Morgunblaðið - 21.10.1966, Blaðsíða 21
Föstudagur • okt. Í9S6
21
MORCU N BLADIÐ
Sveinn Jónsson útgerðar-
maður Sandgerði - Minning
F. 21. okt. 1907. D. 15. okt. 1966.
í DAG er Sveinn Jónsson, fram-
kvæmdastjóri í Sandgerði, til
jmoldar borinn. Hann var fæddur
21. okt. 1907 og hefði því orðið
69 ára í dag. Sveinn fæddist á
Bergstaðastræti 20, en fluttist 5
éra á Bergstaðastræti 24. For-
eldrar Sveins voru Jón Einar
Jónsson, prentari, ættaður úr
Skaftafellssýslu, og kona hans,
Sigurveig Guðmundsdóttir, fædd
í Steinsholti í Reykjavík. Móðir
Sveins andaðist 1934, 70 ára að
eldri, en faðir hans náði háum
•ldri og andaðist 1959 á 91. ald-
ursári.
Sveinn ólst upp á Bergstaða-
•træti 24, gekk í Miðbæjarbarna-
íkólann, síðan var hann einn vet-
ur í undirbúningsdeild Verzlun-
erskóla íslands og var þá jafn-
framt og næsta vetur við ensku-
«iám o. fl. í tímakennslu. Eftir
þetta var hann eitt ár við verzl-
unarnám í Englandi.
Eftir heimkomuna var'ð Sveinn
•tarfsmaður hjá Kjötver'zlun
Tómasar Jónssonar, Reykjavík,
og við fleiri verzlanir, en árið
1928 réðist hann til Lofts Lofts-
eonar, sem rak þá umfangsmikla
ú'tgérð og verzlun í Sandgerði og
hafði jafnframt skrifstofu í
Reykjavík. Hjá Lofti Loftssyni
eða Hf. Sandgerði, eins og fyrir-
tæki Lofts nefndist þá, var
Sveinn til miðs árs 1933, að hann
•gerðist meðeigandi ásamt undir-
rituðum að útgerðarstöð Harald-
ar Böðvarssonar í Sandgerði. Rák
um við þrír í félagi útgerðarstöð-
ina í Sandgerði undir nafninu
Haraldur Böðvarsson & Co til
haustsins 1941, að Hf. Miðnes var
stofnað og keypti eignir H. B. &
Co.
Haraldur hætti þá sameign-
inni, en Sveinn og Ólafur voru
framkvæmdastjórar Hf. Miðness
og aðaleigendur. Lét Sveinn Jóns
son fyrirtækinu í té krafta sína
meðan heilsan entist.
Sveinn stóð að stofnun ýmissa
•nnarra fyrirtækja og var með-
eiga Ragnheiði Einarsdóttur, Ein
Dráttarbraut Keflavíkur hf., Fisk
»ðjan sf., öll í Keflavík, Sunna hf.,
Siglufirði, o. fl.
9. júní 1937 gekk Sveinn að
eiga Ragnheiði Einarsdóttur, Ein
*rs Þorkelssonar, skrifstofustjóra
Alþingis, og konu hans, Ólafíu
Jónsdóttur.
Börn þeirra eru Sigurveig, gift
Pálmari Ólasyni, sem er að ljúka
námi I Svíþjóð í húsagerðarlist
(arkitekur), og Ólafía, 16 ára,
■em er hjá móður sinni á Greni-
mel 1.
Systkini Sveins voru 5 og eru
nú 4 á lífi, þau Jón H. Jónsson,
fyrrverandi húsvörður hjá Eim-
ekip, Sigríður Hjaltesaed, Jó-
hannes Jónsson, gjaldkeri hjá
Eimskip, og Einar Jónsson, prent
ori í Gutenberg, öll í Reykjavík.
Látin er Ragnhildur, sem var
næst elzt systkinanna, og nú
Sveinn, sem var þeirra yngstur.
Sveinn andaðist f Landakots-
•pítala aðfaranótt laugardags 15.
okt. eftir langa og erfiða sjúk-
dómslegu.
Er ég fyrst hitti Svein Jónsson
( Sandgerði í byrjun vertiðar
1931, hafði ég heyrt hans getið
frá sameiginlegum vinum. Allir
bám þeir honum lofsorð, og við
nánari bein kynni, skyldi ég, að
það var rétt að hér fór óvenju-
Jegur, ungur maður.
Þar fór saman „gáfur og gjörvi
leiki" ásamt prúðmennsku, góð-
vild, glaðværð og sérstakri vinnu
gieði samfara óvenjulegum af-
köstum við erfiðar aðstæður.
