Morgunblaðið - 06.11.1966, Side 17

Morgunblaðið - 06.11.1966, Side 17
Sunnuclagur 8. n6*r. 1966 17 MORGUHBLAÐIÐ Erlingur Pálsson Eftir því, sem aldur færist yfir mann, eru meiri líkur til þess, ef hann bregður sér á brott þótt einungis stutta stund sé, að þá séu einhverjir samstarfsmenn Ihans og vinir horfnir á braut, þegar hann kemur heim aftur. Fleiri en sá, sem þetta ritar, munu sakria vinar í stað, þegar þeir mæta aldrei framar Erlingi Pálssyni á götum Reykjavíkur- borgar. í marga áratugi var það hans höfuðstarf, að halda þar uppi lögum og reglu. Erlingur vann flest störf sín í almannaug- sýn, svo að auðvelt var um að dæma. Hann þurfti heldur aldrei að fara í felur með athafnir sínar. Skyldurækni hans var með af- brigðum, og þegar í odda skarst, skorti hann ekki áræði. Starf sitt «em yfirlögregluþjónn Reykjavík ur á örasta vaxtarskeiði hennar leysti Erlingur af hendi við verð- skuldaða aðdáun þeirra, sem bezt kunnu um að dæma. Þetta var Akraborg siglir inn í Reykjavíkurhöfn á nöprum haustdegi, REYKJAVÍKURBRÉF V) mikið verk og vandasamt, og verður þó að draga í efa, áð nafn hans lifi lengst fyrir þær sakir. Ættlægur áhugi hans fyrir sundiþróttinni er öllum kunnur. Sjálfur vann hann fléiri meiri- háttar sundafrek en nokkur ann- ar samtíðarmaður hans hér á landi. Með þessu skapaði hann fordæmi, sem um langan aldur verður vöskum íslendingum hvatning til dáða. Aberfanslysið og Almannagjá Erfitt er að hugsa sér ömur- legra slys en það, sem gerðist í Aberfan í Wales nú fyrir skemmstu. Walesbúar eru van- ir slysförum. Þar í landi hafa menn lengi mátt búast við náma slysum á hverri stundu, með svipuðum hætti og sjóslysum við strendur íslands. Allt annað er þó, að fullorðnir menn taki á sig ahættu af starfi, sem þeir sjálfir velja, eða hvort börn hljóta bana fyrjr athugunarleysi eða hand- vömm. Orsakir hins hörmulega slyss eru nú í rannsókn. Skal hér sízt nokkuð um það sagt, hvort þar sé einhvern ákveðinn að saka. En víst er það, að meiri fyrirhyggja hefði forðað frá þessu slysi. Lítum því í okkar eigin barm, athugum hvort eitt- hvað svipað gæti komið hér fyr- ir. Þeim, sem til þekkir á Þing- völlum, kemur þá strax til hug- ar hættan á því, að steinn eða bjarg falli úr vestara barmi Al- mannagjár ofan á stóran bíl full an farþegum og valdi þar með stórslysi. Á meðan ekki er að gert. og alveg lokað fyrir bif- reiðaumferð unf gjána, þá er þessi hætta ætíð yfirvofandi. Þrátt fyrir mótmæli nokkurra skammsýnna manna, þá hefur nú verið ákveðið að færa umferð- ina úr gjánni. Þess vegna hefur vegur verið lagður upp á gjár- brúninni, en ekki er hægt að mýta hann til fulls fyrr en breikk aður hefur verið vegurinn frá Leirum, þar sem nýji vegurinn kemur ofan af gjárbarminum, tiiður að vegamótunum, suðaust- ur af Öxarár-fossi. f fyrra var um það talað að þessi vegur yrði iagaður eftir eitt eða tvö ár. Nú verður að ganga eftir því, að við það fyrirheit verði stað- ið. Látum fordæmið frá Wales verða okkur til varnaðar. ■LaugarcL 29. október Fa«;ur siður Eitt af því, sem skilur fslend- inga á þeirra fámenna eylandi frá fjölmennari þjóðum, er áhugi okkar fyrir hverjum ein- stakling. Þetta er mikill kostur og ætti að stuðla að því að ís- lendingar yrðu aldrei múgmenni. En einmitt óttinn við múg- mennsku og hvarf hvers ein- staks í mannmergðina, er eitt helzta áhyggjuefni margra á með al stórþjóðanna. Eitt af því, sem við, gagnstætt flestum eða öll- um öðrum þjóðum, höfum nú efnt til, er þjóðskrár allt frá upp hafi íslandsbyggðar. Að þessu er unnið fyrir atbeina Jóns á Reynistað og fleiri fróðleiks- manna. Að sjálfsögðu verður slík þjóðskrá ekki fullkomin en engu að síður ómetanleg heimild og uppistaða í sögu þjóðarinnar. Þessu náskylt er það, að minnast látinna manna með minningar- greinum í blöðum. Slíkt sýnir hollustu við látna vini, og getur verið ómetanleg uppspretta til fróðleiks fyrir síðari kynslóðir. En 'hér er mjótt mundangshófið. Það er fagurt og