Morgunblaðið - 07.08.1966, Page 2
2
MORGU N BLAÐIÐ
Sunmidagur 7. ágúst 196^
Dr. Wcrncr Blunck, ræðismaður íslands í Hannovcr við málverk
eftir Jó hann Bricm.
Norrœn listasýn-
ing í Hannover
MBL. FFKK nýlega fréttabréf
frá konsúl ísiands í Hannover,
Dr. Werner Blunck, þar sem
hann segir frá listasýningu, sem
haldin var í Hannover, dagana
26. júní til 31. ]úli.
Á sýnir.gunni voru verk lista-
manna frá Nyrðurlöndunum 5,
en hún var haldín í Rambergsal
Listahallarinnar í Hannover.
Við opnun sýnmgarinnar, sem
fram fór við hátíðiega athöfn,
voru m.a. viðstödd sendiherra ís
lands í V-I»ýzkalandi, Magnús
V. Magnússon, og kona hans.
Kvöldið áður en sýningin var
opnuð höfðu konsúlar Norður-
landanna fimm móttöku í sýn-
ingarsalnum. t>ar hélt formaður
listasambandsins í Hannover,
Neuffer, ræðu. þar sem hann
bauð gesti sýningarinnar vel-
komna. Við það tækifæri lýsti
hann því yfir, að þessi sýning
myndi sú fyrsta, sem efnt hefur
verið til í V-Þýzkalandi um langt
skeið, þar sem málverk og högg-
myndir listamanna allra Norður
landanna væru sýnd.
Dagblöð í Hannover hafa ritað
mikið um sýnir.guna, og fara
flest þeirra lofsanúegum orðum
um listamennina og verk þeirra.
Konur fleiri en karlar
í stóru hœjunum
Karlmenn þó fleiri á óllu landinu
en Reykjavík virðast þó vera
aðeins fleiri karlmenn, nema á
Akureyri, sem er eins og Reykja
vík.
ÍSLENDINGAR voru 193.758 á
öllu landinu í desember 1965
samkvæmt endanlegum tölum
Hagstofu íslands. Karlar voru
heldur fleiri eða 97.944 og konur
Tveir þýðingar-
miklir leikir í
Laugordol
UM helgina verða leiknir tveir
þýðingarmiklir leikir í 1. deild
knáttspyrnumanna. í dag leika
á Laugardalsvelli Valur og Akur
nesingar. Leikurinn verður kl. 8
í kvöld. Valsmenn gætú með
sigri unnið sér það forskot sem
áður myndi veitast erfitt að
vinna upp, en Akurnesingar
geta með sigri ennþá haldið opn
um sigurmöguleika í mótinu, en
með tapi myndi hann dvína
mjög.
Annað kvöld leika KR og
Þróttur en sá leikur er hálm-
strá Þróttar til að forðast fallið
í 2. deild. Með sigri geta þeir
náð KR að stigum — og átt von,
en sennilega munu íslandsmeist
arar KR vilja koma sér úr fail-
hættunni.
Kínverjor flýja
Indónesíu
Djakarta, 6. ágúst, NTB..
KÍNVERJAR hverfa nú sem óð-
ast frá Indónesíu og snúa aftur
heim til Kína. Hópur 150 manna
hélt frá Djakarta i dag með
ítölsku farþegaskipi, flestir
þeirra ungir stúdentar sem hætt
hafa námi eftir lokun skóla í
dreifbýlið. í öðrum kaupstöðum Indónesíu í fyrra mánuðL
Aðalfundur Stéttarsam-
bands bænda settur
á morgun
95.814. Af þessum mannfjölda
voru 78.399 í Reykjavík og þar
eru karlmenn í minnihluta eða
38.288 talsins á móti 40.111 kon
um. Þetta kemur heim og saman
við ummæli Áka Péturssonar á
Hagstofunni, í erindi um mann-
fjölda á íslandi, er hann flutti
á búfræðiþinginu. Sagði hann
m.a. að konurnar hefðu verið
brautryðjendur í að skapa þétt-
býli, verið á undan í að flýja
Á MÁNUDAG kl. 10 árdegis
mun aðalfundur Stéttarsam-
bands bænda settur í Bænda-
höllinni og mun fundurinn
standa til þriðjudagskvölds, að
því er Kristján Karlsson, erind-
reki tjáði MbL í gær.