Á árunum 1928—1933 voru ein
hver mestu aflaár á línu við
Faxaflóa. AMir bátar komu oftast
drekkhlaðnir að landi og oft gátu
þeir ekki hirt allt af línunni, þótt
•tutt væri á nútíma maélikvar'ða.
Á þeim árum voru oftast um 40
bátar í viðlegu á stöðvunum í
Sandgerði, sem beittu í landi og
'lönduðu daglega, auk þess nokkr
ir tugir báta, sem voru í útilegu,
beittu u-m borð og söltuðu aflann
í bátana, en lögðu lifur og stund-
um hrogn og bein á land í Sand-
gerði, og fengu þar flest til út-
gerðar, síld, kost, veiðarfæri o. s.
frv.
Viðlegubátar ásamt útilegubát-
um færðu því stöðvunum í Sand-
gerði (en þær voru þá tvær, eig-
endur Loftur Loftsson og Har-
aldur Böðvarsson, báðir frá
Akranesi) mjög mikil og góð Við-
skipti.
Eins og séð verður af framan-
greindu hafði Loftur mjög um-
fangsmikil viðskipti á þessum ár-
um. Gerði oftast út 2—3 báta
sjálfur og hafði viðskipti við
20—30 báta, verkaði aflann og
hafði fjölþætta verzlun. Sveinn
var hans aðalskrifstofumaður og
var löngum einn eða með litla að-
stoð. Vinnudagurinn var því oft
langur. Ekki 6—7 túnar eins og
nú, heldur oftasit 16—18 tímar.
Það var lítill friður á daginn til
bókhalds, sífelldur straumur
manna að fá peninga og aðra
fyrirgrei'ðslu, bókhaldið varð því
að færa á nóttunni, og vann
Sveinn oftast til kl. 3—4 að nóttu
en hóf vinnu aftur kl. 9—10 að
morgni. Við fengum okkur oftast
um klukkustundar gönguferð,
frá 9—10, á morgnana, ef veður
leyfði. Sú vinna, er Sveinn af
kastaði á þessum árum, þætti
áreiðanlega fullt starf fyrir 4—5
menn nú.
Eftir að Sveinn fluttist yfir til
H. B. & Co, eins og það var kall-
að í Sandgerði, var vinnan ekki
alveg eins ströng, en gekk þó
venjulega nokkuð fram á nótt,
enda fengum við okkur ekki að-
stoð á skrifstofunni fyrr en
nokkru eftir að Hf. Miðnes var
stofna'ð. Auk starfsins í Sand-
gerði fór Sveinn nokkur fyrstu
árin til Akraness til að gera upp
fyrir Harald Böðvarsson þar.
Ég skýri frá þessu til að sýna
dugnað og starfsörku Sveins, en
ekki til eftirbreytni, enda er ann-
ar aldarandi nú, en var fyrir
25—40 árum.
Þótt Sveinn Jónsson næði ekki
sextugsaldri, hefur hann unnið
a.m.k. tvöfalt starf margra,
fullum aldri hafa náð.
Sveinn var óvenjulega sterk-
byggður maður, bæði líkamlega
og andlega. Ég minnist ekki „að
honum yrði misdægurt" fram
undir fimmtugsaldur, og heldur
ekki að hann „skipti skapi" svo
á bæri, en „skapmaður" var hann
þó, en fór óvenju vel með.
Ég held að um Svein megi
segja með réttu, að hann hafi
veri'ð „hvers manns hugljúfi". Þó
var hann „ekki svo aumur að
ætti hann eigi öfundarmenn", því
veifiskati var hann engi.
Þegar Haraldur bauð mér að
yfirtaka Sandgerði, eftir að hann
hafði þrautreynt að selja eign-
irnar einhverjum, sem gat greitt
eða yfirtekið skuldir, en án ár-
angurs, kvaðst ég mundi gera
það, fengi ég Svein Jónsson í fé-
lag við okkur. Haraldur kvaðst
halda, að „þessi Sveinn hjá
Lofti“ væri ágætur maður og sam
þykkti það. Við áttum að greiða
smáræði hvor, sem hvorugur átti
þá til, og var víst ekki greitt fyrr
en við keyptum endanlega af
Haraldi, en það er önnur saga.
Vinátta og samvinna okkar
Sveins var með ágætum og hélzt
til æviloka. Nú sakna ég því góðs
drengs, vinar og félaga.
