Morgunblaðið - 07.08.1966, Qupperneq 19
Sunnudagur 7. ágúst 196t
MORGU N BLAÐIÐ
19
íbúur Btmnahlíðnr
Veit ekki einhver ykkar um spunarokk og snældu-
stokk, sem farið var með húsavillt í götunni, —
fyrir mörgum árum.
Vinsamlegast símið í 1-47-73.
FÉLAGSLÍF
Víkingar, knattspyrnudeild
2. og 3. flokkur.
Æfingatafla verður það sem
eftir er sumars sem hér segir:
3. fl. A, BogC.
Miánudaga kl. 7.
Miðvikudaga kl. 8.
Fimimtudaga kl. 7.
2. fl. A og B.
Mánudaga ktt. 8.30.
Fimmtudaga kl. 8.30.
Geymið töfluna.
Mætið stundvíslega.
Þjálfari.
SAMKOMUR
Samkomuhúsið Zion,
Óðinsgötu 6 A
Almenn samkoma á morgun
kl. 20.30. Allir velkomnir.
Heimatrúboðið.
Hjálpræðisherinn
Sunnudaginn kl. 1>1.00 helg-
unarsamkoma. Kafteinn A.
Bognöy talar. Ktt. 16.00 úti-
samkoma á Lækjartorgi. Kl.
20.30 fagnaðarsamkoma fyrir
kaftein Sölvi Aasoldsen. —
Brigader Henny E. Driveklepp
stjórnar samkomum dagsins.
Allir velkomnir.
FELAGSLIF
Vikudvöl í Kerlingarfjöllum
N æ s t a námskeið hefst
9. ágúst. Verð 3650 kr. fyrir
6 daga, 4100 kr. fyrir 7 daga.
Innifalið: ferðir, gisting, fæði,
skíðakennsla, leiðsögn í göngu
ferðum, kvöldvökur.
Uppl. hjá Þorvarði örnólfs-
syni, s. 10 4 70 og Ferðafélagi
íslands, s. 1 95 33.
Skíðaskólinn
í Kerlingarfjöllum.
BIFREIÐ/VSÖLUSÝIUING
SELJUM í DAG:
Rambler Classic, árg 1964.
NSU Prin* 1000, árg. 1965,
verð og greiðsliur samkomu-
lag.
Willys Station, árg. 1955—59.
Moskwitch, árg. 1957—64.
Austin Gipsy, diesel, 1963.
Góður bíll.
Chevrolet, árg 1955—64,-
Pengó, árg. 1965. Ýmis skipti
koma til greina.
Volkswagen, árg. 1956—66.
Volvo 544, árg. 1963.
Volvo Station, árg 1963—64.
Taunus M 17, árg. 1965.
Taunus M 12, árg. 1963.
Ofantaldir bílar verða til sýn-
is og sölu á staðnum ásamt
tuga bíla af öllum gerðum og
árgöngum. — Gjörið svo vel
og skoðið bílana.
Bifreiðasalan
Borgartúni 1.
Símar 18085 og 19615.
— Listfengu
ÍFramhald af bls. 10
breið á einum stað í reisn
sinni og öræfatign. En mesti
kjörgripurinn hér inni er án
efa skrín eitt forkunnarfag-
urt, sem Kristján hefir gert og
skreytt allt myndum úr nor-
rænni goðafræði. Þar má sjá
óðinn Valhallarbónda hleypa
Sleipni hinum áttfætta á
sprett og Ása-Þór láta tröll
og þursa kenna á hamrinum
Mjölni. Miðgarðsormur ligg-
ur illúðlegur eftir mæninum
endilöngum.
Þegar við göngum út úr
stofu Kristjáns, liggur leiðin
upp á loftið í gegnum geymslu
herbergi. Undir einum veggn-
xun þar rekum við augun í
Ikistu eina mikla og fornlega
úr sterklegum viði og stend-
ur stór lykill á borð við með-
alkirkjulykil í skránni, sem
læsir kistunni. Hér er geymd-
ur mjölmatur, sykur o.fl.
— Þetta er fangakista,
segir Sigurfljóð Sörensdóttir,
kona Sigurðar Halldórssonar,
og bætir við hlæjandi: —
Hún er nú ekki ætluð til að
geyma í fanga eða brotamenn
eins og ýmsir halda, sem
.. heyra orðið í fyrsta sinn, held
4 ur föng, matföng. Hún er öll
| úr heilum viðum. Kristján Eld
7 jám hefur sagt okkur, að
J hann viti til, að fjórar slíkar
I séu til í landinu, allar frá mið
i öldum, annars veit enginn,
| hve gamlar þær eru.
o — Þetta er nú enginn stofu
1 gripur, bætir Aðalgeir við, —
4 en þeir eru nú sagðir hafa
torf og grjót inni hjá sér i
nýju húsunum í Reykjavík,
og þá held ég að kistan sú
arna ætti að geta sómt sér
þar líka. — Bjarni heitinn
bróðir okkar smíðaði lykilinn
upp, en hann er alveg eins og
sá upphaflegi.
— Segðu mér, Aðalgeir,
hafið þið systkinin fengizt
lengi við listiðju ykkar?
— Við höfum fengizt við
þetta í áratugi eða siðan mað-
ur fór fyrst að geta eitthvað,
en við höfum bara ekki getað
sinnt þessu hin seinni ár eins
og við hefðum viljað fyrir
öðrum störfum.
