Morgunblaðið - 09.03.1966, Síða 26
26
MORCU N BLADID
Miðvikudagur 9. marz 1966
KR vann ÍR 68:55 og er
eina taplausa liðið í 1. deild
Góðir og skemmtilegir leikir
í ktirfuknattleiksmótinu
UM síðustu helgi, þegar flestra hugur var við baráttu Rúmena og
íslendinga í handknattleik í Laugardal, var íslandsmótinu í körfu-
knattleik haldið áfram að Hálogalandi, og úrslitabarátta háð í fyrri
umferð fyrstu deildar. Léku ÍR og KR, þeir margreyndu fjendur,
síðasta leik umferðarinnar og lauk með öruggum sigri KR eftir
fjörugan leik. KFR sigraði ÍKF , einnig í I. deild, og hlaut KFR nú
sín fyrstu stig í mótinu, þó ekki fyrr en eftir harða baráttu við
hið unga lið ÍKF. Einnig voru leiknir tveir leikir í II. deild. Skarp-
héðinn sigraði Skallagrím, 67:47, og stúdentar burstuðu Skalla-
grím, 71:30. —
KR — ÍR I. deild. 68:55.
Það var spenna í loftinu og
óvenju margir áhorfendur mætt-
ir til þess að sjá ÍR og KR enn
einu sinni mætast á leikvellinum
í körfuknattleik. Leikmenn
beggja liða voru taugaóstyrkir
en KR-ingar komast í 4:0 áður
en ÍR svarar. ÍR notaði maður
á mann vörn í upphafi en um
miðjan fyrri hálfleik breyttu
þeir yfir í svæðisvörn
og féll þeim sú varnaraðferð bet
ur. KR-ingar léku fyrri hálf-
leikinn betur en ÍR-liðið og
sköpuðu það forskot sem síðan'
reyndist þeim nægilegt til sig-
urs. Voru ÍR-ingar mistækir í
sókninni í fyrri hálfleik og fóru
mörg skot út í bláinn. Staðan
í hléi var 32:23. Síðari hálfleik-
ur tar heldur jafnari en KR
hafði þó alltaf undirtökin í leikn
um og gátu ÍR-ingar aldrei veru
lega ógnað þeim. Var leikurinn
fjörugur og skemmtilegur fyrir
áhorfendur, sem hvöttu liðin
óspart, og sást mörgum kunnum
KR-kempum bregða fyrir að
Hálogalandi þetta kvöld. Síðari
hluta seinni hálfleiks var það
einkum Agnar sem hélt uppi
baráttu ÍR-liðsins, en hann átti
mörg stórglæsileg tilþrif í leikn-
um og blakaði knettinum hvað
eftir annað í körfuna eftir mis-
heppnuð skot samiherja sinna.
Lokatölur leiksins urðu 68:55,
þrettán stiga sanngjarn KR-sig-
ur. Beztir KR-inga voru Kol-
beinn, Kristinn og Guttormur,
en stig liðsins skoruðu Einar
Bollason 16, Guttormur 14,
Gunnar 13, Kristinn 10, Kolbeinn
8, Jón Otti 7. Hjá ÍR var Agnar
langbeztur með 24 stig og ótal
fráköst og Hólmsteinn átti
einnig ágætan leik. Dómarar
voru Guðjón Magnússon og Ein-
ar Oddsson.
KFH — ÍKF, I. deild, 72:63.
Þessi tvö lið voru fyrir leik-
inn þau einu í deildinni sem
ekkert stig höfðu hlotið, svo leik
urinn var hreint uppgjör um
botnsætið. Var barizt af hörku í
leiknum, sem var jafn og spenn-
andi, var ekki útséð um úrslitin
fyrr en á síðustu mínútunum
eftir að ÍKF hafði misst einn
sterkasta mann út af, með fimm
villur. Staðan í hálfleik var
40:31 fyrir KFR. í síðari hálfleik
sýndi ÍKF-liðið mikla keppnis-
hörku og komst yfir 49:48, en
skömmu síðar varð Friðþjófur
að yfirgefa völlinn með fimm
villur og náðu KFR-ingar þá
Kappleikir unga fólksins
leikir hjá KR
Framfarir og góðir
og Ármanni í 3. fl.
*
Og Víkingur vann IR í hörkuleik
TVBIR leikir fóru fram í H.
flokki kvenna á laugardagskvöld
ið i íþróttahúsi Vals.
Fyrri leikurinn var á milli Ár-
manns og F.H. 8:2
Ármannsstúlkurnar háðu
jafna baráttu við F.H.-stúlkurn-
ar í fyrri hálfleik, var staðan
jöfn 2:2, eftir að 9 mínútur voru
liðnar af leiktímanum.
