Morgunblaðið - 05.11.1966, Qupperneq 1
32 síður
53. árgangur
254. tbl. — Laugardagur 5. nóvember 1966
Prentsmiðja Morgunblaðsin*
MYND þessi var tekin á S-Vietnam var minnzt. Skæru til hátiðahaldanna. Margir,
hjólhestastæði í Saigon, 1. liðar vörpuðu sprengju að börn og fuliorðnir, særðust
nóvember er þjóðhátíðardags stæðinu, er fólk var á leið eða létu lífið. — 4P.
, ,S jálf smor ðsárásir“
skæruliöa Vietcong
13 miiEj. flugrita varpað niður
yfir M-Vietnam i gær
Mikið flóð í Flórens
Talið, að í borginni, sem nú er einangruð,
kunni gömul meistaraverk að vera í hættu
■ Mikil flóð í Flórens
■ Flórens, 4. nóvember AP
• ÁIN Arno flæddi yfir
• bakka sína í dag, og var
■ vátnsmagnið svo mikið, að
■ það olli þegar í stað miklu
’ tjóni í borginni Flórens,
og nærliggjandi héruðum.
Flóðið, sem nú stendur
yfir, er það versta í sögu
borgarinnar, síðan heims-
styrjöldinni síðari lauk.
Hefur vatn og for náð til
gamla hluta borgarinnar,
þar sem margar frægar
byggingar og minjar frá
renaissance-tímanum (í ná
grenni „Ponte Vecchio“ —
gömlu brúarinnar eru).
Hundruð manna hafa flú
Framhald á bls. 25
Saigon, 4. nóvember. — NTB.
f FRÉTTUM frá Saigon í dag
segir, að Vietcong, skæruliðar
kommúnista, hafi í dag lagt til
atlögu við bandarískt herlið,
skammt frá landamærum S-
Vietnam og Kambodíu.
Segja fréttamenn að áhlaupi
þessu megi helzt líkja við „sjálfs-
morðsárás“, enda hafi skærulið-
arnir beðíð mikið afhroð.
Atburðurinn átti sér stað um
96 km. norðvestur af Saigon, en
þar tókst bandaríska herliðinu
að inniloka herstyrk Vietcong.
Bardaginn stóð í tvær stund-
ir. Jafnframt því, sem barizt var
á jörðu, gerðu bandarískar her
flugvélar loftárásir á iið Viet-
cong, sem lagði til atlðgu, nvað
eftir annað, þótt um vonlausa
baráttu væri að ræða.
Gífurlegt mannfall mun hafa
orðið í liði Vietcong, en tals-
menn hers Bandaríkjanna segja,
að lítið hafi verið um mannfail
í þeirra liði.
f dag gerðu Vietcong-liðar
einnig árás á stjórnarher S-
Vietnam, um 30 km. fyrir sunn-
Kaíró, 4. nóvember - AP
Egyptaland og Sýrland undir-
rituðu í dag varnarsáttmála, að
því er segir í opinberri tilkynrí-
ingu £ Kaíró. í sáttmálanum er
tekið fram, að árás á annað
hvort ríkið verði talin árás á
þau bæði.
an Sui Cao. Af 700 skæruliðum
féllu þar 75.
Bandarískar flugvélar flugu I
dag í 200 m. hæð yfir þökum
Hanoi, höfuðborgar N-Vietnam,
og vörpuðu þar niður flugritum,
rúmlega miiljón. Alls mun 13
milljónum slíkra rita hafa verið
varpað niður yfir N-Vietnam í
dag.
Stórhríð
ÍUSA
38 láta lífið
New York, 4. nóv. AP-NTB.
MIKIL stórhríð hefur í dag
'gengið yfir Kanada og Banda
I ríkin, og vitað er, að a.m.k.
Í32 hafa látið lífið í Banda-
l ríkjunum. Mörg hundruð
manns hafa misst heimili sín,
' og heil héruð nú án sambands
)við umheiminn.
