Morgunblaðið - 21.10.1966, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 21.10.1966, Blaðsíða 5
■Föstudagur 21. okt. 19Gft MORCUNBLAÐIÐ 5 ÚR ÖLLUM ÁTTUM MATSVEINA- og veitinga- þjónaskólinn gekkst nýlega fyrir námskeiði fyrir fram- reiðslustúlkur í veitingahús- um, hinu fyrsta sinnar teg- Nokkrar stúlknanna bera á borð í kennsluhnsnæði Matsveina- og veitingaþjónaskólans í Sjómannaskólanum. Framreiðslustúlkur á námskeiði undar hérlendis. Námskeiðið hófst fyrir tveimur vikum og mun standa yfir í átta vikur. Alls taka 20 stúlkur þátt í námskeiði þessu, en þær starfa ^ flestar á veitingastöðum hér í borginni og nágrenni. Það var Jón Maríasson for- maður Félags framreiðslu- Fréttamaður Mbl. hitti að máli Jón Maríasson í Sjó- mannaskólanum fyrir fáein- um dögum og spurði hann nánar um tildrög námskeiðs- ins. Sagði Jón, að það hefði sýnt sig á undanförnum ár- um, að brýna nauðsyn bæri til, að kynna stúlkum þeim, sem fást við framreiðslu á mat daglega, ýmis atriði varð andi hana, ekki sízt kurteisi og snyrtimennsku við fram- reiðsluna. Hann sagði, að hingað til hefðu veitingahús orðið að ráða stúlkur „eftir hendinni", kylfa hefði ráðið kasti hvort Framreiðslustúlkurnar í námskeiðinu. stúlkurnar væru til starfsins hæfar. Stúlkurnar hættu margar fljótlega aftur og kæmi það niður á þjónust- unni. Þetta ætti þó sérstak- lega við um veitingahús úti á landsbyggðinni. Með tilliti til þessa, betri þjónustu við matargesti á veit ingahúsum og hins sívaxandj ferðamannastraums var ráð- ist í þetta fyrirtæki, þó með hálfum huga, sagði Jón. Inn- ritunarlisti lá lengi auður í skólanum og fáeinum klukku stundum áður en átti að loka honum létu þessar 20 stúlkur innrita sig, en það er einmitt hæfilegur nemendafjöldi. Jón sagði að lokum, að námskeiðunum yrði haldið áfram í vetur svo fremi, að áhugi komi fram hjá starfandi framreiðsludömum og þeim sem á slíkan starfa hyggja, á því að læra „frétta fram- reiðslu". manna, sem stakk upp á því á fundi skólanefndar Matsveina og veitingaþjónaskólans, að námskeið þetta yrði haldið og fékk hugmyndin þá mjög góð- ar undirtektir. Námskeiðið er eingöngu á vegum skólans, og fer fram í kennslu'húsnæði þess í Sjómannaskólanum þrjá daga vikunnar, þegar annir veitingahúsa höfuðstaðarins eru hvað minnstar, mánu- daga, þriðjudaga og miðviku- daga. Standa námskeiðin yfir frá kl. 19-2i2 hvert kvöld. Skólastjóri námskeiðsins er Tryggvi Þorfinnsson, yfir- kennari Sigurður Gröndal, sem kennir bóklega fram- reiðslu og Kristján Thorla- cius, sem kennir ensku og reikning. Fyrir miðju í hop matsveinalærlinga frá vinstri: VVilhelm Wessman, Tryggvi Þorfinnsson, skólastjórl og Sigurður Gröndal yfirkennari. reiöa tvisvar á ári AÐAL.FUNDUR Féiags íslenzkra bifreiðaeftirlitsmanna var hald- inn 1 Reykjavik dagana 14. og 15. október 1966. Á fundinum voru mættir nálega allir bifreiða eftirlitsmenn á landinu. Aðalvið fangsefni fundarins voru launa- og kjaramál bifreiðaeftirlits- manna, tækniiegar nýjungar í ©ry ggisútbúnaði ökutækja og umferðar- og öryggismál. Friðfinnur Kristinsson flutti er indi uis tæknilegar nýjungar í bemlaútbúnaði bifreiða og Björn Ómar Jónsson um ýmsar gerðir bifreiðaljósa, en hann hefur ferð •zt um landið á vegum F.