Morgunblaðið - 05.11.1966, Side 7
Laugardagur 5 nóv. 1960
MORCUNBLAÐIÐ
7
Duglegur stúlkur sufnu stórfé
l»i,SSAK 4 ungu stúlkur komu til Morgunblaðsins með kr. 7.000.00, sem þær höfðu safnað með því
að ganga í hús, og afhentu í söfnunina til litla drengsins með hjartagallann. Þær eru allar í Hlíð-
arskóla, og heita: Álfheiður Vilhjálmsdóttir, 11 ára, Safamýri 50, Ásgerður Karlsdóttir, 11 ára,
Hvassaleiti 30, Birna Garðarsdóttir, 11 ára, Hvassaleiti 30 og Þórheiður Einarsdóttir, 11 ára,
Stórholti 27.
FRÉTTIR
Hjálpræðisherinn
Sunnudag bjóðum við alla vel-
komna á samkomu kl. 11:30 og
kl. 20:30. Kl. 14:00 Sunnudaga-
skólinn. Kl. 17:00 Samkoma fyrir
alla fjölskylduna. Yngri liðs-
mennirnir syngja og sýna. Mánu
dag kl. 16:00 Heimilasambandið.
Merkjasala Geðverndarfélags
íslands er á morgun, sunnudag-
inn 6. nóvember, í Reykjavík og
nágrenni, nema innan Langholts
sóknar. — Menntaskólanemend-
ur sjá um dreifingu merkjanna
með aðstoð skólabarna. — Þau
skólabörn, sem selja vilja merki
í Reykjavík og nágrenni, komi
hvert í sinn skóla, nema innan
Langholtssóknar, þar sem skól-
ar eru uppteknir vegna annars.
^ Heimatrúboðið.
Vakningasamkoma í kvöld og
sunnudagskvöld. Sunnudagaskóli
kl. 10:30. Verið velkomin.
Kvennadeild Slysavarnafé-
lagsins i Reykjavík heldur fund
mánudaginn 7. nóv. kl. 8:30 í
Sjálfstæðishúsinu. Þar skemmta
Gunnar Eyjólfsson og Bessi
iBjarnason. Rædd ýms félagsmál.
Fjölmennið. Stjórnin.
Kvenfélagið Keðjan
Fundur að Bárugötu 11 mánu-
daginn 7. nóv. kl. 8:30. Fjöl-
mennið. Stjórnin.
Almennar samkomur. Boðun
Fagnaðarerindisins. Á sunnudög-
um á Austurgötu 6, Hf. kl. 10 ár-
degis, að Hörgshlíð, 12 Rvík kl.
£ síðdegis. Allir velkomnir.
Filadelfía hefur sunnudaga-
skóla kl. 10:30 á þessum stöðum
Hátúni 2 og Herjólfsgötu 8, Hf.
Bænastaðurinn Fálkagötu 10.
Kristileg samkoma sunnudag-
Inn 6. nóv. kl. 4. Bænastund alla
virka daga kl. 7. Allir velkomn-
Brærafélag Hallgrímssóknar:
— Stofnfundur Bræðrafélags
Hallgrímssóknar verður haldinn
næstkomandi sunnudag 6. nóv-
ember kl. 8:30 í kirkjunni. Frum-
mælandi verður Hjalti Zóphóní-
asson stud. jur.
Sóknarprestarnir.
i K.F.U.M. og K. í Hafnarfirði.
Almenn samkoma á sunnudags
kvöld kl. 8:30. Jóhannes Sigurðs
son talar. Allir velkomnir. Ung-
lingadeildin. Fundur mánudags-
kvöld kl. 8.
Bræðrafélag Nessóknar
Þriðjudaginn 8. nóv. kl. 8:30
fiytur Helgi Tryggvason kennari
biblíuskýringar í Félagsheimili
Neskirkju. Allir velkomnir. —
Stjórnin.
Æskulýðsstarf Neskirkju
Fundur fyrir pilta 13—17 ára
verður í Félagsheimilinu mánu-
daginn 7. nóvember kl. 8:30. Opið
hús frá kl. 7:30. Frank M. Hall-
dórsson.
Kvanfélag Laugarnessóknar
heldur fund mánudaginn 7.
nóv. kl. 8:30. Konur fjölmennið
og skilið basarmunum. Upplest-
ur. Kaffi. Stjórnin.
Æskulýðsfélag Bústaðasóknar.
Eldri deild. Fundur í Réttar-
holtsskóla mánudagskvöld kl.
8:30. Stjórnin.
Langholtssöfnuður.
Kynningar- og spilakvöld
verður haldið í Safnaðarheimil-
inu súnnudagskvöldið 6. nóv. kl.
8:30. Kvikmyndasýning verður
fyrir börnin og þá sem ekki
spila. Kaffiveitingar. Verið vel-
komin. Safnaðarfélögin.
Bræðrafélag Langholtssafnað-
ar. Fundur verður að þessu sinni
16. nóv. kl. 8:30. Stjórnin.
