Morgunblaðið - 21.05.1966, Side 31

Morgunblaðið - 21.05.1966, Side 31
! Laugardagur 21. maf 1966 MORGU NBLAÐIÐ 31 Sjómaður drukknar Annar bjargaðist mjög þjakaður AKUBEYRI, 20. maí. — Það slys varð laust eftir hádegi í dag, að rúmlega tvítugur háseti á togaranum Harðbaki féll fyrir borð og drukknaði á innanverð- um Eyjafirði. Annar háseti á svipuðum aldri kastaði sér út- byrðis strax á eftir, en var bjargað. Togarinn lét úr höfn héðan á hádegi í góðu veðri. Þegar skip- ið hafði verið hálftíma á sigl- ingu og var statt nokkru innsn við Hjalteyri, urðu skipverjar J>ess varir að einn hásetinn, 21 árs piltur, hafði fallið fyrir borð, en ekki sást glöggt með hverjum hætti það bar að. Srax á eftir sást hvar annar há- seti kastaði sér útbyrðis. Togarinn hafði verið á fullri ferð og mikill skriður á skipinu, svo að nokkurn tíma tók að stöðva það og snúa því við. En björgunarbátar voru strax sett- ir út. Piltarnir héldu sér allgóða stund uppi á sundi. Sá síðar- nefndi var vel syndur og syftti hann á móti skipinu og var bjargað um borð mjög þjökuð- um, þótt ekki hefði hann sop- ið mikinn sjó. í sama bili sást sá fyrrnefndi hverfa í djúpið og fannst hann ekki þótt þaul- leitað væri í hálfa aðra klukku- stund á þessu svæði, bæði af tog aranum og björgunarbátum. Togaranum var síðan snúið til Akureyrar aftur og hásetinn, sem bjargað var, fluttur í sjúkra hús. Er hann talinn úr allri hættu. En ekki hefur þó verið unnt að taka af honum skýrslu enn sem komið er. Skv. ósk yfirvalda verða nöfn hásetanna ekki birt að þessu sinni. — Sv.P. Auglýst eftir vitnum A s.l. miðvikudagskvöld var drengur á leið eftir Álfheimum á reiðhjóli kl. 18.15—19. Lenti hann í árekstri við bifreið á móts við Glaðheima. Hann hef- ur fengið höfuðhögg með heila- hristing og hjólið skemmzt. Ef einhver gæti gefið upplýsingar um þetta, er hann beðinn um að hafa samband við rannsókn- arlögregluna. En drengurinn veit ekki hvort bílstjórinn hafði samband við hana. Ekið hefur verið tvisvar á bifreið,. sem stóð fyrir framan Bergstaðastíg 33 á hálfum mán- uði. Þetta er Ford Anglia, blár að lit, R. 13315. Einnig var ekið á bifreiðina R 16625 fyrir framan Blönduhlíð 23 aðfaranótt föstudag. Það er Consul Cortina, hvít að lit. Biður lögreglan þá sem kynnu að vita um þetta að gefa sig fram. Og einnig ef einhver hef- ur fundið veski með 2100 kr., sem útlendur maður, Kari Uusi- máki, týndi 7. þ.m. í veskinu er sjúkrasamlagskírteini og öku- skírteini, sem hann vantar til- finnanlega. Opnuð tilboð í gatna- gerð í Breiðholtshverfi í GÆR voru hjá Innkaupa- stofnun Reykjavíkurborgar opn- uð tilboð í gatnagerð og lagnir í einbýlishúsahverfi í Breiðholti. Hið úbboðna verk er tvíþætt. Verk A nær til gatnagerðar í Brúnastekk, Geitastekk, Gilsár- stekk, Grænastekk, Fornastekk og Fremristekk að hluta ásamt skolp-, vatns- og rafmagnslögn- um í þær götur. Verk B nær til gatnagerðar í Lambastekk, Skriðustekk, Hamrastekk. Hóla- stekk, Urðarstekk og hluta af Fremristekk og Stekkjarbakka ásamt tilheyrandi lögnum. Tilboð bárust frá 5 aðilum <j>þannig: Verk A. Verk B. 1. Hlaðbær h.f. Kr. 2. MiðfelJ h.f. 3. Loftorka s.f. — 4. Almenna Byggingafél. — 6. Véltækni h.f. — Kostnaðaráætlun gatna- málastjóra var: — 9.251.138.