Morgunblaðið - 07.08.1966, Blaðsíða 1
28 síður
Martin Luther King
sýnt banatilræði
Kynþáftaóeirðir í Chicago
Chicago, 6. ágúst, NTB, AP.
HNÍFI var kastað að blökku-
mannaleiðtoganum Dr. Martin
L.uther King í Chicago í Chicago
í gærkvöldi í kynþáttaóeirðum
þeim er þar urðu. Er blökku-
menn höfðu yfirgefið hverfi
hvítra manna sem óeirðirnar áttu
sér stað í gerðu þúsundir æstra
hvitra manna aðsúg að lögreglu-
mönnum, sem voru þarna um
1200 talsins og léku þá grátt.
Hnífurinn sem kastað var að
Dr. King hitti ekki í mark en
straukst framhjá höfði hans og
lenti í hnakka pilts eins hvíts,
þar var nærstaddur og var það
allmikið sár. Var hann fluttur í
sjúkrahús en fékk að fara heim
til sín síðar um nóttina er gert
hafði verið að sárum hans.
Óeirðirnar hófust er baráttu-
menn fyrir réttindum blökku-
manna héldu inn í hvít'ra manna
í Chicago fylktu liði, í sexfaldri
röð en fyrir göngunni fór hóp-
ur hvítra unglinga og hafði uppi
fána. Andstæðingar göngumanna
komu sér fyrir í trjám meðfram
götunni, köstuðu niður grjóti og
hrópuðu ókvæðisorð.
Ó eirðir þessar eru sagðar
meiri en orðið hafa áður í Chi-
cago en Dr. King lýsti því ótrauð
ur yfir að hann og hans menn
myndu koma aftur. „Og við kom
um aftur og aftur meðan blökku
menn geta ekki verið óhultir í
Chicago", sagði King.
Framselja Portúgalar
þræla til S-Afríku?
New York, 6. ágúst, NTB.
PORTÚGAL var í dag ákært
fyrir að láta S-Afríku í té þræta
til vinnu samkvæmt sérstökum
viðskiptasamningi milli land-
anna.
• ODi SUUUUUdg VvlU UIH «1U lb" ■
| lenzkir ferðalangar staddir í j
; Brattahlíð við Eiríksfjörð í "
j Grænlandi, en til Eiríksf jarð j
j ar fór hópurinn aðallega til :
■ veiða, en að sjálfsögðu var j
j komið við í hinum fornu fs- :
; lendingabyggðum í Bratta- j
j hlíð og Görðum. Meðal þátt- j
; takenda í ferðinni voru hjón- I
j in Marteinn Kristjánsson og j
; Olga Benediktsdóttir. Frú :
j Olga hafði með sér íslenrkan j
j þjóðbúning til Brattahlíðar, :
j og þar var þessi mynd tekin j
j af henni og grænlenzkri konu ;
; í þjóðbúningi við rústir fornr j
I ar kirkju frá miðöldum. Má j
; með réttu segja, að hér sé j
j um sögulega og óvenjulega j
j mynd að ræða. (Ljósm. Mbl.) :
Samstaða um loftferða-
samninga við ísland
Kaupmannahöfn, 6. ágúst.
Einkaskeyti frá Rytgaard.
FULLTRÚAR utanríikis- og
samgöngumálaráðuneyta Dan
merkur og Svíþjóðar sitja nú
á rökstólum til að reyna að
samrýma sjónarmið land-
anna þriggja varðandi vænt-
anlegar samningaviðræður
lönsýningin 7966
opnar 30. ágúst
TJNDIRBÚNINGUR fyrir Iðn-
sýninguna 1966 er nú vel á veg
komin, en ráð gert er að sýning-
in, sem jafnframt verður kaup-
stefna, verði opnuð þann 30.
ágúst næstkomandi í Sýningar-
©g íþróttahöllinni í Laugardal.
Vinna er hafin við lagningu
felífðargólfs á hið viðkvæma
„parkett" gólf sýningarhallarinn-
®r og næstu daga verður byrjað
að reisa milliveggi og skilrúm
sýningarstúkanna. Málun þilfleka
hófst fyrir nokkru, en sýnendum
var gefinn kostur á að velja um
þrjá mismunandi liti.
