Morgunblaðið - 07.08.1966, Síða 24
24
MORGUNBLAÐIB
Sunnuö.agur 7. ágúst 1966
FÁLKAFLUG
•••••••••••••
EFTIR DAPHNE DU MAURIER
Tónnm var hæðnislegur, en
augnatillitið, sem hún sendi hon
um, var uppörvandi. Húsmóðirin
var reiðubúin til að taka þátt í
nýju, táknrænu flugi. Ég hugs-
aði um svipleysið á andlitinu
á henni, þegar ég haíði gengið
með henni heim úr kirkjunni,
og samlíkingin var ekkert að
státa af fyrir mig sem þríðja
mann.
— Hvað sem öllu öðru iíður,
sagði ég, — þá töldu íbúarnir í
Ruffanó hann vera skrímsl og
hófu blóðuga uppreisn gegn hon-
um og hirð hans.
— Og eigum við að fá það að
horfa á á hátíðinni? spurði hún.
— Spyrjið ekki mig, heldur
Aldo, svaraði ég.
Hún gekk yfir að stólnum
hans með líkjörsglasið í hend-
inni, raulaði eitthvað í hálfum
hljóðum og það hvernig hún
laut yfir haim þar sem hann sat
í stólnum, fannst mér bera vott
um girnd. Aðeins nærvera mín,
afstýrði því, að hún snerti
hann.
— Jæja, sagði hún, — eigum
við þá að fá uppreisn og ef svo
er, hver á þá að stjórna henni?
—Það er auðvelt mál, sagði
hann. — Auðvitað V og H-stú-
dentarnir. Þeir eru hvort sem
er tilbúnir að gera uppreisn.
Hún lyfti augnabrúnum til
mín og setti glasið sitt á slag-
hörpuna. — Það yrði þá nýj-
ung, sagði hún. — Ég hélt að
Listadeildin ætti að einoka há-
tíðina, eins og hingað tiL
— Ekki að þessu sinni, sagði
hann. — Þar eru ekki nógu
margir til þess.
Hún tæmdi glasið sitt, eins
og ódáinsdrykk drottningarinn-
ar fyrir flugið, og settist svo á
stólinn við hljóðfærið. — Hvað
á ég að spila fyrir ykkur? spurði
hún. Spurningin var mér ætl-
uð og brosið sömuleiðis. En tónn
inn í röddinni, stelling hennar og
hendurnar, sem biðu tilbúar —
þetta allt var ætlað bróður mín-
um.
— Arábeskuna, sagði ég. —
Hún er kynlaus.
Hún hafði fylgt mér síðan i
gær, aðkomúmanninum, aðskota
dýrinu á mínu eigin heimili, um
kringdum af afturgöngum. Stíg
andin og fallandin og titrandi
tónamir höfðu vakið hjá mér
heimþrá. En nú var kvöld og
Aldo var í húsinu. Slaghörpu-
leikarinn, sem í gær hafði leik-
ið af eintómri kurteisi ,reyndi
nú að tæla bróður minn á þann
hátt, sem henni var ósjálfrátt
eiginlegur. Arabeskan, sem þús-
undir nemenda léku um allt
landið var nú orðin að ástar-
dansi, ginnandi og í blygðunar-
lausum. Mig furðaði á því, að
hún skyldi afhjúpa sig svona,
og ég sat uppréttur og horfði
upp í loftið. Þaðan sem hún sat
í skugga af lokinu á slaghörp-
unni, gat hún ekki séð manninr,
sem hún var að reyna að töfra.
Hann hafði tekið upp blýant og
var að krota í minnisgreinarnar,
sem ég hafði þýtt, rétt eins og
hann heyrði alls ekki tónlistina.
Debussy, Ravel og Chopin létu
hann algjörlega ósnortinn. Tón-
list hafði al-drei verið nein á-
stríða hjá Aldo. Ef frúin lék fyr-
ir hann, þá hafði það ekki meiri
áhrif á hann en götuumferðin
úti_ fyrir.
Ég gat illa þolað, að hún gerði
sér þessa fyrirhöfn fyrir ekki
neitt, svo að ég kvekti mér í
vindlingi og tók að ímynda mér,
að ég væri í hans sporum, og
þegar tónlistin þagnaði, skyldi
ég standa upp af stólnum, ganga
að baki henni og grípa höndum
um augu hennar og hún mundi
'horfa upp til mín. Og þessi
ímyndun færðist í aukana, eftir
því, sem hún lék hraðar. Það var
alveg óþolandi, að ég skyldi
sitja þarna, steinþegjandi og
hlusta á þennan boðskap hennar,
sem var alls ekki mér ætlaður,
því miður. Enda þótt Aldo hefði
engan áhuga á tónlist, efaðist
ég ekkert andartak um, að hanri
skildi boðskap hennar, og ég
óskaði 'honum ánægju og henni
fullnægingar, en að njóta þann
ig sambands iþeirra, var vægast
sagt vafasöm ánægja.
Kannski hefur hún skynjað,
hve illa mér leið, því að snögg-
lega skellti hún aftur lokinu og
stóð upp. — Jæja, sagði hún,
— er nú uppreisnin farin út um
þúfur? GetUm við nú öll slapp-
að af?