gott, að vinir minnast látins vinar en þegar fleiri en einn skrifa um sama mann í sama blað, þá er nóg, að í einni grein sé sagt frá helztu staðreyndum og æviatriðum. Eng um er til góðs, en öllum til leið- inda, að lesa sömu upptalning- una, ætt, ártöl, staðarnöfn og annað slíkt, aftur og aftur á sömu síðunni. Þetta er við- kvæmt mál, en ef rétt er með farið, þarf sízt að óttast aðstand- endur, sem auðvitað fýsir um- fram allt, að ástvina þeirra sé minnst með smekklegum hætti, en ekki ósmekklegum. „Ekki neitt feimnismál44 Fáir menn eru vinsælli en góð ir læknar. Á erfiðum stundum kemst enginn nær manni en skilningsríkur læknir. Starf hans verður þess vegna samofnara þjóðarvitundinni en flest önnur. Almenningur hér hefur og ætíð skilið gildi læknismenntunar. Læknaskóli var hin fyrsta kennslustofnun í æðri vísindum, sem hér var sett, næst presta- skóla á meðan þjóðin bjó við allsleysi. Læknar eru ölium mönn um viðbundnari og oft reynir meira á þá en aðra. Þess vegna hefur ætíð verið reynt að búa vel að læknum hér, og reynslan sýnir, að í heild hafa þeir kom- izt betur af en nokkur önnur stétt svokallaðra láerðra manna, eða a.m.k. jafn vel og þeir, sem bezt máttu hverju sinni, í þeim efnum er raunar allur metingur óviðeigandi, því að enginn tel- ur góða afkomu eftir lækni sín- um. Metingur óviðeig- andi Hingað til hafa menn þó tal- ið sjálfsagt, að læknar gættu þess í hvaða þjóðfélagi þeir ættu heima, og sættu sig við sam- bærileg lífskjör við þá aðra, er þar kæmust bezt af, eða a.m.k. hefðu hliðsjón af þeim. Á síð- ustu misserum hafa menn því miður þótzt verða annars var- ir. Nú í vikunni var það berum orðum sagt af ungum lækni i grein, sem birtist hér í blaðinu. Dr. Frosti Sigurjónsson segir i Morgunblaðinu 2. nóvember m. a. svo: „Það er algjörlega út i hött að bera laun lækna saman við laun annarra stétta hérlendis, það eru tvö óskyld mál. Hér er það eftirspurn og að- staða utanlands sem sníður þjóð inni stakkinn. Þetta er staðreynd sem Islendingar verða að sætta sig við hvort sem þeim líkar bet- ur eða verr, og á ekki að vera neitt feimnismál“. Hreinskilnin er ætíð lofsverð, því áð þá vita menn þó um hvað er að ræða, og i hverju vandamálið er fálgið. En eftir slíka yfirlýsingu hljóta menn að spyrja, hvort ástæða sé til að verja hér ærnu fé til læknis- náms. Hvort ekki sé ódýrara, þegar á allt er litið, að leigja menn erlendis frá til starfa hér fyrir það verð, sem alþjóðamark- aður segir til um. Um leið og þessi hugsun er sett fram, sjá allir, að hún er fjarstæða. En er þá ekki hugsunin, sem hún er svar við, jafn mikil fjarstæða? Er ekki nauðsynlegt, að í þessu sem öðru minnumst við þess, að umfram allt erum við íslending- ar og ætlum að vera? Ville Vi udmærke ham som en for- tjent Man“ í sáttanefridatilskipun frá 1797 fyrir strjálbýlið í Noregi, sem talin var gilda hér á íslandi. allt fram á fullorðinsár Skúla Guðmundssonar stóð i 39. grein.: ..Nár Nogen með uafbrudt Vinksomhed og Retskaffenhed har vedblevet at arbeide som Forligelses-Commisarius i 8 aar, villi. Vi utmærke hann, son en fortjent Mand, med en passende Rang, eller et andet Agtelses Tegn“. Skúli Guðmundsson hefur nú verið þingmaður í nær 30 ár ó- slfðtið, ráðherra um skeið, for- maður Innflutnings- og gjald- eyrisnefndar, kaupfélagsstjóri og gengt mörgum öðrum trúnaðar- stöðum ólíkt veigameiri en þótt hann hefði orðið sáttanefndar- maður fyrri. Hann á því að baki a.m.k. fjórum sinnum átta ára „uafbrudt Virksomhed" og þyk- ist áreiðanlega á sinn veg hafa sýnt „Retskaffenhed". En „pass- ende Rang eller et andent Agt- elses-Tegn“ hefur honum ekki hlotnast. Enda hefur Skúli nú eftir þessa nær 30 ára þingsetu öðlast nýtt áhugamáL Lenp;i beðið S.l. fimmtudag var á Alþingi útbýtt svohljóðandi þingskjali: Tillaga til þingsályktunar um afnám fálkaorðunnar. Flm.: Skúli Guðmundsson. Alþingi ályktar að fela ríkis- stjórninni að beita sér fyrir því, að öll ákvæði um hina íslenzku