Strax og sýningarstúkur hafa
verið reistar og gengið frá raf-
og símalögnum munu sýnendur
hefjast handa um að koma sýn-
ingarmunum fyrir og skreyta
stúkur sínar. Verður það vænt-
anlega upp úr miðjum ágústmán-
uði.
Upphaflega var ákveðið, að
sýningarsvæði yrði einnig utan
húss, en nú hefur verið frá því
horfið vegna dræmrar þátttöku.
Nýtízkuleg sýningarskrá
Iðnsýningarnefnd gefur út
myndarlega og nýtízkulega sýn-
ingarskrá (18x18 sm), sem verð-
ur um 160 blaðsíður. í henni
verða umsagnir um öll fyrirtæki
Framhald á bls. 27
við íslendinga um nýja loft-
ferðasamninga, sem hefjast
25. þ. m .
Að loknum fyrsta viðræðu-
fundinum var ákveðið að full
trúarnir kæmu næst saman
hinn 16. þ.m., og sennilega
verðrr þriðji fundurinn hald-
inn áður en viðrðurnar við
í-'endinga hefjast.
Hans Jespersen, fulltrúi
danska utanríkisráðuneytisins,
sagði í dag að ekki væri neinna
upplýsinga að vænta af þessum
viðræðum fyrr en fundir hefjast
með fulltrúum íslands. En haft
er fyrir satt að meiri líkur séu
fyrir því nú en fyrir fyrri við-
ræðum að Norðurlnödin þrju
komist að algjöru samkomulagi
um afstöðuna gagnvart íslandi.
En í fyrri viðræðum hefur
margskonar ágreiningur komið
í veg fyrir samstöðu ríkjanna.
Nú er bent á að með samkeppni
sinni hafi Loftleiðir skapað al-
varlegt ástand hjá SAS, og þess
vegna leggi ríkisstjórniinar á
það áherzlu að samstaða náist
hjá fulltrúum landanna.
Það var fulltrúi Tanzaníu,
Mtingwa, sem setti fram ákæru
þessa á fun'di í sérlegri nýlendu-
málanefnd SÞ. Þar lét fulltrúinn
m. a. þau orð falla um Portúgal,
að það væri fátækasta land í
Evrópu, þar væri asninn enn
mest notaða flutningatækið og
þar hefðu landsmenn mestar
tekjur af framleiðslu áfengra
drykkja.
Um nýlendur Portúgala í Afr-
íku sagði fulltrúinn að lands-
menn þar væru þrælar eða því
sem næst og það væri ekki ein-
asta að Portúgalar notuðu sjálfir
vinnuafl þeirra heldur létu þeir
einnig senda þá til annarra landa
í Afríku. Sagði Mtingwa að
Suður-Afríka fengi þræla frá
portú'gölsku nýlendunum í Afr-
íku samkvæmt sérstökum samn-
ingi þar um sem gerður hefði
verið milli landanna tveggja 1928
og síðar breytt nokkuð 1934 og
1940 en væri enn í gildi.
Óeirðir
í Kolkútta
Kalkútta, 6. ágúst, AP.
VERKAMENN í stáliðjuveri í
Durgapur, um 160 km. norðan
Kalkútta, lögðu niður vinnu á
föstudagskvöld til áherzlu kröf-
um sínum um hærra kaup og
kom þá til óeirða er lögreglu-
menn voru sendir á vettvang og
særðust 14 manns í átökunum en
12 voru handteknir.
Flugstjórinn lézt
við stjórnvölinn
— er þotan var í 50 metra hæð
rétt fyrir lendingu
Tókíó 5. ágúst — AP.
FLUGSTJÓRI DC—8 f?r-
þegaþotu frá hollenzka
flugfélaginu KLM lézt við
stjórnvöl þotunnar örfáum
sekúndum fyrir lendingu á
Tókíóflugvelli snemma í
morgun, en aðstoðarflug-
maðurinn tók þegar við
stjórn og lenti þotunni án
þess að farþegarnir hefðu
nokkra hugmynd um hvað
gerzt hafði, að því er KLM
tilkynnti hér í morgun.
Er flugstjórinn, G.H. Groot,
48 ára að aldri, svaraði ekki
aðstoðarmanninum, C. G. de
Jager, rétt fyrir lendinguna
leit sá síðarnefndi til hliðar
og sá fl'ugstjórann sitja mátt-
Framhald á bls. 27