Morgunblaðið - 28.07.1966, Blaðsíða 4
4
MORCU N BLAÐIÐ
Fímmtudagur 28. júlí 1966
BÍLALEIGAN
FERÐ
Daggjald kr. 400.
Kr. 3,50 per km.
SÍMI 34406
SENDUM
Volkswagen 1965 og ’66.
RAUÐARÁRSTÍG 31
SÍMI 22022
LITLA
bílaleigon
Ingólfsstræti 11.
Volkswagen 1200 og 1300.
Sími 14970
i§4Í5:
4vÞRBSTUR^
22-1-75
Fjaðrir, fjaðrablóð, hljóðkútar
púströr o.fl. varahlutir
i margar gerðir bifreiða.
Bílavörubúðin FJÖÐRIN
Laugavegi 168. — Sími 24180.
BO S C H
ÞOKULUKTIR
BRÆÐURNIR ORMSSON
Lágmúla 9. — Símí 38820.
Elzta vikublað
landsins
Jakob Ó. Pétursson, á Ak
ureyri minnist á það í bréfi, ao
sum blöðin hafi komizt svo að
orði hér á dögunum (fyrir
skömmu), að nú væri „elzta
vikublað landsins að leggja sig
til hvíldar eftir 38 ára göngu“.
Hins vegar sé „íslendingur"
á Akureyri elzta vikublað lands
ins. Fyrsta balðið kom út 9.
apríl 1915, og var afmælisins
minnzt með sérstakri viðhafn-
arútgáfu fyrir rúmlega ári.
„fslendingur" kemur enn út
og hyggst ekki „leggja sig tj.l
hvíldar".
^ Þulir útvarpsins
„Sveitadrengur" skrifar:
„í sambandi við gagnrýni þá,
sem fram kom á kvennaraddir
í útvarpinu í þáttum Velvak-
anda nýlega, fór ég að veita at
hygli lestri kvenþulsins, sem
nú starfar. Hún heitir að mig
minnir Ragnheiður. Og það
verð ég að segja: Að mér
finnst hún frábær í þessu
starfi. Ekkert atkvæði fellur
niður í nokkru orði í framsögu
hennar og hún tekur fast, skýrt
og eðlilega á orðunum. Sera
sagt mér finnst hún tala ein-
hverja fegurstu íslenzku, sera
ég hef heyrt, og skil ekki í
öðru en gagnrýnin, sem korn
fram um daginn á kvenþul út-
varpsins hljóti að vera beint
að henni af annað hvort and-
úð, misskilningi eða algjöru
þekkingarleysi.
Hins vegar tók ég eftir því
við sömu athugun, að einn
af karlþiulunum talar ailtof
fljótt og óskýrt. Einkum verða
löng orð í munni hans að ein-
hverri samfelldri runu, sem
verður nær óskiljanleg og svo
óíslenzkuleg, að þar er hætta
hraðmælis og latmælis alveg
á næstu grösum. T.d. verður
orðið Sameinuðu þjóðirnar að
samnuðu þjóðnar í máli hans
Efnahagsráð Evrópu verður
Efnagsrárópu, o.s.frv. Þetta er
afleitt og það því fremur að
börnum og ungu fólki hættir
við að taka þetta eftir í dag-
legu tali. Samnmi orða og at-
kvæða (í íslenzku tafsmæli) er
málinu óeðlilegur, en við þekkj
um slíkt bæði úr ensku og
dönsku, og er nú svo komið,
að gagngerðra breytinga þykir
þörf í ritmáli og stafsetningu
æskunnar af þeim sökum.
En slíkur málgalli vex nú
hröðum skrefum með hverri
kynslóð íslenzkri. Væri nauð-
syn að taka þetta fyrirbrigði
föstum tökum í skólunum og
víðar og þá ekki sízt útvarpinu.
Hver kannast ekki við sam-
runa eins og „bleska" úr dag-
legu máli og „taura“, érakom".
