Morgunblaðið - 28.07.1966, Qupperneq 2
f
2
MORGU N BLAÐIÐ
Fimritudagur 28. júlf 1966
Kvikmyndun gekk vel
Eva Dahlbeck komin til Reykjavíkur
f Mbl. hafði í gær samband við
kvikmyndagerðarfólkið sem vinn
ur um þessar mundir að kvik-
myndun „Rauðu skykkjunnar
nálægt Hljóðaklettum, og spurð-
ist frétta.
Blaðinu var tjáð, að vegurinn
að kvikmyndarstaðnum sem
tafði nokkuð fyrir kvikmyndun
vegna aurbleytu, hefði nú þorn
að talsvert, en þó ekki fær nema
stórum bifreiðum með drif á
öllum hjólum.
Var kvikmyndað af fullum
krafti í gær, og gekk það sam-
kvæmt áætlun. T.d. var lokið
við kvikmyndun þeirra atriða,
þar sem þau Eva Dahlbeck og
Hákon Jahnberg kom fram.
Flugu þau til Reykjavíkur
snemma í morgun, og flaug Jaihn
beck þaðan beint til Stokkhólms.
Eva Dahlbeck mun á hinn bóg-
inn dveljast nokkra daga í
Reykjavík, ásamt eiginmanni sín
um, sem er jiæst æðsti maðut
sænska flughersins.
Lifnar yfir laxveið
unum sunnanlands
370 laxar voru komnir á land i Elliða-
ánum - þar af 100 veiddir á fiugu
LAXVEIÐI hefur nú lifnað anlands. En >ór taldi líklegt að
mjög í ám hér sunnan — og
vestanlands í þessum mánuði,
enda þótt hún væri heldur dræm
í júnímánuði. Hefur verið hin
ágætasta veiði í Ölfusá og í
Borgarfjarðaránum núna að und
anförnu, og í Elliðaánum höfðu
veiðzt 373 laxar sl. mánudag,
þar af um 100 á flugu. Á sama
tíma í fyrra höfðu veiðzt um
200 laxar.
Á hinn bóginn höfðu 1540 lax-
ar gengið í gegnum teljarann,
sem er nokkru minna en í fyrra.
Ástæðan fyrir því að betur veið
ist nú í ár er fyrst og fremst
sú, að betra og jafnara vatn
Ihefur verið í ánni núna. í Laxá
í Kjós voru 500 laxar komnir á
land í fyrrakvöld, og 30 laxar
upp úr Bugðu. Er þetta ágæt
veiði miðað við aðstæður, en
Þór Guðjónson veiðimálastjóri
sagði í viðtali við Mbl. í gær
að það mætti jafnvel búast við
enn aukinni veiði, þar sem hann
faafði fregnað að ganga væri
kominn í ánna.
í ánum norðanlands hefur
verið fremur dauf veiði það sem
af er. Hinn 24. júlí voru t.d.
komnir 183 laxar á land í Mið-
fjarðará, sem er nokkru lakara
en í fyrra, og svipaða sögu er
að segja um aðrar ár þarna norð
Leiðrétting
ÞAU mistök urðu í gær í blað
inu í grein um Skóganhólamót-
ið, að sagt var að mótið hæfist
kl. 8 á sunnudagsmorgun.
Það er rangt — mótið hefst kl.
1 e.h. á sunnudag.
Misritun
f BLAÐINU í gær misritað-
ist nafn undir mynd af hökli.
Það voru börn og barnabörn Sig
urgeirs Kristjánssonar, sem gáfu
ísafjarðarkirkju hökulinn.
veiðin myndi fara að glæðast í
þessum ám um mánaðamótin
júlí-ágúst, og gat þess, máli sínu
til stuðnings að í fyrra hefði
veiðzt í Miðfjarðará 61% af allri
ágústveiði á landinu, og það
sama hefði átt sér stað 1958.
Hann kvað Veiðimálaskrifstof-
una hafa gert samanburð á júní
veiði í Miðfjarðará og Laxá í
Kjós undanfarin ár, og sam-
kvæmt því væri meðalveiðin í
Laxá í Kjós 20% af allri júní-
veiðinni, en Miðfjarðará 12%,
Þór sagði að laxveiðimenn
yrðu að gæta að því, að ár-
gangarnir væru misstórir frá ári
til árs, líkt og gerðist um flesta
aðra fiskstofna, og því ástæðu-
laust að fyllast svartsýni þó
lítið veiddist eitt árið, og eins að
ætíð mætti búast við því að
veiðitíminn færðist eitthvað til
frá ári til árs. Hefði þar mik-
il áhrif á hitastigið í ánum, þar
sem það þarf að hafa náð ákveð-
nu marki til þess að laxinn
gangi í árnar. T.d. hefði laxinn
gengið óvenju seint í ár, og
ekki út í hött að rekja það til
þess, hve ísinn fór seint úr jörðu
núna í vor, og árnar því kaldar
framan af.
