Morgunblaðið - 21.10.1966, Síða 17

Morgunblaðið - 21.10.1966, Síða 17
Föstudagur 21. okt. 1966 MORGU N BLAÐIÐ 17 ,Ég skrifa bara sem manneskja/ sagði Nelly Sachs NELLY Sachs hefur á undan- förnum árum notið hylli bók- menntaunnenda í æ vaxandi mæli og fyrr en nú hefur nafn hennar verið nefnt í sambandi við úthlutun Nóbelsverðlauna. Ljóð hennar og leikrit hafa verið gefin út aftur og aftur og þýdd á fjölda mála. Nelly Sachs yrkir á þýzku, en flest verka hennar eru þó kunn á Norðurlandamálum, einkum sænsku, en í Svíþjóð hefur skáldið átt heima frá 1940. Nelly Sachs er af gyðinga- ættum og fædd í Þýzkalandi 10. desember 1891. Hún verð- ur því nákvæmlega 75 ára þegar Nóbelsverðlaununum verður úthlutað 10. desember næstkomandi. Hún ólst upp í Þýzkalandi og átti þar heima til 1940 er henni tókst að flýja land og þannig komast undan morðhöndum Nazista. Hún hefur síðan átt heima í Svíþjóð og býr í Stokkhólmi. Nelly Sachs hefur hlotið mikla og vaxandi viðurkenn- ingu fyrir ljóð sín og leíkrit. M. a. hefur hún fengið sænsku ljóðskáldaverðlaunin og á síð- asta ári hlaut hún friðarverð- laun sambands Þýzkra bóka- útgefenda. Hún á sér marga formælendur í hópi sænskra skálda, þrjú þeirra, Johannes Edfeldt, Erik Lindegren og Gunnar Eklöf hafa þýtt Ijóð eftir hana á sænsku og fjórða skáldið, Olaf Lagerkrantz, rit stjóri Dagens Nyheter, hefur ritað um Nelly Sachs greina- flokk i blað sitt. Af bókum Nelly Sachs má nefna: Wohnungen des Todes 1947, Sternverdunklung 1949, Und Nieman weiss weiter 1957, Flucht und Vervandlung 1959, Gesammelte Lyrik 1961, Vom Leiden Israel 1964, Glúhende Ratsel 1964 og Spáte Gedichte 1965. Yrkisefni sækir Nelly Sachs mjög í hörmungar þjóðar sinnar, fsraelsmanna. „í Helheimi“ (wohnungen des Todes), sem er minnismerki Nelly Sachs. yfir fórnardýr nazistiska æðis ins, þykir saman fara me'ð á- gætum raunsæi, samúð, ljóð- rænn styrkur og nýjung í málsmeðferð. f ljóðaleikritinu Elí lýsir Nelly Sachs því tímabili í örlagasögu Gyðinga þegar fjöldamorðin eru nýlega af- staðin og þeir sem eftir lifa dofnir af þjáningum og ör- vita af harmi. Átta ára dreng- ur, Elí, hleypur út í nóttina á eftir foreldrum sínum, sem eru flutt burt. Hann hefur hjarðpípuna sína með sér og blæs í hana. Hermaður í varð liðinu þolir ekki hávaðann og slær Elí til bana með byssu- skeftinu. Við birtum hér stutt an kafla úr þessum ljóðaleik í þýðingu Johannes Eldfeldts: „Om han inte kastat huvudet bakát, sá hade jag inte slagit ihjál honom, mjölktanden hade inte fallit ut tillsammans med herdepipan! Men — det stred mot ordn- ingen — att kasta huvudet bakát — Det máste ráttas till — Och till vem bláste han pá pipan? En hemlig signal? Ett tecken genom luften —- utanför all kontröll — Hjálp, skomkare, mjölktanden váxer ur jord- en — börjar gnaga pá mig — gnager igenom skorna — mina fötter faller sönder — blir till jord — Var finnst ordingen, várlds- ordningen — Jag ár vid liv, jag ár inte död — Inte hángd — Inte bránd — inte levande kastad í grav- en — Det ár ett misstag, ett mis- stag, jag faller sönder, faller sönd- er — Jag ár bara en stump, sitter pá stoftet, som nyss var mitt kött —“ í viðtali við blaðamenn sagði Nelly Sachs m. a.: „Ég skrifa ekki sem þýzk eða sænsk skáldkona, ég skrifa bara sem manneskja. Þegar maður hefur lifað svo marg- ar hræðilegar stundir hefur maður ekki þá tilfinningu að tilheyra sérstakri þjóð. Mað- ur er bara manneskja“. Verðlaunaveiting fyrir rannsóknir á sviði atómvísinda Við afhendingu Enrico Fermi verðlaunanna. Pétur Eggerz sendiherra situr fremst á mynd- inni við hliðina á Raiph Bunch, aðstoðarframkvæmdastjora hjá Sameinuðu þjóðunum. NÝLEGA var haldinn 10. að- alfundur Alþjóðakjarnorkumála stofnunarinnar. Hann sótti fyrir íslands hönd Pétur Eggerz sendi herra. 