Morgunblaðið - 01.10.1966, Blaðsíða 8
8
MOItnUN QfAfMO
Laugardarrur t okt. 1966
■AHjWMWSJffiRÍ
wwMaawo-1-1-1 iiwiiM>»iwwwww>MB*r.^
Express — Express
Við bjóðum litla. létta handknúna
þvottavél frá Svisslandi.
EXPRESS vélin er öll úr ryðfríu stáli,
hún er gerð til að standa t.d. á vaskborði,
og tekur 1V2 kg af þvotti í einu.
Verð kr. 1785,-
Sendum í póstkröfu.
Búsáhöld
Kjörgarði — Laugavegi 59.
AUKIN ÞÆGINDI - AUKIN HIBÝLAPRÝÐI
ir&Clð\[r strauvélin
er hentug og hagkvæm heimilishjálp,
sem léttir af húsmóðurinnihi nu
ótrúlegasta erfiðL
Sími
11687
21240
Laugavegi
170-172
Jack P. Moore t.v. og Sveinn Sæmundsson, blaðafulltrúi Flus
félagsins, skoða líkan af nýju Flugfélagsþotunni.
Þjálfun þotu-
áhafna undirbúin
í GÆR voru bér staddir fimm
fulltrúar Boeing-verksmiðjanna
og ræddu þeir við forráðamenn
Flugféiags fslands um fyrirhug-
aða þjálfun áhafna og annars
starfsfólks vegna kaupa félags-
ins á Boeing-727 þotunni, sem
hingað kemur næsta vor. Átti
Mbl. stutt samtal við einn gest-
anna, Jack P. Moore, en hann
stjórnar skóla þeim, sem annist
þjálfun starfsliðs þeirra, sem
þotur kaupa af Boeing-verksmiðj
unum. Skólinn var stofnaður
árið 1956 og hafa yfir tuttugu
þúsund manns hlotið kennslu og
þjálfun þar fram til þessa, eða
1,5 milljón kennslustunda. Sagði
Mr. Moore, að í skóianum væii
að jafnaði fólk frá 12-16 flug-
félögum og öðrum eigendum
þota — og væri þetta fólk alls
staðar að úr heiminum.
Nokkrir íslendingar hafa þeg-
ar farið til Boeing-verksmiðj-
anna, en það verður ekki fyrr en
eftir áramót, að þjálfun starfs-
liðsins hefst fyrir alvöru. Þá
fara sex áhafnir vestur og verða
þar i sjö vikur. Kennslan er að
meðaltali 8-10 stundir á dag, en
nemendur verða einnig að leggja
mikla vinnu í verkefni, eða lest-
ur, á kvöldin. Flugmennirnir
munu fljúga 40 stundir í þotu á
þessu tímabili, helminginn sem
flugstjórar, annars aðstoðarflug-
menn. Bóklega námið mun verða
stærri hlutinn.
Vélamenn, flugfreyjur, flug-
virkjar svo og starfsmenn, sem
sjá um viðhald hinna ýmsu
tækja, fara ennfremur vestur —
einnig þeir, sem sjá um vara-
hlutalager og yfirleitt fulltrúar
allra þeirra starfsgreina, sem
koma við sögu í sambandi við
rekstur þotunnar.
Mr. Moore sagði ennfremur,
að nú hefðu yfir þrjú hundruð
þotur af gerðinni Boeing 727
verið framleiddar og pantanir
lægju fyrir á nær öðru eins.
Verksmiðjurnar hefðu selt eða
gert sölusamninga um samtals
536 þotur þessarar gerðar.
Boeing 727 á nú að baki átta
milljónir flugstunda í farþega-
flugi og hefur flutt um 35
milljónir farþega. Forráðamenn
flugfélaga sem flugmenn ljúka
upp einum munni um það, að
Boeing 727 sé framúrskarandi í
alla staði, enda hafa aðrar þotur
ekki verið seldar í jafnmiklum
mæli.
Þing BSRB he!st
n.k. sunnudag
24. ÞING Bandaiags starfs-
manna ríkis og bæja verður
sett í Súlnasalnum á Hótel Sögu
n.k. sunnudag, 2. október kl.
1.30 e.h.
Þingið munu sitja 123 kjörn-
ir fulltrúar frá 27 bandalagsfé-
lögum og auk þess stjórn, trún-
aðarmenn o§ gestir.
Aðalmálin sem fyrir þingi
þessu liggja eru launa- og kjara
mál og endurskoðun laga um
kjarasamninga o»*.aberra starfs-
manna. Einnig mun verða fjall-
að um skipulagsmál samtak-
anna svo og ýmis önnur hags-
munamál opinberra starfsmanna.