Fíladelfía, Reykjavík
Sunnudaginn 6. nóv. ' verður
almenn samkoma að Hátúni 2
kl. 8. Ásmundur Eiríksson talar.
Fjöibreyttur söngur bæði frá
Reykjavík og Keflavík. Einleik-
ur á fiðlu: Árni Arinbjarnarson.
Fórn vegna kirkjubyggingar
safnaðarins. Safnaðarsamkoma
kl. 2.
Kristinboðsfélagið í Keflavík
heldur fund í Æskulýðsheimil-
inu mánudaginn 7. nóvember kl.
8:30. Allir velkomnir.
Sunnudagaskólar K.F.U.M. og
K. í Reykjavík og Hafnarfirði
hefjast kl. 10:30. Öll börn eru
hjartanlega velkomin.
Kvenfélag Hallgrímskirkju
heldur fund í Iðnskólanum
mánudaginn 7. nóv. kl. 8:30.
Fundarefni: Séra Ingólfur Ást-
marsson flytur hugleiðingu. Frú
Sigríður Björnsdóttir les upp
frumsamið efni: Kvikmyndasýn-
ing. Kaffi. Félagskonur taki með
sér gesti.
Árnesingafélagið í Reykjavík
heldur aðalfund sinn í Hótel
Sögu (Bláa salnum) þriðjudag-
inn 8. nóv. kl. 8:30.
Skaftfellingafélagið í Reykja-
vík býður Skaftfellingum 65 ára
og eldri til kaffidrykkju að
Skipholti 70 kl. 3 síðdegis sunnu
daginn 6. nóvember.
Bolvíkingafélagið í Reykjavík.
Aðalfundur verður haldinn
konur og aðir velunnarar félags
sunnudaginn 6. nóvember í
Breiðfirðingabúð uppi kl. 3,30
síðdegis. Venjuleg aðalfundar-
störf. Stjórnin.
Kvenfélag LaugarneSsóknar
heldur basar í Laugarnesskóla
laugardaginn 19. nóv. Félags-
ins styðjið okkur í starfi með
því að gefa eða safna munum til
basarsins. Upplýsingar gefnar í
símum: 34544, 32060 og 40373.
Verkakvennafélagið Framsókn
heldur basar 9. nóvember n.k. fé-
lagskonur vinsamlegast komið
gjöfum sem fyrst á skrifstofu fé-
lagsins í Alþýðuhúsinu. Skrifstof-
an opin frá kl. 2—6 e.h.
Bazarnefnd.
Mæðrafélagskonur. Munið bas
arinn 8. nóv. Verið duglegar að
vinna og safna munum. Nefndin.
Kvenfélag Grensássóknar held
ur basar sunnudaginn 6. nóvem-
ber í Félagsheimili Víkings. Fé-
lagskonur og aðrir velunnarar
félagsins eru beðnir að koma
gjöfum til: Kristveigar Björns-
dóttur, Hvasstleiti 77, Ragnhild-
ar Eliasdóttur .Hvassaleiti 6 og
Laufeyjar Hallgrímsdóttur, Heið
argerði 27.
Mæðrafélagskonur: Munið bas
arinn í Góðtemplarahúsinu
þriðjudaginn 8. nóv. kl. 2. Mun-
um sé skilað til Ágústu Kvisathag
19, Þórunnar Suðurlandsbraut
87, Dórótheu Skúlagötu 76, Guð-
rúnar Dragavegi 3 og Vilborgar
Hólmgarði 28, eða í Gúttó kl.
9—11 f.h. basardaginn. Nefndin.
Kvenfélag Langholtssafnaðar
heldur basar 12. nóvembdr. Kon-
ur, verum nú einu sinni enn sam
taka í söfnun og vinnu. Munir
vinsamlegast skilist til Ingibjarg-
ar Þórðard., Sólheimum 17, Vil-
helmínu Biering, Skipasundi 67
eða Oddrúnu Eliasdóttur, Nökkva
vogi 14.
Frá kvenfélagssambandi Is-
lands. Leiðbeiningarstöð hus-
mæðra Laufásvegi 2 sími 10205
er opin alla virka daga frá kl.
3—5 nema laugardaga.
Kvenfélag Háteigssóknar:
Hinn árlegi basar Kvenfélags
Háteigssóknar, verður haldinn
mánudaginn 7. nóvember n.k. í
„GUTTÓ“ eins og venjulega og
hefst kl .2 e.h. Félagskonur og
aðrir velunnarar kvenfélagsins,
eru beðnir að koma gjöfum til:
Láru Böðvarsdóttur, Barmahlíð
54, Vilhelmínu Vilhjálmsdóttur,
Stigahlíð 4, Sólveigar Jónsdótt-
ur ,Stórholti 17, Máríu Hálfdánar
dóttur, Barmahlíð 36, Línu Grön-
dal, Flókagötu 58 og Laufeyjar
Guðjónsdóttur, Safamýri 34.
Nefndin.
