Morgunblaðið - 28.07.1966, Síða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ
Fimmtudagur 28. júlí 1966
inn, sem hefur sést hér á landi,
og hann var sendur Náttúru-
fræðistofnuninni. Heimkynni
Skopuglunnar eru annars Mið-
jarðarhafslöndin. FlækingsfugU
arnir sjást helzt í trjágarðinum
hjá mér. Þar hópast þeir að.
Fuglalífið mundi áreiðanlega
breytast, ef hér væru skógar.
Einu sinni komu hingað tvær
Hringdúfur. Ég held að þær hafi
verpt, en ég fann aldrei hreiðrið.
Hræddur er ég um að ekki hafi
komið fram hjá þeim.
og spjallar við okkur.
— Þú fylgist líka með farfug1-
unum okkar. Koma þeir fyrst a5
landinu hér um slóðir?
— Ætli farfuglarnir komi ekki
fyrst austar. Hálfdán á Kvísker. -
um í Öræfasveit hefur séð nokkr
ar tegundir á undan mér. Aftur
á móti virðist lóan koma vestar
að landinu. Hún sést oft nokkr-
um dögum fyrr í Reykjavík en
hér. Ég fylgist með komudögum
fuglanna og læt fuglafræðing-
ana hafa skýrslu. í vor komu
þeir í meðallagi snemma. Eng-
inn fugl er ábyggilegri en stelk-
urinn. Ég hefi fylgst með honum
í 15 ár. Hann kemur alltaf 1G.
—20. apríl. í vor kom hann með
fyrsta móti eða 16. apríl.
Áður en skilizt er við fugla-
skoðun Einars í Skammadalshóli,
væri ekki úr vegi að benda á
grein, sem hann skrifaði í fyrra
í Náttúrufræðinginn um kennslu
stund hjá lómi á Dalsvatni sum-
arið áður. Hún sýnir vel hvernig
þessi bóndi gefur sér, í önnum
sumarsins, frístundir til að reika
um og njóta þeirrar náttúru sem
kringum hann er. í þetta sinn
hefur hann verið að huga að fugl
um við heiðartjörn uppi í Dals-
heiði á lognkyrri blí’ðviðris-
nótt um kl. 1,30, stundina sem
mófuglarnir þegja, eins og hann
orðar það. Þá verður hann vitni
að því hvernig lómur kennir ung
anum sínum áð kafa með því að
stinga sér með ætið í nefinu,
sem unginn er orðinn æstur í. Sá
litli verður þá að ná því
undir yfirborðinu, þó -honum
takist ekki enn að koma gump-
inum í kaf, því dúnungi er létt-
ur og mikið flotmagn í dúninum.
Undir lok frásagnarinnar segir
Einar: Það var ánægður maður,
sem nú hélt til byggða, eftir að
hafa horft á umrædda kennsiu-
stund, sjá einn þátt þess, hvern-
ig náttúran sjálf býr ungviði sitt
undir að heyja sína eigin lífsbar-
áttu. Fullorðinn lómur kafar auf
sundi eftir lífsbjörg sinni. Því
var það nauðsyn áð kenna unga
litla að kafa eftir sílunum, en
rétta honum þau ekki fyrirhafn-
arlaust.
Dyrhólaey mynduð vií.
sjávargos.
Þaðan sem við sitjum með kaffi
brúsa Einars undir réttarveggn-
um blasir við í suðri Dyrhólaey,
þessi einstæði klettahöfði. Auð-
vitað hefur Einar ekki látið þessa
sérkAaniiegu náttúrusmíð fram
-v Framhald á bls 25
ÞEGAR ekið er um þjóðveginn
austur Mýrdalinn, nokkurn veg-
inn upp af Dyrhólaey, er farið
„með baejum“, sem kallað er.
Þarna voru bændur af 8—9 býl-
um að rétta, er fréttamaður
Mbl. var þar á ferð 4. júlí s.l.