Kristján kvað fundinn fjalla
um venjuleg aðalfundarstörf
auk þess, sem mikið yrði rætt
um afkomu og horfur bænda
vegna tekjurýrnunar þeirra í
sambandi við lækkun útsölu-
verðs á mjólk. Kristján sagði, að
útflutningsuppbæturnar nægðu
ekki til að bæta upp allan út-
flutning landbúnaðarvara á
þessu ári, þar eð þær væru tak-
markaðar við 10% af heildar-
framleiðslu miðað við það verð,
sem bændur fá. Þessi 10% væru
lögð fram af ríkinu til þess, að
nóg yrði framleitt.
Agnar Kofoed og flugmálin
— 30 ára afmæli
Ráðning hans sem flugmálaráðunauts
markaði upphaf óslitinna afskipta
stjórnarvalda af flugmálum
í dag eru liðin 30 ár síðan
Agnar Kofoed Hansen varð
flugmálaráðunautur íslenzkra
stjórnvalda. Var það í raun-
inni upphaf óslitinna afskipta
stjórnarvalda okkar af flug-
málum.
Haraldur Guðmundsson var
þá ráðherra samgöngumála
— og í rauninni fyrsti íslenzki
flugmálaráðherrann, eins og
Agnar Kofoed Hansen komst
að orði, er hann minntist af-
mælisins lítillega s.l. föstu-
dag. Heimsóttu hann þá flug-
málaráðherra , Ingólfur Jóns-
son, svo og Haraldur Guð-
1 mundsson. í þessu tilefni bauð
flugmálastjóri einnig Axel
Kristjánssyni, sem var fyrsti
skoðunarmaður flugvéla á ís-
landi, Sigurði Guðmundssyni,
ritstjóra Þjóðviljans, og Pétri
Ólafssyni, fyrrum blaðamanni
við Morgunblaðið.
„Hið góða samband mitt við
blöðin var ákaflega mikilvægt
á þeim árum, þegar verið var
að ryðja fluginu braut — og
þeir Pétur og Sigurður voru
alltaf jafn hjálplegir. Þriðji
maðurinn í hópi blaðamanna,
i sem ég minnist einkum frá
þessum árum, var Vilhjálmur
S. Vilhjálmsson".
Agnar Kofoed Hansen hef-
ur manna lengst starfað að
íslenzkum flugmálum og jafn
an gegnt forystuhlutverkL
Fyrsta verkefni hans sem
flugmálaráðunauts var að
kanna lendingarskilyrði á
ýmsum stöðum á landinu, því
þá þegar höfðu menn gert sér
grem fyrir því, að landflug-
vélin yrði okkur hagkvæmari
en sjóflugvélin, þótt hingað
væru keyptar sjóflugvélar í
byrjun — af eðlilegum ástæð-
um.
Eftir stríðslokin tók Agnar
við embætti flugmálastjóra,
en um þær mundir hófst upp-
bygging íslenzkra flugmála
fyrir alvöru. „En það var
mikilvægt fyrir okkur að geta
byrjað fyrir stríð“, sagði
Agnar — „því ef skilningur-
inn á flugmálunum hefði ekki
vaknað fyrr en með stríðinu,
hefði þróun þessara mála orð
ið mun hægari — og byrjun-
in eftir stríðið prðið erfiðari“.
Þótt mikið hafi verið unn-
ið að margs - konar fram-
kvæmdum ^ sviði flugmála
undanfarin ár „þá er flug-
vallagerð okkar í rauninni að
hefjast um þessar mundir“,
sagði flugmálastjóri. Sjálfir
gerðum við ekki tvo aðalflug-
vellina hér sunnanlands — og
nú fyrst er verið að byrja á
malbikun flugvalla úti á landi.
Hins vegar hefur mikilvægum
áföngum verið náð í þróun
flugöryggisþjónustunnar — og
mega „gömlu“ flugmennirnir
.muna tímana tvenna. f upp-
hafi flugsins voru hér engin
flugleiðsögutæki og urðu þeir
þá að bjarga sér á áttavitan-
um einum.