— 11.124.745.— 11.559.120.— 12.926.355.— 10.400.000,— Kr. 14.164.158,— — 14.979.935.— — 15.330.945 — — 23.171.480.— — 15.200.000,— Eftir er að yfirreikna boðin. Kuldinn og éljagangurinn heldur áfram þaðan áfram austur um Nor- Eyrarbakka, 10 stig um nón- eg. Kuldinn og éljagangurinn bil. heldur því áfram á Norður- Unnið að grunni stóru hitaveitugeymanna. Unnið að grunni stóru hitaveitugeymanna sem risa i Öskjuhlíðinni sumar 1 SUMAR á að reisa tvo stóra hitaveitugeyma í Öskuhlíðinni, skammt ofan við nýju siökkvi- stöðina. Hefur undanfarnar vik- ur verið unnið að því að undir- búa grunninn undir þá. Morgunblaðið náði í gær tali af Jóni Bergssyni verkfræðingi hjá Ok h.f., sem annast undir- Treg fundar- sókn hjá Framsókn Framsóknarmenn efndu til kosningafundar í Austurbæj- arbíói í gærkvöldi og var fundarsókn treg. Fimm fremstu bekkjarraðir voru svo til auðar en þar sátu samtals 13 manns. Auð sæti voru enn fremur víða um húsið. búningsframkvæmdir fyrir bygg ingu nýju hitaveitugeymanna og spurði hann um gang verksins. Jón sagði að framkvæmdir gengju mjög vel, þrátt fyrir erf- iðar aðstæður. Mikið þyrfti að sprengja úr klöppinni, og stór- virkar vinnuvélar ryðja grjótinu burtu jafnóðum. Sagði hann að sprengingum lyki einhvern tím- an næsta hálfa mánuðinn, og að grunnurinn fyrir fyrri geymir- inn yrði tilbúinn 1. júlí, en að verkinu yrði frá þeirra hálfu lokið 1. september í haust. Slys TÍU ára drengur, Óskar Björnsson, varð undir bíl á haf- skipabryggjunni í Hafnarfirði laust eftir hádegi í gær. Lær- brotnaði hann og meiddist á fæti og var fluttur á Landakots- spítala. „Rauðu skórnir í UPPHAFI ræðu sinnar á hin- um fjölmenna fundi í Háskóla- bíói í gærkvöldi, sagði Geir Hall- grímsson, borgarstjórí: „Mér er sagt, að fólk hafi skemmt sér hér vel í gær við ævintýri H. C. Andersens „Nýju fötin keisarans", sem gamansam- ir samborgarar breyttu í „Nýju fötin borgarstjórans“. Síðan sagði borgarstjóri: „.... en þar sem H. C. Ander- sen er með svo sviplegum hætti leiddur inn i borgarstjórnarmál- efni Reykjavíkur, þá datt mér í hug annað ævintýri hins göfuga skálds, nefnilega ævintýrið um rauðu skóna.. Það er átakanleg saga um afleiðingar svikseminn- ar. Það er um litla munaðarlausa stúlku, er komst í fóstur til góðr- ar konu. En stúlkan notaði sér sjóndepru og veikindi fóstru sinn ar að komast yfir rauða skó og yfirgaf fóstru sína til áð fara á dansleik, og segir svo: „Og hún setti upp rauðu skóna, það var líka auðgert. Og síðan fór hún á dansleikinn og því næsta að dansa. En í hvert sinn, sem húp ætl- aði að dansa til hægri, döhsuðu