Hafi þetta átt að vera háð, þá
<§> I. DEILD
NJARÐVÍKURVÖLLUR:
í dag, sunnudag, 7. ágúst, kl. 4, leika
IBK - ÍBA
^ Dómari: Grétar Norðfjörð.
LAUGARDALSVÖLLUR:
í dag, sunnudag, 7. ágúst, kl. 8, leika
Yalur — ÍA
Dómari: Magnús Pétursson.
LAUGARDALSVÖLLUR:
Annað kvöld, mánudag, 8. ágúst, kl. 8, leika
Þróttur — KR
Dómari: Guðjón Finnbogason.
BIKARKEPPNIN
MELAVÖLLUR:
í dag, sunnudag, 7. ágúst, kl. 4, leika
Fram a - Breiöablik
Dómari: Halldór Hafliðason.
MÓTANEFND.
hafði það álíka lítil áhrif á bróð
ur minn og tónlistin 'hafði haft.
Hann leit á hana, fann, að hún
var hætt að leika og var að
tala við hann, svo að hann lagði
frá sér blöðin.
— Hvað er klukkan? Er mjög
framorðið? spurði hann.
— Klukkan er tíu, svaraði
hún.
— Mér fannst við vera rétt að
ljúka við að borða, sagði hann.
□-----------------□
□------------------□
Hann geispaði, teygði úr sér
og stakk blöðunum í vasann.
— Ég vona, sagði 'hún, að þú
sért búinn að ljúka við byrjun-
aratriðið — ef það þá er það,
sem þú hefur verið að melta með
þér allt kvöldið.
Hún bauð mér í glasið aftur,
en ég afþakkaði og tautaði eitt-
hvað um, að yrði að fara að
hypja mig heim í Mikjálsgötu.
Aldo brosti en hvort það var
að kurteisi minni, eða glósunni,
sem frúin hafði sent mér vissi
ég ekki.
— Byrjunaratriðið mitt, sagði
hann, — sem var nú annars
samið fyrir mörgum vikum, fer
fram utan leiksviðsins, eða ætti
að gera það, ef við viljum vera
hógværir.
— Eru það dunurnar af hófa-
takinu? spurði ég. — Jehu-atrið
ið?
— Nei, nei, sagði hann og
hleypti brúnum, — það kemur
ekki fyrr en í lokin. Fyrst verð-
um við að hafa það, sem er
spennandi.
— Og hvað áttu við með þvíf
spurði frúin.
— Fíflunin á konunni, eða
það sem þýzkarinn minn kallar
„saurgun á eiginkonu góðborg-
ara nokkurs".
Nú varð lengi þögn. Þessi til-
vitnun Aldos í minnisgreinarn-
ar, sem ég hafði skrifað fyrir
hann, kom á óheppilegri stundu.
Ég hljóp á fætur, með óþarflega
áberandi fararstjórabros, og
sagði frú Butali, að ég yrði að
vera kominn í vinnu í bókasafn
inu klukkan níu í fyrramálið.
Þetta var að mínu áliti eina ráð
ið til þess að rjúfa þessa þögn,
sem var orðin svo þvingandi, en
svo sá ég líka, að brottför mín
gæti einmitt átt vel við það,
sem nýbúið var að segja. „
— Látið þér ekki hann hr,
Fossi ofþjaka yður né sjálfara
sig, sagði frúin og rétti mér hönd
ina. — Og komið þér aftur, hve-
nær sem yður langar að hlusta
á tónlist. Ég þori vel að minna
yður á það, úr því sem komið
er, að þetta hús var einu sinni
arry =3taines
LINOLEUM
Parket gólfflísar
.__. Parket gólfdúkur
— Glæsilejpr litir
GRENSÁSVEG 22 24 (HORNI MIKLUBRAUTAR) SÍMAR 30280 8. 32262
PLAIN i _________„
chocolate whojemealD
'Zl&ítiMr.. 'j.Kiv w SnWV-K,
;mh>
Meredifh & Drew LtdLondon,
þekktustu kex bakarar
Bretlands síðan 1830.
M&D-kexið er óviðjafnanlegt að gæðum og verði.
CHocourt
T H I N S
'
Fjölbreyttast úrval.
|á,Gream Crackers ^te-kex), Family Favourites og Crown Assorted Creams (blandað kex), Royal Orange Creams, Bitter Lemon Creams, Jam
Creams og Coconut Creams (krem-kex), Fig Roli (fíkjukex). Rich Highland Shorties, Ginger Fingers (piparkökur), Granny's Cookies (síróps
kex), Garibaldi og Fruit Shortcake (kúrennukex), Cheese Specials (ostakex), Snapcrakers (saltkex), Bacon-Snacks, Bacon flavoured Snaps
og Chicken Snaps (cocktailkex), Plain Chocolate Wholemeal, Milk Chocolate Wholemeal, Chocolate Orange Thins, Milk Chocolate Elevenses og
Four Aces (súkkulaðikex).
SNIBJÖBPfiN hf
Heildsölubirgðir
Símar 13425 og 16475.