Á síðustu mínútu þess hálf-
leiks tókst Vigdísi að koma Ár-
manni yfir, með marki úr lang-
skoti. Staðan var því í hálfleik
3:2 Ármanni i vil.
Seinni hálfleikur var aftur á
móti gjörólikur þeim fyrri, hvað
Ármannsstúlkurnar snerti en þá
komu í ljós yfirburðir þeirra.
þegar á fyrstu mín. Skora Ár-
mannsstúlkurnar mark, með á-
gætu skoti frá Ósk af línu. Á
eftir fylgdu.fjögur mörk til við-
bótar frá Ármanni, Eygló 2, Elsa
1 og Vigdís 1. F.H.-stúlkunum
tókst ekki þrátt fyrir ítrekaðar
tilraunir að skora mark í þess-
um hálfleik.
Leiknum lauk með yfirburða-
sigri Ármanns 8:2. Ármannslið-
ið hefur sótt sig, og er að verða
eitt af sterkari liðunum í II. fl.
kvenna. Beztar voru þær Ósk,
sem hefur farið mikið fram í vef-
ur, og enn meira býr í, og Eygló,
sem er skothörð vantar samt
meiri léttleika. H.F.-liðið er að
miklu leyti breytt frá í fyrra, inn
í liðið hafa komið mjög ungar
telpur, sem ekki eru háar í loft-
inu. boltameðferð hjá þeim er
ágæt. Best var Ásdís. Liðið á
ábyggilega eftir að taka miklum
framförum, með svo reynda hand
knattleikskonu sem leiðbeinanda
þar sem Silvía er.
Síðari leikurinn var á milli Vals
og Víkings 10:5.
Leikur þessi var spennandi og
jafn framan af. Eftir fjórar mín-
útur eru Valsstúlkurnar búnar
að Skora 3 mörk á móti 2 mörk-
um Víkingsstúlknanna. Á 7.
mín. skorar Guðbjörg 4. mark
Vals af línu, litlu síðar bætir
Björg við 3. marki Víkings með
föstu skoti. Staðan er því í hálf-
leik 4:3 fyrir Val. Seinni hálfleik
ur byrjaði heldur ógæfulega fyr
ir Víking, því á fyrstu fimm mín
útunum, ná Valsstúlkurnar sér
verulega vel upp og skora fimm
mörk í röð. Það er ekki fyrr en
eftir eru þrjár mín. af leiknum
að Víkingsstúlkumar taka við
sér og skorar Björg þá tvö mörk
fyrir Víking á móti einu frá Val
sem Guðbjörg skorar af línu.
Leiknum la-uk því með sigri Vals
10:5.
Valsstúlkurnar áttu þarna
sæmilegan leik, en eru þó full
bráðar í skotum á mark. Bestar
voru Birna markvörður ásamt
Guðbjörgu, Önnu Birnu og Ragn
heiði. Víkingslðið veitti viðnám
í fyrri hálfleik, en einhver deyfð
kom yfir þær í seinni hálfleik,
sem reið þeim að fullu. Þær leika
skemmtilega saman og bregða
fyrir leikfléttum. Best var Björg.
Á mánudagskvöld fóru fram
þrír leikir í III. flokki karla.
K.R. — Breiðablik 16:9.
K.R.-ingarnir réðu lögum, og
lofum í fyrri hálfleik. og sýndu
oft á tíðum bráðskemmtilegan
sóknarleik. Þeir skoruðu í fyrri-
hálfleik 9 mörk gegn 1 frá
Breiðablik Seinni hálfleikur
var mun betri hjá Breiða-
bliksstrákunum og sýndu þá
hvað í þeim býr. þeir héldu vel
í við K.R.-ingana og lauk þeim
hálfleik með sigri Breiðafoliks
8:7. En það dugði skammt þar
sem K.R.-ingarnir höfðu tryggt
sér svo rækilega sigurinn í leikn
um í fyrrihlutanum. Endanlegar
tölur urðu 16:9 K.R. í vil. KR-
ingarnir eru harðir í horn að
taka, en slöppuðu of mikið af í
seinni hálfleik. Bestur var Magn (
ús Sigurðsson.
Breiðafoliksstrákarnir voru |
ekki nógu fljótir í gang og eru .
ef til vill ekki nógsamlega á- 1
kveðnir í að sýna sitt bezta í
byrjun. Haldið áfram að æfa
dyggilega, styrkleikinn er að
koma.
Ármann — F.H. 13:4.