í gær var skipað úr m.s. Dettifossi stærstu áætlunarbifreið, sem verður í ferðum hérlendis. Það
er Norðurleiðir sem eiga þessa bifreið, og verður hún á sérleyfisleiðinni milli Reykjavíkur og
Akureyrar. Hún á að geta tekið 68 manns í sæti. Bigreiðin er sérstaklega útbúin fyrir hægri hand
ar akstur.
Mikill viðbúnaður lögreglunnar og
F.Í.B. um verziunarmannahelgina
12 lögregluþjonar í Þórsmörk, 4
í Bjarkarlundi og 2 á Þingvöllum
MORGUNBLAÐIÐ hafði í gær
samband við lögregluna í Reykja
vík og Félag ísl. bifreiðaeigenda,
en báðir þessir aðilar hafa í
frammi mikinn viðbúnað til
þess að mæta þeim verkefnum,
sem verzlunarmannahelgin kem-
ur til með að bjóða þeim upp
á, ef miðað er við reynslu und-
anfarinna ára.
Guðmundur Hermannsson yfir
lögregluþjónn sagði, að í stórum
dráttum væri viðbúnaður lögregl
unnar sá, að sendir ýrðu 12 lög-
regluþjónar í Þórsmörk og færu
þeir þangað á morgun. f Þórs-
mörk mundi ennfremur starfa
skátar og menn frá skógrækt
rikisins. 4 lögregluþjónar yrðu
sendir í Bjarkarlund og 2 til Þjóð
garðsins á Þingvöllum. Þá hefði
lögreglan nokkuð mikinn viðbún
að í sambandi við hestamanna-
mót að Skógarhólum.
Guðmundur sagði, að einnig
mundi lögreglan, í samvinnu við
bifreiðaeftirlitið, hafa eftirlits-
bíla á ferðum um Snæfellsnes,
Ranglárvallasýslu, Árnessýslu,
Húnavatnssýslu, Skagafjarðar-
sýslu, um Borgarfjörð og í Þing-
eyjarsýslum og á Barðaströnd.
Þá yfði einnig full vakt hjá lög-
reglunni í Reykjavík og yrðu
menn sendir út á land til frekari
aðstoðar ef þörf gerðist. Þessa
helgi yrðu því lögregluþjónar að
vinna tvöfalda vinnu, og rúm-
lega það. Að lokum sagði Guð-
mundur svo, að allir starfsmenn
umferðadeildarinnar, sem ann-
ars vinna á vöktum, yrðu úti til
hjálpar umferðinni út úr borg-
inni fyrir helgi og í borgina eftir
helgi.
Magnús H. Valdimarsson fram
kvæmdastjóri Félags íslenzkra
bifreiðaeigenda sagði, að undan-
farið hei’ði félagið reynt að bæta
þjónustu sína sem mest og láta
hana ná til fleiri staða en áður.
Gaf Magnús blaðinu upplýsingar
um hvar bifreiðir félagsins yrðu
staðsettar um helgina og mun
Mikið um að vera hjá skákmönnum
Stúdentasveitin farin utan — Taka þátt
í norrœnni unglingalandskeppni gegn
Rússum — Níu valdir til œfinga fyrir
Olympíuskákmótið
SKÁKSVEIT sú, sem keppir eru þeir Trausti Bjömsson, sem
fyrir hönd íslands á heimsmeist-
aramóti stúdenta, sem haldið
verður í Örebro i Svíþjóð núna
30. júlí til 14. ágúst, hélt utan
snemma í morgun. Þeir sem
keppa á þessu móti fyrir ísland
Ný kirkja vígö
í Crundarfirði
Grundarfirði, 27. júlí.
N.K. sunnudag verður vigð
kirkja í Grundariirði. Áður hafa
Grundfirðingar átt kirkjusókn að
Setbergi, sem stendur beint á
móti þorpinu hinum megin við
fjörðinn. Hafizt var handa um
smíði nýrrar kirkju í Grundar-
fjarðarþorpi fyrir fáum árum,
og enda þótt smíði kirkjunnar
sé ekki að fullu lokið sam-
kvæmt teikningum, þá er
henni þó það langt á leið kom-
in að hægt verður að hafa guðs-
þjónustur í kirkjunni.
Kirkjunni hafa þegar borizt
margar góðar gjafir, en aðal-
hvatamaðurinn og sá sem mest
að hefur hvílt í sambandi við
smíði kirkjunnar er sóknarprest
urinn séra Magnús Guðmunds-
son, sem sýnt hefur mikinn dugn
að og árvekni í málefnum kirkj-
unnar. . -— EmiL
teflir á 1. borði, Bragi Kristjáns
son, sem teflir á 2. borði, Jón Þ.
Þór, sem keppir á 3. borði, Guð-
mundur Lárusson, sem keppir á
fjórða borði, og Jón Friðjónsson,
varamaður.
Margt er í deiglunni hjá Skák-
sambandi Islands um þessar
mundir. T. d. er fyrirhuguð lands
keppni unglinga milli allra Norð-
urlandanna og Sovétríkjanna.
Aldurstakmarkið er 20 ára, og
verður keppt á 20 borðum. Mótið
fer fram í Stokkhólmi 27.—28.
