Morgunblaðið - 05.11.1966, Side 2

Morgunblaðið - 05.11.1966, Side 2
2 MORGU NBLAÐIÐ Laugardagur 5. nðv. 1966 Innvigtunargjaldið verður ekki innheimt Smjörhhgbir hafa minnkab um 12,9°/o FRAMLEIÐSLURÁÐ land- búnaðarins sendi frá sér fréttatilkynningu í gær þar sem skýrt er frá mjólkurfram leiðslunni og ástandinu í þeim málum nú, og ennfrem- ur hvaða ráðstafanir Fram- leiðsluráð hefir ákveðið að gera í því sambandi Fyrsta á- kvörðun ráðsins er sú að inn heimta ekkert af svonefndu innviktunargjaldi, sem hald- ið var eftir í mjólkurbúum frá 1. maí og til ágústloka. Upphæð sú nam orðið í heild um 25 milljónum króna, sem mjólkurhúin geta nú greitt framleiðendum. Fréttatilkynning Fram- leiðsluráðs hljóðar svo: Fréttatilkynning Framleiðslu- ráðsins hljóðar svo: „Á fundum Framleiðsluráðs landbúnaðarins þann 28. sept. og 21. október sl. var rætt um ástand og horfur í framleiðslu- og sölumálum landbúnaðarins. Kom þar fram, að mjólkurfram- Ekið á hest EKIÐ var á hest á Suðurlands vegi í Ölfusi sl. fimmtudag. Ekki er enn vitað hver eigandi hestsins er, en hesturinn er brúnn, tvístjörnóttur og mark hans er biti aftan hægra. Hann hefur verið járnaður fyrir skömmu. Auk þess, sem eigandi hestsins er beðinn að gefa sig fram við lögregluna á Selfossi hið skjótasta, er kona á Zephyr- bifreið, sem kom á slysstað en ók þaðan strax aftur, einnig beðin um að hafa samband við lögregluna á Selfossi. Þá eru aðrir sjónarvottar hvattir til að hafa tal af lögreglunni. leiðslan á fyrstu 9 mánuðum yfirstandandi árs, er rösklega 3% minni, en á sama tíma í fyrra. Nýmjólkursalan hefur hinsvegar aukizt, á sama timabili um tæp 1,5%. Við áætlunargerð á útflutn- ingsbótaþörf landbúnaðarins sl. vetur þótti ekki varlegt að reikna með minni aukningu á mjólkurframleiðslunni en 5%, líkt og verið hafði undanfarin ár. Er mjólkurframleiðslan því um 8% minni, én áætlað var. f byrjun ársins voru til 1168 lestir af smjöri í landinu, á móti 500 lestum í byrjun ársins 1965. Smjörframleiðslan síðustu 9 mánuði hefur orðið rúm 1100 tonn, en var á sama tímabili í fyrra 1558 tonn, og hefur því dregizt saman um 458 tonn, eða 28,6%. Smjörsalan hefur orðið rúm 1200 tonn, frá síðustu ára- mótum, en var á sama tímabili í fyrra 817 tonn. Salan hefur þvi aukizt um 383 tonn, eða um 47,1%. í lok septembermánaðar sl. voru smjörbirgðirnar um 1080 tonn en voru á sama tíma í fyrra 1240 tonn. Smjörbirgðirn- ar hafa því minnkað um 160 tonn eða 12,9%. Ekki liggja fyrir endanlegar tölur um kjötframleiðsluna á þessu hausti, en vitað er, að fall- þungi dilka er nú almennt minni en í fyrra. Hinsvegar mun tala sláturfjárins vera eitthvað hærri. Sennilegt þykir því, að svipað kjötmagn berist slátur- húsunum nú og í fyrrahaust . Það var upplýst að sala upp- bótaskyldra afurða erlendis hef- ur gengið betur og fyrir afurð- írnar hefur fengizt hærra verð, að meðaltali, en reiknað var með við áætlanagerð um út- flutningsbætur sl. vetur og vor. iggur þetta að mestu í því að tekizt hefur að selja meira til þeirra landa, sem greiða vör- urnar hærra verði og hefur þá verið unnt að draga úr út- flutningi til þeirra landa, sem Dregið eftir 3 daga Nú ter hver að verða síðastur að tryggja sér miða í glœsilegasta bílahappdrœtti ársins Nú eru aðeins þrír dagar þar til dregið verður í Landshapp- drætti Sjálfstæðisflokksins, glæsilegasta bíihappdrætti árs- ins. Vinningar eru þrjár handarisk ar fólksbifreiðir, af gerðunum Rambier American, Plymouth