Gaman er að sjá hve Ármanns
drengjunum hefur farið mikið
fram í vetur. Leikur þeirra gegn
FH í gærkvöldi var skemmtileg-
ur og brá oft fyrir skemmtileg-
um samleik. FH-drengirnir hjálp
uðu þeim þó töluvert með, stöð-
ugum skotum þannig að ekkert
varð úr nema að Ármenningarn-
ir fengu boltann og skoruðu.
Staðan í Hálfleik var 6:1 fyrir
Ármann. Seinni hálfleikur var
heldur skárri hjá FH-ingunum en
þó ekki nærri nógu góður. Ár-
mann var sterkari aðilinn og
bættu við sig 7 mörkum á móti
3 frá FH.
Eins og áður er sagt hefur
Ármenningum farið mikið fram
og ættu með meiri keppnis-
reynslu að geta orðið gott lið.
Bestir voru þeir Björn og Bjarni.
FH-liðið átti þarna slæman
leik, þurfa að venja sig *f skot-
græðgi.
Víkingur — f.R. 16:9.
Búist var við fyrir leik þenn-
ann að þarna yrði um jafnan
leik að ræða. En það fór á annan
veg, Víkingarnir voru frá byrjun
mjög ákveðnir, segja má að bæði
liðin hafi barist af hörku, sér-
staklega í vörninni. Víkingarnir
náðu þegar í fyrri hálfleik góðu
forskoti 9:4. Eftir það varð leik-
urinn jafnari en enginn vafi lék
á því hvort liðið færi með sig-
ur af hólmi. f seinni hálfleik skor
uðu Víkingarnir 7 mörk og ÍR-
ingarnir 5. Lokatölur urðu 16:9
og Víkingssigur.
Víkingarnir eru með mjög
skemmtilegt lið. sem beitir oft
mjög skemmtilegum og árang-
ursríku línuspili. Bestur var
fyrirlðinn Georg.
ÍR-ingarnir léku ágætlega í
sókn en réðu ekki við línuspil
Víkinganna. Bestur var Ásgeir.
aftur öruggri forystu og sigruðu
72:63. Beztir hjá ÍKF voru Frið-
þjófur og Einar, en hjá KFR
Sigurður og Þórir, sem þó hitti
ekki sem skyldi. Dómarar voru
Gunnar Gunnarsson og Kristinn
Stefánsson.
Leikir
í gæirkvöldi
í GÆRKVÖLDI fóru fram tveir
leikir karla 1 fyrstu deild ís-
landsmótsins í handknattleik. —■
Leikar fóru svo að Fram sigraði
KR með 23:21 og FH sigraði Val
með 28:21.
Enska
knattspyrnan
5. UMFERÐ ensku bikarkeppn-
innar fór fram sl. laugardag og
urðu úrslit leikja þessi:
Ohelsea — Shrewsfoury 3-2
Everton — Coventry 3-0
Huddersfield — Sheffield W. 1-2
Hull — Southport 2-0
Manchester City — Leicester 2-2
Norwich — Blackburn 2-2
Preston — Tottenham 2-1
Wolverhampton — Maneh. U 2-4
Nokrrir leikir fóru fram i
deildarkeppninni. og urðu úrslit
þessi:
1. deild:
Arsenal — Blackpool 0-0
Newcastle — Sunderland 2-0
Northampton — Leeds 2-1
West Ham — Aston Villa 4-2
2. deild;
Bury — Gharlton 3-0
Cardiff — Bolton 1-1
Derby — Plymouth 1-2
Middlesbrough — Bristol C. 4-2
Southampton — Birmingham 0-1
Dregið í bikar-
keppnunum
DREGIÐ hefur verið um það
hvaða lið mætast í næstu um-
ferð ensku bikarkeppninnar,
sem nú nálgast lokastig.
Leikirnir verða þessir:
Chelasea — Hull City
Blackburn eða Norvich' gegn
Sheff. Wed. ,
Preston — Maneh. Utd.
Leicester eða Manch City gegn
Everton.
Þá hefur og verið dregið í
undanúrslitum skozku foikar-
keppninnar. Þar mætast Aber-
deen og Rangers og hins vegar
Dunfermline og Celtic eða
Hearts.
Loksins er
staður
fundinn
LOKSINS hefur tekizt að
tryggja stað fyrir hinn um-
deilda kappleik milli Cassius-
ar Clay og Ernie Terrell, sem
að dómi heimssambands
hnefaleikmanna er heims-
meistari í þungavigt. Verður
Ieikurinn í Maple Leaf Gard-
en í Toronto í Kanada.
Leikurinn verður á upphaf-
lega ákveðnum degi, eða 29.
marz. Upphaflega átti hann
að vera í New York, en yfir-
völdin þar höfnuðu ósk þar
um svo og yfirvöldin í Chi-
cago, Pittsburg, Louisville,
Montreal og Verdun (útborg
Montreal).