1 sambandi við fundinn af- henti formaður amerísku sendi- nefndarinnar hin svonefndu Enirico Ferini verðlaun, sem eru 50 þúsund bandarískir dollar- ar. Skiptust verðlaunin í 3 staði í þetta sinn, og hlutu þau Lise Meitner, Fritz Strassmann og prófessor Otto Hahn, sem er nú 87 ára að aldri og merkur vís- indamaður. Prófessor Ottó hefur staðið framarlega í rannsóknar- starfsemi á sviði radio-efna- ,Ein lína á hreinni hebresku er þýð- ingarmeiri en öll verðlaun heimsins' sagði Samúel Jósef Agnon SAMÚEL Jósef Agnon er fæddur 1880 í Buchach í Úkra ínu. Til Palestíun kom hann fyrst árið 1907 og dvaldist þar í sex ár, en frá 1913 til 1924 átti hann heima í Þýzkalandi. Frá 1924 hefur Agnon svo átt heima í Jerúsalem, þar sem hann hefur verið í fremstu röð hebrezkra rithöfunda og hlotið margvíslega viðurkenn ingu bæði í heimalandi sínu og utan þess. Hann hefur einn ig tvisvar hlotið bókmennta- verðlaun fsraelsríkis. Þá er hann doktor í bókmenntum frá gyðinglegum guðfræði- skóla í Ameríku og við há- skóla heimalands síns hefur hann verið gerður heiðurs- doktor. Smásagna og skáldsagna- söfn Agnons fylla átta bindi í heildarútgáfu. Hann skrifaði fyrst á jiddich en ritar nú á hebresku og hefur orðið fyrir áhrifum frá ritum Biblíunn- ar, en einnig talinn sviplíkur Hasidim-höfundum 18. aldar- innar. Stí’ll Agnons er ein- faldur og vafningalaus. í fyrri verkum sínum hefur Agnon einkum tekið til með- ferðar líf Gy'ðinga í Austur- Evrópu, sem til skamms tíma lifðu þar og störfuðu í sam- hljóðan við gamla hefð, lítt snortnir af straum samtíðar- innar. Af bókum hans má nefna „Bæði þetta og aðrir hlutir", „Tjaldhiminn yfir brúðkaupið“, „Á handfangi loksins“ og „Næturgestur". í viðtalið við fréttamenn lýsti Agnon yfir því, að Nó- belsverðlaunaveitingin mundi ekki breyta lífi hans: „Ég mun ekki borða meira en ég er vanur og ég ætla ekki að taka upp á því að aka í leigu- bílum“. En hann bætti við, að hann mundi sennilega Saniúel Jósef Agnon. kaupa sér nýja, mýkri skó. Þrátt fyrir þá hefð, sem ríkjandi er í verkum Agnons er hann oft nefndur faðir nú- tima bókmennta á hebresku. Þegar hann var beðinn um skýringu á því, hvernig þetta gæti farið saman, yppti hann öxlum og sagði: „Ég get ekki skýrt það — getur þú það?“ Þegar Agnon var beðinn um álit sitt á Nóbelsverðlauna- veitingunni sagði hann: „Ég er á mót: heiðri. Það er of gott að öðlast heiður. Ein lína á hreinni he- bresku er þýðingarmeiri en öll verðlaun heimsins. Ég ber mikla virðingu fyrir Nóbels- verðlaununum, en það sem mér finnst stórfenglegast við þetta er að nú verða lesnar víða um heim bækur manns, sem ritað hefur á hinni helgu tungu, og einnig hitt, að nú munu fleiri fsraelsmenn en fyrr lesa bækur mínar. En ég vil líka taka það skýrt fram, að það er ekki ég, sem skálda það sem ég skrifa. Ég geri ekki annað en festa á blað það sem guð blæs mér í brjóst“. fræði frá byrjun þessarar aldar og með góðum árangri. í yfir 30 ár hefur eðlisfræðingurinn Lise Meitner unnið með honum að lausn vandamála á sviði geisl unar. Og Fritz Strassmann er kunnur efnafræðingur, sem þesi þrjú unmð saman síðan hefur starfað á sama sviði. Hafa 1934, en Lise Meitner flúði til Svíþjóðar 1938 og hélt þar áfram störfum. Hafa þau lagt mikið til lausnar vandamálum á sviði atómrannsókna. Því voru þau heiðruð með Enrico Fermi verð launum. Verðlaun þessi bera nafn En- rico Fermi, sem fyrstur notaði nevtrónur til að framleiða til- búna geislun í fjölda kemískra efna. Fermi komst einkum að þeirri niðurstöðu að með því að uota nevtrónur við geislun á uranium framkallaði hann efni með meiri fjölda atóma en ur- anium. Bann við þekkingu Moskvu, 20. október — AP Fréttablað það í Sovétríkjun- um, sem fjallar um menntun, lýst í gær „menningarbýlting- unni“ í Kína sem „banni við þekkingu”. Sagði blaði'ð, að um- rótið í Kína væri að kenna mis tökum kínverskra leiðtoga. Blað ið sagði enn fremur, að Kína hefði einangrað sig frá öðrum kommúnistaríkjum með því að reyna að láta tilvitnanir Mao Tze Tung koma í staðinn fyrir kenningar Marx og Lenins. IXIýr fram- kvæmdastjóri innkaupastofn- unar Torben Friðriksson hefr verið ráðinn framkvæmdastjó; Innkaupastofnunar Reykjavíb urborgar. Hann er viðskipta fræðingur að menntun og hefu undanfarin ár starfað í Efna hafsstofnuninni.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.