Í.B., •tillt bifreiðaljós og leiðbeint um ljósastillingar ökutækja. Fundurinn skoraði á stjórn Félags bifreiðainnflytjenda að beita sér fyrir því, að naúðsyn- legustu varahlutir í öryggisút- búnað bifreiða séu ávallt á boð- stólum í landinu, svo sem í ljósa búnað, stýrisbúnað, hemlabúnað og annan öryggisbúnað, og slí'kir hlutir væru látnir sitja í fyrir- rúmi fyrir ýmsum ónauðsyn- legri hlutum, svo sem skrauti og þess háitar, sem nóg er af í mörgum bifreiðavarahlutaverzl- unum. Þá beindi fundurinn þeim til- mælum ti'l stjórnar Félags bif- bifvélavirkjum að kynna sér reglugerð um gerð og búnað ökutækja o. fl., frá 15. maí 1964, og benti þá sérstaklega á nokk- ur ákvæði reglugerðarinnar. Enn fremur voru samþykktar á fundinum ýmsar ályktanir, er sérstaklega varða störf bifreiða- ef'tirlitsmanna. Fundurinn beindi þeirri áskor un til allra ökumanna, að þeir láti stilla ljós ökutækja sinna, þar eð rétt stillt ljós veita öryggi í umferð. Talið er nauðsymlegt að láta stilla ljós bifreiða a.m.k. tvisvar á ári. Þá brýndi fundur- inn ökumenn alla á þessum al- mennu varúðarreglum: Haldið ökutækjum í fullkomnu lagi. Ef bilanir verða, látið lag- færa þær strax. Virðið rétt ann arra í umferð. Hagið akstri þann ig, að hann valdi öðrum ekki hættu. Kynnið ýður vel heml- unarvegalengdir á ýmsum hraða. Farið eftir umferðarmerkjum og öðrum leiðbeiningum, er verða á leið yðar, akið rétt þar, sem akgreinamerking er á vegum. vélavirkja, að hún brýndi fyrirLátið yður aldrei liggja svo mjög á, að þér teflið á tæpasta vað, sýnið tillitssemi og prúðmennsku í umferð. Hafið vakandi athygli á akbraut og umfer'ð, hafið fulla stjórn á ökutækinu, og látið það ekki ná stjórninni af yður. Mun- ið, að hraður og ógætilegur akst ur veldur flestum umférðarslys- um. Stjórn félagsins var öl*l endur kjörin, en hana skipa: Gestur Ólafsson formaður, Svavar Jó hannsson varaformaður, Sigurð ur Indriðason ritari, Sverrir Samúelsson gjaldkeri og Viggó Eyjólfsson meðstjórnandi. í stjóm NBF (Nordisk Bilinspekt ör-Forbund) voru kosnir: Gestur Ólafsson og Geir G. Bachmann Til vara: Sigurður Indriðason og Ágúst Geir Kornelíusson. (Frá Félagi ísl. bifreiðaeftirlits- manna). ATHUGIÐ Þegar miðað er við útbreiðslu. er iangtum ódýrara að auglýsa i Morgunblaðinu en öðrum blöðum. ALLT MEÐ EIMSKIP A NÆSTUNNI ferma skip vor til íslands, sem hér segir: Brottfarardagar: ANTWERPEN: Mánafoss 22. okt. * Skógafoss 27. okt. Tungufoss 5. nóv. Mánafoss 15. nóv. * Skógafoss 24. nóv. HAMBORG: Dux 22. okt. Skógafoss 1. nóv. Goðafoss 10. nóv. Askja 16. nóv.** Dux 19. nóv. Skógafoss 29. nóv. ROTTERDAM: Askja 22. okt. ** Skógafoss 28. okt. Skip 7. nóv. Dux 15. nóv. Askja 18. nóv.** Skógafoss 25. nóv. LEITH Gullfoss 4. nóv. Gullfoss 25. nóv. Gullfoss 16. des. LONDON: Mánafoss 25. okt. * Agrotai 31. okt. Tungufoss 8. nóv. Mánafoss 18. nóv. Agrotai 28. nóv. HULL: Askja 24. okt. ** Agrotai 3. nóv. Tungufoss 11. nóv. Askja 21. nóv.** Agrotai 1. des. GAUTABORG: Dettifoss 31. okt. Bakkafoss 10. nóv.** Skip um 18. nóv. KAUPMANNAHÖFN: Gunvör Strömer 24. okt. GuIIfoss Bakkafoss Skip Gullfoss NEW YORK: Brúarfoss Selfoss Fjallfoss 2. nóv. 8. nóv.** um 16. nóv. 23. nóv. 2. nóv. 16. nóv. 25. nóv. Brúarfoss um 10. des. KRISTIANS AND: Gunvör Strömer 27. okt. Bakkafoss 12. nóv.** Gullfoss 24. nóv. KOTKA: Lagarfoss 1. nóv. Rannö 2. nóv. Dettifoss 28. nóv. LENINGRAD: Dettifoss 27. ókt. VENTSPILS: Lagarfoss 30. okt. Dettifoss 25. nóv. GDYNIA: Lagarfoss 4. nóv. Dettifoss 30. nóv. OSLO: Dettifoss 1. nóv. * Skipið losar á öllum aðal- höfnum, Reykjavík, ísa- firði. Akureyri og Reyðar- firði. ** Skipið losar á öllum aðal- höfnum og auk þess í Vestmannaeyjum, Siglu- firði, Húsavík, Seyðisfirði og Norðfirði. Skip, sem ekki eru merkt með stjörnu, losa í Reykja- vík. IMSKIP

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.