I réttinni komum við auga á
kunnan náttúruskoðanda, Einar
H. Einarsson, bónda á Skamma-
dalshól. Nýlega var hann heiðrað
ur af Hinu íslenzka náttúrufræði
félagi fyrir skeijasöfnun o.fl. og
gerður kjörfélagi þess. Einar á
gott safn af fornskeljum, sem
hann hefur fundið í fjöllun-
um þarna fyrir austan og einnig
skeljar úr fjörunni, m.a. nýja
landnema á íslandi. Þá fylgist
Einar vel með ferðum farfugl-
anna og flækingsfugla og hann
hefur sínar eigin kenningar um
myndun Dyrhólaeyjar, svo eitt-
hvað sé*nefnt. Hefur Einar skrif-
að nokkuð um athuganir sinar
í Náttúrufræðinginn.
Þarna settumst við niður með
Einari undir réttarveggnum me'ð
an hann fékk sér kaffi úr hita-
brúsanum sínum, og röbbuðum
við hann svolitla stund, þó ekki
aéu að vísu góðar aðstæður til
vísindalegra útskýringa, þegar
vart heyrist mannsins mál fyrir
jarmi og kindurnar bíða eftir að
vera rúnar.
Einar er uppalinn í Skamma-
dalshóli og hefur sjálfur búið þar
samfellt síðan 1940. Hann kyaðst
hafa blandað meðalbú. Vorað
hefði illa í ár, svo sauðburður
varð að fara fram á húsi. Bænd-
ur yrðu nú að láta bera fyrr en
áður, vegna þess að féð er haft
á ræktuðu landi, sem síðar þarf
að gefa af sér gras. Nú var verið
að smala sameiginlega á bæjun-
um og rýja, en Einar kvað mestu
vandræði orðin að smala vegna
mannfæðar.
Við höfðum or*ð á því að nóg
sé að gera hjá bændum og að
hann hafi nú ýmis önnur áhuga-
mál. Hvernig hann fari að því
að sinna þeim? Svarið var stutt
og laggott: — Ég vil ekki hafa
búið stærra en svo, að maður
verði ekki þræll þess. Eitbhvert
frístundagaman verður maður að
hafa. Ef ekki er hugsað um ann-
að en þetta daglega basl, verður
maður alveg að Moibúa.
Fornar sjávarskeljar
nppi á fjöllum.
Því miður var ekki hægt að
koma því við að fá að sjá forn-
skeljasafn Einars, en hann hefur
safnað yfir 30 tegundum af skelj
um þarna í fjöllunum. Það kann
að virðast nokkuð skrýtið að
leita skelja í fjöllum. En á því
eru skýringar, enda eru þetta
ekki skeljar utan af dýrum frá
í gær.
—Þetta eru sæskeljar, sem
komið hafa upp með gosum,
Þær eru á aldur við yngri
Tjörneslögin eða frá fyrri ísöld.
Ég hefi aðallega safna'ð þeim á
tveimur stöðum, í kömbunum
ofan við Skammá og í Núpum
í Höfðabrekkuheiði. ^lolarnir
hafa dreifzt um fjöllin í sprengi-
gosum. Bráðlega birtist grein um
fornskeljarnar í Kömbunum í
Náttúrufræðingnum, en áður var
ég búinn að skrifa um Núpana.
— Hvernig stóð á því að þú
byrjaðir að safna þessum skelj-
um?
— Ég hafði gaman af þessu.
Mér var kunnugt um að Ijósleitar
kúlur úr sandsteini, sem inni-
héldu fornar sæskeljar, fyndust
hér. Ég fór þó ekki að safna
þeim fyrir alvöru fyrr en eftir
1952, þegar Jóhannes Áskelsson
fór að hvetja mig til þeS'S. Við
skiptum me'ð okkur verkum. Ég
safnaði og Jóhannes sá um ald-
ursgreininguna. Hann skrifaði
seinna merkilega ritgerð um þess
ar kúlur.
