Morgunblaðið - 09.03.1966, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 09.03.1966, Blaðsíða 28
Langstærsta og íjölbreyttasta blað landsins Helmingi útbreiddara en nokkurt annað íslenzkt blað Maður drukknar Akureyri, 8. marz: —■ ÞAÐ SLYS varð í fyrrinótt að Jón Antonsson, Rauðumýri 14, Akureyri, skipverji á bv. Sval- bak, týndist af skipinu. Þetta gerðist er togarinn var að veið- um, en tveir dagar voru þá liðn- ir frá því það fór úr höfn. Þegar átti að ræsa hann kl. 4 um nótt- ina var hann ekki í rekkju sinni og fannst ekki er leitað var að honum. Jón heitinn var 27 ára að aldri, ókvæntur, sonur hjónanna Mar- grétar Vilmundardóttur og Ant- ons Sigurjónssonar, Akureyri. — Sv. P. ísfiskssala AKRANESI, 8. marz. — Togar- inn Víkingur seldi í Bremerhav- en í gærdag 147 tonn fisks fyrir 131.346 mörk. Skipstjóri er eins og áður Hans Sigurjónsson. — Oddur. Goðinn — nýr dráttarbátur kemur í marzlok B|urgtfnarfélagid kaupir báfinn, tekur við af Geðanesi sem BJÖRGUNARFÉLAGIÐ h.f. hef ur nú fest kaup á norska dráttar- bátnum „Kraken", sem verSur væntanlega til afhendingar inn- an hálfs mánaðar og kemur þá til landsins í síðustu viku marz. Að Björgunarfélaginu h.f. standa öll tryggingarfélögin, sem með skipatryggingar hafa að gera, en stjórn þess skipa eftirtaldir menn: Gísli Ólafsson, stjórnar- formaður, Ásgeir Magnússon og Sigurður Egilsson. í varastjórn er Tryggvi Briem. Hið nýja skip mun á íslenzku hljóta nafnið „Goðinn", og kemur í stað Goða nessins, sem á sl. ári veitti að- stoð sina 166 sinnum fyrstu 10 mánuði ársins, en tvo þá síðustu var það meira og minna í Reykja víkurhöfn vegna veðurs, en skip inu var ekki kleift að fylgja fiskiskipaflotanum eftir á þeim árstíma. Með hliðsjón af þeirri reynslu, sem fékkst af björgunar störfum Goðanessins var hið nýja skip keypt. Kaupsamningur var undirrit- aður af stjórn félagsins í Osló 2. marz sl., eftir að skipið hafði verið skoðað af Páli Ragnarssyni fulltrúa hjá Skipaskoðun ríkis- ins. Samningurinn hefur nú ver ið heimilaður af yfirvöldum hér, Viðskiptamálaráðuneytinu og Landsbanka íslands. Skipið er byggt úr stáli í marz 1963 af Ul- stein Mekaniske Verksted, og er í góðu ásigkomulagi, enda ekki í mikilli notkun frá því það var byggt. „Goðinn“, sem skrásettur er í Reykjavík er með Man diesel- vél 820 hestafla. Það er búið góðum og afkastamiklum dæl- um, tveimur 25 tonna og einni 100 tonna. Eidneytis- og fersk- vatnstankar gera skipinu mögu- legt að vera allt í þriggja vikna úthaldi. í skipinu er skiptiskrúfa og er henni stjórnað úr brú. Skip ið er tæp»92 fet á lengd og 23 fet á breidd. Það er búið ratsjá og öhum nauðsynlegum siglingar- tækjum. Verð skipsins er 1.930.000 norskar krónur, og er Framh. á bls. 27 ÞEGAR Ljósmyndari Mbl. Ól. K. Mag, flaug yfir Faxa- sker í gær um hádegi var fjara og báturinn Eyjaberg, lá á þurru í stórgrýtinu og bar rauður og hvítur skrokk- urinn í svart grjótið. Hann lá á hliðinni og sjór gekk upp í hann. Á flóðinu mun hann hafa verið næstum alveg í kafi. Ekki fært að bjarga Eyjabergi — ©g engtim werðmætutn því ur I GÆR voru sjópróf í Vest- mannaeyjum út af Strandi Eyja- bengsins á Faxaskeri við inn- Malbikunaráœtlanir I Reykjavík 1966 í GÆR var gengið frá áætlun um gatna- og holræsagerð í borgarráði Reykjavíkur. Við birtum hér yfirlit og kort yfir þær götur, sem ákveðið er að Flugfarmur af hús- gögnum frá Akureyri i nýjfa Loftleiðöbotelið malbika á árinu 1&66. Síðan segir nánar frá holræsagerð og gangstéttum. Ennfremur er gerð grein fyrir kostnaði við hverja framkvæmd. Nán- ara yfirlit bíður síðari birting ar í blaðinu. — Meðfylgjandi upplýsingar eru fengnar frá Inga Úifars Magnússyni, gatnagerðarstjóra Reykjavík- urborgar í gær. Kortið sýnir göturnar, sem verða malbikaðar. Vesturbær: Sörlaskjól, Faxaskjól, Grana- Framhald á bls. 27. Akureyri 8, marz. , Loftleiðir h.f. sendu í dag Cloudmastervélina Snörra Þor- finnsson hingað til Akureyrar, til að sækja húsgögn í nýja Loft- leiða.hótelið í Reykjavík. Hús- gögnin eru smiðuð hjá Valbjörk h.f. á Akureyri, sem á sínumn tíma sendi hagstæðasta tilboðið í smiðið þeirra. Þegar fréttamaður Mbl. kom á Ak’ureyrarflugvöll í dag stóðu þrír fuhhlaðnir vörubilar hjá flugvélinni c»g starfsm.enn Val- bjarkar bg Loftleiða voru önn- Framhald á bls. 27. Verið að ferma Snorra Þorfinnsson með húsgögnum á Akureyri. siglinguna til Vestmannaeyja. —. Fultrúi bæjanfógeta Jón Öskars- son var fonseti réttarins. Fyrir réttinn komu Sigurður Gunnars- son skipstjóri, Sigurður Viktors- son stýrimaður og Guðmundur Vignir Sigurðsson vélstjóri. Við réttauhöldin kom frarn að er skipið var að koma inn til Vestmannaeyjahafnar var hríð- ankóf og dimmt mjöig í hryðj- unum. Siglt var eftir ratsjá. Hafði skipstjóri sett stefnu, en fór síðan niður að borða og tók véistjóri við stýrinu á meðan. Er skipstjóri kom upp aftur sá hann eftir skamma stund boða á bak- 'borða en þá var mjög dimmt af éli. Reyndi hann þá að beygja frá, en þá kom í ljós að stýrið var óvirkt. Var þá sett á fulla ferð aftur á bak, en- það hafði ekki tilætlaðan árangur þar sem skipið lét ekki af stjórn og lagð- ist flatt fyrir sjó og kastaðist upp í klettana. Þá var settur út gúmtojörgun- arbátur og gekk allt vel við það verk. Bát'ar komu brátt á vett- vang og var áhöfn bjargað um borð í Lóðsinn. Talin var, að samdóma áliti skipstjóra þarna á staðnum, að enginn kostur væri að ná skipinu á flot í því veðri sem á var, og það því ekki reynt. Nú er svo komið að s'kipið er fullt af sjó á flóði og tæki þess ónýt og ekki taldar líikur til að (hægt verði að bjarga neinu úr því.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.