Sveinn Jónsson var að eðlis-
fari hlédrægur maður, „hafði sig
litt í frammi", tjáði sig helzt ekki
úr ræðustól, en var oft hrókur
fagnaðar í vinahópi. Sveinn hafði
mikla söngrödd og yndi af söng.
Hann hafði næma, viðkvæma
lund, vildi ölium vel og hjálpaði
mörgum, en var og misskilinn af
ýmsum.
Trúmaður var Sveinn, þótt
hann flíkaði því lítt. Ég trúi því,
að sál hans fái góðar vi'ðtökur í
heimkynnum þeim, er hún hefur
nú gist.
Sveinn var Kvæntur ágætis
konu — Dalla — er hún venju-
lega nefnd af vinum. Hún bjó
þeim yndislegt heimili, fyrst í
Sandgerði, síðan í Reykjaví'k, þar
hefur ávallt verið gott að koma
og margir vinir og ættingjar átt
þar ótal gleðistundir. Dalla reynd
ist manni sínum frábærlega vel
í hinum löngu og þungbæru veik-
indum hans.
Dætur Sveins eru yndislegar
stúlkur, Sigurveig fulltíða, gift
kona, og Ólafía — 16 ára — auga-
steinn föður síns og unni honum
mjög.
Nú þegar Sveinn er allur hér,
eiga þær mæðgur mjög um sárt
að binda. Ég votta þeim, tengda
syninum og öðrum aðstandendum
mínar og barna minna innileg
ustu samúð. Guð styrki ykkur og
verndi.
Ólafur Jónsson.
ÞEGAR ég kveð vin minn, Svein
Jónsson, minnist ég margra sam-
verustunda — frá léttum leik
Þingholtunum, samleiðar í við-
skiptalífinu og tryggrar vináttu
— þar til að nú skilur á milli,
í bili.
Sveinn var mikill drengskapar
maður, réttsýnn og raunsær, við-
kvæmur í lund, en hélt fast en
góðlátlega á sínum málum. Góð-
ir eiginleikar — framsýni, fram
tak og sanngirni í samskiptum
við náungann — mörkuðu hon-
um þegar á unga aldri farsæla
braut til stórra athafna.
Vegna mannkosta sinna reynd-
ist honum létt að brjótast áfram
úr litlum efnum til góðrar vel
megunar. Þeir eru ótaldir sem
Sveinn, í hlédrægni sinni, létti
lífsróðurinn.
Heimili okkar voru nátengd
Margra ára sambýli og vinátta
skilja eftir góðar endurminningar
um hei'lsteyptan dáðadreng.
Tómas Pétursson
SVEINN Jónsson, framkvæmda-
stjóri frá Sandgerði, var fæddur
í Reykjavík 21. október 1907
sonur hjónanna Jóns Einars Jóns
sonar, prentara, og Sigurveigar
Sveinsdóttur, sem lengst af
bjuggu á Bergstaðastræti 24. Þar
ólst Sveinn upp í glaðlyndum
barnahóp, yngstur sex séstkina
Vil ég hér minnast Sveins, vinar
míns, með nokkrum orðum.
Örlagaþræðir okkar mannanna
eru úr misjöfnu spunnir. Nokk-
urra spinnst þráðurinn snurðu-
laust en annarra hnökrótt. Sveinn
var úr þeli spunninn. Hann var
skapmikill en hans farsælu gáfur
voru þannig, að hann hugsaði
áður en hann lét álit sitt í ljós.
Þegar Sveinn þreytti skóla-
próf varð hann oftast efstur.
Hann stundaði nám í undirbún-
ingsdeild Verzlunarskóla íslands
og stóðs próf inn í þann skóla
vorið 1924. Ekki settist þó Sveinn
í Verzlunarskólann, en lærði
ensku og reikning í einkatímum
veturinn 1924—25. Haustið eftir
fór Sveinn til Englands, var
(hann um hríð á Ruskin College
Oxford en síðan í Pitman’s
Sehool of Commerce í London og
lauk þaða’n prófi með ágætis-
einkunn haustið 1926.
Sveinn var mjög góður ensku-
maður, enda hafði hann haft
góða enskukennara, t.d. hér
heima þá Snæbjörn Jónsson,
Boga Ólafsson og Howard Little.
Kom það sér vel síðar, þegar
hann var fulltrúi við fisksölu-
samninga í Englandi og Rúss-
landi.
Á yngri árum fðkaði Sveinn
mikið íþróttir, svo sem fimleik*
og gríska glímu. Á sumrum
stundaði hann útilegur. Fór
hann þá á reiðhjóli með bakpoka
sinn, og þá oft vegleysur. Sem
dæmi >um dugnað Sveins og
hörku við sjálfan sig er það, að
handleggsbrotinn hjólaði hana
eitt sinn úr Kjósinni um Hæk-
ingsdal og Stíflisdal að Kárastöð-
um í Þingvallasveit.
