Morgunblaðið - 09.03.1966, Blaðsíða 1
28 síður
Báturinn Eyjaberg á strand
stað í Faxaskeri, þar sem
hann var að brotna í gær.
Báturinn strandaði vestan í i
skerinu (neðarlega til vinstri
á myndinni). Faxasker er rétt
norðan við Heimaklett. Á því
miðju má greina skipbrots-
mannaskýii, sem sett var upp
þar eftir að báturinn Helgi
lenti á skerinu í janúarmán-
uði 1950 og 10 manns fórust.
Tveir komust upp í skerið,
sem brimlöðrið gekk yfir og
náðust þeir ekki fyrr en eftir
40 tíma, þá látnir. Sjá nánar
um strandið á Eyjabergi á
baksíðu. Ól. K. Mag. i
Óeirðír í
Ktiala Lumpur
Kuala Lumpur, Malasiu 8. marz
KTB: —
UM 200 manns réðust að
bandaríska sendiráðinu í Kuala
Lumpur í dag í mótmæiaskyni
við styrjaldarþátttöku Banda-
ríkjanna í Vietnam. Voru marg-
ar rúður brotnar og rauðri máln-
ingu atað á bygginguna. Sendi-
ráðið er á efstu hæð í bygging-
■unni, sem er í eigu aibjóðlegs
tryggin.gafélags. Tjónið lenáir á
tryggingafélaginu.
JAKARTA LOGAÐI I
ÚEIRDUM í GÆRDAG
Stúdentor tnko utanrikisráðun eytið herskildi
09 stórskemma byggin gana
Jakarta, 8. marz. — NTB
UM 10.000 æpandi stúdentar
®g aðrir námsmenn réðust í
dag að utanríkisráðuneytinu
í Jakarta og létu táragas-
sprengjur og aðvörunarskot
hermanna lítt á sig fá. Stúd-
entarnir ruddust inn í ráðu-
neytið og unnu þar mikið her
virki. Er ráðuneytisbygging-
in sögð stórskemmd. — Jafn-
framt hrópuðu stúdentarnir
kröfur þess efnis, að ýmsir af
helztu ráðamönnum Indó-
nesíu segðu af sér embættum.
Ennfremur var upplýst í Ja-
karta, að ýmis samtök í Indó-
nesíu styðji nú kröfur stúd-
entanna, en þeir krefjast þess
m.a. að dr. Subandrio, utan-
ríkisráðherra, segi tafarlaust
af sér.
Umferðin í Jakarta lamaðist
gjörsamlega er stúdentar og
námsmenn hófu óeirðirnar
fjórða daginn í röð. Hermenn
Frh. á bls. 27
Dönsku
kosning-
arnar
Kaupmaimahöfn, 8. marz. —
NTB: —
FYRSTU tölur, sem birtar
hafa verið, eftir að talning hófst,
að lokinni atkvæðagreiðslu í
borgarstjórnarkosningunum í
Danmörku, benda til þess, að
Sósialdemokrataflokkurinn hafi
unnið nokkuð á. Hins vegar
hafi stuðningsflokkurinn, Radí-
kali Vinstriflokkurinn, misst
nokkuð fylgi.
Tölur þær, sem hér er stuðzt
við, hafa borizt frá 20 kjördæm-
um.
Þátttaka í kosningunum var
góð um iand allt í Danmbrku,
oig talið er, að 2.5 milljónir, af
3.1 milljón kjósendum, hafi
greitt atkvæði. Veður var gott í
flestum sveitum Danmörku í
dag.
1 kosningabaráttunni var mik-
il áiherzla lögð á húsnæðismál og
skattamál. Kosningarnar að
þessu sinni hafa vakið mikia at-
hygli, einkum vegna þess, að
miiklar breytingar hafa orðið
é skipulagi einstakra bæjarfélaga
að undanförnu, og mörg þeirra
sameinazt.
Fréttir frá Kaupmannahöfn
seint í gærkvöldi hermdu að
hráðaibirgðatölur bentu til þess,
að sósialdemókratar hafi tapað
um 3,4% atkvæða miðað við síð
ustu kosningar. Hinsvegar var
þá talið, að Sósíalíski þjóðarflokk
urinn. flokkur Aksel Larsen,
hefði unnið verulega á víða þar
sem flokkurinn bauð fram, eða
um 2,8% til jafnaðar. Þá hafa
borgaralegu flokkarnir einnig
unnið á, aðallega Venstre.
FundurumFær-
eyjaflugið
éjinkaskeyti til Mbl.
Kaupmannahöfn, 8. marz.
FÆREYJAFLUG var til um-
ræðu á fundi í dönsku ríkis-
stjórninni í dag. Ekki var tek
in nein endanleg ákvörðun
og eftir fundinn átti Kai Lind
herg, samgöngumálaráðherra,
fund með Krag, forsætisráð-
herra, og var þar ákveðið að
halda fund á fimmtudag með
samgöngumálaráðherramun
og fulltrúum flugfélaganna
Framhald á bis. 27.
frland :
Minnismerki Nelsons
sprengt í loft upp
Sex menn hondfeknir — Lög-
reglan óttast fleiri skemmdarverk
Dublin, írlandi, 8. marz
— AP — NTB —
SNEMMA í morgun var
minnismerki Nelsons að-
míráls við aðalgötu Dubl-
in sprengt í loft upp, en
minnismerkið var þekkt-
asta kennileiti borgarinn-
ar. Minnismerkið var 41
meter á hæð — súla, er
stóð á stöpli, en efst var
stytta af Nelson, hinni
frægu brezku sjóhetju. —
Lögreglan í Dublin hefur
handtekið sex menn vegna
skemmdarverks þessa, en
vill ekki upplýsa hverjir
þeir séu, né hvaða stjórn-
málaskoðanir þeir hafa. —
Flestir telja að meðlimir
írska lýðveldishersins (Ir-
ish Republican Army) hafi
verið valdir að sprenging-
unni.
Lýðveldisherinn hefur ver-
ið bannaður í írlandi í mörg
ár, en samtökin stefna að því
að greifadæmin sex, sem
mynda Norður-írland, og eru
mótmælendatrúar, sameinist
írska lýðveldinu, sem er ka-
þólskrar trúar, og með valdi
ef ekki á annan hátt.
Lögreglan óttast að Lýð-
veldisherinn muni nú auka
Framhald á bls. 27.