Kristilegt félag hjúkrunar-
kvenna heldur almenna sam-
komu í húsi K.F.U.M. og K., Amt
mannsstíg 2 B föstudaginn 4.
nóv. kl. 8:30. Ingunn Gísladótir
hjúkrunarkona sýnir myndir frá
starfinu í Konsó. Jóhannes Ólafs
son kristniboðslæknir talar.
Söngur. Happdrætti. Ágóði af
happdrættinu rennur til sjúkra-
skýlisins í Konsó. Allir velkomn
ir.
VÍSUKORN
TIL HJÁLMARS SKÁLDS
FRÁ HOFI.
Hrífur þanka hreimurinn,
hryndir skýjabakka.
Gulli betri gimstein þinn
glaður vil ég þakka.
Sigfús Elíasson.
Útivist bornn
Skammdegið fer í hönd. Börn
eiga ekki heima á götunni.
Verndið börnin gegn hættum og
freistingum götunar og stuðlið
með því að bættum siðum og
betra heimilislifi.
Óska eftir atvinnu
Fullorðinn reglumaður. —
Ymis störf koma til greina,
svo sem við lagnir og fl.
Uppl. í síma 52176.
ítalskur matreiðslumaður
sem unnið hefur í Svíþjoð,
ítalíu og Þýzkalandi, óskar
eftir atvinnu strax. Tilboð
sendist Mbl. fyrir 10. nóv.
merkt: „Italskur — 8881“.
Fataskápur
Notaður fataskápur óskasl
keyptur, helzt með renni-
hurð, ekki málaður. Upp-
lýsingar í síma 35096. —
Sem nýr Pedegree-barna-
vagn til sölu á sama stað.
Húsmæður — stofnanir
Vélhreingerning — ódýr og
vönduð vinna. Vanir menn.
Ræsting s.f. Sími 14096.
Bíll til sölu
Land-Rover bifreið til sölu,
árg. 1966. Til greina kemur
skipti á litlum fólksbíl. —
Uppl. í síma 10517.
Til sölu
Mótatimbur, notað einu
sinni, 1x4, 1x6, 1x5. Upp-
lýsingar í síma 1475, Keflu
vík.
Keflavík
Ford picup ’59, til sölu.
Uppl. í síma 2452.
Stýrimann
eða góðan háseta vantar á
góðan línubát sem rær frá
Sandgerði. Upplýsingar í
símum 2058, 2032 og 1084,
Keflavík.
Fíat 600
óskast til kaups gegn vel
tryggðum víxli, sem greið-
ist eftir eitt ár. Tilboð
sendist Mbl. fyrir mánu-
dagskvöld, merkt: „Góður
bíll — 8048“.
Fannhvítt frá Fönn
FÖNN þvær skyrturnar. —
Ath. rykþéttar plastumbúð
ir. — Sækjum — sendum.
— Fannhvítt frá Fönn,
Fjólugötu 19 b. Sími 17220
Keflavík
Svört terrylene pils;
crimplene pils.
Verzlunn^ FONS.
Keflavík
Tauscher sokkar, bronze
litir.
Verzlunin FONS.
Keflavík
Telpnabuxur úr terrylene
og ull, stærðir 10—14.
Verzlunin FONS.
Til sölu
Opel Caravan 1964, einka-
bíll. Útlit og ástand sem
nýtt. Bíllinn er til sýnis
á Flókagötu 45. Upplýsing-
ar sama stað 1 .hæð.
Sá,.sem tók kvenreiðhjól
við Kjörbúð Vesturbæjar,
við Melaskólann 2. nóv.,
milli kl. 9—12, geri svo
vel og hringi í síma 20042.
Til sölu
Chevrolet ’55, verð 30 þús
Plymouth ’53, verð 12 þús.
Báðir skoðaðir ’66. Upplýs
ingar í síma 23258.
Ráðskonu vantar
á fámennt heimili á Norð-
urlandi. Má hafa 1—2 börn.
Uppl. í síma 19200.
Miðstöðvarkerfi
Kemisk-hreinsum kísil- og
ryðmyndun í miðstöðvar-
kerfi, án þess að taka ofn-
ana frá. Uppl. í síma 33349.
Málverkasýiiing
Jutta B. Guðbergsson er
í Hótel Hveragerði.
Skrífstoíustúlka
Þekkt iðnfyrirtæki óskar að ráða skrifstofustúlku
strax. Aðeins kemur til greina stúlka með reynslu
i vélritun og öðrum skrifstofustörfum. Duglegri
stúlku bjóðast góð laun.
Umsóknir með uppl. um menntun og fyrri störf og
kaupkröfu sendist Mbl. merkt: „Skrifstofustúlka —
8880“ fyrir 7. þ.m.
Göm’u dansarnir
í kvöld kl. 9. — Miðasala ftá kl. 8.
'Jt
C/3
Hljómsveit hússins.
Dansstjóri:
Grettir Ásmundsson.
Söngkona Vala Bára.
O
,g