Morgunblaðið - 21.10.1966, Síða 3
X' oa lUUctfeciA
X. UlVO.
kJ \J\J
Heildarlánveitingar til
námsmanna aukast um 48%
skv. frv. rikisstjórnarinnar — Lán til stúdenta við HÍ
aukast um 63°/o
Axel Xhorstéinson.
fjárlagafrv. fyrir árið 1967
;r framlag til Lánasjóðs stú-
lenta 21,6 milljónir og er
fert ráð fyrir með því fram-
agi, eigin fé sjóðsins og lán-
:öku að alls verði á næsta ári
/eitt í lán og styrki 29,8 millj
ínir kr.- sem er 48% aukning
frá því sem nú er. Þessi mikla
aukning á námslánum og
Tvær bækur eftir Axel Thorsteinson:
Horft inn í hreint
hjarta - og Rökkur
Bókaútgáfan Rokkur hefur nú og skiptist efnið í flokkana Ljóð,
Bent á markaðinn tvær bækur
eftir Axel Xhorsteinsson, „Horft
inn í hreint hjarta og aðrar sög
ur frá tíma fyrri heimsstyrjald-
ar“ og „Rökkur, ljóð, sögur og
greinir".
Fyrri bókin er heildarútgáfa á
endurminningum höfundar úr
fyrri heimsstyrjöldinni, en þá
barðist hann með liði banda-
manna á vesturvígstöðvunum.
Sögurnar eru 21 talsins og nefn
ist bókin eftir- hinni lengstu.
Jíokkur hluti hennar hefur birzt
áður en „sérstakt atvik varð þess
valdandi", segir höfundur í eftir
mála, „að ég hélt ekki áfram
með samningu hennar, en þeir,
sem sagan fjallar um , gleymd
ust mér ekki og títt kom fram
í hugann minningin um kveðju-
stundina, sem frá er sagt í niður
lagi sögunnar. Og svo vaknaði
allt í einu löngunin til þess að
ljúka við hana . . . “.
„Horft inn í hreint hjarta“ er
20 arkir að stærð, prentug í
prentsmiðj unni Leiftri.
„Rökkur" er endurprentun
(aukin og breytt) á 1. bincji sam
nefnds tímarits, er Axel Thor-
steinson gaf út í Winnipeg árið
1022. Kennir þar margra grasa
Snorri P. B.
Arnar heiðraður
Ný’lega hefur Júliana Hollands
drottning sæmt Snorra P. B.
Arnar rjddarakrossi Oranje Naas
©u orðunnar af 1. gráðu fyrir 40
óra starf hans sem umboðsmaður
Philips á íslandi. Orðuveitingin
fór fram í Eindhoven í septem-
ber.
Erindi, Frumsamdar sögur, Þýdd
ar sögur og Greinir. Verði bók-
inni vel tekið, hyggst höfundur
síðar gefa út í einni bók Rökkur
H.—VI. sem út kom í Winnipeg
og Reykjavík 1923—1952.
„Rökkur" er 6 arkir í Eimreið-
arbroti prentað í Prentsmiðjunni
Odda.
Meðal efnis í Rökkri er erindið
„Silfurhærur" um föður höfund-
ar, Steingrím Thorsteinson. Þegar
höfundur kom heim til íslands
frá Kanada 1923, var hann með
leifar upplagsins af 1. bindi
Rökkurs (270 eintök). Er það
því nú í fárra manna höndum,
og hafa margir, sem síðar tóku
tryggð við tímaritið, óskað eftir
endurprentun þess.
námsstyrkjum byggist á því
að frv. ríkisstjórnarinnar um
námslán og námsstyrki, sem
nú liggur fyrir Alþingi nái
fram að ganga. Ennfremur er
ætlunin að veittir verði á
næsta ári 20 styrkir að upp-
hæð 50 þús. krónur hver, til
þeirra sem hyggjast leggja
stund á framhaldsnám að há-
skólanámi loknu.
Á þessu ári eru 7,4 milljónir
veittar í , námslán til stúdenta
við Háskóla íslands, 10,1 millj-
ón til stúdenta erlendis og náms
styrkir að upphæð 2,6 millj. eða
samtals 20,1 milljón.