fálkaoi'ðu og orðunefnd verði numin úr gildi. Þó skulu þeir, sem hlotið hafa fálkaorðuna, halda þeim heiðursmerkjum. Greinargerð. Hér er farið fram á það að fella niður orðuveitingar og spara útgjöldin sem til þess fara. Orðan barzt frá grönnum okk- ar, eins og fleira þarflaust tild- ur. Þeir eru vanir þessu, t.a.m. Danir. Og sagt er, að Rússar sæmi ýmsa svpna skrauti. Það er hengt á vildarvini valdhafanna í heiðursskyni. Þó að sumir fái krossa, þá munu fleiri mæla, að enginn ís- lendingur ætti að dýrka þannig glingur". Þau eru súr, sagði refurinn, þegar hann náði ekki í vínber- in. 38 á einum degi Framsóknarmenn eru ósinkir á a‘ð bera fram tillögur um ýmis konar útgjöld. Þegar þeir eru að þvf spurðir, hvernig afla eigi fjár til þessa eða hins, er svar- ið oftast á þá leið, að ríkisbákn- ið sé orðið svo mikið, að með því að skera það niður megi spara stórfé. Þá gleyma þeir því raunar, að engir hafa átt meiri hlut að en sjálfir þeir á löngum valdaferli, að móta þetta ríkis- bákn. Látum það vera, og víst hafa þeir ekki verið þar einir að verki. En ætla mætti, að nú þegar þeir hafa frí frá stjórnar- störfum gætu þeir þó bent á eitthvað ákveðið, sem spara mætti. Úr því vill verða lítið. Langflestar tillögur þeirra fara þvert á móti fram á útgjöld og aftur útgjöld og nýjar uppbætur við ríkisbáknið á flestan hugs- anlegan veg. S.l. miðvikudag taldi^ Ingólfur Jónsson t.d. saman, að sam- kvæmt framsóknartillögunum á dagskrá þennan eina dag ætti að skipa nýjar nefndir með hvorki fleiri né færri en 38 mönn um! Minna mátti ekki gagn gera. „Innlendur iðnað- ur lífsnauðsyn66 Þórarinn Þórarinsson hefur nú tvo mfðvikudaga í röð gert að umtalsefni orð Bjarna Benedikts sonar í flokksráðsræðu hans um islenzkan iðnað. Þórarinn telur stjórnina ekki sýna íslenzkum iðnaði nægan skilning eða stuðn ing og sagði á miðvikudag- inn orðrétt: „Ég gaf li'ka skýringu á því á seinasta fundi, af hverju þetta skilningsleysi ríkisstj. stafar. Það er að finna í mjög sva merkilegri ræðu, sem hæstv.for- srh. flutti að því að mig minnir á flokksráðsfundi hjá Sjálfstfl. fyrir nokkru sfðan, þar sem hann tekur það beint fram, og það oftar en einu sinni, að ís- lenzkur iðnaður sé alls ekki sam keppnisfær við erlenda iðnaðar- framleiðslu". Síðan las Þórarinn á strjálingi nokkur ummæli Bjarna Bene- diktssonar, lagði út af þeim jafn óðum og sagði síðan: „Er þetta ekki fullkomin staðfesting á því, sem ég sagði, að hæstv. fosrh. hefði haldið því fram, að ís- lenzkur iðnaður væri ekki sam- 'keppnisfær við erlenda fram- leiðslu". í upphafi þess, sem Þórarinn las eftir Bjarna Benediktssyni voru þessar setningar: „Það gef- ur auga leið, að hinn íslenzki smáiðna'ður á mjög erfitt með að standast samkeppni við er- lenda fjöldaframleiðslu. Menn verða að gera upp sinn hug um, hvort þeir styðji hinn íslenzka smáiðnað, til þess að halda lífi gegn þessari erlendu fjöldafram- leiðslu“. Það er sannarlega íhugunar- vert fyrirbæri, að maður sem hefur þessar setningar fyrir aug unum og les þær sjálfur upp á milli sinna eigin orða, skuli leyfa sér að halda því fram, að Bjarni Benediktsson taki það beint fram, og þáð oftar en einu sinni að „íslenzkur iðnaður sé alls ekki samkeppnisfær við erlenda iðn- aðarframleiðslu". Bjarni margtekur fram, að hann er að bera saman er- lenda fjöldaframleiðslu „og ís- lenzkan smáiðnað“, sem ‘ við hana verði að keppa en ekki ann an íslenzkan fðnað. En einnig um smáiðnaðinn á það við sem Þórarinn sleppti í upplestri sín- um, að Bjarni taldi að hann yrði að styrkja vegna „atvinnuörygg- is“ og til þess að halda verðlagi á erlendum iðnaðarvörum niðri. Bjarni kvað svo sterkt að orði, áð slíkur iðnaður gæti verið okk ur lífsnauðsyn og einn þátturinn í því að halda hér uppi „sér- stöku og sjálfstæðu þjóðfélagi“. Það þarf meira en litla bíræfni til þess að halda því fram, að "slík ummæli sýni skilningsleysi í garð iðnaðarins.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.