Morgunblaðið - 21.10.1966, Síða 14
14
MORGUNBLADIÐ
Fostudfagur 21. okt. 1966
SAMBAND UNGRA SJÁLFST ÆÐISMANNA:
ÆSKAN OG FRAMTÍÐIN
RITSTJÖRI: ÁRMANN SVEINSSON
Byggöaþing S.U.S.
SÍÐAN hefur snúið sér til
Sævars B. Kolbeinssonar, fram-
kvæmdastjóra S.U.S., og beðið
hann að greina frá Byggðaþing-
um þeim, er efna á til á næst-
unni.
Stjórn S.U.S. hefur ákveðið
að gangast fyrir svokölluðum
Byggðaþingum á sex stöðum
víðs vegar um landið um mán-
aðamótin október-nóvember.
Verður haldið eitt Byggðaþing í
hverju kjördæmi landsins utan
Hvíkur, sameiginlegt Byggða-
þing verður þó haldið fyrir
Norðurlandskjördæmi vestra og
Norðurlandskjördæmi eystra.
Á þessum Byggðaþingum mun
verða fjallað um helztu hags-
muna- og framfaramál hvers
kjördæmis fyrir sig frá sjónar-
faóli ungra manna, og munu þing
in senda frá sér ályktanir, sem
birtar verða á opinberum vett-
vangi. Fengnir hafa verið hæf-
ir menn í viðkomandi kjördæm
um til þess að undirbúa frum-
drög að ályktunum, sem síðan
munu verða umræðugrundvöllur
á Byggðaþingunum.
Á hverju Byggðaþingi verður
viðstaddur einn af ráðherrum
Sjálfstæðisflokksins og fyrsti
þingmaður Sjálfstæðisflokksins
í viðkomandi kjördæmi. Mun
ráðherra væntanlega flytja ræðu
wn ástand. og horfur í landsmál
um, en þingmaðurinn mun ræða
þau mál, sem helzt eru á döf-
inni í kjördæminu.
Byggðaþingin munu standa
jrfir í einn dag hvert, sunnudag-
ana 30. október og 6. nóvem-
ber, og munu þau væntanlega
hefjast kl. 1.30 e.h. á öllum stöð
unum. Sunnudaginn 30. okt.
verða haldin Byggðaþing fyrir
Vestfjarðakjördæmi á ísafirði,
sameiginlegt Byggðaíþing fyrir
Norðurlandskjördæmi vestra og
Norðurlandskjördæmi eystra á
Akureyri og Byggðaþing í Hafn
arfirði fyrir Reykjaneskjördæmi.
Sunnudaginn 6. nóv. verða svo
Byggðaþing fyrir Austurlands-
kjördæmi á Egilsstöðum fyrir
Suðurlandskjördæmi á Selfossi
og fyrir Vesturlandskjördæmi á
Akranesi. Á Byggðaþingin eru
boðaðir fulltrúar frá öllum félög
um ungra Sjálfstæðismanna inn
an viðkomandi kjördæma, auk
þess sem öllu Sjálfstæðisfólki
er heimill aðgangur.
Byggðaþing þessi eru upphaf
að starfi S.U.S. á þessu starfs-
ári, og tilgangur þeirra er að
veita ungum mönnum tækifæri
til þess að koma saman og ræða
um hagsmunamál viðkomandi
byggðarlaga frá eigin sjónarhóli.
Það er því áríðandi, að öll að-
ildarfélög innan vébanda S.U.S.
sendi eins marga fulltrúa og
hægt er á þessi Byggðaþing.
Einnig er allt Sjálfstæðisfólk
hvatt til að fjölmenna.
Dagskrá Byggðaþinganna fer
hér á eftir:
1. ísafjörður. Byggðaþingið á
ísafirði verður naldið þann 30.
sktóber í Uppsölum. Dagskrá:
1. Ávarp: Styrmir Gunnars
son, fulltrúi stjórnar S.U.S.
2. Ræða: Ingólfur Jónsson,
landbúnaðarmálaráðherra.
3. Ræða: Sigurður Bjarnason,
alþingism. frá Vigur.
4. Umræðuhópar starfa.
5. Almennar umræður.
Framsögumenn nefnda: Jó-
kannes Árnason, sveitarstjóri og
Eyjólfur Þorkelsson, sveitar-
stjóri.
Stjórnandi byggðaþingsins
verður Jens Kristmannsson
form. F.U.S. Fylkis á ísafirði.
2. Akureyri. Byggðaþingið á
Akureyri verður haldið þann
30. október í Sjálfstæðishúsinu.