Valiant og Dodge Dart, allt 1967 gerðir. Samanlagt verðmæti þessara vinninga er liðlega ein milljón króna, og má því segja, að hér sé kjörið tækifæri til þess að eignast mikið fyrir lítið, því að miðinn kostar aðeins 100 krónur. Blað burðarfólk vantor í eftirtalin hverii: Faxaskjól Efstasund Lynghagi Fálkagata Kleifarvegur Austurbrún Ásvallagata Lambastaðahverfi 1 Fossvogsblettur 1 Talið við aigreiðsluna simi 22 4Í % . . Y. Y 10 W&M ■ greiða lægst verð. Gildir þotta fyrst og fremst um dilkakjöúö og ostinn. Að öllu þessu athuguðu, hefur Framleiðsluráðið ákveðið eítir- farandi: 1. Að innheimta ekkert af hinu svokallaða innvigtunargjaldi af mjólk, sem ákveðið var að halda eftir af útborgunarverði til framleiðenda sl. sumar. Koma þar einnig til þær ráðstafanir, sem gerðar voru í sambandi við verðlagssamningana í septem- mánuði sl. og sem munu auð- velda mjólkursamlögunum að greiða til framleiðenda hið svo- kallaða grundvallarverð. 2. að hækka smjörverðið, vegna þeirrar verðlækkunar, sem Framleiðsluráðið ákvað 16. maí sl., í áföngum. Fyrsti hluti þeirrar hækkunar kom til fram- kvæmda 1. október sl. Var sú hækkun kr. 23.00 á heildsölu- verðinu, en ríkisstjórnin ákvað að auka niðurgreiðsluna á smjöri um þá upphæð svo hið lága útsöluverð þess gæti hald- izt enn um stund. 3. Framleiðsluráðið ákvað einnig að lækka hið svokallaða verðmiðlunargjald af seldri mjólk, yfir mánuðina október, nóvember og desember, úr 30 aurum í 10 aura pr. ltr. Þessi ráðstöfun er fyrst og fremst gerð til þess að örfa framleiðslu mjólkur að haustinu á hinum svo kölluðu mjólkursölusvæðum og einmg til þess að mæta auka- kostnaði sem sérstaklega fellur á nokkur samlögin í haust vegna flutnings á mjólk, rjóma og skyri milli sölusvæða. 4. Rétt þykir að nota þetta tækifær* til að skýra nokkuð það verðjöfnunargjald", sem ákveð- ið var að fela sláturleyfishöfum að halda eftir af andvirði kjöts- ins sl. haust. Frá því afurðasölulögin voru sett haustið 1934 hefur það jafn- an verið regla að tilgreina í sláturleyfum, þegar þau eru send út í ágústmánuði, ár hvert, hve mikinn hluta af andvirði kjötsins sláturleyfishafa ber að halda eftir upp í verðjöfnunar- gjald. Þegar svo séð verður hversu mikil framleiðslan er og hvað verður um sölu hennar, hefur verið tekin endanleg ákvörðun um upphæð gjaldsins, og venjulega hefur þá aðeins litill hluti þess, sem haldið var eftir, verið endanlega tekin í verðjöfnunargjald. Á þessu hausti hefur verið hafður sami háttur á um þetta og áður. Lagt var fyrir slátur- leyfishafana að halda eftir kr. 2,00 af hverju kg. dilka og geld- fjárkjöts og kr. 1,00 af hverju kg. ær- og hrútakjöts. Á þetta hefur ávallt verið litið sem ör- yggisráðstöfun, nú í haust eins og áður. Þetta á heldur ekki að koma við útborgun til bænda, því flestir sláturleyfishafar halda hærri fjárhæð eftir af andvirði kjötsins, en hér um ræðir, þar til endanleg útborgun getur farið fram. Engar líkur telur Framleiðslu- ráðið á því að taka þurfi hærra verðjöfunargjald af kjötinu þessu sinni, en þarf til þess að jafna flutningskostnaðinn frá sláturhúsi á markaðsstað. Tii þess hefur þurft milli 50 og 60 aura á kg. undanfarin ár. Framleiðsluráð landbúnaðarins“. Aðvörunarmiðar um slitna hjólbarða Lögreglan mun á næstunni hefja aðgerðir í þá áttt að koma í veg fyrir að hjólbarðar á öku tækjum séu of slitnir. Samkv. lögum á slitflötur gúmmíbarða að vera mynztraður og skulu raufar á mynztrinu vera a.m.k. 2 mm á