En þessi „málblóm” tafsmælis-
ins þýða á íslenzku fullum stöf
um: „Blessuð elskan“ (mín)
„áttu aura“, „Ég er að koma.“
Annars hefur þessi fulltrúi
tafsmælisins í útvarpinu ákaf-
lega fallega og karlmannlega
rödd. En hvers vegna fer hann
ekki til talkennara, Sem ætti
að geta lagað þetta á nokkrum
dögum? Það væri gott fyrir
alla, sem á hann hlýða.
Til að koma í veg fyrir mis-
skilning vil ég taka það fram,
að mér eru allir þulirnir per-
sónulega ókunnir. Ég dæmi að-
eins um verk þeirra eins og
þeir koma mér fyrir eyru. Ég
hef þó bæði lært og kennt
framsögn og sterfað við flutn-
ing íslenzks máls um áratugL
Sveitadrengur".
•+C Hafnarfjarðar-
vagninn
Silfurtúni, 20.7 ‘66.
„Herra Velvakandi!
Langt er nú orðið síðan ég
fyrst ætlaði að senda þér línu
út af rekstri „Landleiða hf.“
á Hafnarfjarðarvögnunum, en
nú get ég ekki lengur orða
bundist, því það gengur svo
fram af öllum (að minnsta
kosti sem ég þekki til) að erfitt
er áreiðanlega að finna hlið-
stæðu, þótt víða se pottur brot
inn. Það sem fékk mig til að
gera þetta er atvik sem átti
sér stað kl. 6 e.h. 19. júlí. Ég
var komin inn í áætlunarvagn-
inn sem ég hélt að ætti að
leggja af stað kl. 17.45 eða kort
er fyrir 6 frá Reykjavík. Þeg-
#ir klukkuna vantaði 10 mín í
6 spurði ég vagnstjórann klukk
an hvað þessi vagn ætti að
leggja af stað þá sagði hann að
vagninn ætti að leggja af stað
kl. 6. Ferðum hafði þá verið
fækkað úr 4 ferðum á klukku-
tíma í 3. Sem sagt ferðirnar
sem áður voru um miðjan dag-
inn á 15 mín. fresti voru núna
á 20 mín. fresti. Sennilega hef-
ur það verið auglýst einhvem
staðar þegar breytingin átti sér
stað, svo það var sjálfsagt mér
að kenna að ég vissi þetta ekki,
enda ferðast ég mikið á milli
á eigin bíl. Nú, ég er nú kom-
in svolítið út fyrir efnið, og
bezt er að halda sig við aðal-
atriðið. Þegar svo klukkan er
að verða 6 og vagninn er svo
troðfullur að staðið er líka í
tröppunum við innganginn er
annar Hafnarfjarðarvagn kom-
inn og vagnstjórinn úr hon-
um kemur snöggvast í gættina
og segir við þann sem var að
fara að leggja af stað: „Heyrðu,
þú ferð kl. 6, eg á að fara 20
mín. yfir 6.“ Sem sagt, hann
átti að bíða þarna við garnla
Iðnskólann, (því þetta var í
Reykjavík) í 20 minútur. Þeg-
ar við svo komum á Miklatorg
ið beið að minnsta kosti 10—15
manns þar, en þar var auðvitað
ekki stanzað, fólkið var bára
skilið eftir, það gat bara beðið
eftir næsta vagni, hvað munaði
það um svoleiðis smámuni, og
ef ekki væri pláss í næsta vagni
heldur, þá bara sá þarnæsti. í
útvarpinu þennan dag var fólk
hvatt til að nota áætlunarvagn
ana á milli borganna, fremur
en að aka á eigin bilum, vegna
vegaframkvæmda í Garða-
hreppi, svo að auðvitað hefur
fleira fólk ferðazt með vögn-
unum þennan dag en endra-
nær, hefði þá ekki vrið eðli-
legra að sendir væru tveir
vagnar kl. 6, eða að fjölga ferð
unum eitthvað á milli kl. 5—7
að minnsta kosti þennan dag,
en það er auðvitað til of mkiils
mælzt af þessu fyrirtæki að
þeir fari að bera hag fólksins
fyrir brjósti. Það eru þeir sem
ráða, og sé eitthvað fundið að
er bara svarað með skætingi.