Dagskrá:
1. Ávarp: Birgir ísleifur Gunn
arsson, 1. varaformaður
S.U.S.
2. Ræða: Magnús Jónsson,
fj ármálaráðherra.
3. Ræða: Gunnar Gíslason, al-
þingismaður.
4. Ræða: Jónas Rafnar, alþing
ismaður.
5. Umræðuhópar starfa.
Framsögumenn nefnda: Lárus
Jónsson, bæjargjaldkeri og
Stefán Jónsson, bóndi.
Stjórnandi Byggðaþings verð-
ur Halldór Blöndal, erindreki.
3. Hafnarfjörður. Byggðaþing-
ið í Hafnarfirði verður haldið
þann 30. október í Sjálfstæðis-
húsinu. Dagskrá:
1. Ávarp: Árni G. Finnsson,
form. S.U.S.
2. Ræða: Jóhann Hafstein,
dómsmálaráðherra.
3. Ræða: Matthías Á. Mathie-
sen, alþingismaður.
4. Umræðuhópar starfa.
5. Almennar umræður.
Framsögumenn nefnda: Jón
Ólafsson, bóndi og Ólafur Ein-
arsson, sveitarstjóri.
Stjórnandi Byggðaþingsins
verður Kristján Guðlaugsson,
verzlunarmaður.
Sævar B. Kolbeinsson
4. Egilsstaðir: Byggðaþingið á
Egilsstöðum verður haldið þann
6. nóvember í Ásbíói. Dagskrá:
1. Ávarp: Sigurður Hafstein,
fulltrúi stjórnar S.U.S.
2. Ræða: Bjarni Benediktsson,
forsætisráðherra.
3. Ræða: Jónas Pétursson, al-
þingismaður.
4. Umræðuhópar starfa.
5. Almennar umræður.
Framsögumenn nefnda: Gísli
Helgason, bóndi og Kristófer
Þorleifsson, stud. med.
Stjórnandi Byggðaþingsins
verður Ólafur Bergþórsson,
erindreki.
5. Selfoss. Byggðaþingið á Sel
fossi verður haldið þann 6. nóv-
ember f Iðnskólanum. Dagskrá:
1. Ávarp: Sævar B. Kolbeins-
son, framkvæmdastj. S.U.S.
2. Ræða: Ingólfur Jónsson,
landbúnaðarmálaráðherra.
3. Ræða: Guðlaugur Gíslason,
alþingismaður.
4 Umræðuhópar starfa.
5. Almennar umræður.
Framsögumenn nefnda: Jón
Kosið í Stúdenfrafélagi Háskóla íslands í dag:
ÖII vinstri öflin innan H.f.
eru sameinui um einn
•„.... ■ títaKvto.'... .*
□ í dag fara iram
kosníngar í Stúdentafé-
lagi íslands en sú ný-
skípan hefur verið gerð
* félagsmálum stúdenta,
að hér eftir á Stúdenta-
félagið að annast alla fé~
lagsm á 1 asta rfsem í sem
Stúdentaráð hefur hingr-
að tíl séð um en Stúd-
entaráð mun eftirieiðis
aðeíns helga sig
munatnálum. —
7 menn í
og hafa komið fram tveir \
listar: B~Iisti sem öll
vinstri félögin í háskól-
anum og nokkur hluti
Vöku standa að, og A-í
listi, sem íhaldssinnaðri |
hluti Vöku styður. j
HÉR getur að líta hluta forsíðu-
fréttar, er birtist í Þjóðviljanum,
málgagni Sameiningarflokks al-
þýðu — Sósíalistaflokksins, si.
laugardag. (Skylt er að biðja
afsökunar á því óhappi Þjóðvilj
ans, að fara rangt með nafn
félagsins, þ.e. að glata orðinu
„Háskóli" í upphafi fréttarinn-
ar).
Úrslit kosninganna urðu þao,
að listi lýðræðissinnaðra stú-
denta, A-listi, hlaut 345 atkv., og
B-listi (sjá faðerni i Þjóðvilja-
frétt) hlaut 364 atkv.
Ef til vill eru allir þeir, er
greiddu atkvæði Vökumenn.
Þeir sem studdu A-Iista „íhalds-
sinnaðir", en stuðningsmenn B-
lista væntanlega frjálslyndir,
sbr. „nokkurn hluta Vöku“ i
Þjóðviljagreininni.