ágúst. Fyrir ísland keppa í lands-
keppni þessari þeir Guðmundur
Sigurjónsson, Jón Hálfdánarson,
Haukur Angantýsson, og fjórði
maður verður frá Akureyri, en
þar stendur nú yfir fjögra skáka
einvígi milli Jóns Þ. Jónssonar
og Magnúsar Steingrímssonar um
réttinn til að keppa á þessu móti.
Loks er þess að geta að níu
menn hafa verið valdir til þess
að keppa á Olympíuskákmótinu,
sem fram fer á Kúbu 25. okt.
til 20. nóv. Þeir sem valdir hafa
verið eru þeir Friðrik óiafsson,
Ingi R. Jóhannsson, Guðmundur
Pálmason, Freysteinn Þorebrgs-
son, Gunnar Gunnarsson, Guð-
mundur Sigurjónsson, Jón Krist-
insson, Björgvin Víglundsson og
Jón Hálfdánarson. Hafa 'þessir
menn allir æft mjög strangt og
vel að undanförnu undir hand-
leiðslu Friðriks Ólafssonar.
Vöruskiptojöfn-
uður óhugstæð-
ur fyrlr jú!í
MBL. HAFA borizt bráða-
birgðatölur um verðmæti útflutn
ings- og innflutnings í júnímán-
uði frá Hagstofu íslands.
Útflutningur í júní núna nam
alls 479,310 þús. kr. en var á
sama tíma í fyrra 492,065 þús.
kr. Flutt var inn fyrir 994.966
þús. kr. en hliðstæð tala fyrir
sama mánuð í fyrra var 975,214
þús. kr. Vöruskiptajöfnuðurinn
fyrir júní mánuð var því óhag-
stæður um 515,6ö6 þús. kr., en
var á sama tíma í fyrra óhag-
stæður um 483.149.
það vera sem hér segir:
Vestfirðir: Viðgerðabifreið mun
hafa bækistöð á ísafirði og þjóna
á leiðinni frá ísafirði að Vatns-
firði. Þá hefði Barðstrendinga-
félagið farið þess á leit við í’.Í.B.
að þeir hefðu bíl í Bjarkarlundi
og hefði félagið orði'ð við þeirri
ósk. Sá bíll ætti að þjóna á leið-
inni frá Vatnsfirði og suður í
Dalasýslu. Ennfremur yrði reyna
að láta þann bíl fara upp á
Þorskafjaröarheiði, ef þörf
krefðist. Þeir sem þyrfitu að ná
sambandi við Ísafjarðarradíó,
sem síðan kæmi skilaboðum til
viðgerðarbílana sem allir væru
með talstöð.
Borgarfjörður: í Borgarfirðin-
um verður bíll sem þjóna á því
svæði og vestur eftir Mýrasýslu.
Þá mun einnig Finnbogi Guð-
laugsson á Bifreiða- og Tré-
smiðju Borgarness hafa vakt á
verkstæði slnu yfir helgina og
veita mönnum er þangað leita
fyrirgreiðslu.
Hvalfjörður: í Hvalfirði verð-
ur staðsett bifreið er þjónar einn
ig upp í Borgarfjörð. Þar verður
einnig staðsett önnur kranabif-
reið félagsins, sem jafnframt er
viðgerðabíll.
Nágrenni Reykjavíkur . Einn
bíll verður á leiðinni Reykjavík
—Þingvellir—Lyngdalsheiði og
út frá Reykjavík á leiðinni til
Árnessýslu verður hinn krana-
bíll félagsins staðsettur.
Suðurland: Einn bíll verður á
leiðinni Ölfus—Flói—Skeið og
einn á svæðinu frá Þjórsá og
austur undir Eyjafjöll. Gat
Magnús þess í viðtalinu við blað
ið, að þeir sem færu í áttina að
Þórsmörk mættu ekki reikna
með aðstoð F.Í.B.-bílana á ófær-
um vegum.
Sjúkrabifreið félagsins verð-
ur staðsett, eins og undanfarnar
verzlunarmannahelgar, að Stóru
Mörk undir Eyjafjöllum og starf
ar I samvinnu við Hjálparsveit
skáta í Reykjavík.
Eyjafjörður: Ein-n til tveir bíl-
ar ganga frá Akureyri í aust-
ur og vesturátt og þeir sem þurfa
að hafa samband við þá er bent
á að ná til Akureyrarradíó.
Austurland: Á Austurlandi
verða tveir bílar og hefur annar
Norðfjörð sem bækistöð og ferð
þaðan í átt til Egilsstaða og einn
ig suður á firðina, ef ástæður eru
til. Hinn bíllinn verður staðsett-
ur á Fljótsdalshéraði.
Sagði Magnús H. Valdir t ’-s-
son að ekki hefði reynzt ger-
legit fyrir félagið að hafa bíla á
svæðinu frá Borgarfirði til
Skagafjarðar og I Þingeyjarsýsl
um, en á þessum svæðum væru
mörg verkstæði við vegina, sem
líkleg væru til að veita þjónustu.
Sagði Magnús, að félagið legði
aðaláherzlu á a’ð hafa bílana sína
staðsetta þar sem bílafjöldinn og
umferðin væri mest.