Ég er nú ekki kunug lögum
þeim sem sérleyfishafar eiga
að fara eftir, en ég hfði haldið
að bannað væri að skilja eftir
farþega á auglýstum brottfar-
artímum. Nú er þetta ekki út
af vagnaleysi hjá Landleiðum
því að ég veit um að minnsta
kosti einn bíl góðan, sem þeir
leigja út í hópferðir á meðan
þeir ekki geta annað farþegum
á sérleyfisleið sinni, Reykja-
vík — Hafnarfjörður. Hvað
skyldu mörg hundruð manns
geta tekið undir með mér þeg-
ar ég segi: „Það féll niður ferð
sem ég ætlaði með?“ Það kem
ur fyrir mörgum sinnum bæði
sumar og vetur. Einu sinni
(það var í fyrravetur), biðu 5
manns í hörkufrosti í 50 mínút
ur, segi og skrifa 50 mínútur,
úti við biðstöðina hjá Silfur-
túni. Enginn vagn fór frá Hafn
arfrði til Reykjavíkur 1 nær
klukkutíma. Ef maður svo vog
ar sér að tala um þetta eða
spyrja hvað valdi er annað
hvort ekki svarað eða svarað
með skætingi. Okkur farþegun
um kemur þetta sem sagt ekk-
ert við, við gtum bara beðið
þangað til þeim þóknast að
senda vagna.
Ég skora á alla farþega Hafn
arfjarðarvagnanna að rísa nú
upp allir sem einn, og heimta
betri þjónustu, það hefur sýnt
sig áður að mörgu er hægt að
koma til leiðar ef sameigin-
legt átak er gert og gerum þa<5
nú. Ef Landleiðir ekki geta veitt
betri þjónustu ætti að taka af
þeim sérleyfið og leyfa ein-
hverjum öðrum að reyna, það
gæti aldrei orðið verra en það
er. Um leið og ég finn að rekstr
inum vil ég leyfa mér að þakka
þeim vagnstjórum, sem eru,
margir svo þolinmóðir og lið-
legir við farþegana.
Að lokum þetta til farþeg-
ana. Sýnum meiri kurteisi þeg
ar stigið er upp í vagnana á bið
stöðum, en ekki ryðjast hver
sem betur getur, og kralmenn
þurfa ekki að láta konur troð-
ast framfyrir þá. Við konur
viljum jafnrétti kynjanna og
þá vrðum við að taka það góða
með því vonda og öfugt. Við
íslendingar erum alltaf að
apa eftir öðrum þjóðum, því
ekki að læra af þeim að stíga
upp í strætisvagna. Þeir raða
sér upp á biðstöðum eftir þvl
sem þeir koma á þær og ganga
svo rólega upp í vagnana, eng-
ar ýtingar og engum d’ettur I
hug að troðast framfyrir. Svo
vona ég að þessi skrif mín,
sem ég veit að svo margir vita
að eru rétt og sannleikanum
samkvæm, hafi einhver áhrif
til góðs, sérstaklega hjá hinum
háu herrum hjá Landleiðum.
Þá er tilganginum náð.
Með þökk fyrir birtinguna.
Virðingarfyllst.
Elsa Guðsteinsdóttir.
Ullarvinna
Reglusamur maður óskast til starfa
strax við ullarkembivél.
Nánari upplýsingar hjá verkstjóra næstu
daga.
Ullarverksvnföjan Framfíðin
Sími 13060.
Erum fluttir
með skrifstofuna
að Laugavegi 103
3. hæð, og vöruskemmu
að Skeifunni 8
Mðrs Trading Company hf.