— Þetta eru venjulegar sæ-
skeljar, — kúskeljar, krækling-
kvartertímabilinu eða eldri.
Einar útskýrir í stuttu máli
hvað þarna er um að ræða.
Tertiera blágrýtismyndunin, sem
er aðalbergmyndunin á Norð-
vesturlandi og Austurlandi, hef-
ur náð yfir allt landið, en síðan
sigið um mi'ðbikið, þar sem nú er
yngra jarðeldasvæði. Þess hef-
ur jafnvel verið getið til, að
sigdældin um þvert landið, hafi
um skeið skipt því í tvær eyjar.
Hvað sem um það skal segja, þá
hefur sjór a.m.k. legið yfir all-
miklu af þeim berggrunni sem
núverandi Mýrdalsfjöll hafa
hlaðizt ofan á. Það sýna sjó-
skeljarnar í þeim. Trúlegast tel-
ur Eirvar að sjávarsetið, sem
skeljarnar og kúlurnar eru ætt-
aðar úr, liggi ofan á basaltmynd
uninni en undir móbergsmynd-
uninni. í gosum brotnar svo úr
þessu sjávarseti og kúlurnar me'ð
skeljunum berast upp á yfirborð
ið. Ekki eru þó þessir molar
allir kúlur, heldur hafa margir
þeirra slétta fleti og skörp
horn, sem sannar, að setið hefur
verið orðið að föstu bergi áður
en það brotnaði. Sumir hafa utan
um sig skurn úr dökku basalti.
Sú skurn hefur eflaust storknað
úr þeirri bergkviku, sem bar kúl
urnar upp úr djúpinu í sprengi-
gosinu. Segir Einar, að kúlurn-
Einar situr undir réttarveggnum
eru margar rauðbrúnar um 1—2
sm. inn í kúluna, sem aldrei er
á hinum staðnum og einnig eru
Dyrhólaey, sem Einar telur myndaða á sama hátt og Surtsey.
ur, krókskel, halloka o.fl. Nokkr-
ar hefi ég fundið, sem ekki lifa
hér við land. Tvær tegundirnar
eru útdauðar taldar. Þær eru frá
ar í Skammadalskömbum hafi kúlurnar úr Skammadalskömb-
orðið fyrir meiri hitaáhrifum en
þær úr Núpum. Markar hann
það af því, áð þær fyrrnefndu
Bændurnir á nokkrum bæjum i Mýrdalnum voru að smala og rýja
um segulmagnaðar 2—4 sm. inn
frá yfirborði. Vissum gerðum
kúlna segir Einar að fylgi að
nokkru leyti vissar tegundir
steingerfinga og hefur ákveðnar
kenningar um í hvaða jarðlagi
hver tegund liggi niðri í jörð-
inni.
Flækingsfuglarnir sækja
í trén.
Og svo víkjum við talinu frá
fornum skeljum og yfir í núlif-
andi fugla. En Einar í Skamma-
dalshól hefur fylgst með ferðum
farfuglanna á hverju vori og
fengizt við athuganir á flökku-
fuglum.
— Það kemur tálsvert af
flökkufuglum á þessar slóðir. Þó
eru áraskipti að því, segir hann.
Það fer eftir því hvernig viðrar
á leið þeirra sunnar. Ef farfugl-
arnir fá til dæmis suðaustan véð-
ur á sig á leiðinni til Noregs,
ber þá stundum hingað. Árið
1959 gerði feiknarlegt SA-veð-
ur. Þá komu margir flækings-
fuglar hingað, einkum tegundir
sem verpa í Noregi. Nokkuð ber
á Bókfinku og Fjallafinku, Hettu
söngvurum o.fl. Og eitt vorið rak
góðan feng á mína fjöru. Þá kom
Skopugla. Þetta var annar fugl-
Bdndi í Mýrdal safnar skeljum, rann-
sakar jarðmyndanir, hugar að fugli
Spjallað við Einar á Skammadalshól