dýpt, og mun lögreglan mjög herða eftirlit um að svo sé. t því skyni hefur hún látið gera aðvörunarmiða, sem eru í formi gömlu bifreiðarinnar, sem mynd er af hér fyrir ofan, en inn í miðann eru letruð hvatningar og aðvörunarorð til ökumanna að skipta um hjólbarða sem fyrst. Lögregluþjónar munu fara mcð þessa miða á mannamót, þar sem mikið er um bifreiðar, eins og t. d. á íþróttakappleiki, og gæta að hvort hjólbarðar á bifreiðum eru of slitnir. Ef svo er munu ökumenn verða varir við þessa miða festa á þurrkur bifreiðar sínar. Byggðahing SUS á morgun Á Akranesi, Reyðarfirði og Selfossi Heimir félag ungra Sjálfstæð- ismanna í Keflavík heldur aðal- fund sunnudaginn 6, nóv. kl. 1 síðdegis í Sj álfstæðishúsinu uppi. Ungir Sj álfstæðismenn eru hvatt ir til að fjölmenna á fundinn stundvíslega. Á morgun efnir Samband ungra Sjálfstæðismanna til þriggja byggðaþinga á Akranesi, Selfossi og Reyðarfirði, en svo sem kunnugt er tókust byggða- þingin sem haldin voru us sl. helgi með afbrigðum vel. Á byggðaþinginu á morgun munu ráðherrar Sjálfstæðisflokk sins og þingmenn flytja ræður og ávörp en síðan verða almennar Höfundarnafn féll niður f TÓNLISTARGAGNÝNI í blað- inu í gær undir fyrirsögninni „Kaffihússkeimur“, féll niður nafn höfundar Þorkels Sigur- björnssonar. Er hann beðinn af- sökunar á þeim mistökum. umræður um hagsmunamál lands hlutanna. Bjarni Benediktsson tal ar á Reyðarfirði, Jóhann Haf- stein dómsmálaráðherra á Akra- nesi og Ingólfur Jónsson land- búnaðarráðherra á Selfossi. ^yílgðaþingin eru opin öllum yngri sem eldri og er allt Sjálf- stæðisfólk hvatt til þess að fjöl- menna á þau. VorSarlélagar Skrifstofa Landshappdrættis Sjálfstæðisflokksins verður opin til kl. 19 í dag. Noti’ð tækifærið og geríð skil á heimsendum happ drættismiðum. Dregið verður eft ir þrjá daga, svo að nú eru að verða síðustu forvöð. CeHverndaríélagið heiur merkjasðln ó morgun Geðverndarfélag fslands hefur merkjasölu til ágóða fyrir starf- semi sína á morgun, sunnudag, í Reykjavík og nágrenni (að undanskilinni Langholtssókn, þar sem önnur merkjasala fer fram). Menntaskóianemendur munu sjá um dreifingu merkja með að- stoð skólabarna í Reykjavík. Skólabörn, sem selja vilja merki, eiga að koma hvert í sinn skóla (utan Langholtssóknar). Páll Sigurðsson, tryggingayfir læknir (yngri), flytur ávarp í Ríkisútvarpið á vegum geðvernd arfélagsins í dag, laugardag. Geðverndarfélag íslands var stofnað haustið 1949. Það er að- ili að Öryrkjabandalagi íslands, svo og að „World Federation for Mental Health“ í Genf. Tilgang- ur félagsins er að leggja öllum geðverndarmálum lið, en fullur þriðjungur íslenzkra öryrkja er það af völdum tauga -og geðsjúk dóms, og talið er að um 350 sjúkraúm vanti enn hérlendis ,il þess að fullnægja brýnustu þörf á þessu sviði. Kjartan J. Jóhannsson, hér- aðslæknir í Kópavogi, er for- maður Geðverndarfélags íslanös. Benedikt Tómasson, skólayfir- læknir, er varaformaður, Tómas Helgason, prófessor, er ritari og frú Áslaug Sívertsen er gjald- keri. Meðstjórnendur eru Grím- ur Magnússon, læknir, frú Jo- hanna Baldursdóttir og Jón H. Bergs, forstjóri. Framkvæmda- stjóri félagsins er Ásgeir Bjarna son. Félagið gefur út tímaritið „Geðvernd". Fyrsta heftið kom út snemma á þessu ári, og annað hefti er væntanlegt nú í nóvem- ber. Félagsmenn fá það ókeypis, en árgjald félagsmanna er 100 kr. Félagið hefur skrifstofu í Veltusundi 3.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.