Morgunblaðið - 28.07.1966, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 28.07.1966, Blaðsíða 23
ílmmtudagur 28. júTí 1966 MORCUNBLAÐIÐ 23 — Um framsýni Framhald af bls. 17 mál að ræða — útrýming hung- ursins í heiminum, og því ekki óeðlilegt, að margar þjóðir sam einist um úrlausn þess. *r Þáttur verðbólgunnar Þá hefur verðbólgan á fslandi séð fyrir því, að ekki hefur ver- ið unnt að koma á fót með eðli- legum hætti fiskiðnaðarfyrirtækj um, eins og t.d. niðursuðuverk- smiðjum, sem krefjast öðrum út- ílutningsgreinum fremur vegna erlendra markaðsaðstæða. mikils jafnvægis í þróun framleiðslu- kostnaðar. Verðteygnin í niður- lögðum eða niðursoðnum sjávar afurðum er lítil, þ.e. verðlagið á hinum erlendu mörkuðum all- stöðugt ár frá ári. Áhrifin eru, að jafnhraðvaxandi, árleg verð- bólga, eins og verið hefur á ís- landi síðustu tvo áratugina, hef- ur gert að engu framleiðslu- og söluáætlnanir fyrir fullunnar síldarafurðir til manneldis og komið í veg fyrir' uppbyggingu öflugs niðursuðuiðnaðar. Örari verðbreytingar til hækkunar á frystum sjávarafurðum til árs- loka 1965 og fastmótuð uppbygg ing þessa i^inaðar hefur forðað Ihraðfrystiiðnaðinum frá sömu örlögum. Vegna verðbólguþróunarinnar, íem hefur dregið úr getu manna til að fara út í fullvinnslu síld- arinnar til manneldis, hefur þró unin því orðið sú, að leitað hef- ur verið þeirra leiða, sem til- tækilegastar hafa verið til að mæta þessum kringumstæðum og nýta hinn mikla síldarafla, með því að bræða hann í afkasta miklum síldarverksmiðjum og framleiða dýrafóður. Að vissu marki hefur verið um ákveðið kapphlaup að ræða um að koma aflanum í vinnslu og sölu, sem með sem skjótustum hætti skilar andvirði framleiðslnnar til baka. Þessum hraða skilar síidar- hræðslan mun betur en full vinnsla sildar til manneldis við núverandi kringumstæður. Til að vinna fullunnum matvælum markað, þarf viðkomandi fram- leiðandi, sem yrði að skapa eftir- spurn eftir vörunum, að hafa yfir miklum fjármunum að ráða, bæði til að eiga jafnan nægilegt hráefni í birgðum, sem trýfegði stöðuga framleiðslu miili veiðitímabila, og til að festa í birgðum fullunnar vöru ailt frá eigin vöruskemmu í smásölu- dreifinguna á erlendum mörkuð um, auk nauðsynlegrar fjárfest- ingar í húsum, vélum o.þ.h. í byrjun gæti verið um langt tímabil að^ræða, sem þyrfti að brúa frá utlögðum framleiðslu- kostnaði, þar til greiðslur af söl um færu að koma inn. Er aug- ljóst mál, að íslenzkir fiskfram- leiðendur hafa ekki yfir slík- um fjármunum að ráða og út- vegsmenn með sína nýju og dýru fiskibáta geta ekiki beðið eftir fullnaðargreiðslum fyrir síldina, sem full vinnsla henn- ar myndi krefjast á fyrsta stigi í uppbyggingu almennilegs nið- ursuðu- eða niðurlagningariðn- aðar. Um framleiðslu síldar- og fiskimjöls til manneldis liggja hérlendis ekki — svo mér sé kunnugt um — fyrir neinar fram leiðslu- né sölukostnaðaráætlan- ir, þrátt fyrir miklar umræður um hugsanlega nýtingu mjölsins til manneldis. Hins vegar mun þess skammt að bíða, að banda- rísk vísindastofnun birti skýrsl- ur um jákvæðan árangur á til- raunastarfsemi til að framleiða fiskimjöl til manneldis með hag- kvæmum hætti. Þörf sameinaðs átaks Hér þarf að koma ákveðinn stuðningur þjóðarheildarinnar fyrir tilstuðlan ríkisvaldsins við íslenzka fiskframleiðendur, ef þjóðin vill byggja upp öflugan og fjölbreyttari síldariðnað, sem margfaldaði hráefnisverðmætið í vinnslu. íslenzka þjóðin er nú það vel efnum