Morgunblaðið - 05.10.1965, Síða 23
MORGU N B LADID
23
f-
Þriðjudagur 5. olrWber 1965
I
tn n- r iinr>r*- - « ■ ■ -« —-*• »*» » «*.. —i
Einþáttungur eftir Beck-
ett sýndur
NÆSTKOMANDI fimmtu-
dag’ tekur Þjóðleikhúsið til
sýningar á litla sviðinu í Lind
arbæ einþáttunginn „Síðasta
segulband Krapps“ eftir írska
skáldið Samuel Beckett. Þýð
inguna hefur Indriði G. Þor-
stcinsson gert en Ieikstjóri er
’ Baldvin Halldórsson.
Leikendur í þessum sér-
kennilega einþáttung eru tveir
ef svo má að orði komast,
nefnilega Árni Tryggvason,
sem leikur Krapp, og svo seg
ulbandstækið, sem einnig fer
þar með veigamikið hlutverk.
Æfingar á leikþættinum hafa
staðið yfir síðan í vor.
Þetta er annað leikritið eft
ir þetta fræga skáld, sem sýnt
er á sviði hér á landi, hitt
fyrra var „Beðið eftir Godot“,
sem sýnt var hjá Leikfélagi
Reykjavíkur fyrir nokkrum
árum og vakti þá mikla at-
hygli. Þýðinguna á því hafði
Indriði einnig gert. Baldvin
var þá leikstjóri líka og loks
lék Árni Tryggvason annað
aðalhlutverkið og er því engu
líkara sem þeir þremenningar
ætli að gera leikrit Becketts
að sérgrein sinni.
Ekki skal hér fjölyrt um
efni leikþáttarins — hann
' mun eflaust koma leik'hús-
gestum kynlega fyrir sjónir
' — en í þess stað sagt lítilega
frá höfundinum, Samuel
Becket, en hann hefur fyrir
löngu hlotið verðskuldaða
frægð fyrir ritverk sín og nú
hefur verið miki'ð um hann
rætt sem væntanlegan Nóbels
verðlaunahafa. Hann fæddist
í Dublin árið 1906 og nam við
skóla þar. Fyrsta ritverkið
sem ’hann sendi frá sér var
ljóðabókin Whorosoope, en
Beckett var þá 24 ára að aldri.
j Fimm árum seinna kom önn-
ur Ijó'ðabók eftir hann út en
síðan sneri hann sér meira að
■ Lindarbæ
skál dsagnagerð. Fyrsta leikrit 1
sitt skrifaði hann á frönsku
en það er einmitt „Beðið eftir •
Godot", sem getið er hér á
undan. Næsta leikrit hans var
„Endgame", þá kom „Síðasta 1
segulband Krapps“ og loks '
„Happy days“, sem frumsýnt '
var 1060. Auk þessa hefur
Beckett einnig samið þrjú út-
varpsleikrit.
Hinn frægi brezki leikrita-
gagrýnandi, Martin Esslin,
segir m.a. um Beckett í grein,
sem hann reit nýlega í brezka ,
tímaritið „Plays and players“,
að hann telji Samuel Becket ,
vera einn mesta rithöfund
þessarar aldar, þótt hann viti
vel, bve vafasamt sé að fella
slíka dóma um núlifandi rit-
höfund. En hann kveðst vera
mjög hikandi við a'ð lofsyngja
nokkurt annað núlifandi skáld B
svo. Allt öðru máli sé að J
gegna um Beckett, hann sé 1
djúphugull og einbeittur rit- 1
höfundur, algjörlega laus við J
alla sjálfsauglýsingahvöt, og 1
láti sig engu skipta tízku- <
fyrirbrigði í listum né almenn
ingsihylli, svo að nokkúð það ,
sem leitt geti til ofmats á nú-
lifandi rithöfund sé fjarri lagi
þegar Beckett sé annars veg 1
ar. Beckett geti í ritverkum
sínum gefið mönnum innsýn '
í mannlegt eðli og stöðu
mannsins í alheimnum, en um
fram allt sé honum unnt að
sýna okkur umheiminn með
stillingu og af kyrrlátri gleði.