Ingólfur Jónsson, flugmála
ráðherra, sagði nokkur orð við
þetta tækifæri — og byrjaði
á því að varpa þeirri spurn-
ingu til Haralds Guðmunds-
sonar, hvort hann væri ekki
ánægður með ráðningu Agn-
ars fyrir 30 árum. Síðan sagði
Ingólfur, að sennilega væru
flugmál okkar í allt öðru á-
standi, ef ekki hefði notið við
brennandi hugsjónar og dugn
aðar flugmálastjóra. Agnar
hefði farið margar djarfar
ferðir á flugmannsárum sín-
um, en hann hefði líka oft
þurft að leggja fram alla sína
krafta í erfiðu starfi. „í okk-
ar fámenna landi hlýtur allt-
af að verða fjárskortur, því
við viljum byggja upp á sem
flestum sviðum — og flýta
öllu. Ef litið er yfir farinn
veg getum við hins vegar
fagnað því, sem áúnnizt hef-
ur. Erlendir gestir eru t.d.
undrandi yfir því hve langt
við erum komin í flugmálum.
Það væri rangt að segja, að
hægt væri að þakka þetta
einum manni. En enginn einn
maður hefur unnið jafnmikið
fyrir íslenzk flugmál og Agn-
ar Kofoed Hansen“, sagði
flugmálaráðherra.
Hann bætti þvi við, að
vegna persónulegra sambanda
og vináttu við erlenda framá-
menn hefði flugmálastjóra tek
izt að fá hingað útbúnað í
flugöryggiskerfið — útbúnað,
sem væri tugmilljón króna
virði.
Að lokum þakkaði Ingólfur
Jónsson flugmálastjóranum á-
nægjulegt samstarf. Sagði
hann, að Agnar Kofœd Han-
sen gæti verið ánægður með
sitt mikla starf, þótt stund-
um hefði blásið gegn honum
í viðræðum við fjármálastjóm
ina. Agnar væri skapmaður
mikill og hann hefði ekki
alltaf leynt því, að hann hefði
oft verið ánægður með þær
fjárveitingar, sem flugmálin
hafðu fengið. Og mál sitt
hefði hann alltaf rökstutt vel.
— En í mörg horn væri að
líta og vonandi yrði kaflinn
í flugmálasögu okkar jafn-
ánægjulegur og fyrstu 30 ár-
in.
Haraldur Guðmundsson,
fyrrv. ráðherra, sagði því næst
nokkur orð — og lagði áherzlu
á það, að Agnar Kofoed Han-
sen hefði verið í fararbroddi
í uppbyggingu flugmálanna.
Þegar hann hefði verið ráð-
inn flugmálaráðunautur 21
árs að aldrei hefðu verkefnin
verið lítil — og engin flug-
vél til í landinu. En flugmála
stjóri hefði búið yfir þeim
góða eiginleika að hafa vaxið
með hverju verkefni, það
væri hans einkenni. Haraldur
sagði að sig grunaði, að enn
stærri verkefni biðu fram-
undan, m.a. að tryggja rétt-
mætan skerf okkar í alþjóð-
legum flugsamgöngum. Það
yrði e.t.v. erfiðasta skert okk-
ar í alþjóðlegum flugsam-
göngum. Það yrði e.t.v. erfið-
asta verkefnið. „Við eigum
ekki aðra ósk betri, en að á-
vöxturinn verði jafnmikill og !
góður og hann hefur orðið , i
fram til þessa“, sagði Harald-
ur Guðmundsson. i
Agnar Kofoed Hansen þakk
aði hlý orð og vinsamleg um- i
mæli, sagðist einnig vilja 7
þakka hinum fjölmörgu, sem I
ekki væru viðstaddir — en
unnið hefðu að flugmálum af
mikilli elju og bjartsýni. Hann
þakka^i gott samstarf við
blöðin og sagðist vona, að
skilningur þeirra á þörfum
og þýðingu flugmálanna yrði
ekki minni næstu 30 árin en
hann hefði verið — og hann 1
sagðist trúa því, að íslenzkt
flug ætti mikla framtíð. Og á 1
meðan við ættum forráða- i
menn, sem skildu, að flugið ,
væri það, sem koma skyldi, .
þyrftum við ekki að hafa á-
iiyggjur af framtíðinni.