Blómlegt starf F.U.S. Varðar
Aðalfundur félags ungra
Sjálfstæðismanna á Akureyri
LAUGARDAGINN 8. október
1966 var haldinn aðalfundur
VARÐAR, félags ungra Sjálf-
stæðismanna á Akureyri. Fund-
urinn var haldinn í Sjálfstæðis
húsinu og var fjölsóttur. Starf-
semi félagsins stendur nú í
miklum blóma og hagur þess er
góður. Vetrarstarfið er þegar
hafið og verður mjög fjölbreytt.
I fjarveru fráfarandi for-
manns, Óla D. Friðbjarnarson-
ar, setti fráfarandi varaformað-
Þorgilsson, fulltrúi og Sigfús
Johnsen, kennari.
Stjórnandi ByggSaþingsins
verður Óli Þ. Guðbjartsson,
form. F.U.S. í Árnessýslu.
6. Akranes. Byggðaþingið á
Akranesi verður haldið þann 6.
nóvember í Templarahúsinu.
Dagskrá:
1. Ávarp: Jón E. Ragnarsson,
fulltrúi stjórnar S.U.S.
2. Ræða: Jóhann Hafstein,
dómsmálaráðherra.
3. Ræða: Sigurður Ágústsson,
alþingismaður.
4. Umræðuhópar starfa.
5. Almennar umræður.
Framsögumenn nefnda: Björn
Pétursson, kennari og Jósef Þor
geirsson, lögfræðingur.
Stjórnandi Byggðaþingsins
verður Kalman Stefánsson,
bóndi.
ur, Magnús Jónsson, fundinn.
Fundarstjóri var kosinn Her-
bert Guðmundsson ritstjóri og
fundarritari Halldór Blöndal,
erindreki.
Magriús Jónsson flutti skýrslu
fráfarandi stjórnar. Á liðnu
starfsári voru meginviðfangs-
efnin stjórnmálastarfsemi, fjöl-
breytt skemmtanahald og fjár-
öflun. Var þátttaka félagsmanna
almenn í starfseminni og fór hún
í hvívetna fram félaginu til
mikils sóma.
Sigurður Sigurðsson gjald-
keri fráfarandi stjórnar og Sig-
uróli Sigurðsson formaður
skemmtinefndar lögðu fram
reikninga félagsins, sem sýndu
góðan hag þess. Voru reikning-
arnir samþykktir samhljóða.
Eftir að gerðar höfðu vei'íð
nokkrar breytingar á lögum fé-
lagsins, þar sem m.a. var ákveð-
ið að stjórn félagsins sklpi 7
manns og varastjórn 3, var geng
ið til stjórnarkjörs. Formaður
var kosinn Sigurður Sigurðsson
verzlunarmaður. Aðrir í stjórn
þau Hrefna Jakobsdóttir, Rafn
Gíslason bifvélavirki, Bergur
Höskuldsson vélamaður, Hall-
dór Jóhannesson prentnemi,
Gísli Sigurgeirsson bifvélanemi,
Róbert Árnason múrarmeist-
ari. í varastjórn þeir Siguróli
Sigurðsson verzlunarmaður,
Stefán Árnason trésmíðameist-
ari og Magnús Jónsson klæð-
skerameistari.
Þá var kosið í fulltrúaráð
Sjálfstæðisfélaganna á Akur-
eyrl og í Kjördæmisráð Sjálf-
stæðisflokksins í Norðurlands-
kjördæmi eystra. Þeir sem kosn
ir voru, eru taldir upp hér á
eftir.
Loks voru umræður um starf
semina og ríkti mikill áhugi
Sigurður Sigurðsson
meðal fundarmanna á að halda
áfram að efla hana með ýmsu
móti. Einkum var lögð áherzla
á, að stefna bæri að fjölbreytt-
ari stjórnmálastarfsemi. Hefur
stjórnin nú í undirbúningi
starfsáætlun fyrir veturinn.
Fulitrúaráð
Kosnir voru 9 félagsmenn í
fulltrúaráð Sjálfstæðisfélag- -
anna á Akureyri og jafn marg-
ir varamenn. Aðalmenn voru
kosnir þessir:
Siguróli Sigurðsson, Magnús
Jónsson, Valgarður Sigurðssoa
prentari, Herbert Guðmunds-
son, Sveinn Jónsson trésmiður,
Halldór Blöndal, Páll Stefáns-
son bakari, Stefán Árnason og
Magnús Ottósson vélsmíðanemi.
Kjördæmisráð
Þá voru kosnir 4 fulltrúar I
Kjördæmisráð Sjálfstæðisflokks-
ins í Norðurlandskjördæmi
eystra og jafn margir til vara,
Þessir hlutu kosningu, sem aðal-
menn:
Sigurður Sigurðsson, Herbert
Guðmundsson, Siguróli Sigurðs-
son og Magnús Jónsson.