Méð „Síðasta segulband
Krapps“ verður sýndur ein- ,
þáttungur eftir Odd Björnsson
sem nefnist Jóðlif en eins og ,
kunnugt er var þssi einþátt-
ungur sýndur einu sinni í
Lindarbæ á sl. vori. Leikstjóri )
er Erlingur Gíslason, en leik-
endur tveir, Þorsteinn Ö. ,
Stephensen og Baldvin Hall-
dórsson. Þetta er fimmti ein-
þáttungurinn. *
Árni Tryggvason í hlutverk i Krapps og segulbandstækið, en
/ Það fer einnig með velgamikið hlutverk í einþáttungi Becketts.
— Moksild
Framhald af bls. 32.
beint undir krana og lagði upp
í bræðslu.
SEYÐISFIRÐI
Hér hafa þau skip, er lengst
hafa beðið, verið í nærfellt sólar-
hring og gengur illa löndun. Stöð
ug bilun er á sumum tækjum
ríkisverksmiðjunnar en þróar-
rými er þar enn. Söltunarstöðv-
arnar hafa reynt að taka af skip-
unum það sem hægt er, saltað
stærstu síldina, en ekið hinu í
bræðslu og hefir tekizt að losna
við úrganginn. Hjá síldarverk-
smiðju Hafsíldar hefir löndun
gengið vel, en verksmiðjan af-
kastar litlu, miðað við þann
mikla landburð, sem nú er. Ein
söltunarstöðin hér hefir landað í
dag um 2000 málum, sem hafa
farið beint í bræðslu, eftir að
tekin hefir verið úr stórsíldin.
NESKAUPSTAÐ
Yfir helgina hafa komið hingað
22 skip með 18.100 tunnur. Síld-
arbræðslan hefur tekið á móti
270 þús. málum og eru nú allar
þrær orðnar fullar. Er landað
jafnóðum og þró tæmist.
I gærmorgun varð það óhapp
að rafmagn fór í verksmiðjunni
Á aðalfundi Alþjóðabankans. Við borðið sitja Gylfi Þ. Gislason, viðskiptamálaráðherra og við
hlið hans Jóhannes Nordal, seðla bankastjóri, (næst ljósmyndarnu m fulltrúi Indlands). Þá má sjá
í næstu röð Magnús Jónsson, fjá rmálaráðherra, og við hlið hans Þórhall Ásgeirsson ráðuneytis-
stjóra. í þriðju röð sitja Vilhjálmur Þór, sérstakur fulltrúi Norðurlanda hjá Álþjóðabankanum
og við hlið hans Pétur Xliorstein sson, ambassador.
— Trygging
Framha’d af bls. 32
til meðferðar, sem allt of langt
mál yrði hér að gera grein fyrir
í einstökum atriðum, má segja,
að umræður hafi mest snúizt um
tvö atriði:
— Annars vegar hina brýnu
nauðsyn þess, að gerðar yrðu al-
þjóðlegar ráðstafanir til aðstoðar
þróunarlöndunum í enn ríkari
mæli.
— Hins vegar um ráðstafanir
til að tryggja jafnvægi í greiðslu
viðskiptum þjóða í milli. Tíu af
aúðugustu þátttökuríkjum gjald
eyrissjóðsins hafa að undanförnu
haft það mál til sérstakrar athug
unar, en á fundinum var lögð á
það áherzla, að fulltrúum margra
þjóða, að þær ráðstafanir yrðu
samræmdar sem bezt Alþjóða-
gjaldeyrissjóðnum til framdrátt-
ar og innan ramma hans. Þetta
mál er sérstaklega erfitt viður-
eignar einmitt nú vegna þess að
Bandaríkin leggja höfuðáherzlu
á að jafna greiðsluhalla sinn í er
lendum viðskiptum. En einmitt
greiðsluhalli Bandaríkjanna hefir
á undanförnum árum gert auð-
veldara að leysa úr gjaldeyris-
erfiðleikum annarra þjóða. Hefir
jafnvel komið til tals að nota
sérstakan gjaldmiðil til þess að
leysa úr timabundnum gjaldeyr-
isvandræðum meðlimaríkja Al-
þjóðagjaldeyrissjóðsins.
