i ljós- Samkvæmi þetta var haldið um samkvæmiskjól frá í tilefni af 85 ára afmæli franska tízkusérfræðingnum Sinfóníuhljómsveitarinnar í Jean Patou. Boston, en samkvæmi þetta hefði eins mátt kalla „Jackie endurheimt' voru flestir gestanna komnir Fyrsta dansinn steig frú l7 Kennedy með framkvæmda- ^V1 v stjóra Sinfóníuhljómsveitar- „ . - . , ... . innar,, Henry Cabot, en allt þangað fyrs og rems kvöldið var samkvæmisklædd sja na. . ;jt ( ur maður frá öryggislögr fjar Samkvæmisfólkið í Boston « maðmr frá öryggislögregl , . ... ,-n unm 1 aðeins farra metra fja: greiddi af fusum vilja 150 dollara (6.500.00 ísl. kr.) fyr ir að £á sæti við eitt af þeim 60 borðum er-^ett höfðu ver- ið uppt líni oi lægð frá Jackie. Síðan dansleikur þessi var haldinn hefur v^izluboðum rignt yfir frú Kennedy, en í hyggju að meira en 17 millj. ísl. kr. draga sig í hlé með börnum Þegar það fregnaðist að frú sínum enn um sinn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.