Morgunblaðið - 05.10.1965, Blaðsíða 30
30
MORCUNBLAÐIÐ
' Þriðjudagur 5. október 196
r
KR vann Islandsbikarinn í knattspyrnu
Hörkuleikur við Akranes 2—1
— Tveir leikmenn Akurnesinga
bornir af velli, annar illa særður
— Akurnesingar misnotuðu
vítaspyrnu — Mfetaðsókn,
tæp 10 þúsund manns
KR INGAR endurheimtu íslandsbikarinn er þeir á sunnudaginn
nnnu Akurnesinga í úrslitaleik með 2-1. Leikurinn var lengst af
mjög spennandi — barátta tveggja liða þar sem vart mátti á milli
sjá, hvort væri betra. En er KR tókst að ná forystunni hófu þeir
vamarleik, og tók þá í senn að hitna í hamsi hjá leikmönnum —
og einnig hjá áhorfendum. Á 37. og 38. mínútu síðari hálfleiks
vora þeir Eyleifur og Ríkharður, „stjörnur" Akranesliðsins, bornir
af leikvelli á sjúkrabörum. Bæði leikbrotin voru gróf og harkaleg og
höfðu það í för með sér að áhorfendur létu stjórnast af heift í garð
KR, og voru ljótustu skrílslæti höfð í frammi bæði við verðlauna-
afhendingu og mótsslit og eins er KR-Iiðið hvarf af leikvanginum.
Slík skrílsiæti þjóna engum tilgangi og ber að víta þau harðlega.
Það var sannkölluð úrslita-
stemmning ríkjandi er leikur
hófst. Og það var úrslita-
stemning yfir leik liðanna. -
Barizt var ai öllum mætti a
báða hóga, fallegir leikkaflar
sáust, magnaðir af mikilvægi
• Jöfn byrjun
Fyrstu 10 mín. leiksins voru
liðin afar jöfn. Einasta tæki-
færið þennan tfcna sem eitthvað
verulega ógnaði, var er Baldvin
miðherji KR komst í gegn á miðj
unni og óð að marki. En hann
var lengi, hafði ekki vald á knett
inum og tækifærið rann út í
sandinn.
Síðan smá snerist leikurinn
Skagamönnum í vil. Þeir náðu
betri tökum á leiknum, fengu
ráðrúm til uppbyggingar á miðj-
unni, því Ellert lék mjög aftar-
lega. Og í návígi reyndust Skaga-
menn sterkari. Þeir náðu iðulega
með alllaglegum leik upp undir
Úrslitamark leiksins. Baldvin miðherji (yzt t.v.) hefur hlaupið af
Helga Danielsson og skorar.
Dómarinn gengur á milli leikmanna. — Þarna eru frá vinstri: Jón
Leósson, Kristinn Gunnlaugsson, Hannes Þ. Sigurðsson dómari og
Sveinn Jónsson.
sér vörn Skagamanna, leikið a
Myndir: Sveinn Þormóðsson.
tækifæri, en skaut í hliðarnet.
Tveim mín síðar misstu Akurw
nesingar tækifærið til þess að
„gera út um leikinn“. Vítaspyrna
er dæmd á KR fyrir brot gegn
Eyleifi. Eyleifur framkvæmdi
spyrnuna en skaut utan við.
Akurnesingar misstu þarna af
tækifæri til að ná forystu í leikn
um — og mistökin virtust fá svo
mjög á Eyleif að hann var aðeins
svipur hjá sjón á eftir.
Á 25—35 mín. fyrri hálfleiks
var bezti kafli Akranessliðsins.
Liðið átti hvert upphlaupið af
öðru og kom KR-vörninni í klípu.
Auk þess að mistakst vítaspyrna
skoraði liðið rangstöðumark og
fleiri góð tækifæri áttu Skaga-
menn.
Rétt fyrir leikhlé skall svo
hurð nærri við mark ÍA. Baldvin
óð að því — Helgi ruddist móti
hbnum. Baldvin reyndi að vippa
Framhald á bls. 31.