— Hefir þú lært að mála,
eða ertu sjálfmenntaður?
— Ég hef nú ekki lært að
mála, enn ég vann við húsa-
málun hjá Hauki heitn-
um Stefánssyni á Akureyri
part úr vetri, og hann var
að segja mér ögn til. Þá komst
ég inn í viðarkolateikning-
una, hann hafði þetta efni að
vestan, var búinn að vera
nokkur ár á listaháskóla í
Chicago. Annars hef ég mest
þreifað mig áfram. Aðalat-
riðið er að fá augu og hend-
ur til að vinna saman.
— Ég hef séð að minnsta
kosti tvö orgel hér í húsinu,
svo að þið iðkið tónlistina líka
auk annarra lista.
— Já, það er mest Sigurð-
ur bróðir minn, sem spilar á
hljóðfæri, þ.e.a.s. orgel, Kristj
án spilar nokkuð líka. Bjarni
heitinn spilaði á fiðlu.
— Hefðirðu ekki viljað geta
gert listina að ævistarfi?
— Blessaður vertu, við höf-
um aldrei verið gefnir fyrir
búskap, þó að hann hafi orðið
lífsbjargarvegurinn. Þetta er
heldur ekki nokkur búskapvir
hjá manni, þetta 50 ær og 7
kýr og eitthvað svipað hjá
hinum.
— Hvað er margbýlt hérna?
— Það er þríbýli. Á ein-
um partinum búa Skúli Sig-
urðsson og Guðríður Sigur-
geirsdóttir, á öðrum Sigurður
bróðir og Sigurfljóð og svo
erum við, ég og systur mín-
ar, með þriðja búið. Heimils-
fólkið er alls 11 manns auk
tveggja aðkomubarna, sem
hér eru í sumar.
Það má vel vera, að þessi
systkini séu ekki gefin fyrir
búskap og hefðu heldur vilj-
að verja kröftum sinum að
öðrum viðfangsefnum, sem
veittu þeim meiri svölun. En
það sér ekki á. Öll umgengni
. utan húss og innan ber vitni
um hina mestu snyrtimennsku
og fágun. Myndarleg hús,
mikil ræktun, jarðvatnshitun,
heimilisrafmagn í 40 ár. Ein-
hvem tíma hefir verið tekið
til hendinni við annað en
pensil, nál og tálguhníf. En
er ekki saga íslenzkrar þjóð-
menningar einmitt ofin pátt-
um brauðstrits og menntun-
ar, listar og lifsbjargarvið-
leitni, skyldu og skemmtunar,
þar sem þessir tveir þættir
hafa orðið hvor öðrum og
menningu vorri til styrktar?
Það er stundum hollt a ðgera
fieira en gott þykir.
Er ekki líf og starf fólks
eins og systkinanna á Stóru-
Tjörnum fegursta listaverk-
ið?
Sv. P.
Hið iullkomna hjónaband
— gjöf lífslns til yðar
C. D. Indicator er hin sjálfsagða eign hverrar konu.
Hvort heldur* sem þér óskið eftir að eignast barn,
eða viljið fresta barneignum um sinn, er C. D.
Indicator jafn ómissandi fyrir yður. Aðeins það
fólk, sem lifir fullkomlega eðlilegu hjónalífi, — eins
og gert er ráð fyrir frá náttúrunnar hendi — veit
hvaða þýðingu það hefur. Engin óánægja, kvíði eða
áhyggjur í samlífi hjónabandsins, engar óróman-
tízkar varnaraðferðir, sem einnig, hvað marga á-
hrærir, eru skaðlegar fyrir heilsuna, þegar til
lengdar lætur. — Vinsamlega sendið eftirfarandi
afklippu — ásamt svarfrímerki (kr. 10,00) — og
vér sendum yður að kostnaðarlausu upplýsingar
vorar. — Ódýrt. — Auðvelt í notkun. —
íslenzkur leiðarvísir.
C. D. INDICATOR, Pósthólf 314, Reykjavík.
Sendið mér upplýsingar yðar um C. D. INDICATOR.
NAFN:
HEIMILI:
OPEL Reckord 1964
er til sölu. Bifreiðin er vel útlítandi og verður
sýnd við Háaleitisbraut 52, sunnudaginn 7. ágúst,
kl. 17—19 og mánudaginn 8. ágúst kl. 11—12 f.h.
Koupsýslumenn
Maður vanur enskum bréfaskriftum, meðferð inn-
flutnings- og útflutningsskjala o. þ. h. óskar eftir
atvinnu hálfan daginn. — Vinsamlegast leggið inn
bréf hjá afgr. Mbl. merkt: „Correspondent — 4601“.
N auðungaruppboð
Eftir kröfu Iðnaðarbanka íslands h.f fer fram nauð
ungaruppboð að Borgartúni 3, hér í borg, þriðjudag-
inn 16. ágúst 1966, kl. 2 síðdegis og verður þar
seldur þurrkari (Tullis) eign Borgarþvottahússins
h.f.
Greiðsla fari fram við hamarshögg.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
A A *
lltsala — Utsala — Utsala
*
Utsalan hefst á morgun
BARNAKJÓLAR
UNGLINGAKJÓLAR
BARNAPEYSUR
BARNANÁTTFÖT
UNGBARNAFATNAÐUR
UNDIRKJÓLAR, dömustærðir o. m. fl.
Mikil verðlækkun.
*
TTZE RZ X-lZrZTI ZT-
GRETTISGATA 32