Morgunblaðið - 05.11.1966, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 05.11.1966, Blaðsíða 8
8 MOKGU N BLAÐIÐ Laugardagur 5. nðv. 1966 Frumleg og glœsileg Búfjárfrœði komin út KOMIN ER út hjá Bókafor- lagi Odds Björnssonar á Akur eyri, Búfjárfræði Gunnars Bjarnasonar kennara og ráðu nauts á Hvanneyri. Búfjár- fræði þessi er einkar glæsi- legt rit og í mjög nýstárlegu formi, þar sem hér er um lausblaðabók að ræða. Er því mjög auðvelt að auka bókina ®g endurbæta, ef þurfa þykir í framtíðinni, án þess að gefa hana út að fullu á nýjan leik. Bók þessi er á sjöunda hundrað blaðsíður að stærð, en er ekki með hlaupandi blaðsíðutali, svo sem venja er til um bækur, heldur er blaðsíðutalið innan hvers málaflokks, sem bókin fjall ar um. Efnisyfirlit er mjög ítar- legt og einkar aðgengilegt að finna hvern efnisflokk fyrir sig. Bók þessi er í stóru broti í 15 köflum, sem heita: Um útgáfuna, inngangur, erfðafræði, kynbóta- fræði, lífeðlisfræði, fóðurfræði, nautgriparækt, sauðfjárrækt, hrossarækt, svinarækt, hænsna- rækt, önnur nytjadýr, fóðurgild- istafla, upplýsingablöð og heim- ilisskrá. Bókin er prýdd fjölda mynda og skýringartafla og með mörg- um skýrslueyðublöðum, sem gætu gefið bændum mjög mik- ilsverðar upplýsingar, ef þeir í ícrefwd-hóldanaut Aljcrdcen-Angu* hotáakvr Hér er litmyndasíða af ýmsum kúastofnum, en þvi miður getum við ekki sýnt lesendum þessa fallegu síðu i litum. keypt hana og mun það óvenju- legt að nemendur kaupi kennslu bók áður en að því kemur að þeir þurfi að læra hana. Það vakti athygli á pósthúsinu á Akureyri að þegar bókin var send áskrifendum var það stærsta póstsending, sem komið hafði frá einum aðila á pósthúsið á Akureyri, en þyngd sendingar innar var eitt og hálft tonn. Bókin hefst á formála útgef- anda og segir þar að bókin sé gefin út til að heiðra Bænda- skólann á Hvanneyri, sem varð 75 ára árið 1964. í>á kemur formáli höfundar og rekur hann tilefni þess að hann stendur einn að samningu bókarinnar að mestu. Segir hann að búfjárfræði verði að vera eins fræðileg og unnt er, en þó stutt og ekki af þung. Við fljóta skoðun bókarinnar virðist hún sérstaklega aðgengi- leg sem kennslubók og fræðirit fyrir alla bændur, sem fylgjast vilja með nýjungum á sviði bú- fjárfræði og ómetanlegur hlýtur sá kostur að vera að ávalt skuli hægt að hafa bókina sem nýja af nálinni, þar sem svo auðvelt er að endurnýja kafla hennar og færa inn nýjungar og það sem í ljós kann að koma að sannara reynist en bókin skýrir frá í eldra formi. Ekki er nokkur vafi á því er hér brotið blað í útgáfu kennslu bóka, en þær úreldast, sem kunn ugt er, þó ekki að öllu og ónauð- synlegt að prenta þær alveg upp. Séu þær í lausblaðabroti sem þessi, er jafnan hægt að láta þær fylgja kröfum tímans. Margar fallegar litmyndir eru í bókinni. Bókaforlag Odds Björnssonar á Akureyri kostar útgáfu bókar- innar og hún er prentuð í Prent verki Odds Björnssonar. BJARN! BEINTEINSSON LOGFRCÐINIiUR AUSTURSTRÆTI 17 (SILLI • VALD® SlMI IISK Siui-íhvrníngr Gunnar Bjarnason kennari og ráðunautur. fylltu út og hagnýttu sér. Bókin kostar 1400 krónur og hefir þegar verið send áskrifendum, sem voru fyrirfram um 600 talsins, en bókin er gefin út í 2500 ein- tökum. Allir kaupendur bókar- innar eru skrásettir hjá forlaginu sem um áskrifendur væri að ræða. Þegar