Ungur réðst Sveinn til starfa
hjá Lofti Loftssyni, útgerðar-
manni í Sandgerði, og þar varð
vettvangur lífsstarfs hans.
Árið 1937 kvæntist Sveinn eft-
irlifandi konu sinni, Ragnheiði
Einarsdóttur. Eignuðust þau
tvær dætu-r, Sigurveigu, sem gift
er Pálmari Ólasyni, og Ólafíu, í
foreldrahúsum.
Sveinn Jónsson gekk ekki heiU
til skógar undanfarin ár og var
nú síðast lengi mjög þungt hald-
inn. Kona hans og dætur veittu
honum einstaka umönnun í veik-
indunum. Hann lézt í Landakots-
spítala hinn 15. október.
Karl Kristinsson.
Magnús Asmundsson
úrsmíðumeistari
IWinning
M A G N Ú S Ásmundsson, úr-
smíðameistari,, andaðist í Heilsu-
verndarstöðinni, laugardaginn 15.
þ.m., og er jarðsettur í dag.
Magnús var fæddur að Kietti
Geiradal, Barðastrandarsýslu,
27. ágúst 1914, sonur hjónanna
Jósefínu Sveinsdóttur og Ásmund
ar Magnússonar, en fluttist ung-
ur í Húnavatnssýslu, þar sem
hann ólst upp.
Eftir fermingu fluttist hann að
Bessastöðum í Miðfirði og fyrir
tilstilli þess ágæta fólks, sem þar
bjó, komst hann að við úrsmíða-
nám 'hjá Magnúsi Benjamínssyni
& Co., í Reykjavík, þá tvitugur
að aldri.
Hjá því fyrirtæki vann svo
Magnús í nokkur ár, að loknu
námi unz hann stofnaði ásamt
tveimur öðrum úrsmiðum fyrir-
tæki, en síðan sitt eigi'ð, sem
hann rak með dugnaði til dauða-
dags.
Magnús kvæntist eftirlifandi
konu sinni, Ingibjörgu Sigurðar-
dóttur, árið 1944 og eignuðust
þau 4 börn, 2 dætur og 2 syni.
Það er vissulega erfitt að fella
sig við, að slíkur ágætis drengur
sé horfinn af sjónarsviðinu, á
bezta aldri, þegar haft er í huga
hversu heilbrigður hann var, unz
hann tók seint á sl. ári þann sjúk
dóm sem leiddi hann ti’l dauða.
Magnús var alla tíð hvers
manns hugljúfi, og ávann sér
traust og vináttu al'lra, sem ein-
hver kynni höfðu af honum.
Hann var félagslyndur maður
og hafði yndi af að umgangast
gó’ða félaga, en vandur að vali
þeirra.
Það sem einkenndi
einna mest var einstök prúð-
mennska í dagfari og æðruleysi,
Aldrei heyrðist hann segja orð,
sem nokkrum gæti til niðrunar
orðið og vildi eigi á slíkt hlusta.
í augum samferðamannanna
var hann ævinlega hið sanna
prúðmenni, sem aldrei vildi
vamm sitt vita og á engan halla
í viðskiptum, hvorki í orði eða
verki.
Um það bera allir þeir mörgu,
sem honum kynntust á lífs'leið-
inni, að þar fór vammlaus maður
og góður drengur í þessa or’ð*
beztu merkingu.
Magnús fór of fljótt úr þess-
um heimi. Hann átti mikið starf
óunnið fyrir fjölskyldu sína og
ástvini og fyrir heimili sitt, sem
var honum kært og al'lt han*
starf miðaði að að fegra og prýða.
Vinir og samferðamenn Magtv-
úsar votta konu hans og börnum
innilega samúð og biðja þeim
Magnús allrar blessunar.
Vinir.
BILAR
Komið og skoðið það mikla úrval sem við
höfnm til söiu af nýlegum noluóum bíium.
Ifagstæð kjör.
CRYSLER UMBOÐIÐ
VÖKULL HF.
Hringbraut 121 — Sími 10 600.
Atvinna óskast
Maður sem hefur meirapróf og er vanur akstri
stórra vörubifreiða einnig vélstjóraréttindi fyrir 500
ha. óskar eftir starfi sem fyrst. Tilboð sendist
Mbl. fyrir 25/10. merkt: „Meirapróf -— 4760“.