— Johnson, Bandaríkjaforseti,
flutti ræðu á fundinum. Kvað
hann það óumflýjanlegt að koma
í veg fyrir langvarandi halla á
utanríkisviðskiptum Bandaríkj-
anna til þess m.a., að tryggja
sem bezt stöðu dollarans sem al-
þjóða gjaldmiðils. Lýsti hann
jafnframt einlægum vilja ríkis-
stjórnar sinnar til að liggja fram
sinn skerf til lausnar þeim vanda
sem af þessu kynni að leiða fyrir
ýmsar aðrar þjóðir. Sérstaka
áherzlu lagði forstinn á hina
brýnu nauðsyn þess að styðja
þróunarlöndin og eflingu Alþjóða
bankans og Alþjóðagjaldeyris-
sjóðsins.
— Útlán Alþjóðabankans urðu
á sl. starfsári meiri en nokkurt
ár áður. Samþykkt var að efla
mjög verulega starfsemi I.D.A.,
sem er dótturfyrirtæki Alþjóða-
bankans, og vinnur sérstaklega
að uppbyggingu í þeim löndum,
sem við efnahagsörðugleika eiga
að stríða, og þurfa því sérlega
góð lánskjör. Þá er starfandi ann
að dótturfyrirtæki bankans,
I.F.C., sem hefir það sérstaka
hlutverk að stuðla að uppbygg-
ingu mikilvægs atvinnurekstrar
á vegum einkaaðila og gerist
stofnunin jafnvel hluthafi í slík-
um fyrirtækjum.
— ísland hefir um langt skeið,
sagði Magnús Jónsson, fjármála-
ráðherra, ennfremur, — notið
mjög mikilvægrar aðstoðar bæði
Alþjóðabankans og Alþjóðagjald
eyrissjóðsins. Ýmsir íslendingar
hafa starfað við þessar stofnanir,
hlotið þar dýrmæta reynslu, sem
komið hefir íslandi að miklu
gagni, og jafnframt unnið sér
mikið traust innan stofnananna,
sem greinilega kom í ljós í við-
ræðum við forystumenn þeirra.
Meðan á fundinum stóð áttum
við íslenzku fulltrúarnir mjög
gagnlegar viðræður við ráða-
menn beggja stofnanna. Við Al-
þjóðagjaldeyrissjóðinn ræddum
við almennt um ástand og horfur
í efnahagsmálum þjóðarinnar og
við Alþjóðabankann fyrst og
og fremst um beiðni þá, er fyrir
bankanum liggur um lán til Búr-
fellsvirkjunar. Jafnframt var
rætt nokkuð við bankann um
hitaveituframkvæmdir Reykja-
víkurborgar, en bankinn hefir
þegar lánað nokkurt fé til þeirra.
Borgarstjórinn í Reykjavík tók
þátt í þeim viðræðum.
Fjármálaráðherra lét að síðustu
vel yfir fundum þessum, en kva5
þá hafa verið talsvert annasama.
og við það kviknaði í þurrkara
og síðan í mjölskiljara. varð af
þessu allmikill eldur um tíma
og stóðu eldtungurnar langt upp
úr reykháf verksmiðjunnar.
Slökkvilið bæjarins var þegar
kvatt á vettvang og tók nokkurn
tíma að slökkva eldinn og eins
að kæla þurrkarann. Ekki var
hægt að hefja bræðslu aftur fyrr
en um kvöldið.
Óhöpp sem þetta hafa komið
fyrir áður í sumar, að rafmagn
fari skyndilega, og fylgir því
vanalega að þá kviknar í þurrk-
ara óg af því einu verður margra
tíma stöðvun. Er það mjög dýrt
fyrir svona fyrirtæki, því það
tekur það um 15 klst. að fram-
leiða verðmæti einnar milljónar.
Trúlega verða þessi óhöpp vegna
þess að spennistöð verksmiðj-
unnar er of lítil og mun spennir
verða settur upp í verksmiðj-
unni í haust.