Á sunnudag mun fara fram
þingsetning, afgreiðsla kjör-
bréfa og kosning starfsmanna og
nefnda. Þá mun formaður B.S.
R.B. Kristján Thorlacius flytja
skýrslu stjórnarinnar. Þing-
fundir halda síðan áfram á sama
stað á mánudag og er áformað,
að þinginu ljúki á miðvikudag.
Viðskiptasamn-
in«ur milli Is-
lands og Póllands
Nýlega var undirritaður í War
szawa greiðslu og viðskiptasamn
ingur milli Islands og Póliands
Gildistimi samnings þessa er frá
1. janúar 1967 til 31. desember
1969.
Frá lokum síðasta stríðs hafa
viðskipti landanna byggzt á jafn
keypissamningum, en með hin-
um nýja samningi er horfið að
marghliða greiðslugrundvelli og
fara viðskipti landanna hér eftir
fram í frjálsum skiptanlegum
gjaldeyri. Samningnum fylgja þó
árlegir vörulistar og eru þar m.
a. sérstakir kvótar fyrir frysta
og saltaða síld.
Samtímis samningagerð þess-
ari var gengið frá bankatækni-
legum atriðum, svo sem upp-
gjöri á greiðslu clearingreikn-
inga o.fl. Ennfremur var undir-
rituð bókun um viðskipti land-
anna á síðasta ársfjórðungi 1966
og sérstök bókun um viðskipti
fyrir árið 1967.
Hjörvaröur Árnason
flytur hér ræðu
Hann er framkvæmdastjóri Guggenheim-
safnsins í New York — Hótíðahöld
á degi Leifs heppna 9. október
BÓXASAFNIÐ
FRÁ og með 1. október lengist
útlánstími Borgarbókasafnsins
og útibúa þess. Verður útlánið
í aðalsafninu hér eftir opið frá
kl. 9 á morgnana til kl. 22, en
hádegistíminn kl. 12-13 dregst
frá. Á laugardögum verður út-
lánið opið frá kl. 9-19 og á
sunnudögum frá kl. 14-19. Er
þetta mjög aukinn útlánstími,
þar eð útlánið var ekki opnað
áður fyrr en kl. 14.
Lestrarsalurinn verður opinn
á sama tíma og útlánið.
Þá verður útibúið að Sól-
heimum 27 hér eftir opið frá kl.
14 í stað kl. 16 áður, og verður
barnadeildinni lokað kl. 19, en
fullorðinsdeildinni kl. 21.
Hin útibúin, að Hólmgarði 34
og Hofsvallagötu 16 verður hér
eftir opnuð kl. 16 í stað 17 áður
og lokað kl. 19. Þó verður full-
orðinsdeildin að Hólmgarði 34
opin á mánudögum til kl. 21,
eins og verið hefur.
Útibúin eru lokuð á laugar-
dögum og sunnudögum.
fslenzk-ameríska félagið mun
í ár Iikt og undanfarin ár minn-
ast dags Leifs Eiríkss. heppna,
sem er sunnudagurinn 9. okt.
Þann dag kl. 2 e. h. fer fmm
athöfn við' Leifsstyttuna á Skóla
vörðuholti. Þar munu flytja á-
vörp þeir Emil Jónsson, utan-
ríkisráðherra og James K. Pen-
field, sendiherra Bandaríkjanna
á íslandi. Lúðrasveit mun leika
og Lögreglukórinn syngja.
Að kvöldi sama dags verður
árshátíð fslenzk-ameríska fél-
agsins haldinn að Hótel Borg.
Ræðumaður kvöldsins verður
Vestur-fslendingurinn Hjörvarð-
ur H. Árnason. Hjörvarður er
varaforseti hinnar heimskunnu
stofnunnar Salomon R. Guggen-
heim Foundation í New York
og framkvæmdarstjóri Guggen-
heim listasafnsins.
Hjörvarður H. Árnason dvaldi
hér á landi árin 1942—1944 sem
íulltrúi upplýsingardeildar Band
aríkjahers, og á hér marga kunn
ingja síðan. 1947—1961 var hann
forseti listardeildar Minnesota-
háskóla í Minneapolis og yfir-
maður Walker Art Gallery í
Hjörvar H. Árnason.
sömu borg. Eftir Hjörvarð liggja
fjömargar bækur, tímarita- «g
blaðagreinar um listir og lista-
menn. Er ekki að efa, að marga
mu fýsa að hlýða á ræðu þessa
merka Vestur-íslendings.
(Frá fslenzk-ameríska félaginu)