Skv. því frv. sem nú liggur
fyrir Alþingi munu lán til stú-
denta vfð Háskóla íslands nema
12,1 milljón og aukast um 63%,
lán til stúdenta erlendis munu
nema 3,5 milljónum og hækka
um 35%.
Á bls. 8 í dag er skýrt frá um-
ræðum á Alþingi um frv. ríkis-
stjórnarinnar um námslán og
námsstyrki.
Björg Andrésdótt-
ir 1 Þúfum látin
Frú Björg Andrésdóttir hús-
freyja á Þúfum í Reykjarfjarðar
hreppi varð bráðkvödd að heim
ili sínu s. 1. miðvikudagskvöld.
Hún var sem kunnugt er eigin-
kona Páls Pálssonar hreppsstjóra
í Þúfurn. Frú Björg var hin merk
dsta kona, ínikil húsmóðir og
mannkostamanneskja. Hún var
rúmlega sjötug að aldri er hún
lézt.
í GÆR skömmu eftir hádegi valt
bifreið á móts við Kárastaði í
Þingvallasveit. Bifreiðastjórinn
var undir áhrifum áfengis.
Hann grýtti hús
unnustu sinnar
í FYRRINÓTT kastaði drukkinn
maður grjóti í glugga húss við
Hrísateig. Lögreglan kom á stað
inn og handtók manninn, sem
var fluttur í fangageymsluna í
Síðumúla.
Maðurinn hafði ætlað að hitta
að máli stúlku, er hann var heit-
bundinn, en þegar hún vísaði
| honum á dyr, varð hann afbrýði
samur og tók að kasta steinum
í glugga á herbergi móður henn
ar og systur, en þeim kenndi
hann um, hversu stutt í spuna
stúlkan hefði verið við sig.
Maðurinn hafði það eitt upp
úr framhleypni sinni að fá gist-
ingu í Síðumúla eins og að ofan-
greinir.
Veturliði með málverk sitt „Lágnætti".
Sýning Veturliða í
Listamannaskálanum
MÁLVERKASÝNING Vetur-
liða Gunnarssonar í Lista-
mannaskálanum hefur nú
staðið yfir í 6 daga og 11
verk hafa selzt. Á sýningunni
eru 50 olíumálverk frá 1948
fram til þessa árs, flest þeirra
úr flæðarmálinu, og fjórar
frá Bolungarvik. Sýningin
stendur yfir fram til næsta
sunnudags, og verður ekki
framlengt, að sögn Vestur-
liða.
Listamaðurinn sýnir jafn-
framt 16 málverk í Den Frie
í Kaupmannahöfn og 12 í
Kunstforeningen í Osló. Eru
verkin á sýningum þessum öll
ný af nálinni.
í stuttu spjalli við frétta-
mann Mbl. sagði Veturliði, að
portúgalskur skipaeigandi,
sem sá verk hans í Kaup-
mannahöfn í sumar, hefði
boðið honum afnot af húsi
sínu í bænum Espanza í Portú
gal. Á Veturliði að skreyta
veggi í matsal hússins með
fantasíum um hafið. Hyggst
Veturliði halda utan í nóvem-
ber, en ekki er afráðið hversu
lengi listamaðurinn dveldst í
landi Salazars.
»Ég er alltaf að bíða eftir
samskonar verkefnum á ís-
landi,“ sagði listamaðurinn.
„íslenzkir listamenn eiga skil
yrðislaust, að fá að skreyta
veggi nýrra stórbygginga,
sem nú rísa hvarvetna í borg
inni, og einnig sali skipanna,
sem keypt eru til landsins. í
Noregi og Danmörku er lög-
boðið, að listamenn fái að
skreyta vissan hluta nýrra
bygginga. Við bíðum allir eft-
ir samskonar lögum á ís-
landi“.
Veturliði sagði ennfremur:
„Ég hef um árabil safnað
islenzkum steinum, einmitt í
því skyni að nota þá við
veggskreytingar hérlendis. Ég
hef þegar komið mér upp
góðu safni íslenzkra steina,
en fæ ekkert tækifæri til að
nota þá á veggnum, sem ég
er að bíða eftir að fá að
skreyta".