nýir kaflar verða prentaðir í framtíðinni verður hverjum bókareiganda gefinn kostur á að fá hinn nýja kafla fyr ir það verð, er ákveðið er hverju sinni. Sé um hreinar Ieiðrétting ar að ræða fá kaupendur þær endurgjaldslaust. Óhætt mun að fullyrða að engin hliðstæð bú- fjárfræði hefir verið gefin út á Norðurlöndum a.m.k. Þessi bók bætir úr brýnni þörf þar sem Búfjárfræði hefir ekki verið til nema í fjölrituðu formi í rúma tvo áratugí. Áskrifendur allir hafa þegar fengið bókina og hún er tekin í notkun við kennslu við bænda skólana bæði á Hvanneyri og Hólum. Það þykir vert til frásagn ar að yngri nemendur við bænda skólana þurfa ekki að læra þessa bók fyrr en er fram í námið sæk ir, en margir þeirra hafa þegar Haustsýning opnud í Asgrímssafni ÁRIÐ 1960 var hús Ásgríms Jónssonar opnað almenningi, og hafa myndir þær sem hann á- nafnaði þjóðinni verið sýndar þar. í heimili hans og vinnu- stofu er aðeins hægt að sýna í einu 30—40 myndir. Var því í upphafi ákveðið að skipta um listaverk, og hafa síðan verið 3 sýningar á ári hverju. Nú er að mestu leyti lokið sýningu allra vatnslita- og olíu- málverka, en nokkur stór mál- verk sem meira rúm þurfa en gefst í húsi Ásgrims, verða að bíða rýmri húsakynna. Fjöldi þjóðsagnateikninga ligg- ur enn í möppum óinnrammað- ur. Þegar lokið verður innrömm- un á þessum myndum er ráð- gert af forráðamönnum safnsins, að opna sýningu á teikningum eingöngu. Stjórn Ásgrimssafns hefur á- kveðið að framvegis verði þrjá sýningar á ári, og vill með því gefa fólki kost á að skoða mynd- listargjöf Ásgríms Jónssonar á nýjan leik. Á morgun verður opnuð haust- sýning Ásgrímssafns. Eru m. a. sýndar vatnslitamyndir sem mál- aðar eru á Þingvöllum að haustí til. Þessi sýning nær yfir hálfrar aldar tímabil. Eins og undanfarin ár kemur út á vegum safnsins nýtt jóla- kort. Er það gert eftir vatnslita- mynd frá hverasvæðinu í Krýsu- vík. Ásgrímssafn, Bergstaðastræti 74, er opið sunnudaga, þriðju- daga og fimmtudaga frá Kl. 1.30—4. Aðgangur ókeypis. Kýr ,í Eyjaltýni »R, 0, fcj.) S«-amk(<>i4ó« iócli Iívt Kyr nortltu nuðvi kyrxi <N. R, f .> larry Sítaines LINOLEUM flísar í viða viðarlitum. Fjölbreytt úrvat. Söluumboð í Kefla- vik: Björn og Einar. iLITAVERSf byggingavörur GRENSÁSVEG 22-24IHORNI MÍKLUBRAUTAR) SIMAR 30280 8, 32262 Stundið veiðarnar með Olympíumeistara Það er hægt með því að nota ANSCHÚTZ sport- riffilinn caliber .222, sem byggður er eftir ANS- CHÚTZ MATCH 54 formúlunni, en með þeim teg- undum hafa unnizt fleixi alþjóða- og Olympíukeppn ir fyrir minni hlaupvíddir en með nokkrum öðrum. Einstiga og tveggja stiga gikkir, sem hægt er að stilla fullkomlega. Hlaupið er rennt af nákvæmni og yfirfellt. Rfillskeftið er úr fallega útskorinni franskri valhnotu. SPORTVÚIWHÚS REYKJAVÍKUR Óðinsgötu 7 — Sími 1-64-88. — Elzta sportvöruverzlun landsins — Husqvarna 1000 GAGNLEGASTI MUNAÐUR HEIMILISINS Nýja Husqvama 2000 er með hagkvæmum nýjungum sem gerir saumaskapinn enn einfaldari og skemmti- legri en nokkru sinni áður. Nýja Husqvarna 2000 hefur alla mynztur og nytja- sauma sem þér þarfnizt og gerir m. a. alla tímafreka vinnu, sem þér áður urðuð að gera í höndum. Nýja Husqvama 2000 sparar yður margan þúsund- krónaseðilinn í fatakaupum á einu ári. GUNNIR ÁSGEIRSSON H. F.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.