í fyikjunum Tennessee,
I Ohio, Indiana, Michigan,
Pensylvania og norðurhluta
(New York ríkis sitja hundruð
Framhald á bls. 25
fíommúnistar varist a&
tiraga rangar ályktanir
Johnson var að því spurður,
hver áhrif hann teldi, áð kosn-
ingarnar myndu hafa á afstöðu
kommúnista til Vietnamdeilunn-
- l'itilla breytinga að vænta i banda-
riskum stjórnmálum, segir Johnson
Washington, 4. nóvember
AP — NTB
JOHNSON, Bandaríkjafor-
seti, lýsti því yfir á fundi með
fréttamönnum í Washington
í dag, að þingkosningarnar,
sem fram fara vestan hafs
nk. þriðjudag, muni ekki hafa
ncin áhrif á Vietnamdeiluna.
Þá sagði forsetinn, að hann
teldi ekki, að nein veruleg
breyting yrði á skiptingu
þingsæta í öldungardeildinni.
Um kjör til fulltrúadeildar-
innar sagði hann, að jafnvel
þótt 40—50 nýir fulltrúar
tækju þar sæti, og aðrir vikju,
myndi það ekki hafa nein
áhrif stjórnarinnar þar.
Johnson hélt úmræddan fund
með fréttamönnum, nokkru áður
en hann hélt til búgarðs síns
í Texas, en þar mun hann dvelj-
ast um hríð, áður en hann leggst
í sjúkrahús, til tveggja minni
háttar aðgerða.
ar. Forsetinn svaraði því til, að
kommúnistar skyldu varast að
draga skakkar ályktanir í því
efni. Hann gæti ekki séð, hvern-
ig kosningarnar gætu á nokkurn
hátt haft bein áhrif á afstöðu
kommúnista. „Þeir eru ekki
Framhald á bls. 25
Danir vilga ræða
fisksölur við EBE
Briissel, 4. nóvember. — NTB.
DANSKA stjórnin hefur farið
þess á leit við F.fnahagsbanda-
lag Evrópu, að hún fái að taka
þátt í umræðum þeim um fiski-
mál, sem bandalagið hefur nú á
dagskrá.
í tilkynningu dönsku stjórnar-
innar segir, að Danmörk hafi
um árabil verið í röð þeirra fisk-
veiðiþjóða (fremst í röð þeirra
á síðasta ári), sem selja fiskaf-
urðir til bandalagsríkjanna sex.
44 af hundraði útfluttra fisk-
afurða, Dana á s.l. ári fóru til
Efríahagsbandalagsríkjanna.
Er á það bent, að þar eð mikil
þörf sé fyrri fisk og fiskafurðir
í bandalagsríltjunum, þá verði
bandalagið að taka sérstakt til-
lit til þeirra landa. sem mest við
skipti eiga við ríki þess á þessu
sviði.
Oskar danska stjórnin því eftir
að fá beina aðild að umræðum
þeim, sem nú standa yfir, því að
samvinna framleiðslu- og kaup-
landanna muni hafa góð áhrif á
fiskmarkaðsmálin.
„Eg hafði allan tímann betri stöðu“
- segir Friðrik Ólafsson í viðtali við Mbl. um
skákina, sem tryggði Islartdi sæti í A-flokki
FRIÐRIK ÓLAFSSON sýndi
það enn einu sinni og sannaði,
að hann er í sérflokki meðal
íslendinga í skákíþrótt. í gær
vann hann biðskák sina gegn
Indónesanum Bachatar og
lyfti þar með íslenzku slták-
sveitinni upp í A-flokk í úr-
slitakeppninni í Ilavana á
Kúbu.
Síðastliðinn þriðjud. reyndi
Mbl. að ná sambandi við
Friðrik Ólafsson. Reyndist
það þá ógerningur, þar eð
allar símalínur, sem til Kúbu
liggja voru pantaðar næsta
þrjá daga. Mbl. beið því
átekta og í gær var loksins
komin röðin að því, og við
náðum sambandi við Friðrik.
Okkur var að sjálfsögðu efst
í huga tapið gegn Indónesum
og við spurðum Friðrik, hvað
komið hefði fyrir. Hann svar-
aði:
— Ég bara satt að segja
veit það ekki. Þetta var auð-
vitað mikil taugaáreynsla og
Framhald á bls. 25.
Friðiik Ólafsson