Eins og fyrr er getið verður
sýningu Veturliða ekki fram-
lengt. Hann gat þess í viðtal-
inu, að gömlu myndirnar
sínar færu ekki framar á sýn-
ingu, þannig að hér er síð-
asta tækifærið fyrir íslenzka
listunnendur að kynnast
eldri verkum listamannsins.
SMSTEiNAR
Hiríing
Einn af þingmönnum Fram-
sóknarflokksins, Þórarinn Þórar-
insson varð fyrir rækilegri hirt-
ingu af hálfu viðskiptamálaráð-
herra á þingfundi síðastliðinn
miðvikudag i umræðum um lána
mál atvinnuveganna og spari-
fjárbindingu Seðlabankans. Að
umræðunum loknum stóð ekki
steinn yfir steini í málflutningi
Framsóknarþingmannsins, og
var hann glöggt dæmi um það
ábyrgðarleysi og virðingarlcysi
fyrir staðreyndum, sem einkenn
ir allan málflutning stjórnarand-
stæðinga, og þá ekki síður Fram-
sóknarmanna en kommúnista.
Framsóknarþingmaðurinn taldi
að stórkostlega hefði dregið úr
lánum til atvinnuveganna, og
það hefði staðið framleiðsíhaukn
ingu í þeim fyrir þrifum. Þá hélt
hann því einnig fram, að spari
fjárbindingin færi algjörlega í
bág við hlutverk Seðlabankans
eins og það væri framkvæmt í
lögum. ^
23°/o aukning
í ræðu viðskiptamálaráðherra
kom fram, að á tímabilinu 1. sept.
1965 til 1. sept. 1966 hafa heildar
útlán banka og sparisjóða aukizt
um 23%, eða um 1716 milljónir,
en innlánsaukning banka og
sparisjóða á sama tíma reyndist
hinsvegar aðeins 1245 milljónir
eða 17% aukning. Útlánaaukning
umfram innlánsaukningu á þessn
tímabili hefur þvi verið um 506
milljónir króna. Nú er það svo,
að yfirleitt þykir ekki æskilegt
að útlánaaukningin fari veru-
lega fram úr innlánsaukningunni,
en þó hefur bankakerfið greini-
lega teygt sig mjög langt til
móts við þarfir atvinnuveganna
með þvi að hleypa útlánaaukn-
ingunni svo langt fram úr inn-
lánsaukningunni.
Tilgangslaus áróður
Framsóknarmenn hafa lengi
haldið þvi fram, að mjög væri
kreppt að atvinnuvegunum meff
lánsfé. Og það er auðvitað ekki
ný saga, að í okkar tiltölulega
fjármagnssnauða landi er mikln
minna framboð á fjármagni en
nauðsynlegt væri og æskilegt er.
En uppbygging okkar lands og
atvinnuvega þess hefur orðiff
mjög skjót á stuttum tíma, og
skortur á lánsfé er einn af vaxt-
arverkjum þess mikla uppbygg
ingartímabils. Því verður hins
vegar með engu móti haldið fram
að rikisstjórnin hafi leitast við
að gera atvinnuvegunum erfitt
fyrir meff takmörkun lánsfjár.
í þeim efnum hefur veriff gengið
eins langt til móts viff þarfir at-
vinnuveganna og mögulegt hef-
ur verið, um leið og reynt hefur
veriff aff halda hæfilegu jafn-
vægi í efnahags- og atvinnulifi
Iandsins. Fjármagnsskortur hlýt
ur alltaf að vera töluverffur í þjóff
félagi, sem lifir slíka uppbygg-
ingartima, sem íslendingar hafa
lifað síðustu áratugi, en í þeim
málum er ekki hægt aff gera
meira en það, sem hæfilegt og
skynsamlegt getur talizt. Afleiff-
ingin af því, að fariff yrffi aff ráff
um Framsóknarmanna í þessum
efnum, að leysa hiff bundna
sparifé, sem í Scðlabankanum er,
myndi einfaldlega verffa sú, aff
ganga yrffi mjög á gjaldeyrisvara
sjóði landsmanna, sem tekizt hef
ur að byggja upp á siðustu sex
árum, og er áreiðanlega enginn
fylgjandi þeirri stefnu. Framsókn
armenn verða að gera sér grein
fyrir afleiðingum þeirrar stefnu,
sem þeir boða, en það virðast
þeir ekki hafa gert í þessu til-
viki fremur en áður.