Morgunblaðið - 25.11.1966, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 25.11.1966, Blaðsíða 2
2 MORGUNELAÐIO Fostudagur 25. nóv. 1966 Jéhann Halsfiein á lundi í Sópovðgi n.k. þriðjudag Sjálfstæðisfélögin í Kópavogi efna til fundar í Sjálfstæðis- húsinu við Borgarholtsbraut n.k. þriðjudagskvöld 29. nóv. kl. 20.30. Á fundinum mun Jóhann Hafstein, dómsmálaráðherra flytja ræðu er hann nefnir Við- reisn- löggjöf og framkvæmdir Sjálfstæðisfólk í Kópavogi er hvatt til þess að fjölmenna og taka með sér gesti. Ræddir verða reikningar frá árimi 1965 BÆJARSTJÓRN Kópavogs heldur fund í Félagsheimilinu í kvöld, og hefst fundurinn kl. 7. Á dagskrá verður: Rætt um reikninga bæjar og stofnana hans fyrir árið 1965. Ráðnir yfirmenn hja álverksmiðjunni Tæknilegur framkvæmdastjórí Ragnar Halldórsson BÚIÐ er að ráða menn í nokkrar hæstu stöður hjá álverksmiðj- unni, en skrifstofa ISALS í Hafn arfirði verður opnuð 1. janúar. Á meðan fer fram undirbúnings- vinna, unnið að teikningum o. fl., en engar framkvæmdir eru í gangi hér nú. Mbl. leitaði upp- lýsinga um mannaráðningar hjá Halldóri H. Jónssyni, stjórnarfor manni hjá ISAL. Hann sagði að ráðinn hefði veríð íslenzkur tæknilegur fram- kvæmdastjóri, Ragnar Halldórs- son, verkfræðingur. Er hann ráð- inn frá 1. janúar nk., en verður íyrstu 1—2 árin við störf í Sviss. Vilhjálmutr Þorláksson, verk- fræðingur, hefur þegar tekið til starfa og er nú í Sviss. Sigúfrður Briem rafmagnsverkfræðingur, byrjar 1. janúar og verður einnig enlendis fyrst. Þá hefur verið ráð inn arkitekt, Haralidur Haralds- son, sem mun verða aðstoðarmað ur hinna erlendu arkitekta og einnig við eftirlit með fram- kvæmdum í Straumavík. Svein- björn Sigurðsson verður teiknari me'ð verkfræðingum og Samúel Sveinbjörnsson teiknari með arkitektum. Auk íslendinganna er fyrir skömmu búið að ráða tvo Sviss- lendinga til að standa hér fyrir framkvæmdum. Philip Múller verður viðskiptalegur fram- kvæmdastjóri og Streiahenberg verklegur framkvæmdastjóri, en báðir verða þeir við byggingar- framkvæmdir hér. Arkitektinn, sem sér um byggingarnar heitir Mr. Heller. Koma þessir menn til íslands 1. janúar eða snemma á næsta ári. En skrifstofa fyrir- tækisins verður opnuð um ára- mót, sem fyrr er sagt SKIPIN Haraldur, Sólfari og Höfrungur III. eru á leiðinni hingað með síld til söltimar og frystingar. Línubáturinn Rán var einn á sjó í gær í vondu veðri og aflaði um fjórar smálestir. H.J.Þ. Mynd þessa tók Sv. Þorm. af árekstrinum í Smálöndum í fyrrakvöld en þar rákust saman Landrover-bifreið og fólksbifreið. Slasaðist annar ökumaðurinn lítillega, en báðar bifreiðarn- ar skemmdust mikið eins og sjá má. ASI-þing samþykkir skipu- lagsbreytingar á sambandinu Þingið skal koma saman affur eigi síðar en 15. nóv. 1967 30. þing Alþýðusambands fs- lands samþykkti í fyrrakvöld til- lögur Skipulags- og laganefndar um breytingar á skipan ASÍ. í tillögum nefndarinnar er gert ráð fyrir, að ASÍ verði í fram- tíðinni samsett úr starfsgreina- samtökum í stað einstakra