Á laugardag lestaði hér tog-
arinn Jón forseti 142 tonnum af
síld, sem hann ællar að selja á
Þýzkalandsmarkaði. Hér er nú
búið að salta í 44.701 tunnu og
frysta 6373 tunnur. — Ásgeir.
VOPNAFJÖRÐUR
Allt er hér að kafna í síld.
Saltað er eins og hægt er og
eftir því sem fólkið getur staðið
uppi. í dag er búið að tilkynna
hér 35 þús. mál í bræðslu. Enn
sem komið er hafa söltunar-
stöðvarnar hér ekki verið í vand
ræðum að koma úrganginum frá
sér í bræðslu.
Sláturhúsið hér er í fullum
gangi og mjölskip er að lesta
mjöl. Því er fólkseklan enn til-
finnanlegri. Veður er gott, nema
þouksúld.
Verksmiðjan á Bakkafirði var
hætt, því þangað höfðu ekki
borizt nema 1600 mál í allt sum
ar. Hún opnaði hins vegar aftur
í dag til móttöku og þangað
voru fjögur skip búin að til-
kynna komu sína.
FÁSKRÚÐSFJÖRÐUR
Síldarbræðslan hefir nú orðið
ekki einu sinni undan að bræða
úrganginn frá söltunarstöðvun-
úm hér, svo mikill er hann. —
Þess eru dæmi að söltunarstöðv
arnar fara í gegnum sem svarar
5000 tunnum síldar og salta af
því ekki nema 1000—1500 tunn-
ur, svo mikill er aðburðurinn og
ekkert saltað nema það bezta.
Hér mun ekki verða tekið á
móti bátum í næstu tvo daga.
Enn eru ekki vandræði með
fólk að ráði, því skólafólkið
bjargar söltuninni.
ESKIFJÖRÐUR
Hór er erfitt með söltun og
löndun í bræðslu. Verksmiðjan
tekur aðeins við úrgangi frá sölt
unarstöðvunum og farið er að
flytja síld í tank, sem staðsett-
ur er inni í landi og er ekki not-
aður nema vandræði séu. Ekki
hefir verið hægt að taka við
nema örfáum bátum og engan-
veginn öllum sem tilkynnt hafa
komu sína.
Aðeins var saltað hér á einni
stöð í dag, bæði végna þess áð
fólkið er útkeyrt og svo hefir
ekki verið tækifæri til að ganga
frá síldinni, sem þegar er kom-
in í tunnur.
GOTT veður var á síldarmiðun-
um á sunnudag og aðfaranótt
mánudags og góð veiði á svipuð-
um slóðum og undanfarna daga.
Samtals fengu 70 skip 68.950
mál og tunnur. Þessi skip voru
með yfir 1000 mál og tunnur.
Ólafur bekkur OF 1100 tn., Ögri
RE 1200, Dagfari ÞH 1400, Jón
Kjartansson SU 1800, Halldór
Jónsson SH 1100, Sigrún AK
1000, Jörundur III RE 1500,
Grótta RE 1000, Siglfirðingur SI
1600, Óskar Halldórsson RE 1400,
Vigri GK 1200, Vonin KE 1300,
Sigurpáll GK 1300 Ásibjörn RE
1000 Ingvar Guðjónsson GK 1300,
Barði NK 1100 mál, Haraldur AK
Snæfell EA 1200, Þorsteinn RiE
1200, ól. Magnússoh EA 1100,
1500, Árni Magnússon GK 1100,
Reykjaborg RE 1650, Sólfari AK
1100, ísleifur IV VE 1200, Höfr-
ungur III AK 1700, Hafrún IS
1150, Akraborg EA 1500, Bjarmi
II EA 1300, Hamravík KE 1000,
Höfrungur II ÁK 1200, Hanne*
afstein EA 1200, Lómur KE 1250,
Eldiborg GK 1000, Engey RiE 1100
Sólrún IS 1200, Guðrún Jónsd. SS
1650 mál og tn.
Á sunnudaginn voru aflahæst-
ix Keflvíkingur 200 mál, Jörund-
ur II og Ingiber Ólafsson II 1700,
Akurey RE 1850, Súlan 1800,
Bjartur, Arnar og Jón Garðar
með 1600 mál og tunnur hver.