Þetta er ekki í dansskóla Her-
manns Ragnars. Hér glíma þeir
Matthías útherji og Bjarni Felix-
son um knöttinn.
úrslitanna og ákveðnum sigur
vilja beggja liða.
Nálega 10 þúsund vallargest
ir settu sinn svip á úrslitaleik
inn og nú voru hvatningarorð
in ekki spöruð. Það var
stemning yfir öllu — og allt
fór skemmtilega og vel fram.
Björgvin Schram, formaður KSÍ, afhendir íslandsbikarinn. Það er
sonur hanS, Ellert, sem veitir hon um viðtöku sem fyrirliði KR.
og að vítateig KR. En þar brást
bogalistin.
En sókn Skagamanna varð
aldrei alger og alltaf af og til
náðu KR-ingar upphlaupum, sem
stefndu beint í mark án króka-
leiða og þó oftast tækist fljótt
að stöðva sóknina, þá var hættan
alltaf fyrir hendi, því varnar-
menn ÍA virtust aldrei skilja til
fulls hætthna af hraða sóknar-
manna KR.
• Fórysta KR
Á 14 mín. nær KR forystunni.
Upphlaupið upp vinstri kant, virt
ist í fyrstu ekki alvarlegt, nægir
menn til varnar. En skyndilega
er gefið inn á og knötturinn berst
til Einars ísfelds, ungs en harð
duglegs inherja KR og hann leik
ur laglega á varnarmann, sem að
vífandi kemur. Baldvin hafði
dregið Kristinn út á kantinn og
Einar notfærði sér eyðuna — og
færði KR forystu með laglegu
skoti.
• Akranes jafnar
Á 21. mín. tekst Akurnesing-
um að jafna. Upphlaupið var
hratt á miðjunni. Augnabliki áð-
ur hafði Helgi hlaupið á fjórum
fótum og náð knetti af tánum á
sóknarmanni KR, sendi langt
fram og Eyleifur og Skúli brun-
uðu upp miðjuna möð hjálp
Matthíasar hægri útherja. KR-
vörnin átti tilraun til varnar,
en sendi knöttinn til Skúla Há-
konarsonar, sem skoraði af stuttu
færi.
• Misheppnuð tækifæri
Á 27. mín. máttu Akurnés-
ingar hrósa happi. Helgi átti mis
heppnað úthlaup og tapaði kapp
hlaupi við Guðmund Haralds-
son útherja, sem fékk sent fyrir
markið. Gunnar Felixson fékk þá
Hvað gæti
skeð?
Verðlaunaafhending Islands-
mótsins í knattspyrau var ein-
stæð í sögu íþrótta hér á
landi. Stór hópur manna setti
blett á mótsslitin með óhljóð-
um og púi. Varð form. KSl að
flýta sér sem mest hann mátti
að aflicnda æðstu vcrðlaun
ísl. knattspyrnu.
Leikmenn og aðrir fengu
olnbogaskot og urðu fyrir
hrindingum. Þess voru jafnvel
dæmi að menn hræktu á eða
að forystumönnum og leik-
mönnum. Síðar var tckið til
grjótkasts að sigurvegurun-
um.
Hvert stefnir hjá ísl. áhorf-
endum? Eru menn svo blind-
ir af heift að þeir ráði ekki
gerðum sínum og láti stjóra-
ast af lægstu hvötum?
Ýmsir lcikmanna sýndu og
hegðun sem er þeim til
skammar — en þeir eiga þá
afsökun að vera þátttakendur
í hita augnabliksins.
En atburðirnir í Laugardal
gefa tilefni til umhugsunar
um það, hvort löggæzlan á
vellinum sé í lagi. Að dómi
undirritaðs er hún það ekki.
Hvað gæti ekkl skeð á svip-
uðum augnablikum. ef menn
sem saklausir verðá fyrir árás
um og svívirðingum annarra,
svöruðu, í stafi þess að minn-
ast spakmælisins, sá vægir er
vitið hefur meira.
Æstur áhorfendaskarinn befur ruðzt inn á leikvanginn og truflar mótsslitin með skrilslátum.