verka lýðsfélaga áður. Sjö nefndar- menn voru samþykkir tillögunni, en tveir framsóknarmenn og einn alþýðubandalagsmaður skrifðu undir með fyrirvara. Einn nefndarmaður var fjarver- andi afgreiðslu málsins. Eðvarð Sigurðsson framsögu- maður nefndarinnar, sagði, að nefndin hefði setið að störfum og fjallað um þetta mál allt frá því hún fékk það til meðferðar. Hann sagði, að nefndin hefði orðið sammála um málið í öll- um aðalatriðum, en þó hefðu þrír skrifað undir með fyrir- vara, en ekki taldi hann að um neinn verulegan ágreining væri að ræða. Töluverðar umræður urðu um málið og sýndist sitt hverjurn, en um kl. 00.30 var tillagan sam- þykkt, og fer hún hér á eftir. í fyrsta lagi er álit og tillögur nefndarinnar, þá tillaga um breytingu á lögum ASf, ákvæði til bráðabirgða og loks tillaga um kosningu milliþinganefndar, er gert er ráð fyrir að sama þing og nú situr komi saman til þess að afgreiða málið til fulln- ustu eigi síðar en 15. nóvember 1967. Hörð kosningabarátta í Ástralíu og Nýja-Sjálandi Eyre, varnarmálaráSherra IVIýia-Sjálands, segir Asiu menn 9ekki eins og annað fólk* Melbourne (Ástralia), Auckland (Nýja Sjáland), 24. nóvember — AP — NTB — GENGH) verður til þingkosn- inga í Ástralíu og á Nýja Sjá- Fyrr um dagin hafði Holt lýst því yfir, að hann hefði í hyggju j að beita sér fyrir banni við skipulögðum óeirðum, meðan á stæði kosningabaráttu í landinu, landi n.k. sunnudag. Kosninga- j Miklar deilur hafa staðið í Ástra baráttan hefur einkennzt af líu að undanförnu um styrjöld- hörku síðustu daga, og hefur komið til óeirða í báðum lönd- unum. ina í Vietnam, og mun það vera meginorsök þess, hve oft hefur komið til átaka undanfarna í dag kom til mikilla óeirða úaga. í Melbourne, og var það annan j í gærkvöld, miðvikudagskvöld daginn í röð. Um 1000 manns j var Holt, forsætisráðherra, sleg- söfnuðust í dag saman umhverf- ! inn í höfuðið, á hann hrækt og is bifreið forsætisráðherrans, ! sparkað í bifreið hans, á kosn- Harold Holts, er hann var að ingafundi í Sidney. Þar mót- halda af kosningafundi í Caul- t mæltu ýmsir því, að ástralskir field, útborg Melbourne. hermenn skyldu vera sendir til að berjast í Vietnam. Forsæt- isráðherrann mun ekki hafa orð ið fyrir neinum meiðslum. í Auckland var frá því skýrt í dag, að varnarmálaráðherrann, Ðean Eyre, hefði lýst því yfir, að „hann myndi auka loftárásir á N-Vietnam“, ef hann fengi einhverju þar um ráðið. Höfuðandstæðingur Eyres, Norman Kirk andmælti þessum ummælum í dag. Eyre sagði í gær, miðvikudag, ða Asíubúar væri „ekki venju- legt fólk, ólíkt okkur“. Um þessi ummæli sagði Kirk, að hér væri um að ræða „ómennsku“. Það fengist ekki staðizt í ljósi þess, að Ný-Sjálendingar aðhylltust ekki kynþáttahatur. Álit og tillögur Laga og skipa- lagsnefndar. „30. þing Alþýðusambands fs- lands ítrekar fyrri samþykktir sambandsþinga um skipulags- mál. Á grundvelli þeirra og með hliðsjón af fenginni reynslu, lýsir þingið yfir því að það tel- ur að leysa beri skipulagsmálin í aðalatriðum á eftirfarandi grundvelli. 