Morgunblaðið - 05.11.1966, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 05.11.1966, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ Laugardagur 5. nóv. 1966 Útgefandi: Hf. Árvakur, Reykjavík. F; amkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson. Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigur. Matthías Johannessen. Eyjólfur Konráð Jónsson. Ritstjórnarfulltrúi: Þorbjörn Guðmundsson. Auglýsingar; Árni Garðar Kristinsson. Ritstjórn: Aðalstræti 6. Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480. Áskriftargjald kr. 105.00 á mánuði innar.lands. I lausasölu kr. 7.00 eintakið. GÆR UPÓLITÍK KOMMÚNISTA 17'ommúnistaflokkurinn á ís- landi hefur ekkert lært og engu gleymt. Hann heldur áfram þeirri gærupólitík, sem hann tók upp með stofnun „Sameiningarflokks alþýðu — sósíalistaflokksins11 árið 1938. Þá breiddu umboðsmenn hins alþjóðlega kommúnisma hér á landi yfir nafn og númer, eins og landhelgisbrjótar í landhelgi. Kommúnista flokks nafnið var lagt niður, en í þess stað tekið upp langt og sakleysislegt nafn, fullt af hræsni og yfirdrepsskap. En Héðinn heitinn Valdi- marsson, sem hjálpað hafði kommúnistum til þess að sníða þessa nýju gæru til þess að breiða yfir úlfshár komm- únismans, var fljótur að átta sig á því að ekkert hafði breytzt nema nafnið. Hann yfirgaf „Sameiningarflokk al- þýðu — Sósíalistaflokkinn“, og vildi enga bagga binda með honum. En allmargir þeirra, sem höfðu fylgt hon- um út í ævintýrið urðu eftir á fjörum kommúnista. Síðan liðu allmörg ár. Þá þurftu kommúnistar skyndi- lega á nýrri gæru að halda. Nýtt sprek hafði rekið á fjör- ur þeirra. Hannibal Valdi- marsson hafði brotið öll sín skip í Alþýðuflokknum og átti nú einskis annars úrkost- ar en að leita skjóls hjá um- boðsmönnum Moskvuvalds- ins á íslandi. Þá var sniðin ný gæra. Svokallað „Alþýðu- bandalag" varð til. Nokkru síðar var „Þjóðvarnarflokkur inn“ dreginn undir þessa sömu gæru. Þar hýrist hann ennþá. Undanfarið hafa nokkrir af bandingjum kommúnista haft uppi stór orð og heitingar um það að nú skyldi hnekkt yfir- tökum Moskvuvaldsins, og „Alþýðubandalagið“ gert að sjálfstæðum stjórnmálaflokki. Sá draumur er nú að engu orðinn. „Alþýðubandalagið“ hefur að vísu haldið „lands- fund“, en hann hefur engu getað um þokað. „Alþýðu- bandalagið“ er áfram sama gæran og það hefur verið frá upphafi. Sósíalistaflokkurinn hefur ekki verið lagður niður, eins og bandingjarnir ætluðu sér, og höfðu stór orð um. Hann er þvert á móti að halda þing um þessar mundir, og kommúnistablaðið slær því upp eins og það sé heimsvið- burður! „Alþýðubandalagið“ er ennþá í skugganum og sama gæran, sem aðeins er ætluð til þess að breiða yfir hin stríðandi og sundurleitu öfl við kosningar. Stefnan verður áfram mörkuð af um- boðsmönnum Moskvuvalds- ins. Þessar höfuðstaðreyndir eru öllum íslendingum ljósar. Það er þess vegna hróplegt að þeir menn innan „Alþýðu- bandalagsins11, sem vita að þeir eiga enga samleið með umboðsmönnum hins alþjóð- lega kommúnista skuli ekki hafa manndóm til þess að draga þá einu réttu ályktun af dýrkeyptri reynslu sinni, að segja skilið við þá og fylkja sér í sveit með lýð- ræðissinnuðu fólki. Héðinn Valdimarsson yfir- gaf kommúnista og Sósíalista flokkinn þegar hann hafði átt að sig á því að kommúnistar geta aldrei orðið lýðræðis- flokkur. Með þeim er aldrei hægt að skapa „einingu