skórnir til vinstri, og þegar hún ætlaði inn eftir gólfinu, fóru skórnir með hana út eftir því, síðan ofan stigann, út eftir göng- unum og út um borgarhliðið. Hún dansaði, nauðug, viljug dansaði hún alla leið út í kol- dimman skóginn“. Litlu stúlkunnar biðu dapur- leg örlög, og þannig mun vænt- anlega fara fyrir þeim, sem nú reýna að töfra kjósendur með þyí að stíga dans á rauðum skóm. Fyrir þeim mun fara eins og í ævintýrinu. Rauðu skórnir munu bera þá út um borgarhlið- ið“. Þ A Ð er samdóma álit þeirra manna, sem hleypidómalaust lita á samninga þá, sem Hafnar- fjarðarbær hefur gert varðandi álverksmiðjuna, að þeir séu hag kvæmir fyrir bæjarfélagið og muni verða til stórrar upplyft- ingar fyrir allt atvinnu- og at- hafnalif i bænum og þannig skapa mikla og vaxandi vinnu. Þegar andstöðuflokkar þessa samnings hafa engin haldbær rök gegn hagkvæmni hans fyrir Hafnfirðinga og þjóðfélagið í heild þá er gripið til þess að reyna að vekja ótta hjá fólki og hefur læknisheiðri Alfreðs Gísla sonar verið fórnað í því efni. Kommúnistinn og framsóknar maðurinn i bæjarstjórn Hafnar- fjarðar voru á móti samningn- um og nú hefur Árni Gunnlaugs son bætzt í þann hóp með flokk- inn sinn. Er nú sýnt, svo að ekki verð- ur um villst, að kommúnistar, framsókn og óháðir eru gréinar á sama meiði, þeir hafa aðeins skipt með sér verkum. Þeir eru eitt, þótt þeir segi þrennt, eins og bæjarfulltrúi framsóknar- flokksins er einn. þótt hann hefði þrjár afstöður í sama máli. Er gott til þess að vita, að það skyldi gerast fyrir kosning- ar, að Árni Gunnlaugsson komst heim til föðurhúsanna, vina sinna kommúnistanna og fram- sóknarmanna. Það er ekki björgulegt fyrir Hafnfirðinga að treysta á siíkt glundroðalið. Þess vegna fylkj- ast æ fleiri undir merki Sjálf- stæðisflokksins tU að skapa bæn um sínum samhenta og trausta forystu tU aukinna framfara og velmegunar. Allir eitt fyrir Hafnarf jörð. Framh. á bls. 25 i feluleik með frambjoðanda Þjóðviljinn hefur að- undan förnu birt viðtöl við fram- bjóðendur kommúnista í borg arstjórnarkosningunum og er blaðið komið allt niður í 9. mann á listanum. En einn frambjóðandi hefur orðið út- undan. Við hann er ekkert við tal haft. Þar er um að ræða son Hannibals Valdemarsson- ar, sem skipar 6. sæti lista kommúnista í Reykjavík. Af einhverjum dularfullum á- stæðum hefur Þjóðviljinn ekkert viðtal birt við hann. 1 blaði sem kommúnistar hafa gefið út fyrir kosningarn ar og nefnt er Alþýðubanda- lag ritar Páll Bergþórsson for maður Sósialistafélags Reykja vikur grein þar sem hann hælir óspart efstu mönnum á lista kommúnista þ.e. að 6. manni. Þá hrekkur veðurfræð ingurinn við og fer að tala um Framsókn. Þessi tvö dæmi sýna glógg- lega, að gamta kommúmsta- klíkan hefur enn öll völd í Alþýðubandalaginu og mal- gögnum þess. Þar er þeim ekki hampað, sem kommún- istaklíkan telur sér andsnúna.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.