1. Alþýðusambandið verði heildarsamtök verkalýðsins, byggt upp af landssamböndum stéttarfélaga í meginatriðum á grundvelli fyrri samiþykkta og þeirrar þróunar, sem siðan hef- ur orðið. Þeim núverandi sam- bandsfélögum, sem ekki verður skipað í landssambönd, skal heimil áframhaldandi bein að- ild að Alþýðusambandinu, en leitast skal við að skapa mögu- leika á að þau geti skipað sér í landssambönd. Blönduð félög, t.d. sjómanna og verkamanna geta átt aðild að fleiri en einu landssambandi, með deildarskipt ingu, eða öðrum hætti sem sam- komulag verður um milli við- komandi landssambanda og fé- laga. Jafnframt geri stjórnir lands- sambandanna í samráði við að- ildarfélögin og viðkomandi fjórð ungssambönd áætlun um stækk un félagssvæða og aðrar tiltæk- ar aðgerðir, til að treysta starfs- grundvöll hinna smærri félags- eininga. 2. Landssamböndin verði skipu lögð eftir starfsgreinum og fari þau með mádefni starfsgreinar- innar eftir því sem fyrir verður mælt í lögum A.S.Í. og sam- þykktum landssambandanna. 3. Núverandi sambandsfélög verði aðilar að landsambandi viðkoanandi starfsgreinar og kjósi fulltrúa á þing þess, eftir nánar ákveðnum reglum. 4. Landssamböndin verði bein ir aðilar að Alþýðusambandir.u og þing A.S.Í. verði skipað full- trúum landssambandanna, og fé- laga sem utan þeirra kimna að standa, kjörnum eftir reglum, sem settar verða í lögum Ai- þýðusambandsins. 5. Réttarstaða núverandi fjórð ungssambanda og fulltrúaráða verði ákveðin í lögum Alþýðu- sambandsins. Fjórðungssamböndin og full- trúaráðin verið tengiliður milli félaga á sambandssvæði sínu, landssambandanna og A.S.L Þau fari með sameiginleg mál efni félaganna og hafi á hendi þjónustu fyrirgreiðslu fyrir þau. Framhald á bls. 31 Stefán Jónsson. ,Gaddaskata' ný hók Stefáns Jónss. „GADDASKATA" heitir ný- útkomin bók eftir Stefán Jóns- son, útvarpsmann, en það er fimmta bók hans síðan 1961, að hann sendi frá sér „Krossfisk- ar og hrúðukarlar", en síðan fylgdu „Mínir menn“, „Þér að segja“ og „Jóhannes á Borg“. Undirtitill hinnar nýju bókar er: „Einnig tveir og sjö kaflar um hitt og þetta“. Um bókina segir útgefandi (Ægisútgáfan) m.a.: „Gaddaskata er svipuð fyrstu bók Stefáns, sem út kom fyrir , fimm árum og hét „Krossfiskar og hrúðurk^flar“ — Enn hefur ■ ekki tekizt að finna heiti á þá tegund bókmennta. Nafnið valdi | höfundur þá með tilliti til inni- halds, — krossfiskar og hrúður- karlar koma upp á línunni, eru skrítin sjávardýr en ekki nyt- samleg og rispa menn í góma. Gaddaskata, mun hafa hlotið nafn með líkum hætti, líkt er til sérkennilegs fiskjar, sem er að vísu hin gómsætasta soðn- ing, en dregur nafn af gödd- um, sem getað rispað dálítið ef klaufalega er á þeim tekið. Og ennfremur segir útgefandi: Gaddaskata kemur víða við og margir kynlegir kvistir koma við sögu. Stefáni er sú list lag- in að gera lesandanum persón- urnar skýrar og ljóslifandi. 20 teikningar eftir Ragnar Lárusson prýða bókina.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.