búin, að hún getur lagt út í 'þetta stórvirki. Ríkisstjórn- in og Alþingi i samvinnu við stéttarsamtökin verða að gera ráðstafanir, sem duga til að draga úr hinni óeðlilega hörðu verðbólgu, sem brýtur niður ís- lenzka útflutningsframleiðslu og framtíðarmöguleika hennar Marg háttaðar leiðir koma til greina í þeim efnum, en eitt er víst, að eigi að byggja upp atvinnugrein, sem krefst hudraða milljóna króna í fjárfestingu, verður að draga úr verðbólguhraðanum og skapa hinni nýju atvinnugrein nægilegt fjármagn. í glímunni við verðbólguna verður að fara verðhjöðnunarleiðina, með því m.a. að draga úr opinberum framkvæmdum, einkaneyzlu og óarðbærum atvinnurekstri og beina að ákveðnu marki fjár- magninu í uppbyggingu fiskiðn- aðar, sem eykur útflutningsverð- mæti fisk- og síldarhráefnisins Eins og málum er nú háttað, geta íslendingar í heild þrautalítið dregið um takmarkaðan tíma úr einkaneyzlu vegna betri framtíðar fyrir eftirkom- endur, jafnframt því sem þe'tr styrkja sjálfstæði þjóðarinnar. Efling íslenzkra atvinnuvega og betri nýting auðlinda hafsiirs, hlýtur að vera keppikefli sér- hvers hugsandi fslendings, og getur enginn skorazt undan þeirri ábyrgð að taka af heilind um þátt í nauðsýnlegum aðgerð um til að treysta grundvöll út- flutningsframleiðslunnar og byggja þjóðinni bjartari framtið. TJÖLD Mikil eftirspurn hefur verið síðustu daga eftir tjöldum með hlífðarþökum. — Hlífðarþökin þétta tjöldin fyrir kuldanæð ingi eða rigningu eins og veðurfar hefur verið undanfarið. — Eigum enn eftir nokk ur 5 manna tjöld með útskoti og lilífðarþaki. Verð kr. 3.690.- Miklatorgi - Lækjargötu 4 - Akureyri Lokað vegna sumarleyfa tii 7. ágúst. Kristínn Benediktsson Heildverzlun — Óðinsgötu 1. MONROE-MATIC og Monroe-Super 500 Höggdeyíoi ávallt fyrirliggjandi í flestar tegundir bifreiða. FJAÐRAGORMAR SLITHLUTIR BREMSUHLUTIR TJAKKAR 1%—12 tonn STUÐARATJAKKAR HJÓLATJAKKAR FARANGURSGRINDUR POKAR á farangursgrindur BÖND fyrir farangursgrindur AURHLÍFAR MOTTUR ÚTVARPSSTENGUR L J ÓS AS AMLOKUR 6 og 12 volt KAPPAR í dekk SPEGLAR ÞVOTTAKÚSTAR LUKTIR allskonar fyrir vinnutæki ISOPON til allra viðgerða smyrst sem smjör, harðnar sem stál PLASTI-KOTE sprautu- * lökkin til blettunar CAR-SKIN bílabónið, þarf ekki að nudda, endist lengi. isth.f Qþnau Höfðatúni 2. — Sími 20185. ATHUGIÐ Þegar miðað er við útbreiðslu. er langtum ódýrara að auglýsa í Morgunblaðinu en öðrum blöðum. ‘K'ásti utiini í helguiferðina Peysur, peysuskyrtur, peysujakkar, stretchbuxur, úlpur o. m. fl. Góðar vörur á lágu verði. Verzlun Ó.L. *' Traðarkotssundi 3. (Á móti Þjóðleikhúsinu). Hestamannafélagið FÁKUR hefur ákveðið í sambandi við hestmannamótið í Skógarhólum 30. og 31. júlí nk. að senda bíl með farangur þeirra, sem ætla sér á hestum á móts- stað. Tekið verður á móti farangri laugardaginn 30. júlí kl. 9—12 f.h. við félagsheimilið ATH.: Geldinganesið verður smalað laugardag og verða hestar komnir í rétt kl. 10.00 f.h. STJÓRNIN. 1. vélstjóri óskast á togbát Upplýsingar í síma 50565. the 'ekgant’ DELUXE leisure chair % Sólstólar Margar gerðir nýkomnar. — Ódýrir — Ceysir hf, STÁLOFNAR Ideal - {$tattdafd Þýzkir og enskir panelofnar úr stáli vandaðir, áferðarfallegir. Hagstætt verð. Miðstöðvarofnar frá Jdeal - í^tatnJard hafa áratuga, mjög góða reynslu hér á landi Allt til hita- og vatnslagna á einum stað hjá oss J. Þorláksson & IMorðmann hf. Bankastræti 11. — Skúlagötu 30.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.