Morgunblaðið - 07.08.1966, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 07.08.1966, Blaðsíða 5
SunnuJagflf 7. ágúst 1966 MORCU N BLAÐIÐ 5 ÚR ÖLLUM ÁTTUM í TILEFNI af vaxandi áhuga fyrir „sumarleyfisferðum“ til hinna suðlægari landa, sneri Morgunblaðið sér til Eim- skipafélagsins og innti eftir l»ví, hvort félagið væri með nokkrar nýjungar á döfinni að því er „Guillfoss“ viðvíkur. Blaðið fékíc þær upplýsingar, að undanfarna mánuði hafi Eimskipafélagið verið að at- huga möguleika á þvi að senda m.s. Gullfoss í eina eða tvær ferðir suður til Kanarí- eyja í janúar og febrúar nik., en þá er veður þar eins og bezt gerist að sumrinu á ts- landi, og ennfremur í ferð vestur tU Montreal í Kanada í tilefni ai heimssýningunni, sem opnuð verður þar í apríl 1967. Félagið hefur ekki enn- þá auglýst þessar ferðir, þar sem fullnaðarákvörðun hefur ekki verið tekin um þær í einstökum atriðum, en í ráði er, að haga ferðunum til Kanaríeyja þannig, að far- þegar fari milli Reykjavíkur og Lissabon, ýmist með skip- inu eða flugleiðLs, en búi að öðruleyti um borð í skipinu meðan ferðirnar standa yfir. Ætlunin er að haga fyrri ferðinni þannig að skipið fari frá Reykjavík, væntanlega í •m : Úr einum sal Gullfoss. Gullfoss til Kanaríeyja í jan. og febr. Einnig til Montreal í tilefni heimssýningarinnar í Kanada byrjun janúar, til Lissabon, Casablanca, Las Palmas Mad- eira og síðan aftur til Lissabon þar sem skipsferðin endar og farþegar fara flug- leiðis til London og Reykja- víkiur, með tveggja til þriggja daga viðstöðu í London. Síðari ferðin er gert ráð fyrir að verði flugleiðis frá Reykjavík til Lissabon, síð- ustu dagana í janúar og þar fari fanþegarnir um borð í Gullfoss og haldi ferðinni síð- an áfram með skipinu, eftir tveggja til þriggja daga við- dvöl í Lissabon, til Casa- blanca, Las Palmas, Madeira, London og Reykjavíkur. Báðar verða ferðirnar með sama fyrirkomulagi, nema að því er viðkemur ferðinni milli Reykjavítour og Lissabon. Gera má ráð fyrir, að þetta fyririkomulag mælist vel fyrir. Viðstaða erlendis er áeetluð, í Lissabon 3 dagar, í Casa- blanca 1—2 dagar. í Las Palm- as 4 dagar, í Madeira 1—2 dagar og í London 2 dagar. í öllum þessum höfnum verða ferðir í landi fyrir farþegana, lengri eða skemmri eftir því sem aðstæður leyfa og óskað verður eftir, og mun íslenzk- ur fararstjóri aðstoða farþega við skipulagningu ferðanna. I>á er ráðgert að ýmislegt verði gert til stoemmtunar fyrir farfþegana um borð í skipinu, svo sem hljómlist og dans og fleira. Ennfremur verður læknir með í ferðinni, hárskeri o. fl. og aðstaða bætt til þess að farþegar geti þveg- ið flíkur og pressað föt sín. Farmiðaverð hefur ekki verið ákveðið ennþá, en reynt verður að gera ferðirnar sem ódýrastar svo flestir geti tek ið þátt í þeim, en ferðirnar verða að siálfsögðu bundnar því skilyrði, að nægileg þátt- taka fáist. Farþegar verða að eins fluttir á 1. og 2. farrými með jöfnum aðgangi að söl- um 1. farrýmis fyrir alla far- þegana, einnig þá sem eru á 2. farrými. Má því segja að aðeins eitt farrými verði á skipinu og munu þægindi her bergja ráða verðmun far- miða. Nánari upplýsingar um þessar ferðir verða veittar í farþegadeild Eimskipafélags- ins næstu daga og jafnframt verða þar skrifaðar niður pantanir þeirra, sem tryggja vilja sér farmiða með ferðun- um og mun afgreiðsla far- miða siðar fara eftir þeirri röð, sem farmiðapantanir ber ast. Um íerðina til Montreal, sem áður er minnst á, er á þessu stigi máls ekki mikið hægt að segja um, enda er undirbúningur að þeirri ferð skammt á veg kominn. Þó er gert ráð fyrir að hún verði far in með vorinu, sennilega um miðjan apríl og má telja víst að hún verði lengri en hinar tvær ferðirnar, sem sagt hef ur verið frá. Verður nánar skýrt frá þessari ferð síðar. Þá niá geta þess, að vetrar- ferðir „GuJlfoss", „Sumar- aukaferðirnar", sem svo eru nefndar, verða roeð sama fyr irkomulagi í vetur og undan- farna vetur, þegar undan eru skilin þau frávik, sem að sjálf sögðu verða vegna framan- greindra ferða 5 janúar og apríl Þegar eru tvær fyrstu vetranferðirnar fullbókaðar fanþegum, en nokkrum far- þegarúmum hefur ekki enn- þá verið ráðstafað í ferðinni frá Reykjavik, 3. desember. Úr þe.irri ferð kemur skipið til Reykjavíkur 19. desember. Að sinni veiður ekki sagt um áætlun skipsins eftir nk. ára- mót en bráðlega verður gerð áætlun þess fyrir 1967 og mun þá verða blrt nánar um það síðar Mercedes Benz diezelvél 145 hö. Eigum fyrirliggjandi 1 Mercedes Benz 145 hö. Selst compl. með gearkassa, startara, dínamó og olíukerfi. — Verð kr. 63.000,00. Ennfremur 1 stk. Mercedes Benz 180 D. 43 hö. Vélin er nýupptekin. — Verð kr. 30.000,00. Stilliverkstæðið DIESILL Vesturgötu 2 — (Tryggvagötumegin), Sími 20-9-40. í fjarveru minni, 8. ágúst — 8. október gegnir Þorgeir Gestsson læknir Háteigsvegi 1, sjúkrasamlagsstörfum mínum. Stofutími hans er kl. 1—3 e.h. Símaviðtalstími kl. 9—10 f.h. (í síma 37207). Vitjanabeiðnir í sama sima til kl. 1. KRISTJANA P. HELGADÓTTIR, læknir. __*....- ...... ...... QsTERTnG Peningaskápar Fró Arbæjnrskóln Innritun barna fer fram í skólanum þriðjudaginn 9. og miðvikudaginn 10. ágúst nk., kl. 13—17 báða dagana. Skal þá gera grein fyrir þeim börnum, sem búsett verða í skólahverfinu á komandi vetri. Sími skólans er 60051. Fræðsluskrifslofa Reykjavíkur. Ingólfsstræti 1 A. Simi 18370. tkiðjón Styrkársson hæstaréttarlögmaður Austurstræti 6. — Sími 18354. holreí/ BIRGIK ISL. GUNMARSSON Málflutningsskrifstofa Lækjargötu 6 B. — Q. hæ8 Schannongs minnisvarðar Biðjið um ókeypis verðskrá 0. Farimagsgade 42 K0benhavn 0. Gluggahreinsun Viljum ráða menn til hreingerninga á gluggum Bændahallarinnar. — Upplýsingar hjá hótelstjóra Hótel Sögu. Sími 20600.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.