verka lýðsins“. Hannibal Valdimars son hélt að hann gæti það. Hann hélt líka að hann gæti alið kommúnista upp til lýð- ræðistrúar og útrýmt völdum Moskvumanna innan „Alþýðu bandalagsins“. Allt þetta hef- ur misheppnazt. En Alþýðu- bandalagsgæran á engu að síður að halda áfram að breiða yfir það, sem umfram allt verður að dylja íslenzkt fólk, að kommúnistarnir eru samir við sig, ag það eru þeir sem ráða ferðinni með bandingja sína í eftirdragi. ÞINGKOSNING- ARNARí DANMÖRKU ing hefur verið rofið í Dan- mörku og kösningar fara fram þar hinn 22. nóv. nk. Akvörðun þessi er tekin vegna þess að fyrirsjáanlegt var að skattahækkunarfrum- varp ríkisstjórnar Jens Otto Krag mundi ekki ná fram að ganga á danska þjóðinginu. Borgaraflokkarnir í Dan- mörku ættu að standa sæmi- lega að vígi í þessum kosn- ingum. Samstarf þeirra hefur verið gott á undanförnum ár- um og greinilegt er að jafn- aðarmenn eiga í verulegum erfiðleikum á Norður- löndum. Það var þróun, sem hófst í Noregi, og hélt áfram í Svíþjóð í sveitarstjórnar- kosningunum, sem þar fóru fram fyrir nokkru. Hins vegar er staðreyndin sú að samvinna Vinstri flokks ins og íhaldsflokksins í Dan- mörku, sem verið hefur náin á undanförnum árum, er nú ekki eins traust og oft áður og það getur haft einhver á- Vstó UTAN ÚR HEIMI „NJÚSNARINN SEM FÚR INNIKULDANN Kalla varð heim fjölda brezkra njósnara, er uppvíst varð um flótta Blakes frá Worwood Scrubs íí „KÆRI vinur“, var njósn- arinn Blake vanur að segja við samfanga sína, „þú verður aftur frjáls ferða þinna, áður en þú veizt af“. Enginn hafði neitt við slíka kímni að athuga, því að sjálfur var Blake að af- plána 42 ára fangelsisdóm — en það er harður dómur í Bretlandi. Fyrir rúmri viku, fimm árum eftir að dómur var kveðinn upp yfir Blake, var hann aftur frjáls ferða sinna. Sögusagnir hafa síð- an verið á lofti um, að sov- ézka leyniþjónustan hafi á einhvern hátt haft hönd í bagga, leyst Blake úr Wormwood Scrubs fang- elsinu og veitt honum hæli. Hafi svo veri’ð, þá er hér um verulegt afrek að ræða. Vissu- lega hljóta allir, sem fyrir sov ézku leyniþjónustuna starfa, að telja sig öruggari en áður — leggi þeir trúnað á, að hún hafi staðið fyrir flóttanum. Hins vegar hefur flóttinn vakið menn á Vesturlöndum til enn frekari hugsunar um öryggismál brezkra fangelsa. George Blake var ekki venjulegur njósnari. Hann er hollenzkur að uppruna, en gekk í brezka herinn á styrj- aldarárunum síðari. Síðar komst hann í mikið álit hjá MI 6, leyniþjónustunni brezku. 1950 féll Blake í hendur kommúnista í N-Kóreu. Á þeim þremur árum, sem hann var þar 'í haldi, tók hann kommúnisma. Hins vegar taldi MI 6 það ekki hættuspil að sýna honum fyllsta traust, er hann sneri loks aftur til Bret- lands. Á næstu árum notaði hann aðstöðu sína til þess a’ð vinna gegn Bretlandi, svo að um munaði. Er loksins var of- an af honum flett, kom í ljós, að hann bar ábyrgð á dauða a.m.k. 40 brezkra stórnjósn- ara. Auk þess hafði hann lagt í rúst stóran hluta njósnanets Breta í Mið-Austurlöndum og A-Evrópu. Það var hann, sem kom upp um símahleranir Bandaríkjamanna í A-Berlín. manna MI 6, því að þeirra fyrsta verk, eftir að um flótt- ann varð kunnugt, var að kalla heim njósnara sína, þ. e. a. s. þá, sem talið er, að Blake gæti enn komi’ð upp um. Er han.n var handtekinn, hafði hann með höndum margs kon- ar upplýsingar, sem honum hafði ekki enn tekizt að koma á framfæri við sovézku leyni- þjónustuna. MI 5, brezka gagDT\jósnadeildin, lét þegar hendur standa fram úr erm- um, og fyrirskipaði flutning 9 stórnjósnara, sem í haldi eru í Bretlandi, til „öruggra fang- George Blake. Fátt eitt hefur komið í ljós við rannsókn á flótta Blekes, sem varpað getur ljósi á at- burðinn og aðdraganda hans. Utan fangelsismúrsins stóð blómapottur, og mun hann hafa verið merki um, hvar bifreiðin, sem notúð var við flóttann, skyldi bíða. Þar nærri fannst stigi úr nælon- efní. Hann hafði verið styrkt- ur með bandprjónum. Hefur það komið mörgum á óvart. Fleiri verksummerki var ekki að sjá. Það kann að hafa verið ástæðan til þess, að fyrr verandi starfsmaður brezku leyniþjónustunnar sagði við fréttamenn. „Ég tel ekki neinn vafa á því leika, að „ákveðinn hópur manna“ (sovézka leyni- þjónustan) „stó’ð að baki flótt- anum. Þeir hafa. vafalaust beð ið hans með flugfarmiða og falskt vegabréf“. MI 6 hefur hvað eftir annað orðið fyrir marglháttuðum á- föllum, og má þar nefna m.a. mál njósnaranna Guy Burg- ess og Donald Macleans. Flótti Blakes hefur greinilega vald- ið miklum ugg meðal ráða- elsa“. Þaðan á flótti að vera óhugsandi. Þessar ráðstafanir nægðu þó ekki til þess að kveða niður óánægju- og gagnrýnisraddir í neðri málstofu brezka þings- ins, er flótta Blakes bar þar á góma. Þingmenn fhalds- og Verkamannaflokksins tóku þar höndum saman í gagnrýni sinni. Þótt innanríkisráðherr- ann, Roy Jenkins, gæfi út yfir lýsingu þess efnis, að hann ihefði skipað Mountbatten, lávafð, yfirmann sérstakrar nefndar, sem kanna skyldi ör- yggisráðstafanir í brezkum fangelsum, kom það ekki í veg fyrir rpótmælayfirlýsingu þing manna íhaldsflokksins. Ein afleiðingin er sú, að nú er í óða önn verið að breyta Wormwood Scrubs í „fullkom lega öruggt fangelsi“. Er verið að reisa þar vakt- turna, setja upp kastljós og sjónvarpstæki, allt að banda- rískri fyrirmynd. Þessar ráð- stafanir koma þó of seint til, því að Blake, einn hættuieg- asti fángi Breta, var floginn — „inn í kuldann". hrif á aðstöðu borgaraflokk- anna í þessum kosningum. Þá skapar það einnig nokkra óvissu að almennt hafði ekki verið búizt við þingkosningum fyrr en í vor, og stjórnmálaflokkarnir því lítt undir þær búnir. BREYTINGAR í AÐSIGI í VESTUR ÞÝZKALANDI C*tjórnmálaástandið í Vestur- ^ Þýzkalandi er enn mjög ó- víst, en þó benda allar líkur til þess að Ludwig Erhard, sem verið hefur kanzlari frá því að dr. Adenauer lét af völdum, muni hverfa úr kanzl araembættinu, en allt er enn á huldu um það, hver við tek- ur og vafalaust mjög hörð á- tök um eftirmann Erhards. Þessar breytingar í vestur- þýzkum stjórnmálum koma á sama tíma og öll málefni Þýzkalands eru mjög í deigl- unni. Áhrifamiklir forystu- menn Kristilega demókrata- flokksins hafa sett fram rót- tækar skoðanir um lausn Þýzkalandsmálanna og ýmis- legt bendir til þess að breytt viðhorf séu að skapast til þeirra í austri og vestri. Þess vegna er ekki ólíklegt að í kjölfar stjórnarskipta í Vestur-Þýzkalandi fylgi nokk ur umbrot í evrópskum stjórn málum, og að gerðar verði alvarlegar tilraunir til þess að finna lausn á Þýzkalandsmál- inu, sem tryggi frið og öryggi í Evrópu. En engum dylst að Erhard hefur unnið mikið og merkilegt starf í þýzkum stjórnmálum, og þá fyrst og fremst á sviði efnahagsmála.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.